Jón Gnarr með myndum og grein.

Eins og ég minntist á í fyrradag þá birtist grein um Jón Gnarr borgarstjóra í blaði atvinnlausra hér.  Greinina kann ég ekki að lesa, en skilst að það sé góðlátlegt grín, en samt með virðingu fyrir nýjum kafla í pólitík.  En hér er Gnarrinn, eða Narrinn.

Jón Gnarr1

Inn í blaðinu var svo heilsíðugrein um hann. 

Jón Gnraa2

 Hér er viðtalið.

Jón Gnraa2

Hér er svo myndin inn í blaðinu.  Ef til vill kemur siðabótin og nýbreytnin frá okkur íslendingum eftir allt saman.  LoL


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Þeir hafa ekkert minnst á hvað hann sé líkur Hitler?

Hrönn Sigurðardóttir, 11.1.2011 kl. 15:09

2 identicon

Jókerinn vekur alls staðar athygli.

Dísa (IP-tala skráð) 11.1.2011 kl. 19:42

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Mér datt það óneitanlega í hug Hrönn sérstaklega neðri myndin O svo finnst mér vera sterkur svipur með Óttari Proppé og hvuttanum, en hann er algjört krútt. Reyndar báðir.

Dísa já ég held að Gnarrinn vekji áhuga fólks víða.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 11.1.2011 kl. 19:56

4 Smámynd: Auður Matthíasdóttir

Gaman að lesa um frama þinn á sviði tamninga!  Fjölhæft starf að vera Au pair 

Fróðlegt að sjá þessa umfjöllun um Jón G. leikara og núverandi borgarstjóra.  Nokkuð gott : Jón Gnarr - ein Narr!

Hvað verður í framtíðinni um þessa meirihlutastjórn í borginni mun tíminn leiða í ljós.  Þegar orðnir hlutir eru fremur óskemmtilegir, ekki til þess fallnir að byggja upp traust.  Embættismenn/konur eru  í undarlegri stöðu innan borgarmúranna! 

Er þetta  leikaraskapur fyrir framan nefið á okkur undrandi almenningi?     Hvað heldur þú Ásthildur Cesil? 

Hafðu það mega gott í Austurríki og njóttu vel !   Afar holl og góð hugmynd að breyta um svið um stund.  Kær kveðja!

Auður Matthíasdóttir, 12.1.2011 kl. 01:08

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Sæl Auður mín og takk fyrir innlitið, ég veit svo sannarlega ekki, en  vona að þetta leiði til góðs inn í framtíðina.  Við verðum víst að gefa öllum hlutum tækifæri, þó svo ég hefi ekki verið hrifin af þessum framboði, þá getur vel verið að þetta hafi einmitt þurft að gerast til að sýna fólki fram á alvöruna á því að nýta atkvæðið sitt í kosningum.   Því vissulega berum við mikla ábyrgð á ástandinu með því að kasta atkvæði okkar á glæ oft á tíðum.

En ég held að þau séu einlæg í því sem þau eru að gera, en held jafnframt að þau hafi ætlað sér um of, og séu komin út í fen sem þau losna ekki út úr.  Jón til dæmis ég held að honum veitist erfitt að byrja aftur í leikaraskapnum eftir þessa uppákomu.  Því við erum nú einu sinni þannig að við hleypum fólki ekki of langt.  Það næðir alltaf um fólkið á toppnum. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 12.1.2011 kl. 06:29

6 identicon

Alltaf jafn gaman að lesa bloggið þitt. Gangi þér vel í öllum þessum fjölbreyttu störfum í Austurríki.

ingibjörg kr. einarsdóttir (IP-tala skráð) 14.1.2011 kl. 16:57

7 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk Ingibjörg mín kveðja frá mér.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 15.1.2011 kl. 10:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.6.): 4
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 42
  • Frá upphafi: 2023333

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband