10.1.2011 | 22:40
Smá saga um aupair í Austurríki.
Jæja þá er fyrsta degi lokið sem aupair í Austurríki. Nú liggur ljóst fyrir í hverju það felst. Ég vakna kl. hálf sex þ.e. á íslenskum tíma hálf fjögur með litlu skvísunum mínum, það þarf að vekja þær klæða og gefa að borða og koma þeim í skólann. Já sagði dóttir mín, svo förum við út í hesthús.... Ha sagði ég, förum við út í hesthús??? já, það er best að fara beint frá skólanum út í hesthús. Eins gott að hún sagði það það hafði einhvernveginn farið fram hjá mér að ég ætti að fara þangað
Fyrst að fara niður allar bröttu brekkurnar sem ég hafði óttast svo mjög, það var reyndar allt í lagi með þær enda er ég vanur bílstjóri og vön að aka í hálku, sem reyndar var ekki staðreyndin í morgun. Svo var stelpunum skilað í skóla og leikskóla.
Svo lá leið mín út í hesthús þar sem þarf að þjálfa fimm hross, þ.e. láta þau brokka og valhoppa í skemmu, gefa þeim brauð og koma út í gerði.
Svo er að koma heim, ef tími er til kíkja á bloggið og svo þarf að sækja litlu skvísuna mína sem vill helst ekki fara í leikskólann svona eftir jólafríið. Ekki gott að komast á netið eftir það, því hún þarf að horfa á DDDDóru eða eitthvert annað myndband Svo þarf að sækja skóladömuna um fjögurleytið. 'Eg er samt ekki að kvarta því mér finnst þetta frábært. Ætlaði ég ekki að breyta algjörlega til???
Hér eru komnir tveir kostgangangara, einn þýskur og annar austurrískur sem eru í skólanum með Bjarka, svo það þarf að sýna vissa útsjónarsemi við eldamennskuna. En ég er sem betur fer vön því síðan í árdaga þegar við Elli minn vorum að byrja að búa með ekkert milli handa.
Það var dálítið hrollvekjandi í morgun að þurfa að byrja á að aka bílnum niður þessar rosabrekkur, en dóttir mín var alveg ákveðin mamma þú ekur..... ókey hugsaði ég þetta er nú bara hérna niður stóru brekkuna og leikskólinn og skólinn bara rétt fyrir neðan. Svo þegar við höfðum skilað stelpunum okkar, sá ég mér til hryllings að dóttir mín gekk einbeittum skrefum beint á farþegasætið... á ég að aka??? alla leið út í hesthús... spurði ég og vonaði að hún hefði bara gleymt sér smá.... Já mamma þú ekur.
Þar fór það, ókey ég vildi ekki vera chicken og ákvað að láta sem ekkert væri, ég er auðvitað vön að aka allskonar bílum, en við þurftum að aka gegnum Mattersburg
Mér tókst þetta þokkalega, nema dóttir mín ætlaði að deyja úr hlátri þegar ég var komin í fjórða gír, en pústið er bilað á bílnum, svo það er erfitt að hlustá á vélina.... Hún ætlaði að benda mér vinsamlegast á að ég væri í fjórða gír á 50 km. hraða, og ég setti hann umsvifalaust í fimmta gír
Dóttir mín dó hreinlega úr hlátri. En það er nefnilega þannig að maður þarf smá tíma til að þekkja bíl og sér í lagi ef hann er ekki með hljóðkút.
Við komumst svo klakklaust út í hesthúsið, og svo var byrjað á Birtu fyrsta hrossinu, ég náttúrlega búin að gleyma öllu um hesta og beisli og þvíumlíkt. Vonaði svona innst inni að við ætluðum bara að þjálfa þetta eina hross
En annað kom á daginn, næst var það Strútur hann er með háls eins og strútur, karlinn í þessu hrossasamfélagi, hann var þungur á bárunni, en flottur samt. Ég hugsaði með mér, af því dóttir mín sagðí mér að hin væru tryppin að sennileg myndi ég sleppa við að láta þau hlaupa. En nei mér varð ljóst að hér voru enginn undarbrögð, ég þyrfti að þjálfa öll fimm hrossin, láta þau brokka og stökkva fimmtíu hringi og halda þeim við efnið. Allt var farið að hringsnúast í hausnum á mér, eftir hross númer tvö, en só be it, ekki ætlaði ég að gefast upp.
Dóttir mín ætlar að koma með mér aftur á morgun og ég lofa að taka myndavélina með og sýna ykkur hvernig ég tek þetta með Western style
Ég get svo svarið það, mín er komin á fullt í ævintýri sem ég veit ekki hvernig endar, en er það ekki bara amen á eftir efninu??? Held það bara. Eg er allavega á lífi og að takast á við eitthvað annað en heima hjá mér. Við höfum sennilega öll gott af að rífa okkur upp á rassinum og treysta á guð og lukkuna, lifa er það ekki sem þetta allt snýst um?
Eigið gott kvöld, það er komin tími á mig enda klukkan orðin margt hér í Austurríki. Og allir sofnaðir nema ér.
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.6.): 4
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 42
- Frá upphafi: 2023333
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 35
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hæ,hæ! knapi,engir gírar á hestunum,þess vegna hef ég ekki lært á gang þeirra. Systir mín er aftur á móti fag manneskja og fór um landið að kenna börnum,á vegum L.H. Eru þessir íslenskir? Selst urmull af þeim til þýskalands. Kv(-:
Helga Kristjánsdóttir, 10.1.2011 kl. 23:11
Finn til með þér, hef ekki keyrt beinskiptan bíl nema einu sinni í 42 ár og aldrei komið á hestbak, þó ég ætti fimm hálfa hesta í eina tíð. En samt er nú alltaf gaman að vera með börnunum þó erfitt geti verið
Dísa (IP-tala skráð) 10.1.2011 kl. 23:23
Ásthildur, eru þetta íslenskir hestar? Annars mér finnst ég vera kominn til Austurríkis. Á áhorfendapallana. Njóttu.
Sigurður Þorsteinsson, 11.1.2011 kl. 00:13
Þesssir hestar eru allir íslenskir, og það eru líka allir hestarnir í Hofinu sem austurríkismenn kalla svo, það eru hesthúsin þeirra. Hér er mikið um íslenska hesta og íslandsmenningu, hér eiga allir lopapeysur og hestarnir heita íslenskum nöfnum. Nú er að sjá hver er dugurinn í kerlunni, dagur tvö að byrja.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 11.1.2011 kl. 06:09
Þetta virðist vera hörkupúl að vera aupair hjá Báru. En verður vonandi þrælgaman þegar þú ert komin inn í þessa rútínu. Vonandi verður dagur 2 skárri en í gær
Knús til Austurríkis
Kidda, 11.1.2011 kl. 08:47
Já það gekk mikið betur í dag, hrossin voru auðveldari og ég var líka fljótari. Þetta verður bara gott fyrir sálina í mér og jafnvel skrokkinn líka.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 11.1.2011 kl. 10:19
Það ætti að banna annað en sjálfskipta bíla. Ég keyri helst ekki beinskiptan bíl, ég hreinlega nenni því ekki, því eins og sagt er: Maður á aldrei að standa þegar maður getur setið og aldrei að sitja þegar maður getur legið. Svo þú átt samúð mína alla.
Jóhann Elíasson, 11.1.2011 kl. 11:08
Tek sko undir það að beinskiptan bíl er bara ekki mögulegt að eiga.
Til hamingju með nýja lífið þitt elsku vinkona það er bara gleði og gaman hjá ykkur þrátt fyrir brekkur
Knús til þín og þinna
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 11.1.2011 kl. 12:11
Ótrúlega spennandi hjá þér.Þú ert dugleg að keyra þarna .Kveðja frá Bergen
Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 11.1.2011 kl. 12:25
Takk öll, ég hef ekið öllum tegundum af bílum. Það versta var þegar ég var að skipta yfir frá beinskiptum yfir á sjálfskiptan, þá vildi drpast á þeim beinskipta á götuhornum
Takk annars fyriri innlitið, ég ætla að setja nokkrar myndir inn í kvöld eða á morgun. Þetta eru eðalhross.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 11.1.2011 kl. 14:39
Mér þykir þú aldeilis dugleg! ;-)
Jóhanna Magnúsdóttir, 12.1.2011 kl. 00:32
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.