8.1.2011 | 23:23
Er ekki komið nóg?
Ég er búin að vera að lesa bloggið núna undanfarið og er alveg undrandi á því hvernig evrópusinnar eru sannfærðir um ágæti þess að fara inn í esb. Það er svo margt sem mælir á móti því og þeir sem hugsa sjálfstætt sjá það með berum augum. Samt sem áður koma þessi kjánar og hamra á ágæti þess að fara inn í sambandið þótt öll merki séu um það að það sé algjört glapræði. Ég hef áhyggjur af því að Samfylkingin sem mælist nú með mjög lítið fylgi sé að pota okkur nauðugum og óviljugum inn í þetta svarthol. Það er eitthvað mikið að þegar fámennur hópur hrópara og leigupenna reyna að koma því á framfæri að við viljum endilega komast inn í esb skrifað viljandi með litlum staf. Það er líka alveg ótrúlegt á þessum tímum uppgjörs og krýsu í þjóðarsálinni að forsætisráðherra og hennar tindátar vilji endilega kjúfa þjóðína í herðar niður með þessu gæluverkefni sínu. Annað hvort þekkja þau ekki sinn vitjunartima eða þeim er fjandan sama, því þau hafa nú þegar sett sér að koma okkur inn í þessa svikamillu, sennileg að mínu mati með mútum frá sambandinu. Að mínu mati hefur þeim verið lofað einhverskonar embættum eða dúsum til að vinna að þessu óheillaráði.
Mest kemur mér á óvart að þau skuli komast svona langt með þessi svikráð við þjóðina, þegar ljóst er að meirihluti hennar er algjörlega á móti aðild.
Það er von að fólk spyrji sig hvar er stjórnarandstaðan, hvað eru þau að hugsa og hvernig má það vera að ekkert er gert til að koma þessu svikapakki burtu?
Við almennir borgarar eru búin að fá upp í kok af ríkisstjórninni, það eru tunnumótmæli, það eru allskonar mótmæli á netinu og það eru umræður í eldhúsum og vinnustöðum sem sýna að fólk vill breytingar.
Ég er ein þeirra sem vill fá utanþingsstjórn, ég vil losna við Jóhönnu Sigurðardóttur, Steingrím J. Sigfússon, Össur Skarphéðinsson og þau öll sem sitja þarna vonlaus og vitlaus að mínu mati.
Ég vil skora á forseta vorn að taka af skarið og stöðva nú þegar andvana ríkisstjórn og setja á fót utanþingsstjórn skipaða færu fólki sem kann að reka fyrirtæki og er óháð pólitík.
Oft var þörf en nú er nauðsyn. Hingað og ekki lengra þetta er komið nóg af lygum, falsi, feluleikjum og einræði.
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.6.): 4
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 42
- Frá upphafi: 2023333
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 35
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Mikið skil ég þig Ásthildur Cesil. Þetta ESB mál er nú þegar búið að kljúfa þjóðinni og sundra þjóðinni meira en nokkurn tímann var á Sturlungaröld.
Samfylkingin þetta úrtölulið, er mesti og versti landráflokkur lýðveldisins.
Svo talar þetta hyski alltaf dygurbarkarlega eins og þeir séu hinn eini sanni meirihluti þjóðarinnar !
Þvílíkir hyppókratar !
Gunnlaugur I., 8.1.2011 kl. 23:35
Alveg frábær pistill og gegnheill og þeir eru örugglega margir sem eru á nákvæmlega sama máli.
Jóhann Elíasson, 8.1.2011 kl. 23:49
Sæl Áthildur mín! Ég datt inn á blogg,minnir það vera hjá Rakel,sem er með áskorunarlista til forseta. Ekki treysti ég mér til að muna hvrnig hann er orðaður en ,utanþingsstjórn er á óskalistanum. Ég setti nafn mitt þar á, því eins og þú veist er ég ógeðslega á móti esb og Icesavenauðung. Afhverju sameinumst við ekki öll í einu stóru batteríi,um þesi mál,þegar sf.og vg.geta haldið velli,með þetta eina landráðamál. Kv.
Helga Kristjánsdóttir, 8.1.2011 kl. 23:59
Já ég var í upphafi ánægð með þessa ríkisstjórn, þó ég kysi hana ekki, en hélt að VG myndi halda sínu striki. Það voru því mikil vonbrigði að uppgötva að þau voru tilbúin til að svíkja öll sín loforð til að halda stólunum. Ég vona er að vona að Lilja og þau sem þar verma sætin segi skilið við þetta svikapésa og felli þar með þessa ömurlegu svikara.
Þetta er alveg með ólíkindum að það sé hægt að ganga svona algjörlega á skjön við allt sem þau lofuðu fyrir kosningar. þarna þarf virkilega að taka á og setja lög um að svona svik við kjósendur séu slík brot að við liggi fangelsisdómur.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 9.1.2011 kl. 00:01
Það er ótrúlegt að stjórnmálaflokkur sem fékk 30% fylgi í síðustu kosningum hafi komið þessari umsókn inn í ESB í stjórnarsáttmálann...
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 9.1.2011 kl. 01:02
Heil og sæl Ásthildur Cesil - og þið önnur; ágætir gestir hennar !
Þarna sjáið þið; í hnotskurn, hversu vinstra hyskið er áþekkt miðju moðinu, sem áður fór með völdin, hér á landi.
Og; Ásthildur. Láttu þér ekki; til hugar koma, að Lilja og Ögmundur, séu hótinu betri - en þau önnur, af Steingríms, og Jóhönnu slektinu.
Með kveðjum góðum; úr Árnesþingi /
Óskar Helgi
Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 9.1.2011 kl. 01:18
Ég tel mig alveg hugsa sjálfstætt, takk fyrir, og hef sömu skoðun á samfylkingunni og þú. Samt vil ég fara inn í ESB eftir að hafa snúist marga hringi með það. (Hef þó ekki snúist neitt núna í tæpt ár.)
Ég er alveg undrandi á að þú skulir alhæfa jafn mikið og þeir sem þú gagnrýnir fyrir alhæfingar.
Góðar kveðjur,
Billi bilaði, 9.1.2011 kl. 10:58
Slöppum af og sjáum hvernig samningi við náum.
Við erum hluti af Evrópu og milliríkjasamskipti okkar á öllum sviðum eru mest við þetta svæði.
Svo tel ég að með aðild myndi draga mjög úr bestu-vina-sérhagsmunapoti sem gegnsýrir þjóðfélagið og kom okkur þangað sem við erum komin núna.
-Skoðum málið án heittrúarofsa!
Jón Ragnar Björnsson, 9.1.2011 kl. 11:22
Sammála þér Cesil. Eina ástæðan fyrir löngun fólks í ESB eru peningar, ekkert annað en væntingar um að frá þeim streymi hingað ógrynni fjár. Það eru bara landráðamennirnir sem fá pening fyrir að eitra fyrir okkur undir nafni upplýsinga, fjölmiðlunar og jafnvel út í það fíflalegasta sem eru sérstök "fræðasetur" í háskólum sem stýrð eru af launuðum landráðamönnum. Sumir þessara landráðamanna er fastir "álitsgjafar" í fjölmiðlum, falsa umræðuna undir fölskum nöfnum og eru síðan verðlaunaðir með kosningu á stjórnlagaþing.
Ég á ekki orð yfir þennan viðbjóð sem er í gangi og óttast í alvöru að þetta sé tapað stríð vegna ofureflis peninga sem fer í áróðurinn og mútur til þeirra sem geta haft áhrif. Mest óttast ég að málum verði þannig komið fyrir að Alþingi verði keypt til fullveldisafsalsins af því að það er auðveldara að múta nokkrum þingmönnum heldur en heilli þjóð.
Þetta veður töff sjitt viðureignar svo maður bregði fyrir sig góðri íslensku!
Haukur Nikulásson, 9.1.2011 kl. 13:26
Jón Ranar, það hefur nokkuð oft komið fram að það verður ENGINN samningur, í hæsta máta einhver stutt AÐLÖGUN það er Rómarsáttmálinn sem ÖLL aðildarríkin VERÐA að fara eftir.....................

Jóhann Elíasson, 9.1.2011 kl. 13:53
Við erum hluti af Evrópu, við erum líka órjúfanlegur hluti af heiminum öllum. Það er barnalegt að halda að spillingin hverfi við inngöngu í ESB. Málið er að fólkið sem vinnur að því að koma okkur þarna inn, fær sína umbun. Það sagði mér maður sem býr út í Lúxemburgh að þar væri heill her af svona fyrirmönnum frá öðrum ESBlöndum. Þeir búa á besta stað í lúxusvillum, með einkabílstjóra á fínum bílum með börnin sín í einkaskólum. Ekki amalegt það. Svo má lesa hluti eins og þetta hér.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 9.1.2011 kl. 15:18
Tími til kominn fyrir undirskriftasöfnun gegn ESB og Icesave, og fylgja henni eftir
Björn Emilsson, 9.1.2011 kl. 16:20
Já sammála því algjörlega.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 9.1.2011 kl. 20:10
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.