Á ferð og flugi.

Þá er maður búin að svissa yfir algjörlega, nú er ég orðin Aupair í Austurríki.  Reyndar bara í mánuð, en það er afar notalelgt að knúsa litlu skvísurnar mínar meðan pabbi þeirra og mamma mennta sig.  Lokaprófin hjá dóttur minni eru í endaðan janúar.  Það var skrýtið að fljúga yfir Evrópu farandi frá Íslandi næstum marauðu og fljúga svo yfir endalaust hvíta Evrópu, í Danmörku voru vötn og sjór ísiþakin. 

Ég millilenti í Kaupmannahöfn ef bara þrjá klukkutíma, svo tími gafst ekki til að boða vini og vandamenn á hitting á Kastrup hvað þá fara inn í bæ í heimsóknir.  Það var síðan hálftíma töf hjá flugfélaginu Berlin air, af því að í miðju kafi þurftu starfsmenn á flugvellinum hleðslumenn og slíkir að mæta á fund hjá stéttarfélaginu.  Því miður sagði flugstjórinn, við erum að vísu öll komin um borð en málið er að engar töskur og farangur eru komnar um borð vegna fundarhalda hleðslumanna.  Hálftíma síðar sagði hann, nú eru töskurnar komnar umborð en við verðum að bíða eftir dráttarbílnum til að koma okkur frá útganginum.  Sé í anda okkar menn heima haga sér svona.....

En ég mun senda ykkur myndir af stelpunum okkar og svona.  Það er ágætt að komast svona í sólina, þó hér sé reyndar meiri snjór en heima, og meira frost, þá er sólin á sínum stað. 

Mér líður vel og allt í blóma hjá mér.  Það er nefnilega þannig hvað sem Eiður Guðnason segir, sá mæti maður að mér líður yfirleitt vel og er í jafnvægi.  Það er hans kjánaskapur og veikleiki að geta ekki tekið málefnalegri gagnrýni og loka á raddir sem eru ekki honum sammála.  En er þetta ekki einmitt pólitíkin í hnotskurn.  Hvorki Jóhanna né Steingrímur þola minnstu gagnrýni og vilja þagga niður slíkar raddir. 

Sem sagt þegar ég er búin að koma mér betur fyrir, mun ég sýna ykkur myndir og segja ykkur frá því sem fyrir ber.   Amman hér stóð út í dyrum þegar ég kom, og fagnaði mér ákaflega.  Þessi flotta kona sem fylgir húsinu, hér er sem sé ekki verið að hrekja fólk út á gaddinn þó eigandinn missi húsið sitt þá er ekki hróflað við foreldrunum, þau fá að vera í kjallaranum eins lengi og þau geta heilsu sinnar verið, nokkuð sem við mættum taka upp. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

 Ásthildur mín, það er þá þér að þakka. Jóhanna segir að landið sé að rísa,vissi hún að þú værir að fara út? Það munar  um minna, þegar stórhuga baráttu kona fer af landi brott,með alla sína vigt í andanum. Ég samfagna þér að geta verið hjá dúllunum þínum,verður gaman að sjá myndirnar þínar og daglegt dudd. Bestu kveðjur.

Helga Kristjánsdóttir, 4.1.2011 kl. 22:36

2 identicon

Hafðu það gott með öllum stelpunum þínum. Hlakka til að sjá myndir og frásagnir af dvölinni með þeim.

Dísa (IP-tala skráð) 5.1.2011 kl. 00:08

3 identicon

Ég bið að heilsa Bjarka og Báru og knúsaðu litlu fallegu stelpurnar frá mér ;)

Hafðu það gott úti!

Hjördís P (IP-tala skráð) 5.1.2011 kl. 08:59

4 Smámynd: Kidda

Njóttu þess að vera aupair með litlu skvísunum þínum.

Knús til Austurríkis

Kidda, 5.1.2011 kl. 10:41

5 Smámynd: Skafti Elíasson

Er Bjarki kominn í skóla ?

Skafti Elíasson, 5.1.2011 kl. 17:58

6 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Hehe Helga mín, ég hélt að ég hefði læðst úr landinu. 

Já Dísa mín ég ætla mér að setja inn myndir fljótlegla.

Skila því Hjördís mín. Takk

Geri það Kidda mín svo sannarlega.

Skafti minn Bjarki byrjar í skólanum 10 jan. þ.e. á mánudaginn næsta.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 5.1.2011 kl. 20:19

7 Smámynd: Dagný

Mikið var þetta nú sniðugt hjá ykkur. Litlu snúllurnar væntanlega verið alsælar að fá hana ömmu sína til sín. Vona að þið njótið lífsins í botn næstu vikurnar og hlakka til að sjá myndir af uppáhaldsbloggvinkonudótturdætrunum

Dagný, 5.1.2011 kl. 22:33

8 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Bestu kveðjur til Austurríkis...

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 5.1.2011 kl. 23:17

9 identicon

Sendi þér og þínu fólki, bestu kveðjur og óskir um velgengni á nýju ári. Og megirðu eiga góða daga í Austurríki. Kv. frá Selfossi, Steini Árna.

Þorsteinn Árnason (IP-tala skráð) 6.1.2011 kl. 04:53

10 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já Dagný mín þær eru alsælar með ömmuna sína

Takk Kolla mín skila því

Sömuleiðis Steini minn, knúsaðu frúna frá mér. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 6.1.2011 kl. 16:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.6.): 4
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 42
  • Frá upphafi: 2023333

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband