Þurfum við fleiri framboð?

Ég rakst á þessa upptalningu hjá bloggvini mínum Axel Þór Kolbeinssyni. 

Heimasíður stjórnmálasamtaka

Í stafrófsröð.

Þetta er enginn smá upptalning, af þessum 20 samtökum eru tvo sem ekki eru virk á heimasíðunni sinni. 

Þarna er auðvitað hægt að fara inn og skoða málefnasamninga flokkanna.  Það hlýtur bara að vera skráð á heimasíðurnar þeirra. 

Ég álít það frekar væri betra að þeir flokkar sem eiga þarna samleið sameinuðust frekar, heldur en að fólk hlaupi til og stofni nýjan flokk. 

Það verður ekki langt í kosningar, því er tímabært að menn fari að huga að framboðum, og fyrirkomulag kosninga.  Besta væri að kjósa persónur en ekki flokka. 

Við eigum að fara að kjósa menn eftir málefnum og hvernig þeir hafa staðið við sín kosningaloforð og hvernig þeir vinna en ekki hlusta eingöngu á kosningaloforðin. 

Í rúmlega 300.000 manna samfélagi höfum við ekkert að gera með 20 framboð eða jafnvel fleiri.  Nær væri eins og ég sagði áðan að forsvarsmenn þessara framboða kæmu saman og skoðuðu flöt á samstarfi eða sameiningu þeirra sem hafa svipaðar áherslur. 

Þetta er bara eins og í öllu sem við gerum, hver höndin upp á móti annari og öll erum við kóngar, sem höfun hinn eina rétta sannleika. Ef við viljum breyta samfélginu þá þurfum við að byrja á okkur sjálfum, fara að rökræða og gera málamiðlanir FYRIR KOSNINGAR.  Þora að refsa þeim sem ekki hafa staðið sig, og kjósa eitthvert annað framboð.  Þetta er lífsnauðsynlegt ef við viljum fá nýtt Ísland.  Þetta er allt saman í okkar höndum en til þess þarf þor til að breyta.  Við vitum hvað við höfum en ekki hvað við fáum.  En þegar við fáum það versta mögulega þá er varla hægt að segja að lengi geti vont versnað, ég held að við séum nú þegar komin á botninn, og náum ekki að komast lengra í baktjaldamakki, leikfléttum, svikum, og spuna en pólitíkusar viðhafa í dag.  Þannig er það bara. 

Byrjum á okkur sjálfum. 

c_documents_and_settings_erna_hjaltested_my_documents_blog_isl_faninn_713981


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

 Þetta er aldeilis runa, var ekki einn bloggari að velta fyrir sér að þeir yrðu eins margir og íbúafjöldi kosningabærra manna væri. Flestir geta sameinast um eitt. Stöndum vörð um sjálfstæði Íslands,það er þó eitthvað til að byrja á. Nú standa allir við sín fyrirheit,annað er ekki boðlegt.

Helga Kristjánsdóttir, 30.12.2010 kl. 14:15

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ég man einmitt eftir þessum bloggara, man ekki hver það var.  Já við verðum að standa saman kjósendur og fara að láta atkvæðin tala.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 30.12.2010 kl. 15:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 38
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 31
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband