26.12.2010 | 16:53
Jólin, hátíð ljóssins og vonarinnar.
Jólin eru róleg á mínu heimili. Ég er frekar löt og nýt þess vel við að lesa hanga á netinu og borða góðan mat.
Ég verð nú að segja að ég hef ekki fundið fyrir tilhlökkun né þessara venjulegu tilfinninga sem barnið í mér hafði alltaf fyrir jólin. Þó hefur mér alls ekki liðið illa, það er bara þessi tómleiki í hjartanu, sem er svo sem vel hægt að lifa við. Ég hef meiri áhyggjur af nokkrum vinum mínum þarna úti, og þeirra sem einhverra hluta vegna hafa farið á mis við jólahátíðina. Venjulega hefur ein þeirra dvalið í konukoti um jólin, en nú er hún í fangelsinu í Kópavogi. Samt sem áður virðist hún ekki vera döpur. Ég sendi henni kort fyrir jólin með nokkrum myndum sem ég vissi að myndi gleðja hana.
Það er einhvernveginn svo að þegar mér líður svona, þá gleðst ég heilmikið við að gleðja aðra. Og finna að það sem ég geri skipti máli.
Það er svo sem ekki þannig að ég þurfi að kvarta. Þau voru hér hjá okkur Sigga tengdadóttir Sigurjón og Ólöf og auðvitað Úlfurinn.
Sigurjón er fjörkálfur hinn mesti.
Og Snúður er jólaköttur líka, hér tekur hann Kol með varúð.
Hér er hann svo í jólaþvættinum, en hann var afskaplega forvitinn um jólapakkana.
Hann er líka eini kötturinn sem ég þekki sem vill láta ryksuga sig, þá snýr hann sér á alla kanta og vill fá ryksuguna jafnvel á magan sem bakið.
Jólasveinninn okkar og mamma hans.
Þó Snúði þyki gott að kúra á jólapökkunum var hann samt meira í að nappa sér kúlum af trénu og hlaupa með þær um allt.
Undirbúningurinn í fullum gangi og greinilegt að börnin hlakka til.
Allt að verða klárt til að borða kl. sex og allir hjálpast að að leggja á borð og gera klárt.
Ég man hvað það var langur tími sem fór frá því að maður lauk við matinn og þangað til búið var að ganga frá öllu. Á mínu æskuheimili borðuðu allir saman, afar ömmur, pabbar mömmur, börn og barnabörn. Það hefur ekkert breyst með þá tilhlökkun, þó kynslóðaskipti hafi orðið. En sama reglan ekki byrjað að eiga við pakkana fyrr en búið er að ganga frá.
Krakkarnir skiptust á að lesa utan á pakkana, og svo var opnar einn í einu. Reglur sem þau settur Ólöf og Úlfur.
Verst er biðin fyrir litla stubba, en nú er þetta alveg að koma.
Hér hjálpast bræðurnir að við að lesa utan á pakka.
Vá en gaman, þessi var frá mömmu. Nýjir kuldaskór.
Svo var hægt að klæða sig í jólagjafirnar, en voða flott.
Og svona lítur þetta út þegar búið er að opna alla jólapakkana
En svo þarf að leika sér með gjafirnar.
Slást af alefli.
Flott tilþrif hjá afa er hann verst fimlega.
Svo er líka frábært að knúsast.
Stóri stubburinn minn flottur.
Heyrði í börnunum mínum erlendis og fjær, og það var gott að heyra að þeim líður öllum vel, og allt í góðu hjá þeim.
Ég er að hugsa um að beyta lífinu mínu á næsta ári. Er svona að hugsa málið. Ég er ekkert á förum neitt, bara breyta því sem hér er. Stundum þarf maður að gera eitthvað allt annað, þora að brjóta upp það sem verið hefur áratugi og snúa sér að einhverju öðru. Það er hvort sem er komin tími til þess, þar sem ég get farið að taka mér eftirlaun og fara að hlú að því sem að mér snýr, en eyða ekki öllum mínum kröftum og tíma í aðra. En það kemur auðvitað í ljós.
Ég veit líka að með hækkandi sól kemur framkvæmdagleðin aftur, og ég veit líka að þetta sinnuleysi hverfur smátt og smátt. Það taka við nýjir tímar, með nýjar áherslur, og nýja sýn. Við erum nefnilega aldrei of gömul til að breyta til. Vilji er allt sem þarf.
Ég veit ekki einu sinni hvort mér tekst að halda kúlunni minni, þar sem hver rafturinn á fætur öðrum sendir mér bréf frá sýslumanni um uppboð, þar tekur hver við af öðrum, og skuld upp á 700 þúsund verður á ótrúlegal stuttum tíma að fimm milljónum. En það er alveg víst að fyrr læt ég mig hafa það að vera hrakinn héðan út, en að verða þræll einhvers banka að húsasmiðju eða hvað nú sem fyrirtækin heita, eru reyndar öll á höndum ríkisins svo ótrúlegt sem það hljómar. Ég held að ráðamenn og lögfræðingar geri þetta til að hafa af því laun að skrifa rukkunarbréf og hrella fólk bara til að fá meira í sinn vasa sjálfir í allskonar laun og bitlinga fyrir að áreita íslenskan almenning meðan þeir afskrifa milljarða annara.
En núna er ég ekki að hugsa um svoleiðis. Ég er á kafi í að vera löt, láta mér líða bærilega, lesa, bæði bækur og netið, borða á mig gat, fá mér rauðvín og jafnvel horfa á sjónvarpið.
Sendi ykkur öllum ljúfar kveðjur og innilega takk fyrir mig, það er svo notalegt að fá hlý orð, gleðilegar kveðjur, knús og kram, og svo sannarlega hef ég blessunarlega verið svo heppinn að fólk finnur hjá sér þörf fyrir að gefa mér það allt.
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.6.): 0
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 38
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 31
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Gleðileg jól.Jól og aðrir fjölskyldu viðburðir verða aldrei eins aftur þótt samveran sé góð,þegar það vantar einn í hópinn
Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 26.12.2010 kl. 17:10
Takk Birna Dís mín. Já sennilega verður þarna alltaf eitthvað rúm sem aldrei verður fyllt, líkt og með mömmu og pabba,

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 26.12.2010 kl. 18:22
Gleðileg jól elsku vinkona, mikið finnst mér alltaf gaman að skoða myndirnar þínar, það er svo gaman að sjá fjölskyldulífið í kúlunni, allt svo eðlilegt, gleði og sorg, ekkert yfirborðslegt, bara lífið eins og það er. Þakka þér fyrir að deila þessu með okkur og hafðu það gott, knús í kúluna ... ?
Matthildur Kristmannsdóttir (IP-tala skráð) 26.12.2010 kl. 19:26
Takk elsku Maddý mín. Sömuleiðis.
Er reyndar farin að sakna fallegu myndanna þinna, fuglamynda og fleira.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 26.12.2010 kl. 20:17
Hver veit nema árið 2011 verði ár breytinga hjá okkur báðum, jafnvel mikilla breytinga.
Knús í jólakúluna
Kidda, 26.12.2010 kl. 20:53
Einmitt Kidda mín hver veit.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 26.12.2010 kl. 22:03
Má til með að óska ykkur gleðilegra jóla þó ég þekki ykkur ekkert en les oft bloggið þitt og skoða myndirnar og hef mikið gaman og gott af :)
kveðja af héraði.
Sigurveig (IP-tala skráð) 26.12.2010 kl. 22:46
Mæli með eftirlaununum, hef reyndar oft meira að gera en áður, en kemst líka yfir meira og ræð hvenær ég geri hvað.
Við höfum líka svona reglur um frágang fyrst og svo eru pakkarnir opnaðir einn og einn og allir fylgjast með, þeir sem bráðasta hafa lundina fá að byrja og þá róast. Aldís hafði mjög gaman af myndunum frá þér og sagði að sig langaði aftur vestur, það var svo gaman.
Dísa (IP-tala skráð) 26.12.2010 kl. 23:13
Takk Sigurveig fyrir innlitið og hlý orð. Gleðileg jól til þín líka og ósk um gæfuríkt ár.
Þetta eru mjög góðar reglur, krakkarnir fundu upp á þessu alveg sjálf, og það nýtur hver betur allra gjafanna með þessu móti, og læra líka að gleðjast hver með öðrum Dísa mín. Það verður gaman þegar þið komið það svo dásamlegt er.... jamm Aldís flotta stelpan er alltaf velkomin með ömmu sinni.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 26.12.2010 kl. 23:32
Gleðileg jól Ásthildur mín. Við vitum að þegar að einar dyr lokast þá opnast aðrar ef að við viljum.Kærleiksknús í kúluna þína til ykkar.
Ragna Birgisdóttir (IP-tala skráð) 27.12.2010 kl. 12:41
Bestu óskir um gleðileg jól og farsælt nýtt ár til þín Ásthildur mín og þinnar fjölskyldu. Ég les alltaf bloggið þitt mér til ánægju og hef stundum skrifað innlegg, en við höfum aldrei sést. Skrifin hér á undan um köttinn Snúð eru alveg yndisleg, ég man hve lítill hann var þegar að þið tókuð hann að ykkur. Og þetta með ryksuguna hef ég, kattarkonan sjálf, aldrei heyrt. Snúður er einstakur köttur. Bestu kveðjur í kúlu.
ingibjörg kr. einarsdóttir (IP-tala skráð) 27.12.2010 kl. 13:41
Takk sömuleiðis Ragna mín, já ég held það bara er reyndar viss um að svo sé.
Takk fyrir innlitið Ingibjörg min og hlý orð. Gaman að heyra að þér líkar bloggið mitt. Bestu kveðjur til þín líka og megi allir góðir vættir vaka með þér og þínum.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 27.12.2010 kl. 15:20
Gleðilegt nýtt ár elsku Ásthildur og vonandi færir það þér góða daga.
Ásdís Sigurðardóttir, 27.12.2010 kl. 19:39
Takk Ásdís mín. Sömuleiðis.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 27.12.2010 kl. 20:02
Hátíðarkveðjur, leti er góð í hófi... ég þakka góð kynni á árinu sem er að líða...
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 28.12.2010 kl. 01:06
Ljúfust mín sendi ykkur sem í Kúlu búa hjartanlegar óskir um gott nýtt ár með þökk fyrir allt á liðnum árum.

Ljós og gleði frá
Millu
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 28.12.2010 kl. 11:36
Takk sömuleiðis Jóna Kolbrún mín.
Takk sömuleiðis Milla mín.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 28.12.2010 kl. 14:58
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.