Gleðileg jól bloggvinir og aðrir.

jolaborn_1049900.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Nú gengur hátíðin senn í garð.  Þó mörg okkar séu ekki kristinn, þá getum við fagnað ljósinu og kærleikanum sem er svo mikill á þessum tíma. Við ásatrúarmenn höldum líka okkar hátíð þar sem nú fer sólin að hækka á lofti.  

Við skulum hugsa til þeirra sem eru einmana og daprir nú.  Þeir sem eru einmana, sorgmæddir eða í ömurlegum aðstæðum.  Það fólk sem nú situr inni í gæsluvarðahaldi þarf líka smá ljós, því myrkur ríkir í sálum þeim.  

Fyrst og fremst eru jólin barnanna, en líka þeirra sem geyma barnið í brjósti sínu.  

 

Á þessum tíma kertaljósa og myrkurs er hættan mikil á íkveikju.  En ég vek athygli á því að það eru ekki bara kerti og opin eldur sem er hætturlegur, heldur líka tuskur vættar í bóni eða olíu, jafnvel tekkolíu. 

Það hefur komið fyrir oftar en menn gruna að eldur hafi kviknað í slíkum tuskum, sem hafa verið settar í plast eða eldfim efni.  Þær geta hitnað og svo kviknað í þeim.  Þess vegna er best að setja slíkar tuskur út á svalir eða í eldfast ílát.  Því þarna er hætta á ferðum. 

Ég vil óska ykkur öllum gleði og gæfu megi allir góðir vættir vaka yfir ykkur og fjölskyldum ykkar. Fjölskyldan er það besta sem maður á, og svo vinir og dýrin okkar.  Heart

 

engill_1049904.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kidda

Elsku Cesil, óska þér og þínum gleðilegra jóla og vona að þið njótið hátíðanna.

Risajólaknús í jólakúlununa

Kidda, 24.12.2010 kl. 14:47

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk sömuleiðis Kidda mín.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 24.12.2010 kl. 15:21

3 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Gleðileg jól elsku Ásthildur mín

Kristín Katla Árnadóttir, 24.12.2010 kl. 15:26

4 identicon

Gleðileg jól, elsku Íja mín

Dísa (IP-tala skráð) 24.12.2010 kl. 15:34

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Gleðileg jól Elsku Katla mín.  Guð geymi þig og verndi.

Gleðileg jól elsku hjartans Dísa mín. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 24.12.2010 kl. 15:51

6 identicon

Gleðileg jól

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 24.12.2010 kl. 17:15

7 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Gleðileg jól Birna Dís mín.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 24.12.2010 kl. 22:18

8 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Innilega Gleðileg jól til ykkar allra Cesil mín.

kær kveðja.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 25.12.2010 kl. 00:04

9 Smámynd: Þorsteinn Briem

Gleðileg jól!

Þorsteinn Briem, 25.12.2010 kl. 03:25

10 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Gleðileg Jól Ásthildur mín og þakka þér fyrir allt gamalt og gott. 

Jón Steinar Ragnarsson, 25.12.2010 kl. 06:50

11 Smámynd: Jóhanna Magnúsdóttir

Gleðileg jól mín kæra, flotta Vestfjarðavalkyrja!

Jóhanna Magnúsdóttir, 25.12.2010 kl. 09:25

12 Smámynd: Sigrún Aðalsteinsdóttir

Bestu óskir um gleðilega hátíð til þín og fjölskyldu þinnar.

Sigrún Aðalsteinsdóttir, 25.12.2010 kl. 13:26

13 identicon

Gleðileg jól. Bestu kveðjur og takk fyrir samskiptin á árinu hér á blogginu.

Ragna Birgisdóttir (IP-tala skráð) 25.12.2010 kl. 14:45

14 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

Gleðileg jól elsku kona og bjartasta næsta ár!

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 25.12.2010 kl. 18:30

15 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Gleðilega hátið :)

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 26.12.2010 kl. 01:52

16 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

 Gleðileg jól, Ásthildur mín.

Helga Kristjánsdóttir, 26.12.2010 kl. 03:40

17 Smámynd: Laufey B Waage

Gleðileg jól elsku Ía mín.

Laufey B Waage, 26.12.2010 kl. 09:45

18 Smámynd: Bergljót Gunnarsdóttir

Gleðilega hátíð Ásthildur mín!

Ég held að trúarbrögðin sem slík skiptir ekki öllu máli, hendur þankagangurinn og hjartalagið. Að mínu mati er aðeins einn guð, en fólki er frjálst að kalla hann því nafni sem það vill og ákalla hann hver á sinn hátt. Að vísu eru þeir víst margir í ásatrú, en er það ekki bara nokkurskonar skipting valdsins? 

Þetta með þankaganginn og hjartalagið, það hefur þú heldur betur á réttum nótum. Sorgarferlið er líka lífsnauðsynlegt öllum þeim sem misst hafa sína nánustu, það veit ég af eignin raun. Vona að almættið leiði þig og styrki, svo þú komir út heil aftur með allar góðu minningarnar í fyrirrúmi.

Bergljót Gunnarsdóttir, 26.12.2010 kl. 11:45

19 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk Bergljót mín.

Takk og sömuleiðis Laufey mín.

Gleðileg jól  til þín líka Helga mín.

Gleðilega hátíð Jóna Kolbrún mín.

Gleðileg jól til þín líka Steinunn mín og takk fyrir þín ljós líka.

Sömuleiðis Ragna mín, og gleðilega rest.

Sömuleiðis Sigrún mín.

Takk Jóhanna mín, takk fyrir þín ljós líka.

Sömuleiðis minn kæri gamli vinur Jón Steinar.

Gleðileg jól Steini minn.

Sömuleiðis Gmaría mín.

Innilega takk öll fyrir innlitið og góðar kveðjur.  

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 26.12.2010 kl. 13:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 38
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 31
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband