18.12.2010 | 14:35
Nokkar myndir til að ylja sér við.
Í gær var leiðindaveður, í dag er það ögn skárra, en samt bara notalegt að sitja inni og skoða fallegar myndir. Það er ekki himnagalleríið í dag heldur frostrósir, ekkert er fegurra en listaverk náttúrunnar.
Það er einhver dulúð yfir svona myndum, gætu verið beint úr ævintýrum.
eru þetta ef til vill álfar að dansa í hrímhvítum kjólum?
Síðasta lauf sumarsins.
Hér gætu líka furðuverur verið á sveimi.
Jafnvel hægt að leika sér dálítið með litina
Ekki gott að giska á hvað þetta er!!!
Og það er einmitt hér sem ævintýrin gerast.
Máni gamli hvorki heill né hálfur.
Hér er ekki verið að plata neitt, litirnir eru í raun og veru svona fallegir í skammdeginu.
Það skrýtna við það er að það voru erlendir vinir mínir sem bentu mér á þetta, ég var svo vön því að ég sá það ekki sjálf.
Og börnin orðin spennt að bíða eftir jólunum. Þá er gott að koma aðeins í heimsókn til ömmu.
Þetta er bara svona notaleg myndasýning í drunganum. Þar leynist alltaf eitthvað ljós, ef maður bara leitar eftir því og sér það einfalda og fagra sem er allt í kring um okkur. Bara að kunna að meta það sem jörðin okkar gefur okkur.
Ég segi svo bara góða helgi.
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.6.): 4
- Sl. sólarhring: 8
- Sl. viku: 42
- Frá upphafi: 2023333
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 35
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þessir skammdegislitir eru hreint út sagt frábærir og það er Sigurjón Dagur líka
Hrönn Sigurðardóttir, 18.12.2010 kl. 18:30
frábærir litir, svona er það. Manni yfirsést og þá þarf maður að fá "gestsaugað" til að sjá það fyrir mann.
Knús elsku vina
Ragnheiður , 18.12.2010 kl. 23:40
Fræbærar myndir, takk.
Börnin eru allstaðar eins, öll hlakka þau til jólanna og því sem þeim fylgja, ásamt einlægninni sem ekki er hægt að festa á filmu:)
Guðmundur Júlíusson, 19.12.2010 kl. 01:06
Frábærar myndir. Ég sé að þú ert dugleg að hafa myndavélina með. Ég gleymi minni alltaf, fer svo í göngutúra hér og þar í kringum Hafnarfjörð, sé frábær mótíf , æ, æji - vélin varð eftir heima.
Sigrún Aðalsteinsdóttir, 19.12.2010 kl. 02:55
Myndirnar eru æðisleg listaverk. Gamla Náttúra gerir alltaf flottast. Veit fátt flottara en svona ísskúlptúra og hrímskreytingar. Svo eru börnin hin hliðin, hlýjan og mýktin.

Dísa (IP-tala skráð) 19.12.2010 kl. 10:02
Takk öll fyrir innlitið og kommentin. Oft er hið einfalda og hversdaglega það fallegasta. Okkur hættir bara til að líta fram hjá því af því að það bara er þarna.
Ég reyni að taka myndavélina með eins mikið og hægt er, einmitt vegna þess hve maður getur rekist á eitthvað fallegt og einstakt.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 19.12.2010 kl. 12:22
Ferlega flottar myndir. Fyrsta "álfamyndin" minnti mig á útflattan saltfisk.
Laufey B Waage, 19.12.2010 kl. 14:40
Sæl! Ég varla komin í gírinn,vil bara senda hjarta.
Helga Kristjánsdóttir, 20.12.2010 kl. 02:47
Iss Laufey mín þú ert ekki nógu ævintýrasinnuð
Takk Helga mín knús á móti.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 20.12.2010 kl. 09:08
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.