Himnagalleríið opið.

Þetta er tíminn þar sem við sjáum ekki til sólar, þ.e. hún kemur ekki niður til okkar, en það er ekki rétt að við sjáum hana ekki, eða til hennar, því hún speglast svo fagurlega í skýjunum og litadýrðin er mikil, ekkert síðri en jólaljósin á húsum og í görðum.  Bara miklu tilkomumeiri.

img_5313.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

img_8210.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hér verður allt ýmist blátt eða bleikt, jafnvel gult allt eftir því hvernig sólin skín á skýin. 

Himnagalleríið á fullu.

img_8213_1048420.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hér birtir ekki mikið þegar enginn er snjórinn, rétt smádagsljós milli kl. 12 og tvö.  En það gerir okkur ekki mikið, því við sem höfum átt hérna heima lengi erum orðin vön því.  Og bíðum bara eftir að sólin fari að smokra sér niður fjallshlíðarnar smátt og smátt, eftir þrjá daga fer að birta á ný.

img_8214.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Endalaus fegurð og tiginleiki.

img_5315_1048422.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Svo er bara að sjá eitthvað fallegt út úr þeim myndum sem birtast manni.

img_5318.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Alveg eins og við gerðum sem börn, liggjandi í grasi og horfandi upp í himininn, þar gat að líta allskonar furðuverur, engla, ísbirni, geimskip og ég veit ekki hvað.

img_5326_1048424.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Ef við gefum okkur smátíma og leyfum hugmyndafluginu að fara sínu fram, þá er ekki vandasamt að gleyma sér við skýin. 

img_5350.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Smile

img_5320.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Það getur líka verið ágætt að ylja sér með minningum um sumarið.

img_5316_1048427.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Muna tindrandi túlípana

img_5319_1048428.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Eða þá rauðu sumar rós. 

img_8215.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Þetta litla dýr er ekki mikill veiðiköttur, húsið er fullt af músum, og hann nennir ekki að hreyfa sig kjáninn sá arna.  Brandur sá alfarið um að halda þessum litlu sætu nagdýrum í skefjum.

img_8217_1048431.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Nebb köttur þarf nú ekki að rjúka upp til fóta þó einhverjar mýs séu að athafna sig. 

img_8220.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Það er nefnilega svo gott að lúra.

img_5351.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Ást er......Heart

Eigið góðan dag elskurnar. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Yndislegar myndir að vanda elsku Áthildur, takk fyrir og gleðileg jól, vona að þú hafir það sem best.

Ásdís Sigurðardóttir, 16.12.2010 kl. 14:59

2 identicon

Fæ flashback til æskuáranna þegar við lágum gjarna í snjónum og bjuggum til engla og horfðum á norðurljósin leika sér. Þá var allt svo áhyggjulaust, bjart og glatt.. því miður held ég að mörg börn dagsins í dag búi ekki við sama öryggi, þó þau eigi kannski meira. Knús

Dísa (IP-tala skráð) 16.12.2010 kl. 16:07

3 Smámynd: Kidda

Himmnagallerýið alltaf jafn fallegt. Þú þyrftir að fá lánaðann veiðikött til að halda "fallegu" nagdýrunum í skefjun. Held ég sé ekki beint hrædd við þau en mér bregður svo þegar ég sé þær hlaupa um þar sem þær eiga ekki að vera

Knús í kærleikskúluna

Kidda, 16.12.2010 kl. 16:55

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk Ásdís mín, sömuleiðis.

Já manstu Dísa hehehe

Jamm, ég er svona farin að undirbúa að ræða við dýralækninn tengdadóttur mína Kidda mín, um að skoða þetta með veiðikött, mér er sagt að þessir bröndóttu séu betri veiðkettir en einlitir, það gæti verið.  Ætla að ræða þetta við hana.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 16.12.2010 kl. 18:27

5 identicon

Íja mín, við áttum í sveitinni stóran bröndóttan kött sem sat hræddur í einu horninu og horfði á mann veiða mús sem kom inn. Þess má geta að húsbóndinn var ekki skárri en kötturinn, en músin náðist. Ég held það sé skapferli kattarins sem ræður, ekki liturinn.

Dísa (IP-tala skráð) 16.12.2010 kl. 19:16

6 Smámynd: Ragnheiður

ég á ægilegar veiðiklær, rauðbröndóttan af eðalætt í aðra ættina - svakalegur veiðiköttur.

Tumi minn er hvítur og bröndóttur, rosa veiðkló líka.

Refurinn minn var loðinn, steingrár...með smá hvítu í. Hann lærði af hinum tveimur og sást síðast með mús sama dag og hann varð fyrir bíl greyið.

Nú er Doddi bröndóttur en bara kettlingur og engin reynsla komin á hann enn.

Ragnheiður , 16.12.2010 kl. 22:52

7 identicon

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 17.12.2010 kl. 10:38

8 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Hahaha Dísa, það getur vel verið að það sé bara skapferlið hjá þeim. 

Ragnheiður aldeilis gott að eiga þrjár svona veiðiklær.  Ég ætti ef til vill að fá mér annan kött, ég myndi þá hafa hann bröndóttan til öryggis.

Knús á móti Birna Dís mín. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 17.12.2010 kl. 11:11

9 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Get ímyndað mér að það sé svolítil dramatík í himnagalleríinu í dag, eftir veðurspánni að dæma. Þá er væntanlega gott að kúra í kúlu.

Jón Steinar Ragnarsson, 17.12.2010 kl. 11:44

10 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já það er svo sannarlega gott.  Ég þarf samt að fara í jarðaraför vinar okkar Ella. Mummi blessaður fór alltof fljótt, ég ætla að fylgja honum alla leið inn í kirkjugarð.  Bý mig bara vel. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 17.12.2010 kl. 13:08

11 identicon

Íja mín hún Hjaltlína er svaka veiðiköttur og hún er kolsvörtt

Guðbjörg (IP-tala skráð) 17.12.2010 kl. 19:39

12 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk Gugga mín gott að vita. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 17.12.2010 kl. 21:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.6.): 4
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 42
  • Frá upphafi: 2023333

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband