Næsti viðkomustaður Sopron í Ungverjalandi.

Í dag förum við til Sopron.  Sopron er í Ungverjalandi um 60 km. frá Vínarborg.  Hún er elsta borgin í Ungverjalandi.  Hér bjó fólk á ísöld.  Sopron var br´ðu milli Ungverjalands og  Vestur Evrópu.  Hún var háskólaborg frá 1735.  100 árum fyrir krist hét hún Skarantía, og um skeið fram á miðja 19 öld var Sopron þéttsetinn af serbum.

img_7255.jpg

Ef þið eigið leið um þetta svæði, ráðlegg ég ykkur að kíkja á Sopron, hún er falleg skemmtileg borg, sem auðvelt er að ganga um og skoða, og þar er margt að skoða.

img_7256.jpg

Þarna fléttast saman það gamla og nýja í eina óaðskiljanlega fléttu. 

img_7260.jpg

Þarna eru ekki blokkir hvorki rússa, né nýrri, heldur lágreist hús sem standa þétt saman.

Og allstaðar má sjá þessi skreyttu hús. 

img_7264.jpg

Hér gætir áhrifa rómverja enda bjuggu þeir hér um sig.  Þeir byggðu múra kring um borgina, og í dag er aðaltorfkið þar sem Rómverjarnir bjuggu.  Aðallega má sjá rústir þeirra við Bernsteinstrasse og Ambusstrassi. 

img_7267_1047723.jpg

Söguleg borg. 

img_7269.jpg

Úlfur við kirkjudyrnar. 

Árið 900 - 1000 kom hingað þjóðflokkur sem kallaðist Magyar, þeir blönduðust ekki saman við þjóðina sem fyrir var, vegna þess að þeir lærðu ekki tungumálið.  Mál þeirra sem var Finnsk Ungverska var öðruvísi, enda er Finnska og Ungverska skyld mál, Eistar tala líka skylt mál.  Í dag skilja finnar og eistar mál hvors annars, en ekki lengur ungverjar, leiðir þeirra skildu fyrir 3000 árum. 

img_7272.jpg

Svona má víða sjá göng inn í eitthvað annað.

img_7273.jpg

Og víst eiga þeir reisuleg hús þó það séu ekki blokkir. 

img_7274.jpg

Svei mér ef hún er ekki með síldartunnu LoL

img_7279_1047729.jpg

Hér er dómkirkjan við aðaltorgið, skúlptúrin hér er svipaður og í Vín, til minningar um þá sem dóu í plágunni miklu svartadauða.

img_7281.jpg

Rómverski turnin, og hér er verið að grafa fyrir fornmunum.  Allt uppgrafið. 

img_7282.jpg

Úlfur með einni þjóðhetjunni.

Sópron var höfuðborg Burgenlands eftir fyrri heimstyrjöldina, 1529 hertóku tyrkjar Vínarborg, (Habsborgararnir)en Sopron náði að verjast.  Hér bjó þá Ottó Von Odenburg og eftir seinni heimstyrjöldina voru Odenburgararnir beðnir um að hætta að tala þýsku og fara að tala ungversku. 

Frans List er héðan Sobron 1820.

img_7283.jpg

Hér sést betur kirkjan og minnismerkið, torgið er stórt og allt hellulagt.

img_7284.jpg

Hér er verið að grafa upp rústir rómverja.

img_7287.jpg

Við vorum dálítin tíma að finna aðalgötuna, hér eru margar þröngar götur með verslunum og gömlum húsum.  En það er auðvelt að rata, við skildum bílinn eftir aðeins fyrir utan borgina, og löbbuðum bara í góða veðrinu. 

img_7288.jpg

Hér var virkilega lagt upp úr að skreyta byggingar eins og svo víða í miðEvrópu á þessum tíma.

img_7290.jpg

Hér stendur Úlfur við skólann, hann er rétt hjá torginu og hér mátti sjá krakkana á hans aldri ganga til og frá skólanum. 

img_7292.jpg

Hér eru allskonar verslanir í undirgöngum sem var svo mikið af hér.

img_7293.jpg

Bekkirnir eru litlir og krúttlegið.

img_7294.jpg

Hér var greinilega byrjað að selja kransa, mér sýndist fólk kaupa frekar svona kransa heldur en blómvendi.  Og sokkabuxnaúrvalið er nóg Smile

img_7295.jpg

Hér uppi er matsölustaður, okkur leist samt ekki á hann, við vorum búin að sjá restaurant á aðaltorginu sem lofaði góðu.

img_7298.jpg

Hér er svo loksins aðalgöngugatan, þegar við komum á torgið, spurði ég nokkra menn sem voru að vinna þar við garðyrkju hvar miðbærinn væri, hann horfði á mig undrandi og benti svo í kring um sig, við vorum nefnilega á aðaltorginu. LoL

img_7300.jpg

Hér eins og á svo mörgum stöðum í AusturEvrópu má sjá illa farin hús, minning um löngu liðinn glæsileika.

img_7301_1047744.jpg

Smile

img_7303_1047746.jpg

Flott götumynd.

img_7304.jpg

Enn ein undirgöngin.

img_7307.jpg

Úlfur sendi skólafélögum sínum póstkort, hér kaupir hann svo frímerki. 

img_7308.jpg

Einhversstaðar hér var minnismerki um Magýana. 

img_7313.jpg

Og þá er alveg komin tími til að setjast og fá sér í gogginn.

img_7315.jpg

Fínn matsölustaður góður matur og auðvitað Blau Fränkisrauðvín.  Sólarmeginn á torginu. 

img_7316.jpg

Sem betur fer er hægt að greiða með evrum hér eins og ekkert sé. Enda örugglega mikið af austurríkismönnum sem sækja borgina heim.

Annars kostaði maturinn fyrir okkur öll fjögur með rauðvíni og öllu 45 Evrur.  Ég fékk mér nautakjöt af skrítnu kúnum með snúnu stóru hornin, þeir hafa sérstakt kúakyn sem ég hef ekki séð nema í Guatemala og Belize. Bára fékk sér kjúkling og Úlfur pizzu, Elli ostabakka risastóran, 3 kók og 1 líter rauðvín.  Ekki mjög dýr matur það. 

img_7317.jpg

Skálað í Blau Frankis rauðvíni. 

img_7318.jpg

Þá er best að skoða borgar kortið. 

img_7319.jpg

Um að gera að athuga hvað maður er að skoða.  Sobron er skemmtileg gömul borg með lítil þröng stræti og falleg hús, sem þó eru sum í niðurníðslu.  Í miðri borginni við aðaltorgið eru rústirfrá tímum rómverja. Sopron er sögufræg borg. 

Það sem vekur eftirtekt er að þegar maður ekur yfir landamærin hve vegirnir verða miklu lakari þegar komið er yfir til Ungverjalands. 

img_7320.jpg

Og maturinn bragðaðist vel. 

img_7329.jpg

Þetta er örugglega stjórnsýsluhúsið, hér var alltaf verið að koma og fara greinilega fólk á fundum eða ráðstefnum.  

img_7330.jpg

Gamalt kort af borginni.

img_7331.jpg

Þröngar götur.

img_7341.jpg

Hér býr einhver höfðinginn. 

img_7348_1047763.jpg

Fjölskyldan á ferðalagi.

img_7351.jpg

Svo stillir maður sér upp LoL

img_7356.jpg

Leikhúsið þeirra, hér var verið að gera alveg nýtt torg, greinilega með allskonar vatnsbrunnum og fíneríi.

img_7358.jpg

Þetta er í fyrsta skipti sem ég sé gangstétt lagða teppi, og karlinn er að SÓPA hana. LoL

img_7361.jpg

Betri mynd af leikhúsinu og hér sést að verið er að setja upp allskonar tól og tæki fyrir vatn á miðju torginu.

img_7364.jpg

Ég er að hugsa hvort auglýsendur hér heima hafi fengið hugmyndina um nágrannavörslu héðan. Tounge

Nú erum við komin niður á Bernsteinstræti.

img_7368.jpg

Örugglega með best varðveittu rústum frá rómverjum.

img_7371.jpg

img_7377.jpg

Og múrinn gengur svona milli húsa.

img_7378.jpg

Hér eru aðalrústirnar.

img_7380.jpg

Margir metrar af hlöðnum eldgömlum veggjum.

img_7381.jpg

Hafa svo sannarlega staðist tímans tönn.

img_7384.jpg

Miðað við svona vegg ég er bráðung LoL

img_7385.jpg

Þetta eru engar smárústir.

img_7389.jpg

Hér eru líka skilti sem segja söguna. 

img_7397_1047782.jpg

Herbergjaskipan.

img_7398.jpg

Hér má lesa sér til. 

img_7400.jpg

Stjórkostlegt að mínu mati.

img_7373.jpg

Hér má líka sjá Mary Poppins svífa yfir. 

img_7406.jpg

Og innlendar hetjur líka. 

img_7402.jpg

 Þá er að finna bílinn og þoka sér heimáleið.

img_7415.jpg

Hér rennur bæjarlækurinn gegnum þorpið.   Og héðan er stutt í bílinn.

img_4030_1047789.jpg

Þetta eru gamlar myndir frá Ísafirði, að borða snjó. LoL En nú er snjór hjá þeim stelpunum mínum í Ausurríki.

img_4034_1047790.jpg

Heart

img_7425.jpg

Vona að ykkur hafi ekki leiðst þessi langa ferð til Ungverjalands. En ég mæli með Sopron gaman að skoða og rosalega ódýr borg. 

Eigið góðan dag. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Frábærar myndir - takk fyrir að deila þeim með okkur.

Í mínum bæ var nú bara steypt yfir rústirnar - eldgamall kirkjugarður er t.d. bílastæði.

I.

Ingibjörg (IP-tala skráð) 12.12.2010 kl. 15:17

2 identicon

Frábær ferð, gaman að ferðast með ykkur

Dísa (IP-tala skráð) 12.12.2010 kl. 16:10

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já Ingibjörg það er sorglegt þegar sagan gleymist, því einmitt vegna hennar þroskumst við áfram.

Takk Dísa mín.  Takk báðar fyrir innlitið.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 12.12.2010 kl. 18:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.6.): 4
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 42
  • Frá upphafi: 2023333

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband