10.12.2010 | 11:08
Börn í kúlu og myndir fyrir ísfirðinga.
Þó svo að hér sé rólegt í kúlunni svona alla jafna, þá samt sem áður koma ennþá frískir krakka og gleðja mann.
Eins og tildæmis þessar elskulegu stelpur vinkonur Úlfs, þau fengu að útbúa sér súshí um daginn, og við fengum að smakka, þau gerðu þetta mjög flott og vel.
Þau keyptu sjálf efnið og gerðu allt sjálf.
Sjálfsagt hafa þau líka þurft að leita eitthvað í tölvunni.
Eða sennilega er tölvan allaf við hendina hjá börnum í dag, eins og gemsinn var áður.
Súshiið að verða tilbúið, bara eftir að skera niður í sneiðar og borða nammi namm.
Þessi kríli komu líka í smáheimsókn til ömmu. Meðan pabbi þeirra hjálpaði ömmu með tölvuna.
Og eins og sjá má er ennþá til dót í kúlunni fyrir smáfólkið.
Hrossið er alltaf jafn vinsælt.
Og svo þessi litli stubbur sem kemur oft til ömmu og afa.
Þessar myndir eru sérstaklega fyrir brottfluttu Ísfirðingana, svona er veðrið hér oftast, og nú nær sólin ekki lengur upp fyrir fjallatinda, og við bíðum til vorsins, þegar hún fer að fikra sig lengra og lengra niður fjöllin.
Það var samt ekki fyrr en ég dvaldi fyrir sunnan yfir vetur að ég fattaði á í skammdeginu er sólin endalaust í augunum á manni, og það er erfitt að aka um þegar hún er beint í augun. Svo þá svona róaði ég mig niður og veit að það er ef til vill bara best að geyma hana blessaða bak við fjöllinn meðan hún er sem lægst á lofti.
Og svo þessi endalausta myndasýning á pollinum er glæsileg.
Og svo er litadýrðin makalaus.
Eigið góðan dag elskurnar. Við munum breggða okkur til Ungverjalands fljótlega, og líta inn á tónleika í Tónlistaskóla Ísafjarðar.
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.6.): 4
- Sl. sólarhring: 8
- Sl. viku: 42
- Frá upphafi: 2023333
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 35
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Dýrð með og án sólar
Ragna Birgisdóttir (IP-tala skráð) 10.12.2010 kl. 11:57
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 10.12.2010 kl. 12:01
Alltaf líf í kringum þig
. Flottar myndir eins og alltaf. Þetta með sólina, fyrir vestan fannst mér alltaf gaman að bíða eftir að hún kæmi aftur og það vekur óskipta gleði. En ég hef líka vanist að hafa hana lágt á himni og búandi á háum hól fæ ég hana oft beint í augun, en eins og með annað þarf að vera undirbúinn, ég á sólgleraugu í bílnum og gott sólskyggni og það dugir. Eina slysið sem ég hef lent í að sögn bílstjóra vegna blindu af birtu var fyrir 50 árum á Ísafirði þegar ökumaður fór yfir á rangan vegarhelming og leggurinn á mér og öskur sem ég rak upp bjargaði honum frá að fara í skurðinn innan við Grænagarð. Ég slapp með hárfína sprungu
. En ég vil heldur kuldann og ofbirtuna en drungann í suddanum
Dísa (IP-tala skráð) 10.12.2010 kl. 12:28
Ertu með einhver námskeið í kúlunni?
Bergljót Gunnarsdóttir, 10.12.2010 kl. 16:06
Himnagalleríið er flott í dag...
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 11.12.2010 kl. 00:28
Nammi, namm .. mig langar í sushi! hehe... Gaman að sjá svona frísklega krakka og fallegar landslagsmyndirnar líka. Knús í kúluhús.
Jóhanna Magnúsdóttir, 11.12.2010 kl. 06:36
Alltaf fjör í kúlunni og alltaf jafn fallegar myndirnar frá Ísafirði
Knús í kærleikskúluna
Kidda, 11.12.2010 kl. 10:04
Notalegar myndir. Sólin er mikill áhrifavaldur í umferðarslystum á þessum flatneskjum fyrir sunnan
Ragnheiður , 11.12.2010 kl. 21:12
Bergljót nei ég er ekki með námskeið. En börnin eru velkomin til mín og ef þau langar til að elda eitthvað eða gera eitthvað sniðugt þá fá þau það bara.
Takk allar fyrir innlitið.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 12.12.2010 kl. 12:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.