7.12.2010 | 21:39
Kindermuseum og Christina vinkona mín í Vín.
Kindermuseum ég hef reyndar sýnt ykkur myndir þaðan áður. En þetta er eiginlega niður í miðborg Vínar, þar eru allskonar söfn, og í Kindermuseum geta foreldrar komið með börnin sín í allskona uppbyggilega listsköpun og fræðslu. Þar er líka hægt að skilja börnin eftir í tvo til þrjá tíma, meðan foreldrar athafna sig í borginni.
Hér er Christina Gobbi vinkona mín islandsvinur sem býr í Vína, hún vinnur í barnasafninu með börnum við allskonar listræna viðburði.
Núna þetta tímabil eru þau að leira.
Og allir afar áhugasamir, við fengum auðvitað frítt inn út af kunningsskap.
Pabbarnir voru ekki síður áhugasamir í föndrinu en börnin, sumir hverjir.
Það var líf og fjör, og stelpurnar skemmtu sér afar vel.
Það voru líka allskonar tæki og tól til að vinna með leirinn hakkavélar, vinduvélar og bara allskonar.
Og listaverkin hrannast upp.
Hér fær sköpunargáfan algjörlega að njóta sín.
Sjáðu amma!!
Þessi naut sín ekki síður.
Og það er ekkert smáræði sem búið er að búa til af foreldrum og börnum þarna.
Svo var rætt við þátttakendurna. Og þeim sýndar allskonar myndir.
EInhver ætti ef til vill að starta svona smiðju hér á landi. Gæti verið skemmtileg nýbreytni fyrir einhverja sem eru listrænir og hafa ekki vinnu.
Þennan karl bjó einn pabbinn til, hann sat allan tímann við að gera karlinn, og krakkarnir gerðu hinar fígúrurnar.
Það var farið að rökkva þegar við komum út. Og við ákváðum að finna okkur pizzastað til að borða.
Ein af skreytingunum á húsiniu, sýnir að hér er elsti hestaskóli og sjúkrahús Evrópu.
Ekki málið að finna pizzur, en ég ætlaði mér um of, tók of margar pizzur í fangið og missti helmingin á gólfið Varð því að kaupa helmingi fleiri en áætlað var.
En þær voru góðar og víst nutum við matarins.
Við erum reyndar stödd á aðalverslunargötunni í Vín.
Leikhúsið.
Og hér er greinilega verið að sýna Puntila og Matta.
Auðvitað þarf að taka menningarlega mynd.
Og það er farið að rökkva, svo það er best að koma sér upp í þorpið með börnin.
Ég hugsa að við förum í sundlaugina á morgun, og jafnvel í annað Hof, sem tvær systur eiga, þar eru mörg íslensk hross.
En eigið góða rest af deginum.
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.6.): 4
- Sl. sólarhring: 8
- Sl. viku: 42
- Frá upphafi: 2023333
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 35
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Kæra Ásthildur.
Er búin að fylgjast með blogginu þínu núna í rúmt ár og langar að þakka þér fyrir að leyfa mér að vera samferða þér í gegnum súrt og sætt. Ég er búin að gráta með þér,hlæja með þér, biðja fyrir þér og þínum, sjá og finna fyrir ástinni sem þú berð til allra ekki bara þinna.Sérstaklega finnst mér gaman að hafa fylgt þér á þessu ferða lagi í haust, opna bloggið þitt oft á dag til að sjá hvort ekki sé komin ný færsla. Ég er eiginlega viss um að ef ég á einhvern tíma eftir að fara í svona ferð að þá kem ég til með að þekkja staði sem þú hefur sýnt mér og þá mun ég segja: Hér var Ásthildur.
Skilaðu kveðju til afa og Úlfs með þakklæti fyrir samfylgdina og líka til litlu vinkvenna minna í Vín.
Innilegustu jólakveðju til ykkar allra og enn og aftur: Takk fyrir mig
Jóna (IP-tala skráð) 8.12.2010 kl. 10:06
Takk fyrir þetta Jóna, gleður mig mikið að heyra þetta.
Ég skal svo sannarlega skila kveðjunni þinni. Og innilega góðar kveðjur til þín líka. Ég mæli eindregið með svona ferðalagi.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 8.12.2010 kl. 10:19
Þetta hefur verið skemmtilegur dagur í Vín
Knús í kærleikskúluna
Kidda, 8.12.2010 kl. 10:24
Já svo sannarlega Kidda mín.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 8.12.2010 kl. 12:03
Hjartans kveðjur.
Ragna Birgisdóttir (IP-tala skráð) 8.12.2010 kl. 13:26
Hugsa sér ef maður gæti farið með börnin í svona Kindermuseum, hvað það væri skapandi fyrir bæði þau og okkur.
Knús í kúlu
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 8.12.2010 kl. 18:25
Þetta hefur verið mjög skemmtilegur dagur. Frábært að hafa svona aðstöðu, einhver ætti að koma svona upp hér. Knús til ykkar
Dísa (IP-tala skráð) 8.12.2010 kl. 19:49
Já algjörlega, þetta gefur bæði börnum og fullorðnum alveg heilmikið í samveru og skemmtilegheitum.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 8.12.2010 kl. 20:42
Hugsa ser hvað við erum á eftir þessum þjóðum með mentun og að skapa börnunum fræðandi umhverfi. í ÞYSKALANDI ERU BÖRN Í GRUNNSKÓLA AÐ LÆRA AÐ ELDA MAT SEM MARGAR HÚSMÆÐUR TIL MARGRA ÁRA gætu verið sælar með.
takk fyrir skrifin þín.
Erla Magna spámiðill
Erla Magna Alexandersdóttir, 8.12.2010 kl. 21:08
Að mörgu leyti erum við á eftir í menntunarmálum Erla mín, það er alveg satt. Í þessu Kindermuseum er margt gert til að fræða börnin, þar eru til dæmis sýningar í fyrra var sýning um flóttamenn og aðstæður þeirra og verkefni lækna án landamæra. Gefur börnunum innsýn í það sem er í gangi í heiminum í dag, til að læra af því.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 8.12.2010 kl. 23:13
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.