Ég er komin með upp í kok og gott betur.

Ég er orðin dálítið þreytt,  nei alvegi niðurkomin af hræsninni og vitleysunni í alþingismönnum og  ráðherrum landsins undanfarið.  Allt svo erfitt og það er svo sárt að þurfa að taka á hirðuleysi samstarfsmanna og ég veit ekki hvað. 

 

Ég get sagt ykkur ágætu ráðamenn hvað er erfitt að lifa með.  

 

Nú næstkomandi 28 september er ár frá því að sonum minn dó.  Hörmulegasti dagur lífs míns, en það er ekki bara það,.  Í mörg ár hef ég barist honum til hjálpar í næstum ólíðandi heimi fíknar og Réttarkerfisins Íslenska.  Þar hef ég oft þurft að beita mér honum til traust, þegar hefur átt að vaða yfir hann með skítugum skóm, eins og svo mörgum öðrum.  

En það sem endanlega hratt honum fram af brúninni, gerðist fyrir mörgum árum.  Hann var nýkomu út af Litla Hrauni, hann sagði við vini sína, nú er ég hættur að haga mér svona, ég ætla ekkert að gera til að fara þarna inn.  Ég er að byrja nýtt líf.

 

Nema hanna hafði keypt sér gamlan bíl, sem enginn kunni að gangetja nema hann.  Svo eitt kvöld voru þeir að rúnta vinirnir og unnusta eins þeirra var að aka bílnum.  Hann stoppar svo á gatnamótum og hún kemur honum ekki í gang.  Hann sem var alltaf svo til í að hjálpa, fer út úr bílnum, sest inn í bílstjórasætið, setur bílinn í gang og er komin út úr bílnum aftur, þegar lögreglan kemur.  Hann grátbað þá um að skoða aðstæður og sjá að hér var ekkert saknæmt að gerast.  En nei, þeir hafa samband við stöðina; rödd segir er þetta hann, Thomassen, já segja þessir ungi lögreglumenn, já komið þá með hann strax.

 

Hann fór svo beint í gtrjótið aftur.   Og þar brotnaði allt hans traust á “réttvísina”.   Því miður var ég ekki alveg með á nótunum, því ég hefði reynt að gera eitthvað til að vernda hann.   En eftir þetta lá leiðin bara niður.  Þó hann næði sér upp í nokkur ár eftir þetta, varð hann aldrei sami káti drengurinn sem trúði á réttlætið.

 

Þetta! ágætu alþingismenn Íslands er sárt.  Ég vorkenni ykkur ekki rassgat að vandræðast með að vernda vini ykkar, sérstaklega þegar ég hef sterkan grun um að það sé frekar til að verja ykkar eiginn skaðbrennda botn, fremur en einhverjar áhyggjur af pólitískum vinum.

Hvort skyldi þessi synd sonar míns skora meira í samfélaslegu samhengi eða aðgerðarleysi ykkar og kæruleysi við að sinna skyldum ykkar, eða kúlulánin sem sumir komust upp með, tæming bankasjóða, þögnin yfir alvarlegum aðsteðjandi vanda, eða að halda hlífiskyldi yfir því fólki sem þið vitið vel að gerði margt rangt og ekkert til að bjarga því sem bjargað var.

 

 

Stjórnvöld bera mikla ábyrgð, þegar fólk tekur að sér að vera ráðherrar og þingmenn, taka þeir á sig ákveðnar skyldur, og þegar þeir valda ekki þeim skyldum sínum, ber þeim að víkja, eða verða vikið.  Samkvæmt rannsóknarskýrslum, nú tveimur, kemur í ljós að stjórnsýslan í landinu er í molum og ekki stendur steinn yfir steini.

 

Því eru það vinsamleg tilmæli til ykkar að þið rjúfið þetta stjórnasamstarf, reynið að skammast ykkar og við fáum að kjósa aðra einstaklinga til að taka við. 

Allavega vil ég ykkur BURT, ríkisstjórnina BURT, Alþingi BURT, Glæpamennina LOKAÐA INNI.

 

 

Ég segi bara þið sem stjórnað hafa landinu síðastliðin 20 ár eruð sek um að drepa niður samfélagið, fyrst landsbyggðina, síðan allt landið, og eigið sök á fjölda fátæks fólks sem á ekki fyrir nauðþurftum, þið berið líka ábyrgð á því að um 700 til 1000 manns verði borið út á næstunni, og þið berið ábyrgð á fjölda sjálfsvíga undanfarin ár.  Bara ef þið kynnuð nú að skammast ykkar. 

Fyrning er eitt sem þarf að aflétta.  Ég vil að þeim verði refsað sem nú þykjast sitja á friðarstóli og komnir fyrir vind.

 

Þjóðin kallar á réttlæti og sanngirni.  Í dag er það svo langt í frá að sé þannig.  Og ég ætla rétt að vona að fólk fari nú að vakna og hætta að hlusta á viðhlægendur sem lofa öllu fögru og hafa alltaf gert, en svikið allt jafnóðum. 

 

Ég get sagt ykkur að enn þann dag í dag græt ég þegar ég hugsa um þennan atburð sem ég talaði um í upphafi.  ‘Eg græt það mest að hafa ekki hlustað betur á drenginn minn og verið honum skjöldur og skjól.  Hann dó til að sýna fram á hver gildin eru þegar allt kemur til alls.   Þau liggja ekki í valdi eða græðgi, eða peningum.  Gildin liggja hjá okkur sjálfum að við séum tilbúin til að vera til staðar fyrir þá sem okkur standa næst og hlú að þeim sem minna mega sín.

 

Þess vegna megið þið öll fara til andskotans.  Og þannig líður mér núna.

 

Og ef þið haldið að ég sé ein um þessa tilfinningu, þá megi þið hugsa ykkur aðeins um, sonur minn var bara einn af mörgum, og hér eru margar brotnar fjölskyldur, tættar í sundur af meðferð Réttarkerfisins á þeim, og fordómarnir og allt sem fylgja, og þó barnið mitt sé farið og svo mörg önnur, þá eru þarna úti ennþá fleiri sem bíða sömu örlög ef þið hunskist ekki til annað hvort að fara að gera eitthvað í skjaldborginni og velferðarbrúnni, eða losa okkur við ykkur, svo eitthvað nýtt blóð komist að og eitthvað verði gert þjóðinni til bjargar.  Hún hreinlega kallar á hjálp!!!

 

Hvað þarf annars margar undirskriftir til að krefjast kosninga?

c_documents_and_settings_erna_hjaltested_my_documents_blog_isl_faninn_713981[1]


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sóldís Fjóla Karlsdóttir

Hvað þarf annars margar undirskriftir til að krefjast kosninga?

Það er von að þú segir það..... það er hangið á stólunum og allt svikið.  Ég hef slíkan viðbjóð á þessari hegðun sem gengur svo lengi sem við leyfum það....að ég gæti ælt. En hvað er til ráða ?

Drífum við fram potta og pönnur eða vopnumst almennilega.....þetta lið situr sem fastast.

Sóldís Fjóla Karlsdóttir, 22.9.2010 kl. 18:25

2 identicon

Við þurfum að draga fram stóru heimilistækin nún i næstu byltingu.Hrærivélar,þeytarar,ryksugur.blandarar,og allt sem nöfnum tjáir að nefna.

Ragna Birgisdóttir (IP-tala skráð) 22.9.2010 kl. 19:25

3 Smámynd: Árni Gunnarsson

Er ekki eitthvað óskiljanlegt ástand búið að ná samþykki okkar? Spurningin snýst um það hvort við eigum að leyfa stjórnvöldum okkar að misbjóða okkur endalaust- endalaust og að því er virðist alveg að óþörfu.

Svarið er ekki einfalt. Við börðumst næstum blóðugri baráttu mánuðum saman til að hrekja frá völdum stjórnvöld sem búin voru að ganga svo fram af öllum að það stefndi í vopnaða borgarastyrjöld.

Þetta tókst og mynduð var bráðabirgðastjórn; boðað til alþingiskosninga.

Öflugasti stjórnarandstöðuflokkurinn hlaut glæsta kosningu og hún byggðist m.a. á atkvæðum frá fyrrum flokksmönnum þess flokks sem ráðið hafði mestu hér um áratuga skeið. Formaður þessa stjórnarandstöðuflokks hét þjóðinni því að tvö umdeildustu mál þjóðarinnar yrðu aldrei afgreidd frá ríkisstjórninni fengi hann umboð heldur stöðvuð tafarlaust.

Þessi loforð tókst honum að svíkja á fyrstu dögum með því að beita þingflokk sinn kúgunum nánast í beinni útesndingu frá Alþingi.

Eftirleikurinn hefur verið í samræmi við fyrstu skrefin.

Spurningin er því: Hvað getum við gert - hverjum getum við treyst? 

Árni Gunnarsson, 22.9.2010 kl. 19:40

4 identicon

Það er umhugsunarvert hversu ráðþrota við Íslendingar erum þegar kemur að því að berjast fyrir sjálfsögðum mannréttindum fyrir okkur.Okkur er innprentað frá barnæsku að hér sé svo dásamlegt að lifa. Landið okkar sé gullkista. Er það svo og hefur það verið svo.. ? Alls ekki.  Nokkrir hafa alltaf haft hér yfirráð og finnst sjálfsagt að niðjar þeirra fái það líka. Þetta er ömurlegt ástand og einhvern veginn er ekkert í kortunum um að það sé að lagast,frekar hitt.

Ragna Birgisdóttir (IP-tala skráð) 22.9.2010 kl. 19:47

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Einhverntíman kemur að því að við látum ekki þetta vonlausa fólk lengur fara með almenning til andskotans. Einhverntíman kemur að því að jafnvel mestu sauðir þessa lands gera sér grein fyrir því að það á ekki að hlusta á sjálfsfróun eiginhagsmunapólitíkusa sem ár eftir ár hafa logið, svikið og sýnt almenningi vanvirðingu.

Hafa alltaf getað gengið að því vísu að við þessi þjóð hafi gullfiskaminni.

Mín ósk er sú að það hafi orðið aldursskipti í samfélaginu og þeir sem alltaf hafa haft blinda trú á alþingismönnum og ráðherrum, þessi gamla þjóð sem bugtaði sig og beygði fyrir ráðamönnum, hafi nú horfið á braut og við hafi tekið yngri kynslóð, sem hugsað ekki bara um að bugta sig og beygja, ekki bara að hugsa um sitt eigið rassgat, heldur ungt fólk sem vill gefa nýjum aðilum tækifæri.  Nýrri stefnu og betri málum fyrir íslenska þjóð. Og ég spyr..... er það til of mikils mælst???

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 22.9.2010 kl. 20:19

6 identicon

Heil og sæl Ásthildur; æfinlega - sem og aðrir gestir þínir, hér á síðu !

Ég vakti athygli; á þinni skýrleikans grein, á minni síðu, fyrir stundu, Ásthildur mín.

Það er löngu tímabært; að við landsmenn sameinumst um, að hrista valda stéttar óþrifin, af öxlum okkar, Vestfirzka valkyrja.

Ég hefi; margsinnis hvatt til þess - á minni síðu, við fremur dræmar undirtektir, en reyna má; EINN GANGINN ENN !

Með beztu kveðjum; sem ætíð, úr Árnesþingi /

Óskar Helgi Helgason, frá Gamla Hrauni og Hvítárvöllum (Borgfirzkum)

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 22.9.2010 kl. 20:47

7 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk fyrir það Óskar minn.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 22.9.2010 kl. 21:13

8 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Enginn þorir að byrja?  Er það ekki málið?  Svo er að vefjast fyrir mér málsóknin á hendur níumenningunum, þar er verið að setja fordæmi.  Ef þú mótmælir, ferðu í fangelsi!!!   Ef þú kemur inn í Alþingi sem mótmælandi þá verður þú í slæmum málum....

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 22.9.2010 kl. 21:21

9 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já þess vegna setti ég inn myndina hér á blogginu á undan.  Við búum við ofríki og einræði, einhvernveginn verðum við að brjótast út úr því.  Svo sannarlega jóna mín

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 22.9.2010 kl. 21:29

10 Smámynd: Arinbjörn Kúld

Allt frá því skjaldborgin breyttist í gjaldborg hef ég verið sannfærður um að bylting væri eina von almennings. Svo er enn. En spurningin ávallt sú sama: hvernig er byltingu komið af stað?

Ekki mun standa á mér ef og þegar hún hefst.

Kveðja að norðan.

Arinbjörn Kúld, 22.9.2010 kl. 21:52

11 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Sammála, en ég hallast samt að því að við kjósum og berum gæfu til að sturta fjórflokknum niður, með því að litlu flokkarnirFrjálslyndir, Hreyfing og Borgarahreyfing leggi saman krafta sína og nái meirihluta. Þar er heiðarlegt og gott fólk sem vill gera vel og við verðum að treysta einhverjum.  Ekki meira Besta..eitthvað.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 22.9.2010 kl. 22:16

12 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Ég og Arinbjörn erum viðbúin, það þarf bara að gefa merki og við tökum þátt í byltingu...  Fjórflokkinum verður að gefa frí, eða bara aflífa hann eins og aðrar plágur...

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 23.9.2010 kl. 00:32

13 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Já og Óskar Helgi, hann er búinn að vera tilbúinn til byltingar í marga mánuði....

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 23.9.2010 kl. 00:33

14 identicon

Komið þið sæl; á ný !

Arinbjörn og Jóna Kolbrún, fornvinir góðir !

Sigurður Haraldsson Þingeyingur; einn hinna virkustu, hér í spjallheimum, hringdi í mig, á dögunum, og höfum við fullan vilja til þess, að finnast næst, þegar hann ætti leið, um Suðuramt.

Ég myndi; nefna áhuga ykkar, við hann þegar við hitttumst, kæru félagar.

Okkur ber; að þakka Ásthildi, enn frekar, elju hennar til skrifanna - sem þrek allt, eftir þær raunir, sem hún og fjölskylda hennar hafa mátt reyna, á umliðnum árum, og allt til dagsins í dag, einnig.

Með; ekki lakari kveðjum, en þeim fyrri /

Óskar Helgi 

 

 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 23.9.2010 kl. 00:52

15 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

elsku Ásthildur mín - sendi þér birtu og styrk. Þetta eru erfiðir tímar og svo mikið í húfi. Samstaða um málefnin sem skipta öllu máli verður að nást - efast um að það sé hagt að finnna hana inni á þingi núna, það hefur verið mikið reynt en gjaldborgarskjaldborgin virðist vera lausn í huga mjög margra inni í leikhúsinu við austurvöll. Almenningur þarf að sameinast og verður að hætta að rífast um hvaða lán eru óréttlátari en önnur, þau eru öll óréttlát. Það verður einfaldlega að setja neyðarlög fyrir heimilin í landinu sem innihalda m.a. lyklafrumvarpið og heildarlausn á óréttlætum stökkbreytingum á lánum. Örfáir þingmenn geta komið þessu í gegn ef það er nægilegur þrýstingur frá almenningi.

Birgitta Jónsdóttir, 23.9.2010 kl. 08:12

16 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Þakka ykkur öllum svörin, já við verðum að fara að gera eitthvað í þessu öll saman.  Takk Birgitta mín, það er mér allavega augljóst að þessi ríkisstjórn og því síður Sjálfstlæðismenn hafa neina löngun né sjá þörf á að breyta neinu.  Þau halda sig geta blóðmjólkað hvern dropa út úr almenningi, en hyglað þeim ríku.  Ég sá í morgun að fagfólk á ekki orð yfir nýjum skattalögum, sem séu sett mörg ár aftur í tímann, og séu þannig úr garði gerð að drepa niður atvinnustarfssemi landsins.  Ekki var leitað ráða hjá fagfólki, bara pínt eitthvað í gegum þingið sem er svo arfavitlaust að fólki brá við.  Eru þetta boðleg vinnubrögð?  Ég segi nei. Vildi að það væru fleiri eins og þú þarna inni.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 23.9.2010 kl. 09:45

17 Smámynd: Kidda

Það væri fróðlegt að vita hversu mörgum undirskriftum þarf að ná til að boða til nýrra kosninga. Það eina sem ég óttast ef það yrðu kosningar að gullfiskaminnið næði yfirhöndinni og B og D kæmust aftur til valda. Það væri óskandi að nýtt sterkt afl kæmi í þessa leiðinlegu pólítík, afl sem myndi ekki hika við að snúa dæminu við og reisa þessa skjalborg um heimilin og litlu fyrirtækin, tryggja réttláta leiðréttingu lána, stoppa útburð á fólki, koma í lög þessarri klausu um hve lengi á að vera hægt að elta mann vegna gjaldþrots og margt margt fleira.

Ég er soldið hrædd um að ég sé búin að missa allt álit á þjóðinni og mér þar með talinni ásamt pólítíkusum.

Knús í kærleikskúlu (hjarta)

Kidda, 23.9.2010 kl. 10:10

18 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Það er hvort sem er í farvatninu að Sjallar og Samfylking taki sig saman á ný.  Það yrði hræðileg tilhugsun.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 23.9.2010 kl. 11:08

19 identicon

Ég græt með þér. Veit um svo marga líka. Og marga sem bíða 1 oktober og hafa beðið lengi., Alltaf lengt í ólinni, en núna blasir bara við missir heimilisins. Öll von úti.

Ég vil nýja menn Veit samt að það verða alltaf flokkar. En ég vil nýja menn alla á einu bretti, sama hver flokkurinn er , og þeir eiga að koma úr þjóðfélaginu, almennir borgarar sem ekki hafa verið aldur upp af eilítu fjórflokknanna.

Þá er einhver von.

En ég er mjög mikilvægt. það halda allir að valdið sé alþingismannanna, En í ráuneytunum sitja gamlir hundar sem gera bara það sem þeir vilja. 

Þar er spillingin mest. 

Ég vil núja menn og konur í öll ráðuneytin  allt frá efsta manni til þeirra sem losa ruslaföturnar hjá þeim.

Sigrún Jóna (IP-tala skráð) 23.9.2010 kl. 11:18

20 identicon

Æ fyrirgefið ég ýtti á einhver takka og allt í einu var athugsemd mín vistuð án þess að mér gæfist tím til að lesa yfir og leiðrétta innsláttarvillur.

Og þær eru svo margar að mér flökrar.

Vona að ykkur þið fyrirgefið mér fljótfærnina.

Sigrún Jóna (IP-tala skráð) 23.9.2010 kl. 11:24

21 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Elsku Sigrún mín það er innihaldið sem maður les ekki villur.  Takk fyrir innleggið þitt.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 23.9.2010 kl. 11:34

22 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Reyndar alveg rétt hjá þér þetta með ráðuneytin, þar þarf að sópa út líka.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 23.9.2010 kl. 11:35

23 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Hópur þolenda ranglætis og stuðningslið,situr heima,þegar örfáir mótmælendur "ybba gogg" við stjórnarráðið,við Alþingishúsið,við höfuðstöðvar AGS. Ég fer ekki oftar fyrr en mótmælendur verða óteljandi. Kristín og Helga náðu tali af nokkrum alþingismönnum,í sumar,eftir að  sumarþing hófst. Kristín skýrði  fyrir útlendum ferðamönnum,sem áttu leið þarna um,hvað við værum að gera,með þessum áletruðu mótmælaspjöldum og brauðkasti á stéttina fyrir framan Alþingishúsið. Þá mola hirtu einungis mávar,nokkrar tegundir.   Upp í hugann kom gamall Frasi ,,stétt með stétt".Stéttin yðaði af tveim ólíkum tegundum,önnur mett!!!!!  Ásthildur mín er að sökkva mér í stórskemmtilega þætti Davíðs Atten boro,þessvegna heilsa ég og kveð um leið. Kærar kveðjur.

Helga Kristjánsdóttir, 23.9.2010 kl. 15:32

24 Smámynd: Kjartan Sigurgeirsson

Hver er lausn vandans. Af lestri á færslum hér fyrir ofan virðist vera að þeir flokkar sem sitja á Alþingi í dag séu ófærir um að stjórna landinu.  Mín skoðun er sú að ef meiningin er að bylta, verður að vera ljóst hvert skal haldið.  Ég get ekki mælt með áframhaldandi setu stjórnar Jóhönnu, hún er að verða búin að koma öllu í kaldakol sem ekki var orðið ónýtt áður en hún tók við.  Því spyr ég, eruð þið til í að gera aðra byltingu og knýja fram kosningar, sem gætu jafnvel endað með því að Sjálfstæðisflokkur komist aftur til valda?

Svo svekkt er þjóðin orðin á aðgerðar- og bjargarleysi núverandi stjórnar að þessi staða gæti komið upp og sýnast mér varla aðrir kostir í stöðunni  en að annaðhvort leiði  Sjálfstæðisflokkurinn eða Spaugstofan nýja ríkisstjórn.

Kjartan Sigurgeirsson, 23.9.2010 kl. 16:03

25 identicon

Þú ert frábær.

Dóra Birgisd. (IP-tala skráð) 23.9.2010 kl. 16:56

26 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Helga ég er sammála því að fólk þarf að mæta á mótmæli, eins og það getur. Við verðum að sýna í verki óánægjuna og að við láltum ekki bjóða okkur þetta.  Hve lengi ætla menn að liggja og láta valtra yfir sig?

Kjartan takk fyrir innlitið.  Já ég vil meina að þeir smáflokkar sem staðið hafa utan við spillinguna, Frjálslyndi flokkurinn, Hreyfingin og Borgarahreyfingin verði að mynda kosningabandalag og reyna að ná eyrum landans.  Þau eru fersk og ekki með spillingu á bakinu, en mörg með þekkingu á stjórnsýslunni og hafa reynslu sem þarf til að vinna að þeim markmiðum sem við verðum að ná fram.

Takk Dóra mín og takk fyrir innlitið.  

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 23.9.2010 kl. 20:58

27 identicon

Mér flökrar við ástandinu á Íslandi.Hér er ég oft spurð af hverju er fólkinu ekki hjálpað,af hverju hefur ríkisstjórnin ekkert gert fyrir fólkið.Það virðist vera sama hvað flokkurinn eða manneskjan heitir ef hann/hún kemst á þing eða fær einhver völd.Viðkomandi gerir fátt af því sem lofað var.Kvartar á facbook fyrir háttinn er einhver gagnrýnir viðkomandi og það sem viðkomandi gerir eða gerir ekki.Mér líkar vel við kerfið hér í Noregi,það er tekið vel á málunum .Flestum alla veganna.Hér er gott að vera

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 25.9.2010 kl. 13:49

28 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já ég er steinhætt að botna í þessu ástandi, svei mér þá.  Góðar kveðjur til þín mín kæra.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 25.9.2010 kl. 16:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.6.): 8
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 43
  • Frá upphafi: 2023329

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 36
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband