Þessi mynd hefur leitað á huga minn nú um skeið. Það er ef til vill illa gert, en ég ræð ekki við tilfinninguna.
Hvað getur hún átt sameiginlegt með Íslandi í dag?
Jú fyrir það fyrsta þá sýnist mér að þaulseta fólks sem hefur ekki lengur umboð þjóðarinnar sé algjör. Þau eru komin svo langt frá vilja almennings og hafa nú sameinast um að standa saman í vörn um það fólk sem fór illa með völd sín og á sinn stóra þátt í því með aðgerðaleysi sínu og leyndarhyggju að sífellt fleiri manneskjur missa heimili sín og vinnutæki, sífellt fleiri taka sitt eigið lísf, flýja land eða bara gefast upp og fara til hjálparstofnanna.
Í annan stað sjáum við manneskju sem fólkið vill hafa við völdin, en er lokuð inni í stofufangelsi, reglulega dreginn fyrir rétt til að viðhalda því helsi. Á sama tíma og æðstu menn þjóðarinnar þegja og þumbast, makka saman í reykfylltum herbergjum um hvernig megi koma í veg fyrir að ráðherrar verði dregnir fyrir landsdóm, eru þeir að ákæra níu manneskjur fyrir að vanvirða alþingi.
Vanvirða alþingi? Þingmenn og ráðherrar hafa gegnum áratugi vanvirt alþingi, þó það hafi ekki komist í hámæli fyrr en núna. Sem betur fer höfum við almenningur betri að gang að atferli þessa fólks en áður. Enda er virðingin löngu farin hjá flestum.
Sennilega er ræða forsætisráðherra í gær dropinn sem fyllti mælinn hjá mörgum. Einu sinni hélt ég að þarna færi grandvör og heiðarleg manneskja. En nú veit ég að hún vílar ekki fyrir sér að veitast að samstarfsfólki sínu, þegar það hentar henni sjálfri, og það þó hún hafi verið búin að hæla verkum þingmannanefndarinnar, bara fyrir nokkrum dögum, þá snýst hún á punktinum og rekur hnífa í það fólk sem hefur unnið að því er virðist af heilindum og réttsýni í marga mánuði. Og ég segi svei þér bara.
Það er sífellt að verða skírara að þeir sem stjórna landinu og hafa stjórnað því um áratugi, hafa alltaf hlunnfarið þjóðina. Þeir hafa svikið, logið og makka, haft pr. menn til að fegra gjörðir sínar og undirbúa hvernig hlutirnir skuli matreiddir ofan í þjóðina. Þetta gekk allt saman ljómandi vel, meðan fjölmiðlar voru þannig að þeir gátu, eins og þeir gera flestir ennþá leynt því sem miður er, og ýtt undir það sem hentar stjórnvöldum og ríkisbubbum.
En svo komu spjallrásir á netinu, og bloggið. Síðan hefur verið erfiðara að þegja mál í hel, eða gagnrýna það sem gert er. Vitleysurnar eru upplýstar og ráðamenn hraktir frá einni lyginni í aðra. +
Nú er svo komið að þeir sem mestu ráða í dag, eru komnir út í horn með allt sitt ranglæti. Og fleiri og fleiri sjá í gegnum allt ruglið. Það sést líka að þeir alþingismenn sem aðhyllast sömu vinnubrögð standa með þeim sem ráða og vilja gera allt til að halda þeim stöðugleika fyrir sig sjálfa.
Þeir eru nefnilega orðnir hræddir við almenning, og hvað kunni að gerast ef þeir fara með fjóra ráðherra fyrir landsdóm. Þeir vita sem er að sennilega yrði ekki stoppað við þar. Heldur myndi fara fram alsherjar rannsókn á stjórnsýslunni s.l. 20 ár. Og það er eitthvað sem ég er viss um að enginn af þeim myndi kæra sig um.
Ég hélt satt að segja að þegar hlutfall yngra fólks yrði hærra á þinginu, myndi ranngirnin og réttlætið rétta sig af, en það sem gerðist var að þau hafa verið fljót að læra klækina og hvernig á að hantera sannleikan ofan í þjóðina. Man einhver eftir ungri konu sem sagði að maður yrði að spila með teyminu?
Nú er svo komið að þjóðin getur ekki meir. Það er auðvelt að sjá á bloggi og spjalli, að fólk er að fá upp í kok af ástandinu, og það er alveg sama hvað er, það er ekkert gert til að bjarga fólkinu í landinu, en öll áhersla lögð á að bjarga bæði bönkunum og auðkýfingum landsins.
En þetta er líka okkur að kenna ágætu íslendingar. Við höfum sofið á verðinum, við höfum verið kærulaus með atkvæðin okkar. Við höfum ekki beitt refsivendinum eins og við hefðum átt að gera. VIð höfum kosið yfir okkur sama fólki, sömu spillinguna aftur og aftur. Það má segja að stundum hafi ekki verið neitt val, nema sitja heima. Því fjórflokkurinn er allur meira og minna spilltur, fyrir utan örfáar manneskjur sem kallast órólega deildin í VG, sem sýnir hve það borgar sig ekki að fylgja sannfæringu sinni, eins og hver og einn hefur lofað.
En nú höfum við val. Við höfum að minnsta kosti 3 flokka sem við getum valið um. Þegar við höfum knúið fram kosningar. Það er Frálslyndi flokkurinn, sem hefur nú endurnýjað sig, og þar er fólk sem vinnur samkvæmt þeim reglum sem flokkurinn hefur sett sér, heiðarlegt fólk sem hefur sumt hvert tekið virkan þátt í grasrót fólkin í landinu, með búsáhaldabyltingunni, unnið að opnum fundum og fleiri góðum grasrótamálum. Við höfum Hreyfinguna og það góða fólk sem hefur sýnt svo sannarlega að þau vinna fyrir almenning í landinu og hafa opnað glugga út í samfélagið og sýnt okkur fram á hvað er í raun og veru í gangi á alþingi. Rétt eins og Frjálslyndi flokkurinn gerði meðan þau sátu á þingi.
Ég hef ekki geð í mér til að skrifa Alþingi, hvað þá hinu Háa Alþingi. Svo er Borgarahreyfingin, sem ég veit að hefur verið að skipuleggja sig og vinna að sínum málum, og ég er viss um að þau fara fram í næstu kosningum. Síðast en ekki síst ef Vinstri græn klofna og grasrótin þar fer með Atla Gíslasyni, Lilju Mósesdóttur og Guðfríði Lilju, þá er hægt að treysta þeim til góðra verka. Svo má líka benda á Hægri Græna, sem valkost til hægri.
Besta væri auðvitað ef þessir þrír til fjórir smáflokkar gerðu með sér samkomulag um heildstæða björgunarstefnu og leggðu saman krafta sína. Þá væri að minnsta kosti stórt skarð rofið í spillingu og valdagræðgi. Við getum þetta alveg, það eina sem þarf að gera er að knýja á um kosningar, og þora síðan að fela öðrum aðilum að komast til valda. Ég segi ykkur satt það getur ekki versnað. En mjög líklega batna stórlega.
Af hverju ekki??????
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.6.): 0
- Sl. sólarhring: 8
- Sl. viku: 38
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 31
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Veistu, þú ert ekki ein.. Málið er bara að við náum aldrei fram réttlæti á meðan 4flokkar og mafíur sem tengjast þeim eru til.
Aðeins bylting getur bjargað okkur... FACE IT
doctore (IP-tala skráð) 21.9.2010 kl. 12:29
Mikið er ég nú sammála þér, þeir gera ekki neitt fyrir okkur almúgann en allt fyrir þá sem eiga peninga. Þetta er skandall hvernig Jóhanna er að haga sér. Svo lengist bara og lengist röðin hjá Fjölskylduhjálpinni. Bylting er eina sem dugar.
Magga Brynja (IP-tala skráð) 21.9.2010 kl. 14:21
Þetta var frábær ádrepa hjá þér! Og þessi ræða hjá henni Jóhönnu í gær verður henni til ævarandi skammar. En það væri frábært ef tillagan þín um þrjá eða fjóra smáflokkana sem tækju sig saman um heildstæðan björgunarleiðangur, næði fram að ganga. Flott tillaga !
Margrét (IP-tala skráð) 21.9.2010 kl. 17:01
Þetta er vel unnið hjá þér.... ég er þér svo innilega sammála.
Nú er svo komið að þjóðin getur ekki meir. Það er auðvelt að sjá á bloggi og spjalli, að fólk er að fá upp í kok af ástandinu, og það er alveg sama hvað er, það er ekkert gert til að bjarga fólkinu í landinu, en öll áhersla lögð á að bjarga bæði bönkunum og auðkýfingum landsins.
Þetta er svo mikill sannleikur.
Sóldís Fjóla Karlsdóttir, 21.9.2010 kl. 18:58
Takk öll fyrir innlitið. Nú er svo mikið að gerast á alþingi að enginn veit í rauninni hvað verður næst. En ef Sjálfstæðismenn og Samfylking halda að þau geti bara farið saman í stjórn, án undangenginna kosninga, þá vona ég svo sannarlega að þjóðin hafi kjark og áræði til að standa gegn því.
Það yrði algjörlega óþolandi ástand.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 21.9.2010 kl. 22:08
Ástandið í þjóðfélaginu er orðið mjög eldfimt, það þarf ekki mikið í viðbót til þess að fólk fari út á götu. Það er allavega mín trú...
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 21.9.2010 kl. 22:46
Haglabyzzur & heykvízlar, hef zagt það í hundrað athugazemdum við bloggerí annara áður...
Steingrímur Helgason, 21.9.2010 kl. 22:59
Satt er það Jóna. Ég finn bara á eigin skinni hvað ég er orðin reið og illa þreytt á þessum gölum á þinginu. Sjálfstæðismenn og Samfylkingin eru svo samspillt að það væri gustukaverk að koma þeim öllum út af þingi.
HEhe Steingrímur já Haglabyssur og heykvíslar, það er ef til vill málið.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 21.9.2010 kl. 23:05
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.