Leiklistarskóli Kómedíuleikhússin og svo smá annað.

Ég fór á setningu Leiklistarskóla Kómedíuleikhússins í dag.  Þar sem ég hef skráð drenginn minn til þáttöku.  Elvar Logi Hannesson er skólastjóri og meðkennari hans er Ársæll Níelsson.  Það kom fram í setningarræðu Elvars Loga að þetta er fyrsti leiklistarskóli á Vestfjörðum.  En Elvar Logi er landsþekktur fyrir stofnun Kómedíuleikhússins og sérstaklega Act Alone leiklistarviðburðanna sem er orðin árlegur viðburður á Ísafirði og er orðin heimsþekkt uppákoma.  Sem við ísfirðingar erum stolt af.  En einnig hefur Elvar Logi samið og sýnt ýmsar áhugaverðar sýningar sem vakið hafa landsathygli og langt út fyrir landsteinana, svo sem eins og Gísla saga Súrssonar.  Fimm frumsýningar eru fyrirhugaðar á næsta leikári.  Það eru aldeilis góðir hlutir sem Kómedíuleikhúsið er að gera, og frábært starf.  ELvar Logi og hans frú hafa svo sannarlega lyft listalífinu hér á annað svið, og þó er af nógu að taka, því menningarbærinn Ísafjörður er og blífur.  Þetta á eftir að auka þann hróður enn frekar.

IMG_5138

Þeir félagar Ársæll og Elvar Logi við setninguna.

IMG_5139

Og þeir félagar brugðu á leik, svona til að sýna hvað væri í aðsigi.

IMG_5141

Eitt það fyrsta sem maður lærir í leiklist er að "selja sig".  eða sýna með stæl.

IMG_5142

Foreldrum og tilvonandi þátttakendum var síðan boðið upp á veitingar.

IMG_5143

Að joggla er eitt af viðfangsefnunum.

IMG_5144

ekki brást honum bogalistinn okkar manni.

Annars er ég rosalega ánægð með þetta leiklistarnámskeið, að vísu held ég að Listaskóli Rögnvaldar hafi haft eitthvað svona á sinni könnu. En ég var á sínum tíma fenginn til að vera með svona leiklístarnámskeið í Barnaskólanum í Hnífsdal, þegar hann var og hér, var það í tvo vetur, og ég verð að segja miðað við þá reynslu að það þyrfti að vera leiklistarkennsla í öllum skólum landsins, því þar er hægt að gera svo margt til að ýta undir sjálfstraust barna, þarna er líka auðvelt að koma í veg fyrir einelti, það var eitt af því sem við þurftum að takast á við á þeim tíma.  Og allt svona starf er svo uppbyggjandi og gott fyrir krakka að það er í raun og veru ótrúlegt að ekki skuli vera skylda að vera með leiklist í öllum leikskólum.  Ég óska Kómedíuleikhúsinu alls hins besta í sínu starfi.  Þeir eru að byggja eitthvað upp til framtíðar.  Og eru opnir fyrir öllu, líka fólki annarsstaðar frá, með leiklistarnámskeið í huga svo og aðstoð frá leikurum sem vilja láta gott af sér leiða ef þeir vilja styrkja gott mál og hafa ekkert annað betra að gera.

Takk fyrir mig.

 

IMG_5145

Á leiðinni heim rakst ég á þennan flotta hund, hélt fyrst að hann væri uppstoppaður eða stytta, en hann er bara þarna og lætur sér vel líka, flottur!!!LoL 

IMG_5147

Þeir félagarnir voru saman að vinna í dag við að planta út og setja plöntur í potta.

IMG_5149

Þetta eru launinn hans Snúðs, kembing, hann elskar þetta og afi keypti bursta og þarna ná þeir tveir vel slaman.

IMG_5151

Það er notalegt þegar maður hefur staðið sit vel í vinnunni, að hvíla sig eftir vel unnin störf.  Lofið þreyttum að sofa og allt það.

En ég segi bara góða nótt og megi allar góðar vættir vaka yfir ykkur og vernda. Heart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Góða nótt Cesil mín og megi sömu vættir vernda og vaka yfir þér

Hrönn Sigurðardóttir, 19.9.2010 kl. 22:11

2 Smámynd: Kidda

Sammála með hundinn, ótrúlegt að borðið skuli halda honum ef ég man það rétt þá eru svona borð yfirleitt völt.

Leiklistarnámskeið ættu að vera skyldufag í grunnskóla, ekki endilega til að kunna að leika, heldur til að efla sjálstraust og sjálfsmat.

Knús í kærleikskúlu (hjarta)

Kidda, 20.9.2010 kl. 09:12

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk Hrönn mín.

Já Kidda, hann er of stór fyrir borðið, en eflaust vanur að sitja þarna og hefur gott jafnvægi.

Já alveg rétt, leiklist er nauðsynlegur undirbúningur undir lífið og að takast á við sjálfan sig.  Gerir öllum gott.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 20.9.2010 kl. 11:25

4 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Frábært framtak hjá þeim félögum, mér finnast nú myndirnar af afa og Snúð alveg toppurinn, þetta kallar maður nú vinskap

Knús í Kúlu

Ps. Næ ekki að setja inn hjörtu og svoleiðis veistu nokkuð ástæðuna, er eitthvað bilað?

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 20.9.2010 kl. 11:34

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Þú þarft að skoða hvort broskallarnir séu ekki opnir einhversstaðar á bak við.  Ef svo er, geturðu ekki sent svoleiðis.  Prófaðu að slökkva á tölvunni og kveikja á henni aftur og vittu hvort þeir skælbrosa ekki framan í þig eftir það. Knús á þig Milla mín.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 20.9.2010 kl. 12:09

6 Smámynd: Sóldís Fjóla Karlsdóttir

Ég var með barnabörnin frá Spáni og hafa þau mikinn áhuga á leiklist..... svo að ég er með leikhúsi af 0llum tegundum. Annað barnabarnið mitt var á námskeiði í Borgarleikhúsinu en hitt var á námskeiði hjá Gerplu. Og voru bæri námskeiðin fín og mæli ég hiklaust með þeim.

En hundurinn og kötturinn eru bæði flott .

Sóldís Fjóla Karlsdóttir, 20.9.2010 kl. 13:38

7 identicon

Mikið rosalega er Snúður heppinn að fá svona dekur. Leiklistarskólinn er örugglega frábært framtak.

Dísa (IP-tala skráð) 20.9.2010 kl. 16:51

8 Smámynd: Kidda

Ég hef margoft slökkt á tölvunni og ég fæ broskallana upp en þeir birtast ekki í færslum :(

Kidda, 20.9.2010 kl. 17:56

9 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Jónína Dúadóttir, 21.9.2010 kl. 06:11

10 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk fyrir innlitið Sóldís, já leiklist er eitthvað sem getur gert stóra hluti fyrir manneskjur, sérstaklega ef þær eru feimnar og óframfærnar.

Dísa mín já hann elskar að láta afa kemba sér. 

Kidda þú getur gert eitt, farðu í help and support, og settu daginn áður en broskarlarnir hurfu það kemur upp listi, og þú ferð á þar sem segir; undo changes you dit to your computer viðt  System Restore, þá ættu þeir að koma inn aftur, allavega tilraun. 

Knús Dúa mín.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 21.9.2010 kl. 10:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 38
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 31
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband