Afmælið og nokkrar myndir.

Veðrið í dag er yndislegt, það var rok og rigning í gær, en í dag sól og logn.  Ég er að reyna að manna mig upp í að ganga frá plöntunum mínum undir veturinn, það er bara svo rosalega mikið mál, og ég hreinlega svo löt, að það gengur hægt.InLove ég er haldinn einhverjum verkkvíða, og kem mér ekki að hlutunum, verð að beita mig hörðu til að fara af stað.  Er líka farin að kvíða deginum sem nálgast sífellt, deginum fyrir ári þegar allt lífið hrundi til grunna.  En maður verður víst bara að taka því.

 

IMG_5088

Vorum boðin á föstudagskvöldið til okkar ástkæru El Salvadora í grill, og hér fæ ég gjöf fráAlejöndru minni.Heart

 Ég átti annars yndislegan afmælisdag.  Veðrið var frábært, ég sat og sleikti sólina og naut mín í botn.  Og svo fékk ég allt þetta beint í æð, regn, regnboga, sól og ljósasjów.  

IMG_5095

En almættið lét ekki bara sólina skína á afmælisdaginn minn, heldur hélt fyrir mig sýningu, hér er eitthvað sem afarsjaldan gerist á Íslandi.... lóðrétt rigning.  Hvítu strikinn á myndinni er regn.

IMG_5097

Ég fékk líka regnboga....

IMG_5099

Og ljósasjów.  Dásamlega fallegt, og ég var mjög hrifinn að himnafaðirinn og vættirnir skyldu muna eftir mér.

IMG_5101

 

Það er svo skemmtilegt hér á Ísafirði, að það er matsala í Tjöruhúsinu í Neðsta Kaupstað, en líka í Faktorshúsinu í Hæsta Kaupstað.  Þar erum víð hér.  Það hefur nýlega verið skipt um vert hér, og við fengum góðan mat, lamb og pönnusteiktan fisk.  Vertinn ætlar að vera með svona heimilismat í hádeginu í vetur fyrir þá sem vilja, og ég er viss um að fólk kemur hér og matast í þessu notalega húsi, sem er reyndar alveg eins og Neðsti kaupstaður sögufrægt hús.

IMG_5102

Um að gera að nýta sér það sem býðst reyndar fer líka að opna í Edinborg nýr staður og svo er Hótelið, það er líka hægt að borða thailenskan mat á Thai Koon og svo er hægt að fá allskonar í Hamraborg.

Ekki mun okkur skorta tækifærin til að matast úti hér á Ísafirði, svo mikið er víst.

IMG_5104

Barnsmóðir Júlla míns hafði svo boðið okkur í heita pottinn og osta, freyðivín og rauðvín um kvöldið, og það var mjög yndælt.

IMG_5109

Góður endir á yndislegum degi.  En ég verð að segja ykkur það sem gerðist líka.   Úlfur kom seinna en við, hann hafði farið heim, þar sem við sitjum á spjalli í eldhúsinu, er áberandi mynd af Júlla mínum á veggnum beint á móti mér.  Allt í einu kemur Ólöf Dagmar dóttir Siggu hlaupandi fram og segir; hvaða maður er hérna, ég sá einhvern.... í því er bankað á dyrnar og ég veit að það er Úlfur.  Ég er alveg sannfærð um að maðurinn sem Ólöf sá var Júlli minn.  Sem kom á undan syni sínum.  Og það var bara svo notalegt.  Heart

Hann er oft að láta vita af sér, vegna þess að hann veit að ég syrgi hann svo mikið. Heart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kidda

Ekki ósennilegt að hann sé í kring um syni sína og fjölskyldu.  Og ekki síst mömmu í kring um mömmu sína. Veðurguðirnir hafa sýnt þér mikla velþóknun á deginum þínum.

Þekki verkkvíðann allt of vel og hve auðvelt er að láta undan þeim skolla.

Knús í kærleikskúluna (hjarta)

Kidda, 13.9.2010 kl. 18:37

2 identicon

Meðal gjafa viskunnar sem gæða líf okkar hamingju ,er vináttan sem mest er um vert(Epíkúros)

                                                     

Ragna Birgisdóttir (IP-tala skráð) 13.9.2010 kl. 19:22

3 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Ljúfust mín mikið hefur þú átt ríkann dag og ekki skemmir að vita af sínum
Myndirnar eru yndislegar
Kærleik í kúlu.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 13.9.2010 kl. 20:24

4 Smámynd: Laufey B Waage

Síðbúnar afmæliskveðjur.

Gott að vita að afmælisdagurinn var góður.

Laufey B Waage, 13.9.2010 kl. 20:40

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk mínar kæru.  Það er yndislegt að eiga svona góða vini að bæði hér og á facebook, þó ég kunni ekki alveg á þá bók.  En það er svo notalegt að fá svona fallegar kveðjur og hjartahlýju.  Það gefur manni tækifæri til að halda áfram og veraglöð með sitt.  Innilega takk.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 13.9.2010 kl. 22:02

6 identicon

Innilegar hamingjuóskir með afmælið.

Ásta Einarsdóttir (IP-tala skráð) 13.9.2010 kl. 23:01

7 identicon

Gott að þú áttir góðan afmælisdag. Mig furðar ekkert á að Júlli skuli vera nálægt þér. Með vekkvíðann, þú verður bara að fara að spá í það í alvöru að gera eins og ég og hafa þá meiri tíma fyrir sjálfa þig og áhugamálin. Knús

Dísa (IP-tala skráð) 14.9.2010 kl. 16:06

8 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk Ásta mín.

Dílsa já ég er heilmikið að spá í þetta, vil helst bara hætta og fara að hlú að sjálfri mér. Þetta er komið nóg.  Ef við viljum eiga góða stund áður en það verður of seint, þá verðum við að fórna einhverju.  Ég er alvarlega að spá.  Knús og takk.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 15.9.2010 kl. 11:19

9 Smámynd: Faktor

 Gaman að sjá myndir úr Faktorshúsinu Hæstakaupstað og ánægju ykkar með matinn hjá nýja "ráðsmanninum", honum Guðbrandi Baldurssyni

www.faktorshus.is

Bestu kveðjur frá okkur við Austurvöll í Hæstakaupstað, Ísafirði

www.worldvacationrentals.net/docs/e/vacation_rentals/europe/iceland/holiday_apartment_golf_ski_59175.htmlwww.flickr.com/photos/77372516@N00/www.randburg.is/is/aslaug/index.asp

Faktor, 15.9.2010 kl. 21:08

10 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já þetta er aldeilis notalegt hjá ykkur í Faktorshúsinu, og ég mæli með matnum hjá Guðbrandi. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 15.9.2010 kl. 22:46

11 Smámynd: Dagný

Síðbúnar afmæliskveðjur og hjartans knús til þín Ásthildur mín. Farðu vel með þig

Dagný, 18.9.2010 kl. 00:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 38
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 31
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband