2.9.2010 | 13:00
Smá hugleiðing í sól og blíðu á Ísafirði.
Þegar þetta er ritað er orðið ljóst að ráðherraskipti hafa orðið í ríkisstjórn. Jóhanna hefur setir sveitt við að ráða og reka. Hún virðist hafa gert þetta alein því enginn þykist vita neitt eða hafa með málin að gera. Meira að segja aðspurður sagði Össur í gær og lyfti höndum eins og biskupnum er svo gjarnt, að það væri alvaldurinn sem réði þessu öllu.
Finnst engum það skrýtin vinnubrögð að þó einhver sem vinnur sem forsætisráðherra, geti að eigin geðþótta deilt og drottnað? Enginn veit neitt, eða getur sagt af eða á?
Ég held að þessi ágæta manneskja sé komin á frekar hálan ís. Hún tók að sér (Pínd) forystu í ríkisstjórn þar sem samfélgaið var með allt niður um sig. Enginn treysti sér til að taka við búinu. Auðvitað vissu allir á þinginu hvar var í farvatninu, og þeim þótti vænna um eigið rassgat, (hefðu ef til vill hoppa þangað sjálfviljugir til að sleppa)
En Jóhanna taldi sig geta ráðið við þetta. En því miður þá fór svo að þessi fyrrum vinsælsti ráðherra, missti allan trúverðugleika frá fyrstu dögum. Það hefði ekki þurft að fara svo. Ég skili ekki ennþá af hverju hún sprengdi bombu í sinni fyrstu ræðu, sem hún hefði átt að vita að myndi sundra þjóðinni. Eftir það varð ekki aftur snúið. Ef hún hefði til dæmis byrjað á því að setja saman skjaldborg um heimili, hlú að sálarlífið þjóðarinnar. Hefði bæði þessi ríkisstjórn og hún sjálf geta setið sátt við Guð og menn.
Þessi afglöp hennar hljóta að vera vegna þess að hún hafði ranga ráðgjafa, eða að hún réði ekki sjálf. Var bara frontur fyrir aðra sem ekki treystu sér í óvinsældirnar sem þeir vissu að myndu koma.
Nú er hún komin út í horn og flestir búnir að snúa við henni bakinu. Þeir skjalla hana svona til að sýnast, en sverja af sér allt sem hún er að gera með þessar skiptingar. Ég veit ekkert, ég gerði ekkert, ég hefði auðvitað gert þetta öðruvísi, geta þeir nú hvíslað að reiðum flokksbræðrum.
Ég hafði trú á Jóhönnu lengi vel, eða alveg þangað til hún varð forsætisráðherra og gerði sitt fyrsta verk að leggja til að við yrðum að fara inn í ESB. Síðan hefur hún valdið mér sífellt meiri vonbrigðum, og loks þannig í dag að ég þoli ekki manneskjuna. Það gerir svo sem ekki mikið til í sjálfu sér, því hún er að mestu horfinn af yfirborði jarðar. Það er bara í svona málum sem hún er dregin fram og látin taka ábyrgðina.
Steingrímur siglir lygnan sjó með sitt fólk. En meira að segja lyng sjór getur verið varasamur, því þó yfirborðið sé slétt, getur ýmislegt ógeðfellt og hættulegt leynst þar undir. Og ein mistök geta kostað að skrýmslin skríða upp. Jafnvel á versta tíma.
Steingrímur hefur verið uppvís að svíkja öll sín kosningaloforð. Og mér sýnist á öllu að grasrótin sé ekki par ánægð, og margir hafa látið sig hverfa. Flýtur meðan ekki sekkur virðist vera mottóið hjá honum.
Lítið hefur heyrst í formanni Framsóknarflokksins undanfarið. Hann er að átta sig á að best er að þegja og láta stjórnina um vindhögginn. Leyfa pöplinum að gleyma Framsóknarflokknum smátíma, því fólk er svo fljótt að gleyma.
Sama er um Sjálfstæðisflokkinn. Bjarni Ben er ekki mikið í umræðunni í dag, þar er teflt fram konu sem þykir vera í hreinni kantinum Ólöfu Norda.
En grasrótin, fólkið í landinu horfir upp á þetta og veit ekki sitt rjúkandi ráð. Hvar er Skjaldborgin, hvar er velferðarbrúin, hvar er björgun smá fyrirtækja og uppbygging atvinnutækja?
Þetta hefur allt verið sett aftur fyrir björgun útrásarvíkinga, hjálpa þeim að afskrifa skuldir en halda að mestu eigum sínum. Hafa fólk í skilanefndum bankanna sem var sjálft tengt inn í bankahrunið. Þar sem er vélað um fyrirtæki landsins, og sumum hyglað öðrum sparkað. Engar aðgerðir til að bjarga landsbyggðinni. Allt skal sogað til Reykjavíkur.
Ég vona samt að þessi uppstokkun verði til góðs þrátt fyrir allt. Ég hef trú á Ögmundi Jónassyni, og gleðst yfir að hann fái embætti sem felur í sér dómsmál, innflytjendamál og málefni lögreglunnar. Þessi mál hafa að mínu mati verið í algjöru lamasessi og ómannúðleg.
Ég er líka ánægð með að þau þorðu ekki að hrófla við Jóni Bjarnasyni, því ég held að hann sé staðfastur og góður vinnumaður. Ég skora á hann að þora að ráðast að stærsta vanda þjóðarinnar, það er að knésetja L.Í.Ú og landbúnaðarmafíuna, þá sem vilja deila og drottna yfir þessum málum.
Það þarf að losa um kvóta bæði í sjávarútvegi og landbúnaði. Leyfa bændum að slátra heima og selja sínar afurðir sjálfir, en ekki standa vörð um mafíu sem vill stjórna bændum eins og hverjum öðrum leiguliðum. Það þarf að afnema kvóta bæði í sjávarútvegi og landbúnaði, og afskrifa skuldir á móti. Þannig að bændur og sjómenn geti byrjað á núlli, nema auðvitað þeir sem skulda langt umfram kvótaeign. Til að gera þetta þarf kjark og þor. Því þessir aðilar hafa komið sér svo fyrir að þeir verja sinn "eignarrétt" með kjafti og klóm, og halda þar með landinu í fátæktarböndum þræla.
Ég er líka ánægð með Svandísi Svavars því hún þorir að standa fast gegn landnýðingum sem vilja valsa yfir náttúr Íslands og selja hana útlendingum. Það þarf samt að gera enn betur og ná HS orku af Magma.
Ég get alveg ímyndað mér að Guðbjartur geri góða hluti í Velferðarráðuneyti, en skil ekki af hverju menn notuðu ekki tækifærið og losuðu sig við sólbrúna snoppufríða flónið sem er ekki nógu þroskaður til að hafa þau völd sem hann fær. Það hefði verið hægt að fá konu í staðinn, ef Jóhönnu var svona mikið um að halda kynjakvóta. Sem mér finnst reyndar skipta minnstu máli. Aðalmálið er að þær manneskjur sem veljast til starfa fyrir okkur landslýð séu starfi sínu vaxinn, hvort sem þau hafa tippi eða píku, fyrirgefið orðbragðið, en þetta er svo tussufínt tungumál sem við erum farin að taka upp hér í stjórnsýslunni.
Reyndar hef ég hugsað mér að minnka til muna að ræða þjóðfélagsmál. Hætta að mestu að hlusta á fréttir og fara að hugsa um það sem stendur mér nær. Ég er orðin gömul kona, ég get ekki breytt heiminum, en ég get ef til vill komið smá gleði og von til vina minna. Þ.e.a.s. ef ég festi mig ekki í þeim dapurleika sem stjórnmál eru í dag. En þau eru beinlínis mannskemmandi öllu hugsandi fólki, sem hefur réttlætiskennd og vill jafnræði þegnanna.
Ég vil segja þetta að lokum. Hverri upphefð fylgir ábyrgð. Og þó sprelligosarnir sem er hyglað á alla lund af kjötkatlakósýstólaliði virðist sleppa fyrir horn. Þá kemur sú tíð að þeir munu þurfa að borga til baka það vonda sem þeir baka öðrum. Þetta fólk getur því brosað og hrósað sigri, en það getur alveg verið meðvitað um að það getur aldrei keypt sér virðingu samborgaranna, né fyrirgefningu ef það sýnir ekki iðrun. Hamingjan eina og sanna er heldur ekki til sölu.
Enginn getur verið glaður og frjáls nema vita í hjarta sínu að hann hafi komið vel fram við alla, sýnt þeim virðingu og velvild. Og fyrir almættinu erum við öll jöfn. Það getur því enginn hreykt sér eins og hani á haug, nema fyrir sjálfan sig. Þetta mun koma vel fram í vetur, þegar kúlu- og spillingarlið sest aftur á alþingi Íslendinga, búið að fá bagga sína afskrifaða, en þarf að horfa upp á að allt er tekið af almennum borgurum. Skyldi til dæmis afskrifaðar 500 millur ekki fljúga í gegnum einhvern huga? Nú eða milljónir sem menn sönkuðu að sér og hafa ekki viljað gera grein fyrir, þegar einstæðar mæður verða bornar út af heimilum sínum. Svo ekki sé talað um staðföst laun fyrir þingstörf og feitir eftirlaunasjóðir í biðstöðu.
Ég get ekki borið virðingu fyrir þessu fólki, og mér þykir það ekki einu sinni leitt. Hjarta mitt slær með fólkinu sem býr í þessu landi og er undirokað af öðru fólki sem er komið langt frá því samfélagi sem hér er. Enda von ég er ein af þeim.
Þess vegna verðum við að fara að læra að standa saman, og sameina kraftana til að búa til réttlátara, sanngjarnar og manneskjulegra samfélg.
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.6.): 5
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 43
- Frá upphafi: 2023334
Annað
- Innlit í dag: 5
- Innlit sl. viku: 36
- Gestir í dag: 5
- IP-tölur í dag: 5
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Við bíðum og sjáum hvað setur, seinna vitnast hvernig fer.
Ásdís Sigurðardóttir, 2.9.2010 kl. 13:04
Er búin að fá upp í kok af fréttum af stjórnmála og auðmönnum. Vildi frekar heyra fréttir um að td kúlan yrði seld ykkur á matsverði. Verðtryggingin færð til baka, Það yrði að lögum að fólk sem yrði gjaldþrota væri komið með hreinann skjöld tveimur til þremur árum eftir gjaldþrot. Hætt væri að fella niður skuldir auðmanna en felldar niður skuldir fólks sem hefur ekki tekið þátt í óráðsíunni. Það þarf ekki að fella mínar skuldir niður en ég vil fá leiðréttingu á verðtryggða láninu mínu. Mjög svo sanngjörn krafa að mínu viti.
Skjaldborgin um heimili landsins og litlu fyrirtækin verður aldrei að veruleika enda var það aldrei á dagskrá. Heldur er treyst á að við högum okkur akkúrat eins og við erum að gera núna, tautum hver í sínu horni og á netinu í stað þess að hrista upp í okkur og gera byltingu. Það verður aldrei bylting eða mótmæli hér á landi sem hafa einhver áhrif til batnaðar, því miður. Það liggur við að við sem þjóð uppskerum það sem aðrir sá fyrir okkur og okkur er nokk sama. Við erum vön því að rétta hina kinnina og munum halda því áfram í það óendanlega.
Knús í kærleikskúluna
Kidda, 2.9.2010 kl. 14:08
Hún losaði sig EKKI við sólbrúna, snoppufríða skoffínið vegna þess að það er talað um ÞAÐ sem næsta formann LANDRÁÐFYLKINGARINNAR.
Jóhann Elíasson, 2.9.2010 kl. 16:03
Jamm Ásdís það er allt í lagi að bíða smá og sjá hvernig tekst til.
Sama hér Kidda mín, ég held að sálin mín þoli ekki meira pólitískt rugl í bili. Best að snúa sér bara að því góða og fagra svona í bráð.
Hahaha Jóhann það lá við að ég dytti niður úr stólnum, sólbrúna snoppufríða skoffínið, ertu ekki að grínast að þau hugsi sér að gera hann að formanni flokksins, með fullri virðingu fyrir þessum manni, sem er örugglega hin besta sál, en ég held að hann geti skki stjórnað sjálfum sér hvað þá heilum stjórnmálaflokki sem þar að auki er út og suður.
Það verða ekki kattasmalanir þar í gangi heldur þarf sennilega kanínugildrur.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 3.9.2010 kl. 11:50
Ég er þér alveg sammála en þetta hef ég eftir LANDRÁÐAFYLKINGAMANNI úr innsta hring og sel það ekki dýrara en ég keypti.
Jóhann Elíasson, 3.9.2010 kl. 12:37
Á þá að veiða atkvæði hjá kvenþjóðinni með því að hafa snoppufrítt og sólbrúnt skoffín
Gangi þeim vel
Kidda, 3.9.2010 kl. 19:35
Kjötkatlakósýstóll = ráðherrastóll
Það virðist vera alveg sama hvaða fólk velst í áðurnefnda stóla, það virðist allt umturnast þegar þangað er komið og sýnir sínar verstu hliðar.
Sigrún Aðalsteinsdóttir, 4.9.2010 kl. 17:29
Áshildur! þetta var vel uppsafnaður sannleiks-pistill hjá þér.
það liggur í kortunum að Guðbjartur Hannesson, sá ágæti maður verður arf-taki Jóhönnu blessaðrar og enginn betur til þess fallinn. Hann hefur góða samskiptahæfileika, réttlætiskennd og siðferðisþroska ásamt festu og dugnaði til þess að vera í brúnni. Og ekki er verra að hann hefur reynslu úr skólastarfi að halda uppi aga
það er svo vonandi að verða vakning í þjóðfélaginu um að enginn einn getur stjórnað óstuddur! þjóðin verður að standa saman og styðja gott fólk til góðra og réttlátra starfa! Ég óska honum velfarnaðar í því vandasama starfi sem hann hefur fengið.
M.b.kv.
Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 5.9.2010 kl. 09:54
Hehe Sigrún segir allt sem segja þarf.
Takk Anna mín, já það er reyndar alveg rétt hjá þér að okkur ber að styðja við bakið á góðu fólki, og þar með hvetja það áfram til góðra verka. Eins eigum við að láta vita þegar við erum ekki ánægð. Þetta á að fara fram yfir alla flokka, og flokkadrætti. Við þurfum að draga fram þá einstaklinga sem gera vel í hvaða flokki sem þeir eru, og svo ýta við hinum sem eru þarna ekki á réttum forsendum. Þeir eru því miður miklu fleiri.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 5.9.2010 kl. 16:47
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.