30.7.2010 | 21:20
Nokkrar myndir.
Já datt í hug að setja hér inn nokkrar myndir.
Himnagalleríið hefur verið opið undanfarið sumar. Enda veðrið algjörlega yndislegt í allt sumar.
Veðrið er reyndar best geymda leyndarmál Vestfjarða, því það er vandlega þagað yfir því í okkar ríkismiðlum, en um leið og sést til sólar á Akureyri og fyrir austan þá er allt tíundað og sagt frá á tíumínútna fresti að þeir eigi nú góða veðrið. Jamm svoleiðis er það bara. En fólk er að uppgötva það núna hve veðrið er jafngott hér fyrir vestan og það er vel.
Hér eru líka sögurnar um álfa og tröll rótföst og naglföst.
Það er samt ekki allt fallegt hérna skal ég segja ykkur, mengunin frá Funa er hrikaleg og ég hef þá grunaða um að kynda ótæpilega allt krappið meðan við sofum og þegar ég kem út á morgnanna fyrir kl. 7 má sjá mengunina um allan pollinn, og jafnvel hefur það verið svo svakalegt að Funi sorpbrennslustöðin sjálf hefur ekki sést fyrir mekkinum. Nú er hafin undirskriftasöfnun meðal almennings um að stöðva þessa mengun og þó fyrr hefði verið.
Það er eitthvað mikið að þegar til dæmis plöntur verða jafn aflagaðar og ég hef sýnt myndir af hér fyrr, og þessi bláa mengun legst yfir allt. En þetta er sennilega tapú.
ég vil þessa sjónmengun burt og þar sem hefur komið í ljós að þetta er ekki bara sjónmengun heldur raunveruleg hættumörk vil ég láta færa stöðina annað. Þessi er hvort sem er úr sér gengin og úrelt og biluð.
Ísafjörður er samt sem áður vaxandi ferðamannabær enda fallegur og veðursæll með afbrigðum.
Hér er verið að undirbúa Evrópukeppni í Mýrarbolta. Það var ekki mikið rætt um það í sjónvarpinu í kvöld. Það hefði einhversstaðar verið talið fréttnæmt. En ég veit ekki hvað það er þessi tregða fjölmiðla til að segja frá því merkilega sem hér gerist. Þó eigum við fullt af fólki sem vinnur á fjölmiðlum, dugir bara ekki til. Enda lögðu þeir niður Rúvvest og tóku upp einhverskonar landsúrvarp í klukkutíma, sem á að þjóna allri langsbyggðinni en er mest frá Akureyri enda keyr þaðan. Og þó við teljum okkur afskipt þá held ég að við séum samt sem áður hátíð miðað við aðra landsbyggðahluta. Svei þér Páll Magnússon, þú og þinn jeppi ættu að víkja á undan svæðisútvörpum landsins. En við hverju býst maður með hvern 101 menntamálaráðherran á fætur öðrum, sem heldur að lífið hefjist og endi í Austurstræti.
Ekki vera með þetta raus Ásthildur mín. Þú bara móðgar fullt af fólki. En svona er ég bara. Ég vil eiginlega helst af öllu að við Vestfirðingar segjum okkur úr lögum við Ísland. Verðum sjálfstjórnarsvæði eða sjálfstætt ríki, með öllum okkar gögnum og gæðum, myndum við lifa vel og vera sjálfum okkur meira en nóg og aflögufær þar að auki. Fyrir utan mannauðgina, slagkraftinn og andlegt atgerfi og þrautsegju sem við eigum, þá er þar svo margt margt fleira.
Aron Máni og Kristján Logi komu í heimsókn, þeir eru staddir á Íslandi, einnig Sóley Ebba. Hún er hjá ömmu og afa núna, þeir fengu að gista eina nótt. Þessi unga dama er barnabarn æskuvinkonu minnar Dísu, og kippir svo sannarlega í krakkakynið sem hingað kemur.
Eins og sjá má, gefur Hönnu Sól ekkert eftir
Obbobb obb flott og kúl!
Þessi lætu sér samt fátt um finnast og er hvorki kúl né kaldur, bara mjúkur og krúttlegur. Annars var dýralæknirinn minn að hrekkja hann. Klippti af honum neglur og setti á hann bjöllu til að forða fuglunum frá honum. Hann er nefnilega ekki svona letilegur ef hann sér fugl, þá er hann rosalega snöggur og ef ég skamma hann, hleypur hann bara að heiman og leggst upp á fólk í nágrenninu. Ekkert svona góða, hugsar hann.
ég held að Aron Máni verði musikstjarna. Hann er rosalega flottur, semur lög og flytur, þó hann hafi aldrei lært neitt gerir þetta samt af snilld og ekki á hefðbundin hljómahátt. Nei hann kemur með nýja takta á gítarinn.
Æ það er notalegt að hafa aftur húsið fullt af krökkum, og líka frekar hljóðlátt og þægilegt þegar þau eru farin þessar elskur.
Amma settu í mig slaufu, sagði stubbur, en það er afskaplega spennandi að fara í fatakistuna hjá ömmu og klæða sig upp.
Og bóndinn gaf mér nýja peysu, prjónaða af nöfnu minni í Súðavík, falleg og hlý peysa.
Hún prjónaði líka þessa fallegu peysu á hann og gaf honum. Svona á fólk að vera Takk fyrir okkur Ásta mín
Og svo stóð ferðalag fyrir dyrum, Elli minn og unglingarnir fóru inn í Seyðisfjörð í kvöld og þá þurfti að setja pallhúsið upp á pallinn. En það fauk fyrir nokkrum árum og brotnuðu undan því fætur og ýmislegt fleira, en við notum það nú samt, því það veitir skjól og ýmislegt annað notalegt.
Og litli stubbur þvældist svo fyrir að gröfukarlinn tók hann bara inn í gröfuna, þá veit ég hvar hann er, sagði Jói og hló.
Svoleiðis er það nú. En ég vil óska öllum mínum vinum og samferðafólki gleðilegrar verslunarmannahelgi. Megi allir góðir vættir vera með ykkur og vernda.
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.6.): 0
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 35
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 30
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Góða helgi elskuleg og haltu endilega áfram að vera akkúrat nákvæmlega eins og þú ert

Jónína Dúadóttir, 31.7.2010 kl. 06:27
Ragna Birgisdóttir (IP-tala skráð) 31.7.2010 kl. 09:56
Takk fyrir síðast. Aldís er voða hreykin að vera komin á bloggið hjá þér og finnst þau koma vel út
.
Dísa (IP-tala skráð) 31.7.2010 kl. 10:03
SEndi þér hlýja kveðju frú Cesil, ekki fyrirferðarmikill hér lengur,les blogg sárasjaldan eða skrifa. Vona að þér líði bærilega og njótir lífsins þótt stundum vilji á þér skella ólgusjórinn.
Magnús Geir Guðmundsson, 1.8.2010 kl. 22:03
Yndislegt eins og alltaf, rosalega er góð myndin af þér í peysunni, ég sé að þér er farið að líða örlítið skár. Kisi á í mér hvert bein, verð að fá að stela myndinni, knús og takk fyrir mig í dag.
Ásdís Sigurðardóttir, 2.8.2010 kl. 13:13
Sæl ljúfust mín, flottar myndir að vanda, bað einn mann að knúsa þig frá mér ef hann hitti þig á förnum vegi, vona að hann þori því.
Kærleik í Kúlu
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 2.8.2010 kl. 20:40
Takk öll fyrir innlitið. Hehehe Milla við skulum sjá til með það...
Ásdís hann er algjört krútt þessi köttur
Takk Magnús minn, já mér líður mikið betur, og satt að segja þá er ég áhættufíkill, og hef lúmskt gaman af þeim sjógangi.
Dísa mín stelpan þín er algjört æði.
Takk Jónína mín.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 3.8.2010 kl. 20:44
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.