29.7.2010 | 20:26
Hótunin í kastljósinu.
Jamm það er alveg óþarfi að breiða yfir hver sendi hana eða hilma yfir hvers vegna. Hér er hún einfaldlega.
Ágæti Sölvi, mér hefur verið bent á viðtal sem tekið var við Jónínu Benediktsdóttur varðandi nýju bókina sem mér skilst að hún sé að semja með þinni aðstoð. Í þessu viðtali kom þetta m.a. fram:
Jónína á Útvarpi Sögu 23. júlí 2010:
"Svo sitja 6-7 einstaklingar heima á blogginu að níða mig niður fyrir það að namedroppa. Ég er með nöfnin á öllum þessum gaurum af því ég náði í ip-númerin hjá malefnin.com. Það er nú til dæmis ein sagan. Er það ekki mál að vita......
Guðmundur Franklín: "Hver á malefnin.com?"
Jónína: "Nákvæmlega. Það færðu að vita í bókinni."
Sölvi Tryggvason: "Þetta er allt skýrt."
Jónína: "Þetta er allt skýrt. Þetta er malefnin.com. Þeir stjórnuðu samfélagsumræðunni hérna
mjög lengi þó að ákveðnir aðilar neiti að viðurkenna það.
Sverrir Stormsker: "Var þetta ekki spyrt við DV á sínum tíma?"
Jónína: "Það kemur í ljós."
Mér finnst hið besta mál að Jónína gefi út bók og ekkert verra ef hún getur flett ofan af spillingu í þjóðfélaginu. En hér er hún á villigötum. Ég er ábyrgðarmaður Málefnanna.com og stjórna vefnum alfarið, ásamt nokkrum öðrum meðstjórnendum sem ég þekki alla vel. Núverandi eigandi Málefnanna er Guðmundur Ingi Hjartarsson. Við höfum átt gott samstarf að því marki að taka á ýmsum tilfallandi uppákomum, þar sem kvartað hefur verið við hann um nafngreinda íslendinga með slúðri og hótunum um lögsókn. Aldrei hefur komið þar upp nein tilmæli eða beiðni um að sérmeðferðar gæti við Bónusfeðga. Þeir hafa þó sennilega verið rakkaðir manna mest niður á Málefnunum.com.
Að þeir stjórni umræðunni þar er bull út í loftið, og ég vona að Jónína hafi meira fyrir sér í öðrum þeim málum sem hún hyggst setja fram í bókinni.
Ef hún svo ætlar að gefa upp IPtölur málverja, sem hún fékk með hótunum upp úr fyrri eiganda, mun ég kæra hana umsvifalaust til Persónuverndar og krefjast þess að stopp verði sett á útgáfu bókarinnar.
Hún getur einfaldlega ekki opinberað slíkar tölur, og ekkert sem réttlætir þann gjörning, þar sem umræðan á Málefnunum.com var einungis eins og aðrar umræður og stjórnað af mér og mínum meðstjórnendum og engum öðrum. Þetta er allt saman hægt að sanna og ég mun ekki gefa neitt eftir í því sambandi. Þar er sannleikurinn sagna bestur.
Svo það sé á hreinu þá rekur núverandi eigandi vefinn gegnum sitt fyrirtæki Netheim.is þ.e. sér um tæknihliðina, en ég og mitt fólk sjáum um stjórnunina og enginn getur vænt mig eða þau um að vera handbendi eins eða neins.
Þetta vil ég láta þig vita áður en þið farið út í einhverskonar krossferð á hendur Málefnunum á vitlausum forsendum.
Vil gjarnarn heyra frá þér um þetta mál frekar.
Óska ykkur að öðru leiti alls þess besta með kveðju Ásthildur Cesil Þórðardóttir.
Já svo mörg voru þau orð. Það getur svo sem vel verið að ég hefði átt að vera diplómatískari og tala undir rós. En ég er bara í fyrsta lagi vestfirðingur og í öðru lagi tala hreint út.
Svarið sem ég fékk er þetta:
Sæl Ásthildur.
Ég ber ekki ábyrgð á orðum Jónínu í umræddu viðtali, því að hún er stundum heldur hvöss.
Ég veit vel að Bagusfeðgar stjórna ekki umræðunni þar. Hins vegar var brotið freklega á
friðhelgi einkalífs Jónínu á sínum tíma og þeir sem bera ábyrgð á því verða að beina reiði sinni
að sínu eigin siðferði en ekki að mér.
Þú þekkir hins vegar umræðuna um IP tölurnar, sem var í fréttum á sínum tíma. Ég hef unnið
sem blaðamaður í 6 ár og unnið mér traust gríðarlega margra, enda aldrei unnið
óheiðarlega og mun ekki byrja á því nú.
Þess vegna finnst mér heldur verra að þú kjósir að hóta lögbanni á bókina án þess að hafa hugmynd
um hvað þar kemur fram. Mitt markmið er ekki að koma höggi á neinn. Mér leiðast svona hótanir og
þoli illa að talað sé við mig með þessum hætti.
Jamm og svo;
Og ég svara:
Heldur tekurðu nú orð mín of nærri þér Sölvi. Ég er ekki að hóta þér alls ekki, ég var að spyrja þig um það sem kemur fram í viðtali við Jónína varðandi IP tölurnar. Ég er nefnilega eins og Jónína stundum hvöss. Málið er að hún hefur verið lengi með þessar grillur um Málefnin og bendlað marga þar innanborðs við Baug og eins og kemur fram í viðtalinu sagt að Baugur stjórnaði umræðunum þar.
Ekki ætla ég mér að fara að skipta mér af hvernig þú skrifar söguna, skil ekki alveg hvernig þú færð það út. Ég hins vegar segi það alveg satt að ef spurning er um birtingu á þessum IP tölum mun ég beita mér. Það hefur reyndar ekkert með annað að gera en ábyrgð mína á Málefnunum.com og málverjum sjálfum.
Það er það EINA sem ég set út á þetta allt saman, og Jónína segir jú beinlínis í viðtalinu að það sé það sem hún ætli sér að gera. Þess vegna hafði ég samband við þig. Nú hefur þú staðfest að svo muni ekki verða og eins og ég sagði áður það nægir mér alveg.
Óska þér svo enn og aftur alls góðs með Jónínu, bókina og allt annað. Með bestu kveðjum Ásthildur Cesil Þórðardóttir.
Svar:
Sæl aftur
Ég hef ekki staðfest eitt né neitt. Bara sagt að ég muni vinna þetta heiðarlega og ekki gera neitt sem
stríðir gegn siðferði mínu.
Þú sagðist ætla að krefjast stopps á bókina. Það er hótun um lögbann Ásthildur. Ég tek þetta engan vegin nærri mér og er alveg nógu harður í ,,alvöru umræður", enda fjallað um handrukkara, dópsala og ofbeldismenn
og fengið alls konar hótanir. En ég þoli ekki tilraunir til ritskoðunar og svara þeim af fullri hörku.
bestu kveðjur
Sölvi
Og ég:
Efni: Re: Frá Ásthildi Cesil Þórðardóttur.
Eftir sem áður stendur að birting IP talna er samkvæmt lögum um persónuvernd ólögleg nema gegn dómsúrskurði að því ég best veit. Og þá í þessu tilfelli með mínu samþykki. Ég hef annars undir höndum á hvern hátt Jónína fékk þessar tölur. Hafa ber það í huga líka. Með bestu kveðjum Ásthildur Cesil.
Og hann:
Ég veit líka hvernig hún varð sér úti um þessar IP tölur og myndi að sjálfsögðu segja
frá því líka ef ég fjalla um málið í bókinni.
Ég;
En Sölvi þú ert ekki alveg að skilja pointið; birting IP talna er ekki leyfileg nema með dómsúrskurði. Samkvæmt lögum um vefmiðla og persónuvernd. Með kveðju Ásthildur Cesil.
Hann.
Ég skil þetta 100%.
bestu kveðjur
Sölvi
Já svona var þetta. Óþarfi að flæka þetta í einhverjar samsæristrakteringar.
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.6.): 0
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 35
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 30
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Og það fór smérið af brauðsneiðinni :)
Ragnheiður , 29.7.2010 kl. 21:18
Það er aumt í þér bullið Ásthildur, rétt eins og því sem þú þykist stjórna.Þú kýst að halda þig við myrkrið.Verði þér að góðu.
Sigurgeir Jónsson, 29.7.2010 kl. 21:29
Viltu ekki útskýra það frekar hvað þú ert að segja Sigurgeir? ég er ekki alveg að kveikja á hvað þú meinar.
Jamm Ragnheiður þar fór smérið.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 29.7.2010 kl. 21:37
Verði ljós.Þú vilt halda nafni þeirra sem skrifa óhróður um fólk leyndu, Ásthildur.Þú vilt koma í veg fyrir að það komi úr myrkrinu.Þú segist ætla vernda það.Þú kýst myrkrið.
Sigurgeir Jónsson, 29.7.2010 kl. 21:50
Málið snýst ekki um það. Þetta snýst um það að það er ekki leyfilegt að uppljóstra um persónuupplýsingar sem þú kemst að með ólögmætum hætti. Það réttlætir enginn ranglæti með ranglæti. Auk þess er þetta mikill misskilningur hjá Jónínu um meinta illmennsku þeirra aðila sem hún fékk upplýsingar um. Þeir voru einungis rétt eins og aðrir að koma sínum skilningi á framfæri. Málefnunum var og er alls ekki stjórnað eða beitt af neinum hagsmunaaðilum. Það að Jónína telji eitthvað eða álykti er ekki það sama og sannleikurinn og í þessu tilfelli er hún langt frá því að álykta rétt. Ef öll bókin hennar er byggð á samsvarandi misskilningi þá gef ég ekki mikið fyrir hana. Það er eins gott að ritarinn skoði þann grundvöll sem sá sannleikur stendur á. Því í þessu tilfelli er ekki fótur fyrir ásökununum eins og þeir birtust í viðtalinu á Sögu, og eins og þeir komu fram í bloggi hennar á sínum tíma. Mér er ekki illa við Jónínu, og tel margt gott sem hún hefur fram að færa. En hún verður að gæta að því hvar sannleikurinn liggur, það er ekki henni til framdráttar að halda því fram að Málefnin.com hafi stjórnað umræðu um að níða hana niður eða yfirleitt stjórnað hvernig umræðan var í samfélaginu. Það er einfaldlega ekki rétt.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 29.7.2010 kl. 21:59
He, þetta er ofureinfalt fyrir þau Sölva og Jónínu; þau birta bara nöfnin í bókinni. Ekki getur þú fengið lögbann á það. Ekki er bannað að birta nöfn í bókum. Meira IP tölu kjaftæðið í þér og að hengja þig í það atriði. Það er hér með afgreitt. Ef menn verða svo eitthvað fúlir yfir því að nöfn þeirra verði birt í bókinni, nú, þá geta þeir bara farið í mál við Jónínu og verði þeim að góðu...
Dexter Morgan, 29.7.2010 kl. 23:10
Já og hvað ætla þau að gefa þeim persónum að sök? Þetta mál er bara út í hött. Þau geta gefið upp nöfnin án þess að tilgreina Iptölurnar ókey, en hvaða máli skiptir það og hvernig ætla þau svo að tengja þessa aðila við "glæpinn" sem ekki er til?
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 30.7.2010 kl. 00:07
Nú skil ég ekki. Hver er glæpurinn sem var ekki til?
Sólveig Þóra Jónsdóttir, 30.7.2010 kl. 00:55
Sólveig Jónína hatast við Málverja um að vera gerendur í því að sverta hana á alla lund, en ekki bara það, hún ásakar málefnin um að stjórna herferð á hendur henni, í nafni Baugsmiðla. Að Jón Ásgeir og co hafi í krafti málefnenna.com stýrt umræðunum um að níða hana niður. Sem er alrangt. það var ekkert slíkt í gangi nema í hausnum á Jónínu Ben. Um það er mér manna mest kunnugt. Það er einfaldlega glæpurinn sem ekki var til.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 30.7.2010 kl. 01:00
Ok. Talandi um Jónínu Ben þá hef ég fylgst með facabook síðu hennar og gerðist vinur hennar á facebook til að geta commentað. Ég hef tekið eftir að ef henni líkar ekki ummæli fólks þá eyðir hún út því sem henni ekki líkar. Hún setur kannski sjálf eitthvað á sinn staus og það koma kannski mörg comment sem henni ekki líkar þá bara hreinlega eyðir hún því út. Ég á afrit af einni færslu sem hún eyddi út.
Sólveig Þóra Jónsdóttir, 30.7.2010 kl. 01:18
Dæmi hér:
Jónína Benediktsdóttir
2.8.2007 | 10:35
Bréf frá "Uglunni" sem Baugsmenn héldu að væri ég að skrifa á malefnum.com
Hér á eftir fer bréf sem ég fékk frá einstaklingi sem kallar sig "Ugla". Sá/sú hefur verið að tjá sig um Baugsmálið á malefnum.com en Baugsmenn hafa ítrekað reynt að klína þeirri nafnleynd upp á mig. Lögmaður Baugsmanna hringdi í mig og spurði mig fyrst hvort ég væri þessi Bardot á malefnum.com. Bardot vogaði sér að skrifa um Baugsmálið gegn Hreini Loftssyni á þeim tíma.
Ég skrifa ekki undir nafnleynd eins og þessir skósveinar auðvaldsins gera og bað hann vel að lifa. Ég hef alltaf getað staðið við orð mín og skrifa því undir nafni. Ég hef hinsvegar orðið fyrir persónulegum árásum og á tímabili treysti ég mér ekki í meira blogg. Ég skipti um skoðun því ég fékk svo mikinn stuðning frá þeim sem sjá hætturnar sem fylgja földu eignarhaldi á allskyns fyrirtækjum í litlu landi.
Svo fékk ég þetta bréf í dag og þá sannfærðist ég um hverjir standa að baki malefnum.com
Ég hvet fólk til þess að lesa allt bréf "Uglunnar" og þá sér það vonandi við hverja er að glíma þegar Baugsmenn eiga í hlut.(Baugsmenn eru ekki Bónusfeðgar eða allt það góða starfsfólk sem hjá Baugi starfar. Baugsmenn eru í stjórnmálum og viðskiptum og í þessari röð).
Ég er hinsvegar svo lánsöm að vita hverjir standa að baki nikknöfnum þarna á malefnum.com enda innherjasvikin jafn algeng á malefnum.com og í ákveðnum fyrirtækjum. Ég hef nefnilega lært af þeim bestu og tel mig ágætan nemanda.
Almenningur hefur tekið upp hanskann fyrir þessa menn og trúað því sem fjölmiðlar þeirra og bloggsíður hafa sagt. Ugla hefur hinvegar verið hugrök og farið sínar leiðir í skrifum á malefnum.com
Þess verður ekki langt að býða að Guðmundur Ingi Hjartarson eigandi malefna.com og vinur Jóns Ásgeirs upplýsi hver Uglan er. Þá getur fólk sjálft dæmt um barnaskapinn í Baugsmálinu.
Líkt og Jón Ásgeir skrifaði lögmanni sínum í USA varðandi Jón Gerlad. "I don´t care how much it is going to cost, I want him finished". Það sama hefur gilt um mig og aðra sem að málinu hafa komið. En hvaðan koma peningarnir til þess að greiða lögmönnum fyrir að klára fólk?
Ég hef aldrei skrifað í nafnleynd og heldur aldrei logið í Baugsmálinu. Hef samt oft verið skíthrætt
Hér kemur bréfið frá Uglunni sem ég fékk í dag.
Get þess að ég veit ekkert hver þessi einstaklingur er!!
Skora á Ugluna að koma fram undir nafni!
Ágæta Jónína.
Fyrirgefðu frekjuna, að ég skuli senda þér þennan póst, en ástæðan er ekki sýst sú,
að á Málefnin.com hefur iðurlega verið fullyrt að við séum ein og sama manneskjan.
Því miður get ég ekki gefið upp rétt nafn, vegna persónulegra aðstæðna.
Vonandi fyrirgefuru mér leyndina?
Undirritaður tók þátt í umræðunni á vefnum, undir nafninu Ugla í nokkra mánuði í vor,
aðalega um málefni sem tengdust Baugsmálunum svokölluðum. Það sem fékk mig til þess,
var fyrst og fremst, að kanna trúverðuleika vefsinns, og ekki sýst um hvernig eigendur,
ritstjórar og starfsmenn færu með trúnaðarupplýsingar um þá sem skrá sig sem þátttakendur.
Ugla var mjög neikvæð, eins og svo margir, á eðli og hlutverk vefs sem slíkan, sem
byggist á nafnleynd. Einnig fannst henni, meir en lítið undarleg, ástæða þess að eignarhaldið
er leynt, svo og nöfn svokallaðra stjórnenda. Einnig ástæða þess að einhverjir vilji starfa
launalaust og fjármagna slíka útgerð, öðrum til að njóta, og þeim að kostnaðarlausu.
Hver skyldi vera tilgangurinn? Þekkt er launalaus sjálfboðaliðavinna við ýmis líknar og
hjálparstörf. Eins og Rauði krossinn og Hjálparstofnun kirkjunnar, sem byggir á bróður kærleik. Tilgangurinn að safna fólki saman undir nafnleynd, til að lofa þeim að pósta misgáfuleg komment á vefþræði, verður að teljast afar sérkennilegt. Ljóst er að töluverður kostnaður liggur í útgerðinni, og að einhver góðhjartaður er tilbúinn að opna veskið sitt öðrum til handa,
er vissulega göfugmannlegt. Eða er það? Eða er verið að misnota trúnaðartrausti fólks,
á fölskum forsendum. Er hugsanlegt að vefurinn sé fyrst og fremst ættlaður fyrir áróðursmeistara stórfyrirtækis til að lemja á fólki linnulaust, með áróðri og söguskýringum, sem henntar þeirra málstað? Getur verið, að kostnaðurinn sé greiddur með krónum af hverju seldu brauði, eða einhverju öðru? Eitt er nokkuð víst, að varla er stórfyrirtækið að leita sér að framtíðar rithöfundum
til að gefa út, eða hvað?
Einhverstaðar er fullyrt, að það er ekkert til, sem heitir ókeypis hádegisverður!
Málefnin.com, er talin vera eign Baugs eða Jóns Ásgeirs Jóhannessonar. Leppur og
skráður eigandi, mun vera, æskuvinur og viðskiptafélagi hanns, sem heitir
Guðmundur Ingi Hrafnsson, í Netheimur ehf. kallaður Dommi. Hann er sá og hinn sami
og ber ábyrgð á sennilega dýrasta tölvuklúðri þjóðarinnar, nefnilega að " týna " endanlega, öllum netpóstum Jóns Ásgeirs, á sínum tíma. Og fann aðra.
Ástæðan fyrir skömm og afneitun eigandanns á afkvæminu, er sennilega svipuð og sú sem rak hann
til að reyna að leyna almenningi eignaraðildinni af Fréttablaðinu á sínum tíma. Skömm yfir
eðli miðilsinns, og að Málefnin.com er sennilega verst þokkaður vefurinn af þessu tagi.
Má með sanni segja, að hann sé nokkurskonar skólplögn stórfyrirtækisinns og Baugsmiðlana.
Ugla hafði í sjálfu sér ekki miklar skoðanir á Baugsmálinu yfirleitt í byrjun. Fannst margt
í meira lagi undarlegt við ýmislegt, bæði hjá sakborningum og þeirra vinnubrögð, og
líka í framgöngu yfirvalda. En óneitanlega var heiftin og ljótleikinn áberandi í undarlegri vörn
sakborninga, sem byggðist mest á árásum á þá sem voru að vinna lögboðna vinnu sína.
Ugla ber engan kala til neins þeirra sem voru ákærðir, né til nokkurs þeirra sem stóðu að ákærum né
rannsóknum málanna. Ugla kannast við allnokkra úr báðum hópum, og þá bara af góðu einu.
Ugla var sannfærð að Málefnin.com væri haldið út af stórveldinu, til að hafa sem mest áhrif á almenningsálitið, og til að getað laumað inn hlutum, sem aldrei fengjust samþykktir á öðrum vetvangi.
Ritstjórar væru starfsmenn þeirra og almenningstengsladeildarinnar. Einnig átti að nota vefinn að reyna að fletta ofan af meintum andstæðingum og vantrúuðum.
Málefnin.com virtust að mestu leiti snúast um Baugsmálið, og áberandi hversu fáir aðilar virtust
treysta sér að taka upp hanskann fyrir þá sem töldu eitthvað sérkennilegt við vinnubrögð
stórveldisinns, og efuðust yfirleitt um heillindi þeirra sem þar stjórna.
Uglu hafði borist til eyrna, að í mörgum tilfellum, kæmu aðilar inn í umræðuna sem andstæðingar stórveldisinns, en hurfu fljótlega aftur, annaðhvort vegna hótana bak við tjöldin um uppljóstrun, eða stjórnendur einfaldlega lokuðu á þá, vegna þess þeir voru ekki í réttu liði.
Nokkrir varnaraðilar stórveldisinns, voru afskaplega herskáir, og allur málfluttningur þeirra byggðist á órökstuddum fullyrðingum, rangfærslum, útúrsnúningum og hreinum lygum.
Að viðbættum gýfuryrðum og persónulegt skítkast á þá sem andmæltu, og fjarstatt fólk sem tók ekki þátt í umræðunni. Allir sem andmæltu, gerðu það af einhverjum illum hvötum og annarlegum tilgangi. Sennilega þekkiru ágætlega til þess, sem ég er að segja?
Stjórnendur virtust líta í gegnum fingur sér, með þessi vinnubrögð, þótt aftur og aftur voru
reglur vefsinns þverbrotnar.
Uglu er og var aðeins eitt í huga. " AÐ ALLIR SKULU VERA JAFNIR FYRIR LÖGUM ! "
Ugla bjó til hernaðaráætlun, til að láta reyna á öryggi trúnaðarupplýsinga sem ríkir hjá Málefnin.com, starfsmönnum og stjórnendum.
Til þess þurfti hún að fá aðgang að pósthólfi sem hafði verið í noktun, sem upplýsti í hausnum
nafn eigandanns, og helst heimilsfang eða vinnustað. Það varð að hafa verið í noktun í einhver ár, og hafa einhverja starfsemi og vigt við fyrstu sýn. Ekki væri verrra að sá og hinn sami,
hefði einhverjar sterkar tengingar inn í þann meinta hóp, sem átti að standa að samsærinu
gegn stórfyrirtækinu og stjórnendum.
Ugla hefur því miður ekkert af þessum skilyrðum, fremur ættlítil, og er ekki í þeirri aðstöðu
að getað upplýst um hver hún er í raun og veru.
En hún á góðan og traustan vin, sem uppfyllti öll skilyrðin, og hafæi trú á málefninu og
treysti sér í slaginn og að taka áhættuna af afleiðingunum.
Hann góðfúslega lánaði hólfið fyrir tilraunina.
Nafnið Ugla var skráð á Málefnin.com, og hafist handa að taka þátt í heitum umræðum
sem þar voru í gangi. Stefnan var tekin beint á að pirra tvo fyrirfram ákveðna aðila,
sem kalla sig Gangryts og Rimgleri. Þeir voru þeir sem létu verst í vörnum fyrir stórveldið,
og áberandi á öðrum forsendum en flestir aðrir málverjar. Þeir virtust starfa á vöktum,
við að skima vefinn, og ráðast af alefli á allt sem gat verið til vandræða, eða óþægilegt fyrir
vinnuveitendurna. Þ.a.s. ef um launuð störf sé að ræða, eða bara einhver " vonabís ", sem
vonast til að vera umbunað vel af átrúnaðargoðunum, seinna?
Þar sem stjórnendur leika þann leik, annarsvegar að koma fram undir sérstökum nöfnum ( nikkum ) við stjórnunina, og lauma sér síðan inn á vefinn undir einhverjum öðrum dulnöfnum og taka þátt í td. heitum umræðum. Sjálfsagt undir dulnöfnum eins og Gangryts og Rimgleri, eina stundina, og einhverjum öðrum hina?
Ugla notaði strax frá byrjun, sömu rökræðutækni og þessir tveir fyrrnefndu málverjar.
Notaði stór og mikil orð, sló fram hlutum sem hún hafði ekki minnstu hugmynd um
og úthúðaði andmælendunum. Gangryts, var sýnu veiklundaðri, og tók afar illa mótlætinu.
Innkoman var svipuð og minkur sem brýst inn í hænsnakofa. Tvímenningarnir virtust á barmi taugaáfalls, og kepptust við að reyna að kenna skrifin við alla þá sem þeim líkaði ekki.
Nafngreindu ítrekað þig sem Uglu, sem er skýlaust brot á reglum vesinns,
sem stjórnendur sinntu auðvitað engu.
Enda ekki ósennilegt að um einhvern þá, var hvort sem er að ræða, og Ugla í vitlausu liði.
Nokkrum vikum seinna, nafngreindi Gangryts látinn mann í heitum umræðum, þar sem hann
marg krafði Uglu um eiginlegt nafn hennar. Nafngreiningin á þeim látna, hafði ekkert með
umræðuna að gera, og var algerlega út í hött, nema....að hann er alnafni þess sem skráður er
fyrir pósthólfi Uglu, sem er vistað hjá stjórnendum Málefnisinn.com. Bingó!
Ugla vissi að þarna var kominn sönnun þess sem hún leitaði að. En það var ekki nóg,
ódrátturinn hafði tekið agnið, svo að með þolinmæði mátti tryggja að hann myndi kokgleypa það,
svo að löndunin yrði barnaleikur.
Ugla lét eins og hún hafði ekki séð þessa dulbúnu hótun, sem hefur átt að hræða hana til að
læðast í burtu með stélið á milli fótanna. Við það leyndi sér ekki taugaveiklunin hjá Gangryts,
allar orðasennur næstu vikurnar, fóru úr böndunum hjá honum. Þegar gott tækifæri
í heitum umræðum, skaut Ugla á hann, að hann hefði brotist inn í pósthólf Uglu, með aðstoð
stjórnenda eða ekki og væri í aðstöðu til að upplýsa um trúnaðarupplýsingar annara málverja.
Við það umturnaðist garmurinn og póstaði " Svo þú heitir xxxxx xxxxxxx? "...... BINGÓ !
Aftur var hann búinn að uppljóstar um meint nafn Uglu. Sem á að vera mjög alvarlegt brot
á reglum Málefnin.com, þ.a.s. ef þú ert í réttu liði.
Ýmsir málverjar höfðu samband við stjórnendur, sem létu eins og ekkert hafði gerst.
Hvað þá að eitthvert vandamál væri gangi?
Eftir einhvern tíma, svöruðu stjórnendur ásökunum, að Gangryts hefði á einhvern hátt komist að trúnaðarupplýsingum um Uglu, með eða án aðstoð stjórnenda.
Svarið var að Ugla væri að fara með tómar lygar, og að hún stæði að einhverri stórri aðför að Málefnin.com. Einhverskonar atlögu að vefnum.
Einnig ef hún léti ekki af þessum dæmalausu ásökunum á hendur þeim og saklausra málverja,
yrði henni meinuð áramhaldandi þáttaka á Málefnin.com.
Gangryts póstaði allskonar útskýringar, um að einhver hefði póstað honum nafnið,
og hann birt það þess vegna ( sem er alvarlegt brot ) það hefði ekkert með meint nafn
Uglu að gera, hrein tilviljun að hann hefði í tvígang uppljóstrað um það.
( Tiviljun upp á 1 á móti 300.000 )
Hann vildi meina að Ugla lygi um hanns þátt og að ekkert hafi gerst í þessa veruna.
Aðrir málverjar mótmæltu harðlega vinnubrögðum stjórnenda,og um síðir var Gangrits,
settur í viku bann fyrir meint afbrot.
Á sama tíma, og hann fullyrti að um algera tilviljun var að ræða, og að Ugla væri ómerkingur
og lygari, stóð hann í að senda tölvupósta til valinna málverja um nauðsyn uppljóstruninnar.
Jú Ugla er í raun og veru, xxxxx xxxxxxx, sem er náskyld xxxxxx xxxxxxxx og xxxxxxx xxxxxxxxxxx,
og hefur starfað fyrir xxxxxxxxx xxxxxxx, xxxxxxx xxxxxxxx og að tengingin nær til fjölda þingmanna,
ráðherra og m.a. tveggja fyrrverandi forsætisráðherra.
Gangryts hélt að hann hefði komist í feitt, samsæriskenningin og aðförin að Málefnin.com var sönnuð.
Nauðsyn bryti lög.
Seinna kannaðist hann ekkert við þessa pósta, og fullyrðir að um lygasamsæri Uglu og samstarfsmanna hennar hafi verið að ræða.
Stjórnendur taka undir það með honum, og fullyrða að um
einhverja hallarbyltingu hafi verið um að ræða og að Ugla hafi skáldað atburðarrásina.
Rimgleri barðist fyrir brotvikningu Uglu, á forsendum þess að hún hafi gerst brotleg við reglur
vefsinns, með að nota lepp fyrir skráningunni.
Ugla póstaði nokkrum póstum, sem hún fór fram að stjórnendur segðu sannleikann
og gerðu grein fyrir sínum þætti, hvernig Gangryts hefði komist yfir trúnaðarupplýsingarnar,
hverjar refsingar við brotum sem þessum hafi verið og hvaða trygging er fyrir því
að slíkar uppljóstranir gerist ekki í framtíðinni?
Stjórnendur fjarlægðu þessi innlegg alltaf samstundis, á nóttu sem degi. Að endanum lokuðu
þeir á Uglu, svo hún gat ekki lengur tjáð sig á vefnum. Þeir svöruðu henni ekki neinu,
þegar hún bað um skýringar, og eitt svar barst, þar sem hún gæti látið af Baugsþráhyggjunni,
það fengi enginn að lesa það sem hún skrifaði.
Stjórnendur sögðust ætla að ritskoða allt sem frá Uglu færi, sem breytti engu,
engum póst var hleypt í gegn.
Um svipað leiti gerist það að málverji sem kallar sig Ferrari upplýsir um hver það sé, sem er
bak við nikkið Victor Laszlo, og um leið hótar honum einhverskonar líkamlegu ofbeldi eða morði,
og að hann viti hvar hann sé að finna. Þar var greinilega um aðra afhendingu trúnaðarupplýsinga
frá stjórnendum til handa einhverra til að þagga niður í málverjum sem þeim hugnaðist ekki.
Engin svör fengust við fyrirspurnum til stjórnenda, sem hótuðu öllu illu, ef fólk léti ekki af
aðdróttunum í þeirra garð.
Ugla var strikuð út af Málefnið.com sakramentinu fyrir 2 vikum, stolt yfir því að vera ekki
stjórnendum samboðin.
Aðgangur einhverra málverja sem spurðu óþægilegra spurninga um þessi tvö mál,
hefur verið lokað. Stjórnendur hindra bligðunarlaust að málverjar geti nýtt sér mál- og
skoðunar- og tjáningarfrelsi, með hótunum um lokun og eða að loka fyrir þeirra aðgang,
fyrir fullt og allt.
Það má deila um réttmæti nafnlausra spjallþráða eins og Málefnin.com. Persónulega er ég
hlyntur þeim, eftir þessa viðkynningu. Vegna nauðsyn þess, að einstaklingar geti sagt sannleikann
um t.d. stórfyrirtæki undir dulnefni, án þess að óttast um afleiðingarnar fyrir sig og sína.
Mér hugnaðist það ágætlega, og hafði ljómandi upplýsandi samskipti við ýmislegt ærlegt fólk.
Þeim vil ég þakka skemmtileg og góð kynni. Vonandi eigum við eftir að hafa samskipti á nýjum
vetvangi, þar sem trúnaður við málverja er ekki bara undantekning.
Stjórnendur vefsinns, þekki ég ekki að neinu nema lygum, svívirðingum og sem óheiðarlegum
einstaklingum, sem hljóta að brenna allar brýr af baki sér, fyrr en seinna.
Þeir vita jafn vel og Ugla, hvar sannleikurinn liggur, þótt þeir þori ekki að viðurkenna hann.
RÉTT... SKAL VERA RÉTT!
Því miður fylgir öllum samfélögum úrhrök, sem eru eins og þeir félagarnir, stjórnendurnir og ábyrgðaraðilar vefsinns. Það eru aðilar sem vita ekki hvað sannleikurinn er og svífast einskinns,
til að þröngva skoðunum sínum og vinnuveitenda sinna í gegn, hvað sem það kostar.
Eftir uppskriftinni, " AÐ ENDURTAKA LYGINA NÓGU OFT, SVO ALMENNINGUR FER AÐ TRÚA HENNI ! "
( Adolf Hitler. )
Niðurstaðan er sú, að trúnaðaröryggi, traust eigenda, starfsmanna og stjórnenda Málefnin.com,
er... ER EITT STÓRT... NÚLL! Svo einfallt er það.
Með kærri kveðju,
Ugla.
Ps. Hélt kannski að þú hefðir áhuga á málefninu, og ég hef fullan áhuga á að sagan fari
sem víðast. Óska þér góðs gengis og velfarnaðar, og ég get sagt þér það svo sem beint,
eins og ég hef gert á vefnum, að ég dáist af dugnaðinum og baráttuþrekinu sem þú hefur.
Ég væri í góðum málum, ef ég hefði svona smá part af þeim. Hmmm.....
Kv. U.
Já svo mörg voru þau orð. Hér er svo svarið frá mér.
Ekki hefur þú í eitt skipti kvartað yfir skrifum um þig Jónína, við stjórnendur getum ekki lesið öll innlegg því reiðum við okkur á að málverjar og aðrir sem málið varða láti okkur vita. Að geyma slík innlegg í skúmaskoti leysir ekki neitt. En málið er bara að þekktar persónur sem eru áberandi í þjóðfélaginu verða alltaf bitbein, og þú hefur nú ekki beinlínis verið kurteis sjálf, hótandi fólki. Ef okkur berst kvörtun frá þér um meiðandi innlegg, munum við að sjálfsögðu bregðast við því, eins og við gerum þegar okkur berast slíkar kvartanir. Ég hef aldrei og mun ekki skrifa undir dulnefni, en það þýðir ekki að ég vilji að allir geri það sama. Við stjórnendur höfum reynt að halda utan um þennan vef eftir því sem við best getum. Og aldrei höfum við orðið vör við nein afskipti af okkar stjórnun, eða innleggjum Málverja. Enda var það ljóst í upphafi, þegar ég tók við stjórninni, eftir vægast sagt ómerkilegar hótanir í garð fyrrverandi eiganda, að þar kæmu engir aðrir að eftirliti og stjórnun en þeir stjórnendur sem verið hafa frá byrjun. Það hefur einungis einum stjórnanda verið bætt inn í, og það vorum við sjálf sem völdum hann, úr hópi málverja að vel athugðu máli. Ég vona að ugla taki áskorun þinni og komi hér fram og hreinsi þig af því að skrifa á Málefnin.com. Það er hennar mál að gera það, þar sem hún hefur opnað þetta mál. En ég hef beðið lögfræðing að skoða hvort hér hefur verið brotið á mannorði mínu, með þessum skrifum, og bendi þér á að þú berð ábyrgð á skrifum uglu. Bið ég þig svo vel að lifa mín kæra. Ég hef aldrei látið hótanir hræða mig frá því að vera sú sem ég er, eða gera það sem ég tel réttast. Ásthildur Cesil.Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 30.7.2010 kl. 01:18
Þetta er nú meiri dellan. Jónína ekki skarpasta peran og mistúlkað gjörsamlega hlutverk Uglunnar sem ég spottaði strax sem tröll, sem hún staðfestir hér og með þessum pósti. Og ekki bara tröll, heldur tröll úr nákvæmlega sama liði og Jónína!!!
Það sem lang sárast eftir allt sem á undan er gangið er sú staðreynd hversu mörg nikk hafa fengið að vaða uppi með hreinan tröllaskap sem lýsti sér þannig að þetta fólk hafði eitt og aðeins eitt markmið, að eyðileggja mannorð Málefnanna.
Stundum er hægt að brosa að heimskunni, en þegar þetta fólk á í hlut, þá fer best á kjánahrollinum.
feu (IP-tala skráð) 30.7.2010 kl. 01:58
Þetta viðtal við Sölva var óborganlega cheap auglýsingabrella fyrir bók, sem engin nennir að lesa. Hann fær vini sína til að slá þessu upp á RUV og var vo meðvitaður um þetta að hann fór með allan fyrripart viðtalsins í að tönnlast á því að hann væri eki að plögga. Ótrúlegt að fólk skuli ekki vera farið að sjá í gegnum þetta eftir spunaþvælu "góðæristímanna" Hér skiptir Jónina, Málefnin og málefnið ekki nokkrum hlut. Hér er verið að selja bækur.
Jón Steinar Ragnarsson, 30.7.2010 kl. 02:53
By the way...hvað kom fyrir hárið á Sölva? Mér finnst það forvitnilegra en nokkuð annað.
Hann var eins og þessi Frímann grínari, sem er svo yfirgengilega ófyndinn.
Jón Steinar Ragnarsson, 30.7.2010 kl. 02:58
Gott hjá þér að taka þetta lið í bólinu. Ætli vinirnir á RUV hafi áhuga á að segja frá því að fíllin hafi fengið jóðsótt og fætt lús.
Jón Steinar Ragnarsson, 30.7.2010 kl. 03:05
Já, Sölvi er ekki stórmenni þegar kemur að persónulegum samskiptum um hans mál.
Billi bilaði, 30.7.2010 kl. 05:52
Sölvi mun ekkert ganga of langt fyrir gömlu konuna sem hann skrifar fyrir. Trúi því bara ekki að óreyndu. Jónína gamla hefur ekkert breyst eftir að hún gekk í sæng með guðsmanninum. Svo sem ekki skrítið, það þarf meira en Gunnar í Krossinum til að afdjöfla hana.
Guðmundur Bjarnason (IP-tala skráð) 30.7.2010 kl. 08:00
Takk öll. Já Jón Steinar þetta er sennilega svona tussufínt plögg.... eða þannig
Sendi þér Verslunarmannahelgarknús á Siglufjörð.
Feu já það má segja það. En þetta hefði aldrei farið hátt hjá mér ef sumir hefðu ekki farið með þetta í kastljósið sama kvöld og hann fær póstinn. Þá þótti mér best að segja hlutina eins og þeir komu beint af kúnni. Það átti að búa til einhverja mystik utan um "hótunina". Ætlaði ekki að segja "að svo stöddu" hver þessi aðili væri.
Guðmundur minn, ég er líka gömul kona, við erum náttúrulega bæði sterkar og kjarnyrtar konur þessar sem höfum upplifað ýmislegt. Ég vil ekki gera lítið úr Jónínu. Ég vil bara ekki að það sé verið að búa til eitthvað úr engu, þ.e. naglasúpu utan um það sem ég hef með að gera.
Billi hann segist sjálfur vera hörkunagli. En hann hefur sennilega ekki verið milli tveggja norna áður. Það gæti reynst honum erfitt. Veit ekki, en við skulum sjá.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 30.7.2010 kl. 08:38
Ég held að þú sért á villigötum hérna. Það er ekkert ólöglegt við það að birta IP-tölur.
Vinsamlegast bentu á þá lagagrein sem bannar birtingu á IP-tölu.
Sven Druzin Ebenezer (IP-tala skráð) 30.7.2010 kl. 10:10
Já.. þetta er ekki öfundsvert að standa í þessu gegn þessum öflum sem Jónína og Uglan eru í forsvari fyrir.
Málið er bara, að þetta eru þau og hin sömu öfl og vörðu næstum allt það sem stóð á bakvið hrunið hérna haustið 2008. Það var reynt að láta Jónínu líta út sem svo að hún væri einhver Messías að vara við hrun. Það er hrein lygi og sögufölsun. Jónína sem harður Sjálfstæðismaður og með sterk tengsl við Styrmi, Davíð og félaga í innsta hring Sjálfstæðisflokkinn, er þar með orðin talsmaður þeirra hyggju sem setti hér allt á hvolf.
Uglan sýndi nákvæmlega sömu tilburði í sínum tröllaskap á Málefni.com
Að hugsa sér, þeir einstaklingar sem harðast börðust á móti því ritfrelsi sem Málefnin og gagnrýni þess á góðærisguttana var, skuli nú fara í forsvari og reyna að draga Málefnin enn meir niður í skítinn og Sölvi greyið vælir um ritstýringu!!!
Það sem ég segi.. kjánahrollur lýsir þessu best.
feu (IP-tala skráð) 30.7.2010 kl. 10:39
Auðvitað er þetta fyrst og fremst sölumennska. Það er verið að búa til eftirvæntingu eftir þessari bók.
Anna María Sverrisdóttir (IP-tala skráð) 30.7.2010 kl. 10:48
Það fólk sem ekki getur skrifað nema að leyna því hvert það er,hefur eitthvað að fela, það blasir við.Jónína Ben. hefur aldrei leynt því hver hún er og ekki þú heldur Ásthildur.Því skora ég á þig að oima ekki meira nálægt þeim sem verja það að fólk geti skrifað óhróður og níð um fólk í skjóli nefnleyndar.Þú hefur skaðst nóg af því að vera í þeim félagsskap.Ég skora á þig að koma ekki nálægt þessu myrkraliði, hvað þá að vera í forsvari eða í stjórn einhvers fyrirtækis sem gerir út á það.
Sigurgeir Jónsson, 30.7.2010 kl. 10:57
Sigurgeir það á við um suma, en alls ekki alla, sumt fólk hreinlega hefur hagsmuna að gæta svo sem atvinnu sinnar og stöðu bæði fjölskyldu og atvinnulega ef það kemur fram undir nafni. Málið er að það er alveg sannað og ég veit þess mörg dæmi að fólki hafi verið hótað brottrekstri ef það vogar sér að segja skoðanir sínar, sem stangast á við hagsmuni atvinnurekanda. þetta er nú bara staðreyndin. Að vísu var þetta meira áberandi þegar fyrrverandi ríkisstjórnir tvær voru við völd, en þetta er ennþá til staðar og einnig í einkageiranum.
En til að svara Sven vil ég segja. Ég er ekki löglærð manneskja og ekki best til að setja hér fram þau lög sem ég er að tala um en hér er dæmi:
II. kafli. Almennar reglur um vinnslu persónuupplýsinga.7. gr. [Meginreglur um gæði gagna og vinnslu.]1)
Við meðferð persónuupplýsinga skal allra eftirfarandi þátta gætt:
1. að þær séu unnar með sanngjörnum, málefnalegum og lögmætum hætti og að öll meðferð þeirra sé í samræmi við vandaða vinnsluhætti persónuupplýsinga;
2. að þær séu fengnar í yfirlýstum, skýrum, málefnalegum tilgangi og ekki unnar frekar í öðrum og ósamrýmanlegum tilgangi, en frekari vinnsla í sagnfræðilegum, tölfræðilegum eða vísindalegum tilgangi telst ekki ósamrýmanleg að því tilskildu að viðeigandi öryggis sé gætt;
3. að þær séu nægilegar, viðeigandi og ekki umfram það sem nauðsynlegt er miðað við tilgang vinnslunnar;
4. að þær séu áreiðanlegar og uppfærðar eftir þörfum, persónuupplýsingar sem eru óáreiðanlegar eða ófullkomnar, miðað við tilgang vinnslu þeirra, skal afmá eða leiðrétta;
5. að þær séu varðveittar í því formi að ekki sé unnt að bera kennsl á skráða aðila lengur en þörf krefur miðað við tilgang vinnslu.
[Ábyrgðaraðili ber ábyrgð á því að vinnsla persónuupplýsinga uppfylli ávallt ákvæði 1. mgr.]1)
1)L. 90
8. gr. [Almennar reglur um heimildir fyrir vinnslu persónuupplýsinga.]1)
Vinnsla persónuupplýsinga er því aðeins heimil að einhverjir eftirfarandi þátta séu fyrir hendi:
1. [hinn skráði hafi ótvírætt samþykkt vinnsluna eða veitt samþykki skv. 7. tölul. 2. gr.]1)
2. vinnslan sé nauðsynleg til að efna samning sem hinn skráði er aðili að eða til að gera ráðstafanir að beiðni hins skráða áður en samningur er gerður;
3. vinnslan sé nauðsynleg til að fullnægja lagaskyldu sem hvílir á ábyrgðaraðila;
4. vinnslan sé nauðsynleg til að vernda brýna hagsmuni hins skráða;
5. vinnslan sé nauðsynleg vegna verks sem unnið er í þágu almannahagsmuna;
6. vinnslan sé nauðsynleg við beitingu opinbers valds sem ábyrgðaraðili, eða þriðji maður sem upplýsingum er miðlað til, fer með;
7. vinnslan sé nauðsynleg til að ábyrgðaraðili, eða þriðji maður eða aðilar sem upplýsingum er miðlað til, geti gætt lögmætra hagsmuna nema grundvallarréttindi og frelsi hins skráða sem vernda ber samkvæmt lögum vegi þyngra.
[Persónuvernd getur heimilað vinnslu persónuupplýsinga í öðrum tilvikum en greinir í 1. og 2. mgr. ef sýnt þykir að brýnir almannahagsmunir eða hagsmunir einstaklinga, þar með taldir hagsmunir hins skráða, krefjist þess. Skal þá ótvírætt að þörfin fyrir vinnsluna vegi þyngra en tillitið til þess að hún fari ekki fram. Getur Persónuvernd bundið slík leyfi þeim skilyrðum sem hún metur nauðsynleg hverju sinni til að tryggja hagsmuni hins skráða.]
Nú er ljóst að bæði ég og Sölvi vitum að þessar upplýsingar voru fengnar með hótunum. Hér liggja ekki fyrir neinar skriflegar eða óskrifaðar samþykktir frá viðkomandi aðilum. ef við tölum svo um tilganginn með þessum upplýsingum Jónínu þá er ekkert þarna sem réttlætir það að hún birti þessar upplýsingar. Þar liggur ekkert á bak við nema hefnigirni manneskju sem telur sig vera órétti beitta. Og meira en það, þessir aðilar sem hún er að ásaka eru flestir málefnalegir og rökfastir í sínum málflutningi, en hafa ekki sömu skoðanir og hún.
Hér til fróðleiks eru þessi lög. Og Jónína og Sölvi mættu lesa þau, og svo mættu þau lesa þá gagnrýni og umfjöllun sem flestir af þessum 7 eða 8 manneskjum sem hún er að hóta hafa skrifað.
http://www.althingi.is/lagas/nuna/2000077.html
Þó ég skrifi sjálf undir nafni, þá skil ég mjög vel að fólk vilji tjá sig án þess að upp sé gefin nöfn og kennitala, það er beinlínis gert ráð fyrir því í lögum og samþykktum að hluti af tjáningafrelsi sé einmitt að fólk skrifi nafnlaust.
Þó enginn réttlæti sóðaskrif og undirráður illra manna. Þá má ekki hengja alla undir sama hattinn. Og mér sýnist nú að fólk viðhafi sóðaskrif þó undir nafni sé. Beiti hótunum sem eru mjög undir beltisstað og komi fram af hefnigirni og ósveigjanleika. Málið er að fólk er bara það sjálft hvort sem það skrifar nafnlaust eða undir fullu nafni og kennitölu.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 30.7.2010 kl. 11:49
Jón Steinar er með þetta, þetta var bóksala þarna í gær. Mér finnst frábært hjá þér að koma bara með þetta. Þá sést hver sagði hvað.
Aðför að Jónínu hefur alltaf farið úr böndunum, fólk virðist telja að það megi segja bara hvað sem er um hana.
Hún er kjarnakona og fer gegn straumnum oftast. Það þola ekki allir, greinilega.
Ragnheiður , 30.7.2010 kl. 12:09
Ok, nú þarftu bara að sýna fram á að IP tala flokkist undir persónuupplýsingar.
IP tala segir ekki neitt, enda er ekki hægt að tengja IP tölu við nafn nema í gegnum ISP-inn, og þeir mega ekki gera það nema að fengnum dómsúrskurði. Þú ert sennilega að rugla þessu saman.
IP talan sjálf er ekki á neinn persónuupplýsingar. Ef þú telur svo vera þætti mér vænt um einhvern lagalegan rökstuðning fyrir því. Þú ert með lögin alveg á hreinu er það ekki, fyrst þú ert að hóta að kæra?
Sven Druzin Ebenezer (IP-tala skráð) 30.7.2010 kl. 12:12
Eru allir ekki orðnir hundleiðir á henni Jónínu Ben... allaf að spila sig sem eitthvað spes... að reyna að selja íslendingum púra crap..
Ef Sölvi er að vinna fyrir þetta pakk... þá er hann að taka niður fyrir sig... hvað er eiginlega í gangi... hann fer með Gunnari Á krossinum og Jónínu Ben í brúðkaupsferðalag.. Þetta er ekki eðlilegt sko... maður fer að halda að hann hafi verið með þeim í bólinu á brúðkaupsnótt ;)
Ég segi það og skrifa, hver sá sem kaupir bók eftir Jónínu Ben... þarf að gera miklu meira en að láta sjúga úr sér skítinn :)
doctore (IP-tala skráð) 30.7.2010 kl. 12:19
Sven..
Lastu ekki kvótið í viðtalið við Jónínu og Sölva á Útvarp Sögu?
Þar segir Jónína berum orðum að hún hafi nöfn þeirra sem voru að skirfa undir nafnleysi og að hún hafi fengið þær upplýsingar út frá IP-tölum sem Stefán þá eigandi Málefnanna eftirlét henni.
Er það ekki augljóst skv. þessum lögum að það er brot að nota og birta persónulegar upplýsingar unnar úr IP-tölum notenda á nafnlausu spjallsvæði sem augljóslega hafa nafnleyndina sem forgangsatriði?
feu (IP-tala skráð) 30.7.2010 kl. 12:22
Nei, það er bara langt frá því að vera augljóst.
1. Jónína verður sér úti um IP tölur frá Stefáni. Ekkert að því þar sem IP tölur eru ekki persónuupplýsingar og Stefán má gera það sem hann vill við upplýsingar um IP tölur.
2. Jónína tengir téðar IP tölur við nöfn, á einhvern hátt. Ef hún hefur notið aðstoðar Internetþjónustufyrirtækis viðkomandi einstaklinga þá hafa þeir brotið lög. Ef hún hefur fundið nöfnin með öðrum hætti, t.d. með því að googla IP töluna og finna innlegg einhverstaðar þar sem manneskja með sömu IP tölu skrifar undir nafni eða auðkennir sig á annan hátt, þá er ekki nokkur skapaður hlutur að því.
Sven Druzin Ebenezer (IP-tala skráð) 30.7.2010 kl. 12:30
Ábyrgðarmönnum Málefna.com ber lagaleg skylda til að verja að þessar upplýsingar opinberist.
Hvernig sem Jónína aflaði sér þær er ekki megin málið, heldur sú staðreynd að þessar upplýsingar eru huldar leynd og við höfum lög sem verja þá leynd.
Ef ég mundi komast í læknaskýrslur þínar og eða þekktra einstaklinga eins og Jónínu Ben, Davíð Oddssyni og fleiri slíkra, þar sem fram kæmi að þessir einstaklingar væru til dæmis veikir andlega og þyrftu pillur til að klára daginn, þá væri ég að brjóta þessi og hin sömu lög.
Það hvernig ég aflaði mér þessar upplýsingar skiptir engu máli. Með því að birta þær, þá er ég að brjóta þessi og hin sömu lög.
feu (IP-tala skráð) 30.7.2010 kl. 12:38
Ábyrgðarmönnum Málefna.com ber ekki lagaleg skylda til þess að verja að upplýsingar um IP tölur opinberist. Það er vegna þess að IP tölur eru ekki persónuupplýsingar.
Aftur: IP tala er ekki persónuupplýsingar. IP tala ein og sér segir ekki neitt, nema í mesta lagi í hvaða landi tölvan er.
Dæmið þitt um læknaskýrslur er slæmt; upplýsingar um heilsu eru einmitt vel skilgreindar sem persónuupplýsingar. Það eru IP tölur ekki.
Sven Druzin Ebenezer (IP-tala skráð) 30.7.2010 kl. 12:43
Þú ert að hártoga þetta mál.
Þú hengir þig í IP-tölurnar. IP-tölurnar eru ekki málið hér.
Birting nafna á bak við þessar tölur eru málið.
Það að birta nöfn einstaklinga úr gagnagrunni sem er kóðaður svo upplýsingarnar tengist ekki við nafngreinda einstaklinga er með öðrum það lögbrot sem Cesil er að reyna að hindra.
feu (IP-tala skráð) 30.7.2010 kl. 12:49
Nei, ég held ég hætti að berja hausnum við steininn núna.
Gangi ykkur vel með kæruna.
Sven Druzin Ebenezer (IP-tala skráð) 30.7.2010 kl. 13:02
Sven ég tel núna að það sé Jónínu Benediktsdóttur að sýna fram á að þessir einstaklingar hafi viðhaft þau ummæli um hana að það réttlæti að hún geti birt persónuupplýsingar um þá. Ég held nefnilega að hún hafi ekkert slíkt í höndunum. Meira að segja fyrrverandi dómsmálaráðherra vildi fá sömu upplýsingar um annan aðila. Ég neitaði honum um slíkt. Enda er það á hreinu frá minni hendi að ég hef ekki leyfi til að opinbera slíkar upplýsingar.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 30.7.2010 kl. 13:12
Það verður enginn kæra lögð fram nema að það sé ljóst að þessar upplýsingar verði birtar í bókinni. Þ.e. upplýst um þá einstaklinga sem hér um ræðir, grundvallað á þeirri að aðferðarfræði sem Jónína beitti til að fá þær.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 30.7.2010 kl. 13:13
Hvað hefur þú að fela Ásthildur. Hver er skýringiná því að þetta myrkra og sóðalið sem þorir ekki að koma fram undir nafni, hefur þessi tök á þér.Og hver er skýringin á því að þú tókst að þer að ábyrgjast þetta nafnlausa fólk, var það af hugsjón einni saman.Og hver heldur þú að sé skýringin á því að Frjálslyndiflokkurinn og Samfylkingin vilja alls ekki að það sé greiður aðgangur að nafni þess fólks sem skrifar níð um fólk.Er það ekki vegna þess að þessir flokkar nærast á því.Það er hægt að breita lögum um nafnlaus skrif á netinu og það fólk sem ábyrgist slíkt,til dæmis þig.Það verður örugglega gert.Það er akki hægt að líða það að fólk sé nítt niður með lygum og síðan komi fólk sem ber ábyrgð á slíku og baði sig í sakleysi eins og þú gerir.Vonandi koma þeir tímar að lögunum verði breytt svo hægt verði að dæma þig til ábyrgðar.
Sigurgeir Jónsson, 30.7.2010 kl. 13:31
Veistu það Sigurgeir að svona innlegg eins og þetta svarar sér sjálft. Það vita flestir sem þekkja mig eða kannast við að ég hef ekkert að fela, enginn hefur heldur nein tök á því hvað ég geri eða segi. Og þegar þú segir "ÞETTA FÓLK" þá setur þú þig niður á sama plan og þú ert að fordæma. Og hver er svo Sigurgeir Jónsson? Ég gæti vel stofnað blogg og kallað mig hvað sem er, Sigurborg Grímsdóttir til dæmis og hellt mér þar yfir allt og alla, og allir héldu að ég væri að tala undir nafni.
Ég held að hvorki Frjálslyndiflokkurinn eða Samfylkingin nærist á rógi og slúðri. Ég þekki allavega vel til innan Frjálslyndaflokksins og þar er ekkert slíkt í gangi. En menn þar hafa skilning á því að mörgum er ógnað fyrir að hafa sannfæringu og vilja koma henni fram, en fá hótanir um brottrekstur eða þaðan af verra. Þetta er nú staðreynd, en auðvitað skilur þú það ekki. Greinilega fastur í einum ríkissannleika.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 30.7.2010 kl. 13:43
Ásthildur, þú getur leitað upplýsinga um mig innan Frjálslyndaflokksins.Ég var í flokknum.Það eru margir sem breytt hafa heiminum með baráttuvilja.Þeir hafa ekki falið sig með nafnleynd til að geta stundað níðskrif, hvað þá að gerast ábyrgðarfólk fyrir slíku.Verði ljós.Hafðu samband við formann Frjálslyndaflokksins ef þú vilt vita eitthvað um mig , eða ritarann. En ég veit ekki til að formaður Frjálslyndaflokksins sé í ábyrgð fyrir nafnlausum níðskrifum, þótt ég hafi nefnt Frjálslyndaflokkinn.En það ert þú og þú ert áhrifamanneskja innan flokksins.
Sigurgeir Jónsson, 30.7.2010 kl. 13:55
Nei Sigurgeir ég ætla ekki að tékka á þér. Óska þér bara alls hins besta. Fyrst þú þekkir til mín ættir þú að vita að ég er ekki til sölu fyrir einn eða neinn.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 30.7.2010 kl. 14:39
Ip tala vísar til nafns og netfangs og jafnvel eira. Ef það eru ekki persónuupplýsingar, þá veit ég ekki hvað það er. Ef Ip tölur flokkast ekki unir perónuupplýsingar, þá gera símanúmer, kennitölur og heimilisföng það t.d. ekki. Skónúmer og skyrtustærðir eru kannski á mörkunum en IP tala getur veitt aðgang að ansi mörgu, sem gæti hreinlega varðað öryggi fólks.
Jón Steinar Ragnarsson, 30.7.2010 kl. 19:49
Annars er aldrei að vita með íslensska lögjöf. Össur var einmitt að hafna því að samþykkja það að aðgangur að vatni teldist til mannréttinda. djöfull hvað maður skammast sin stunum fyrir að vera íslendingur.
Jón Steinar Ragnarsson, 30.7.2010 kl. 19:51
Ef nærminni manna bregst ekki, þá ætti fólk að muna að Jónína Ben hefur áður gefið út bók með "viðkvæmum upplýsingum", sem hún markaðsetti með sama sensationalisma. Bókin var svo hvorki fugl né fiskur. Það sem ekki voru órar og vænisýkislegt þvaður í þeirri bók, var á allra vitorði, auk þess sem efnið kom ekki nokkrum manni við. Þetta var um hennar prívat erjur og væningar, "hann sagði", "hún sagði", "heyrt hef ég" sem kom ekki nokkrum manni við né var áhugaverðara en gyllinæðin í Gulla á fjórðu. Hún seldi bókina hinsvegar bókina vel á hálfkveðnum vísum eins og "það kemur í ljós í bókinni". Hana vandar sennilega peng og því ætlar hún að leika sama leikinn í trausti á afar slakt skammtímaminni landans.
Jón Steinar Ragnarsson, 30.7.2010 kl. 20:04
Hún seldi bókina hinsvegar vel á hálfkveðnum vísum eins og "það kemur í ljós í bókinni". Hana vantar sennilega peng og því ætlar hún að leika sama leikinn í trausti á afar slakt skammtímaminni landans.
...átti að standa þarna...
Jón Steinar Ragnarsson, 30.7.2010 kl. 20:06
Jamm og byrjuð:
Guðmundur Franklín: "Hver á malefnin.com?"
Jónína: "Nákvæmlega. Það færðu að vita í bókinni."
Sölvi Tryggvason: "Þetta er allt skýrt."
Hins vegar getur svo sem vel verið að bókin seljist vel, vegna þess að margir landar okkar vilja velta sér upp úr annara manna málum, sérstaklega ef þeir halda að þar sé eitthvað bitastætt að finna sem kitlar hneykslunartaugarnar. Þannig er Ísland í dag.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 30.7.2010 kl. 20:25
Mér finnst þetta mál allt hið forvitnilegasta og las það frá upphafi til enda.
og ég veit ekki hvort ég á að vera svona eða
svona.
Sóldís Fjóla Karlsdóttir, 31.7.2010 kl. 16:26
Það er góð regla að lesa aldrei blogg eftir ómerkinga. Þannig deyja þeir út.
Valdimar Hreiðarsson, 31.7.2010 kl. 21:57
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.