Að finna upp hjólið..... og útbreiða til annara.

Við þurfum að hlusta á það sem fólkið sem kemur að, segir okkur, er ekki sagt að glöggt sé gestsaugað?

Ég hlustaði á viðtal við umhverfisfulltrúan okkar hér í hádegisútvarpinu, eða mér var bent á þetta viðtal, þar sem ég hlusta yfirleitt ekki á hádegisútvarp Akureyri... eða þannig.  Umhverfisfulltrúinn okkar kemur alla leið frá Sviss og hann er með ýmsar hugmyndir um hvernig spara megi í fegrun bæjarins.  Þetta þarf auðvitað að fara sem víðast og við verðum í forystu með að kenna bæjarfélögum að spara í umhverfinu.  Eða eins og spyrillinn sagði svo listilega, þetta er auðvitað bara spurning um viðhorf.

 

http://dagskra.ruv.is/ras1/4525881/2010/07/22/2/

En ég er búin að starfa við fegrun bæjarins okkar nú í yfir 30 ár, eða frá árinu 1978, þegar Bolli bæjarstjóri hringdi í mig í frystihúsið og spurði  hvort ég vildi ekki taka að mér þessa tvo skrúðgarða í bænum sem báðir voru í mikilli niðurníðslu að hans mati.  Það hefði auðvitað sparað bæjarfélaginu margar milljónir ef ég hefði haft hinn framsýna umhverfisfulltrúa að leiðarljósi og bara hlúð að þeim plöntum sem uxu svo vel í beðum garðanna, þ.e. njólann, fíflana, sóleyjarnar, haugarfan, blóðarfan, hjartaarfan, hlaðkolluna, lambaklukkuna.  Því þetta er náttúrulega bara spurning um hugarfar og svo þurfa þessar plöntur ekki mikla umhirðu.  En aðalmálið er auðvitað sem ég vissi ekki, að ég hefði átt að setja upp skilti með latneskum nöfnum þessara eðalplantna, og allir hefðu dáðst að beðunum.  Ég verð því að biðja ísfirðinga afsökunar á því að hafa bruðlað svona mikið gegnum árin með almanna fé, því þó ég hafi potað niður mörgum græðlingnum og komið með blóm úr eigin garði ókeypis gegnum tíðina, þá hef ég líka keypt sumarblóm af því að ég hélt að það væri fallegt.  Einnig hef ég vogað mér að kaupa túlípana á hverju hausti og sett niður með Pollgötunni.

En nú veit ég betur.  Nú verður þetta allt gert miklu ódýrara og umhirðufrírra en hingað til.

IMG_3989

Eins og fólk sér, þá er þetta bara spurning um hugarfar og hvað sé fallegt eins og spyrillinn sagði svo listilega.

IMG_3990

Bara að endurmeta hvað er fallegt og svoleiðis.

IMG_3991

Þetta er auðvitað tilraunabeð svona til að sjá hvað þrífst best.  Því auðvitað hefur ekkert slíkt verið gert þau 32 ár sem ég hef séð um beðin.

IMG_3993

Það hefur allavega enginn fjömiðlamaður haft áhuga á því að spyrja mig um hvort yfirleitt hafi nokkuð þrifist hér við þessar erfiðu aðstæður undanfarna áratugi.

IMG_3994

En ég er náttúrlega ekki af erlendu bergi brotinn né hafði látið mér detta í hug að setja upp skilti.

IMG_3996

Reyndar tilkynnti yfirmaðurinn mér í gær að það hefði verið kvartað yfir þessu beði, það stendur við hlið fallega beðsins sem ég sýndi hér áður.  Hér hef ég notað mér í nokkur ár að leyfa baldursbrá og fjólum að leika lausum hala.  En silly mí ég hef gert þau hrikalegu mistök að týna burtu njólana, fíflana og sóleyjarnar, plús lambaklukku og hlaðkollu.  Og svo gleymdi ég að setja upp skilti og segja frá því að þetta væri tilraun.

IMG_3997

En auðvitað er svona ekki tilraun, þar sem þess er ekki getið.  Þó slíkt hafi staðið í nokkur ár, eða löngu áður en umhverfisfulltrúinn fluttist til Ísafjarðar.

IMG_4000

Þetta er heldur ekki tilraun, þar sem hér er verið að nýta apablóm, sem breiðir úr sér hratt og vel, bæði í lækjum og í beðum.  En sorrý ég gerði þau mistök að reita arfann og það sem ég hélt að væri illgresi en eru nýjustu eðalplönturnar.

IMG_4001

Enginn fjölmiðill hefur heldur sýnt áhuga á að spyrja um þetta svæði.  Þar var fyrir 25 árum síðan eða svo búið að ýta mold upp í stóra hauga og átti að flytja burt.  Ég var svo mikill bjáni að fá leyfi hjá bæjarstjóranum að láta þetta standa og planta út í það.  Mest græðlingum en líka fjölæringum úr garðinum mínum og svo flutti ég þangað tré og runna sem þurfti að rýma annarsstaðar.  Ég kalla þetta svæði Víðivelli.  Bæjarstjórinn Haraldur L. Haraldsson var sennilega jafn mikill asni og ég að leyfa þetta.   En þetta er heldur ekki tilraun, því hér er ekkert skilti né er hér listi með latneskum heitum.  Bara áhugi á að fegra og bæta umhverfið.   Það er samt rosalega halló samkvæmt nýjustu tískunni í fegrun sýnist mér.

IMG_4002

Það hafa samt einhverjir kjánar eins og skrúðgarðyrkjumenn og landslagsarkitektar veitt þessu fyrirbæri eftirtekt og jafnvel háls nef og eyrnalæknar, allavega einn sem tók mit inn síðasta af sjúklingunum og baðst afsökunar á því, en hann langaði svo að labba með mér út á þetta svæði og spyrjast fyrir, og hafði heyrt að það væri kjáninn ég sem stæði fyrir þessu.

IMG_4003

Þetta er hvorki sjálfbært né huggulegt af því að hér er verið að mismuna plöntum.  Fjarlægja njólann, sóleyna, fíflana, hlaðkolluna og slík. 

IMG_4005

Eins og sagt er, þetta bara varð svona af sjálfu sér.  Og fólk hefur ekki tekið eftir því einu sinni.  En nú veit ég betur.  Maður gerir ekki tilraunir svona þegjandi og hljóðalaust.  Maður setur niður skilti og talar við fréttamenn og allir gapa af andagt yfir fegurðinni, sparnaðinum sem af hlýst og umhirðuleysinu.

Þetta er auðvitað frábær stefna og miklu ódýrari en mín.  Mér finnst að það eigi að útvíkka þessa stefnu og leigja Umhverfisfulltrúan til annara bæjarfélaga svo hann geti messað yfir hallærislegum garðyrkjustjórum þessa lands, kristnað þá og hjálpað til að sjá ljósið. 

Það getur líka verið verðugt hlutverk fyrir útvarpsmanninn ráðagóða sem setti strax puttan á aðalatriðin í fegrun bæjarins að fylgja starfsmanninum út um landið og sýna fram á hve frábært þetta er allt saman.

Okkar maður er líka með ýmsar fleiri hugmyndir um sparnað.  Eins og til dæmis að minnka vinnu við slátt.  Þá fær maður rollu og bindur hana við staur á miðju hringtorgi, svo étur hún sig sjálf inn að staurnum og til baka aftur eftir því sem grasið vex.  Verst er að kindur eiga það til að eiga lömb á þeim tíma sem vinnan stendur yfir, og ekki er hægt að binda þau við rolluna, svo annað hvort er að setja á hana getnaðarvörn eða halda frá hrútunum á vorin.  Nú eða bara fá lánaðan hrút, hann vill hvort sem er, að mati okkar elskulega umhverfisfulltrúa, bara sofa ríða og éta. 

 

Ég sé að þessi mynd á miklu betur við hér.  Smile

IMG_3880

Eigið góðan dag elskurnar hér er sól og blíða.  Ég er búin að panta slökkviliðið til að vökva fyrir mig ef það hefur ekki rignt fyrir mánudaginn.  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kidda

Þetta er sem sé misskilningur hjá mér og fleirum að illgresi eigi ekki heima í beðum og görðum. Að sumu leyti léttir mér vegna þess að ég hef misst blómabeðið mitt í illgresið en get núna sagt þegar ég sýni húsið mitt og garðinn að þessi blóm séu samkvæmt nýjustu tísku.

Omg, ég klippti niður njóla fyrir austan sem var heldur betur orðinn stór og ætlaði að setja svo roundup á rest. Held ég reyni frekar að grafa upp ræturnar og setja þær á einhvern áberandi og fallegan stað.

Ég á bara ekki til orð yfir þessu, það hefur hingað til verið gleði og ánægja að sjá hvað bæði bæjarfélög og garðeigendur halda sínum svæðum snyrtilegum með fallegum gróðri. Og hreinsa "illgresið" í burtu. Illgresið getur verið fallegt þar sem það á við eins og njólinn upp í sveit. 

Í guðanna bænum haltu áfram að halda 'Isafirði fallegum með fallegum blómum og vinnu fyrir unglingana við að hreinsa "illgresið" í burtu.

Knús í blómakúluna

Kidda, 23.7.2010 kl. 20:06

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Hef reyndar fengið tiltal frá mínum elskulega yfirmanni yfir þessari færslu.  Sem mun verða til ákveðinna aðgerða af minni hálfu.  Þannig eru hlutirnir bara.

Já Kidda mín það er algjör misskilningur að útiloka fagurplöntur eins og njóla, fífil og sóley. En svona er þetta bara við kunnum ekki gott að meta.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 23.7.2010 kl. 21:14

3 Smámynd: Sigrún Þorbjörnsdóttir

Þar fór öll vikan mín fyrir ekki neitt...er nefnilega búin að eiga lögheimili í garðinum mínum alla vikuna  

Ja það eru misjöfn sjónarhornin en ég vona að þessi stefna nái ekki fram að ganga og þú munir halda áfram að fegra bæinn með þínum gamaldags hugmyndum

Sigrún Þorbjörnsdóttir, 23.7.2010 kl. 22:39

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Það gæti styst í það Sigrún mín.  En það verður þá að hafa það.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 23.7.2010 kl. 23:42

5 Smámynd: Sigrún Aðalsteinsdóttir

Ja hérna.  Ég heyrði þetta viðtal og ég sem hef ekki hundsvit á garðyrkju, þekki varla fífil frá sóley, gat bara ekki séð fyrir mér að þetta gengi upp. Ef þetta gengur upp hjá ykkur á Ísafirði þá hætti ég við að breyta 40 fermetra bakgarðinum mínum í kvöldsólarpall og leyfi heldur illgresinu að njóta sín í mölinni, eins og það hefur gert hingað til.  Það var nefnilega í tísku á 10. áratugnum hérna í Hafnarfirði að setja bara möl í garðana ásamt stöku tré.  En merkilegt nokk - þá er ég búin að gefa þó nokkra græðilinga héðan sem hafa skotið rótum í mölinni þ.á m. reynir (sá næsti er í 70 metra fjarlægð) allnokkrar birkiplöntur, enda er ég stolt af birkitrénu (eina trénu) í bakgarðinum mínum og nokkrar trjáplöntur af ókunnum uppruna í mínum augum.

Kannski ég auglýsi bara garðinn minn sem "beint frá Ísafirði" og hætti við kvöldsólarpallinn minn.

Það er spurning hvort þú blómstrir ekki betur í Hveragerði.  Ég skrapp þangað á blómadaga og hvað allt var fallegt þarna hjá þeim.  Ég man eftir Hveragerði fyrir nokkrum árum, þá hefði enginn trúað því að það væri Blómabærinn okkar, en nú er hann mjög fallegur.

Sigrún Aðalsteinsdóttir, 24.7.2010 kl. 01:24

6 Smámynd: Sólveig Þóra Jónsdóttir

Í um 12 ár bjó ég í  einbýlisbúsi í 101 Reykjavík og var þar með lítinn garð og allur arfi tekinn miskunnarlaust í burtu. Fyrir 4 árum þurftum við að selja þá eign til að forðast gjaldþrot og keyptum hús og land á Vatnsleysuströnd í Vogum. Harmleikur snerist upp í hamingju því hér erum við frjáls. Ég var einmitt að segja við manninn minn í dag þegar hann var að slá grasið "Láttu fíflana vera, því ég vil hafa þá" einnig eru hér baldursbrár sem eru friðaðar af mér. Ég vil hafa mitt umhverfi náttúrulegt í dag. Baldursbrár, fíflar, sóleyjar og hundasúrur er inn hjá mér.

Sólveig Þóra Jónsdóttir, 25.7.2010 kl. 02:07

7 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Hehe Sigrún góð hugmynd "beint frá Ísafirði", það er rosalega gaman að fylgjast með því sem vex upp úr jarðveginum okkar.  Ég veit um nokkrar reynihríslur hér og þar í beðum í bænum, sem ég ætla að leyfa að vaxa og sjá hvað gerist.  Fuglarnir hafa plantað þeim þar.  Verra er með yllirinn sem allstaðar sáir sér  og er að verða versta illgresi af því hann verður svo frekur.

Sólveig málið er að við verðum að fá að velja hvað vex í okkar eigin garði.  Það gildir víst samt ekki um opin svæði.... eða það finnst mér vera annar hlutur.  Baldursbrár eru afskaplega fallegar þangað til þær verða heiðgular þegar líður á sumarið, af því þær missa hvítu blöðin sín.  Ég prófaði að láta slá þær niður að hluta til að gá hvort þær endurnýjuðu sig.  Fíflar eru líka fallegir þangað til þeir verða að bifurkollum og fjúka um allt, sóleyjan er rólegri í tíðinni, hundasúrur eða túnsúrur frekar eru góðar til átu, fíflar flottir í vín og salöt.  Æ við getum víst notað flestan gróður bæði til yndisauka og matar ef við viljum. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 25.7.2010 kl. 10:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 35
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband