22.7.2010 | 20:04
Má bjóða ykkur rúnt um Djúpið að kvöldlagi?
Við hjónin skruppum inn í Heydal í vikunni, vorum að sækja Úlf sem hafði dvalið þar í góðu yfirlæti nokkra daga, Júlíana og Alejandra komu með.
Mig langar að bjóða ykkur í sólsetursferðalag um Djúpið.
En fyrst þetta, grill með fjölskyldunni, þ.e. systrum mínum.
Og svo vinur minn Jón Steinar prakkarinn.
Við erum rosalega sæt saman.
Stelpurnar mínar Júlíana og Alejandra.
Og Úlfur og Júlíana.
Ég held að þessi kerling sé stórhættuleg, Hells Angels eða eitthvað álíka
Hér er svo SelaPétur vinur minn ásamt sinni ekta spúsu, við átum þennan forláta kvöldverð inn í Heydal. þar var mikið um að vera og maturinn var góður. Í forrétt var grænmetissúpa eða reiktur lundi, svo var lax í aðalrétt og kaka með rjóma. Allt smakkaðist þetta forláta vel í höndunum á Stellu vinkonu okkar. Takk fyrir okkur Stella mín.
Hinn eini sanni eftirréttur var svo ferðalagi heim um Djúpið, þetta fallega svæði og veðursæla.
Þvílík fegurð, þetta er auðvitað ís og eldur. Og allt tekið út um bílgluggan á ferð ég er orðin sérfræðingur í því.
Já það þarf ekki orð hér.
Heldur bara njóta þessa dásamlega sjónarspils.
Fegurð engu lík.
Paradísin slík.
Allt sama kvöldið.
Eigum við ekki yndislegt land?
Sem okkur ber að vernda og verja.
Gegn illri vá og græðgi.
eiturgufur og spúandi stóriðjur eyðileggja svona litadýrð fljótlega.
get svo ekki stillt mig, þetta bú er inn í öðru gróðurhúsinu mínu, svo flott og flugurnar hamast við að laga breyta og bæta allan daginn, enda nóg af blómum og gróðri til efnistöku.
Hér eru svo hænurnar mínar þær eru tvær saman um að passa 10 unga, sem þær gæta eins og sjáaldurs augna sinna, við lokuðum hanann úti með unglingnum síðan í vor, og nú er hann hættur að gogga í hana og þau bestu vinir, enda hænur frekar bráðþroska ..... eða þannig.
En njótið vel mín kæru
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.6.): 0
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 35
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 30
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Takk fyrir fallegar myndir sem endranær Ásthildur mín. Já landið okkar er svo sannarlega fallegt og hvergi annarsstaðar vildi ég vera
, 22.7.2010 kl. 23:24
Kærar þakkir fyrir fallegar "Djúpmyndir", sólarlagið er hvergi fegurra en einmitt fyrir vestan (að mér finnst :-) ), takk fyrir að deila myndunum með okkur hinum.
Bestu kveðjur
Sólveig Aradóttir (IP-tala skráð) 22.7.2010 kl. 23:49
Skemmtilegar, fróðlegar og fallegar myndir.
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 23.7.2010 kl. 00:36
Þetta land er ekki til sölu,veit Jóhanna ekki af því.
Helga Kristjánsdóttir, 23.7.2010 kl. 01:43
Helga Jóhanna veit yfirleitt ekki neitt í sinn haus, það er verið að skoða málin og athuga um hlutina, síðan þarf að skipa nefnd til að skoða það ennþá betur, og svo hefur allt bara hlaupið út úr höndunum á stjórnvöldum, svona óforvarendis og án þess að þau hefðu hugmynd um það!!!
Takk Jóna Kolbrún mín.
Takk Sólveig mín og aðrir.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 23.7.2010 kl. 09:08
Núna langar mig vestur að njóta.
Alveg sammála með þessa kjellingu, hún er soldið vígaleg og virðist vera harður nagli, sem ekkert lætur stoppa sig og sem ætti vel heima í Hells Angels. Vildi ekki mæta henni í skuggasundi hérna í borg óttans
Knús í kærleikskúluna
Kidda, 23.7.2010 kl. 20:16
Heheheh Kidda mín, málið er að þessi kerling gerir ekki flugu mein, nema þegar á hana er ráðist eins og með geitungana. Þess vegna skil ég þá svo vel, nema ég er ekki með brodd sem dettur af. Minn er fastur inn í pennanum og lyklaborðinu og verður þar uns ég get ekki hreyft mína fingur eða huga meir. Þannig verð ég hættuleg umhverfi mínu. Það er að segja þeim sem hugnast ekki réttlætið
.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 23.7.2010 kl. 21:17
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.