Ég skil að fólk sé hrædd við sum dýr, eins og til dæmis kyrkislöngur, týgrisdýr og ljón, meira að segja moskító sem ber með sér ólæknandi sjúkdóma, eða önnur dýr sem skríða undir hún eða neglur til að verpa.
En ég get ekki skilið að fólk sé dauðhrætt við kóngulær, hunangsflugur eða geitunga.
fyrir mér eru þetta skemmtileg og falleg dýr. Þau eru líka nytsöm þar sem þau éta í sumum tilfellum lýs og önnur leiðindakvikindi.
Núna í tvígang hef ég þurft að skipta mér af geitungabúum í einum skrúðgarðinum. Í öðru tilfellinu neyddist ég til að láta drepa íbúana, þar sem ég var að láta fólkið mitt gera við og mála hvalbeinið í Jónsgarði og þeir höfðu búið um sig upp í kjálkanum á beininu, og þarf þurfti að mála og fylla í.
Í hinu tilvellinu var geitunabú rétt hjá þar sem stelpurnar mínar .þurftu að gróðursetja blóm. Ég bjargaði því við með því að gróðursetja sjálf blómin, allir voru glaðir, stelpurnar að sleppa við flugurnar, flugurnar að fá blómin nær heimaslóðum og ég að bjarga þessu við.
Þær bentu mér svo á enn eitt búið, sem er virkilega flott og gaman að fylgjast með þessum tignarlegu flugum við iðju sína.
Það sem ég skil ekki er þessi ofsalega hræðsla við geitunga, bíflugur og kóngulær eins og áður sagði. Það er auðviðtað til að geitungar verði aggressífir að hausti, en allt sumarið eru þeir sauðmeinlausir og bara að hugsa um sig og sína, eins og flestir aðrir.
Ég veit að sumir hafa ofnæmi fyrir flugnabiti, en það hlýtur þá að vera við allskonar flugnabiti mýflugna og hungangsflugna líka. Svo við komandi verður að hafa við hendina eitthvað sem hjálpar til, því ekki er hægt að drepa allt sem í kring um mann er.
Geitungarnir eru komnir til að vera. Eitranir hér og þar breyta litlu. Miklu betra er að sætta sig við þessi dýr og hætta að eyðileggja góða daga af hræðslu við þau.
Vilð erum miklu stærri og sterkari en þeir.
Vilð verðum bara að sætta okkur við að þeir eru komnir til að vera, nema aftur kólni og verði þannig veðurfar að þeir þrífast ekki.
Svo eru þeir algjör krútt.
Og búa auðvitað í flottum kúluhúsum.
Það er miklu nær að læra að lifa með þessum fallegu dýrum, og hætta að vera hrædd, því hræðslan ein og sér getur eyðilegt daginn fyrir manni. Svo má gróðursetja runna sem þær sækja í fjærsta horn garðsins, svo þeir séu ekki að þvælast alveg í grillhornunu. Það er nefnilega pláss fyrir okkur öll og ef út í það er farið, eigum við engan álærðisrétt á náttúrunni og tilverunni... eða þannig.
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.6.): 0
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 35
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 30
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
ég gat nú ekki annað en hlegið þegar ég las þessa færslu, ég er svo logandi hrædd við þetta allt sem þú taldir upp, geitunga, býflugur og kónglulær
knús í kúluna frá Hellu
Hjördís P. (IP-tala skráð) 21.7.2010 kl. 12:18
Hahaha!!! Þú hefðir átt að vera með þegar stelpurnar voru að veiða hunangsflugurnar og geitungana upp úr tjörninni á vorin. Þá var fjör. Þær eru ekki smeykar við neitt svona. Knús á þig Hjördís mín.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 21.7.2010 kl. 15:14
Ég er nú ekki beint hrædd við þessi kvikindi. Mér leiðist bara þegar ég flækist í kóngulóarvefi allan daginn
Veit þær eru sauðmeinlausar. En þær eru svo snöggar hérna að maður nær þeim ekki með höndunum, en ég fékk mér eitthvað prik sem ég kalla "kóngulóartemjarann" minn, því ég get veitt þær án þess að drepa þær og svo kasta ég þeim út í móa. Svo koma þær skellihlæjandi á eftir mér hingað aftur
Ég segi oft við stelpurnar mínar þegar þær eru að veina undan kóngulóm, að við búum á þeirra landsvæði hér í hrauninu og mosanum, svo það sé bara best að venjast þeim 
Það er satt að geitungurinn er voða krúttlegur, en mér finnst ekkert krúttlegt að vera stungin. Er samt ekkert að hlaupa æpandi burt eins og svo margir. Reyni bara að troðast ekki á nákvæmlega sama stað og þeir
Sigrún Þorbjörnsdóttir, 21.7.2010 kl. 17:42
Þetta eru virkilega flottar flugur, gular og svartar.
Ég var stunginn þegar ég var c.a 10 ára af geitungi og hef reynt að forðast þá síðan.
En hunangsflugurnar og köngulær hef ég ekkert á móti.
Geitungarnir verða mjög árásargjarnir í ágúst-september og geta í mörgum tilvikum verið hættulegir m.a börnum sem eru við leik í görðum. Þannig að maður skilur vel að fólk hringi á meindýraeyði ef geitungabú er í görðum.
En býflugurnar eru gagnlegar, þær frjóvga ávexti og ýmislegt og býflugnabændur keyra oft með tugþúsundir býflugna um til dæmis öll Bandaríking til að sleppa þeim yfir uppskerur bænda. Þannig að augljósts er að býflugur eru gagnlegar ef ekki nauðsynlegar.
En geitungarnir..... set spurningamerki við þá ;)
ThoR-E, 21.7.2010 kl. 19:16
Ættir að reyna að segja henni systur minni það, ég held hún hlypi í ána ef við mættum geitungi í Elliðaárdalnum. Ég hef hinsvegar ákveðið að ætla engu og engum illt fyrr en á reynir. Fullt af fólki þorir ekki að vera úti þar sem kríur eru, ég bjó í kríuvarpi í 5 ár og hef aldrei á ævinni verið gogguð. En ég er ekki viss um að ég vildi hafa geitungabú undir þakskegginu eða við húsvegginn hjá mér, sérlega ef börn væru þar að leika sér. Býflugur og kóngulær hef ég aldrei óttast, nema gamla hjátrúin að ekki mætti drepa kónguló, og svo báðum við þær í gamla daga að vísa okkur á berjamó
. 
Dísa (IP-tala skráð) 21.7.2010 kl. 20:06
Ótti við flugur, köngulær og önnur skordýr er ein af óteljandi fóbíum sem fólk stríðir við og á erfitt með að ná tökum á. Flestir kannast við lofthræðslu, flughræðslu, innilokunarkennd, ótta við blóð o.s.frv. enda með algengustu fóbíum. Ótti við skordýr er bara ein af þessum fóbíum og vel skiljanleg þannig séð. Hinn flughræddi skilur samt kannski ekki líðan þess sem þolir ekki að sjá blóð og öfugt, svo tekið sé dæmi. En svona er þetta bara. Hver og einn verður að ráða niðurlögum eigin fóbía með einum eða öðrum hætti. Eða kveljast áfram ella.
Baðvörður (IP-tala skráð) 21.7.2010 kl. 21:33
Mér er meinilla við geitunga, Garðhumlur og aðrar býflugur finnast mér sætar og góðar
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 21.7.2010 kl. 23:40
Í fyrsta sinni var ég stungin fyrir ca.viku,það af bíflugu. Ég varð ansi slæm í stungu-sárinu. Ég hefði átt að stæra mig meira yfir að þær létu mig alltf í friði,hefðu ekki list á mínu heið-bláa blóði.(-: (-:
Helga Kristjánsdóttir, 22.7.2010 kl. 00:36
Baðvörður já ég er haldinn lofthræðslu, og vildi óska að mér tækist að yfirvinna hana. Það er sennilega rétt hjá þér að sá með slíka fóbíu skilur ekki aðra og omvent. En maður ræður oftast hvort maður hættir sér eitthvað hátt upp í loft, nema þegar maður neyðist til að fljúga. Hins vegar eru geitungarnir út um allt og spyrja hvorki kóng né prest hvar þeir megi vera.
Ef til vill eru íslendingar loksins að taka hunangsfluguna í sátt, ófá skipti hef ég hlustað á fólk sem segist drepa þær ef þær voga sér inn í eldhúsgluggann. Það er auðvitað byrjunin að sættast við hana, síðan þarf að læra að lifa með geitungunum, mér skilst að þeir séu mis agressífir, með þá eins og slöngurnar, því agressífari sem munstrið á þeim er því viltari sjálfir.... eða þannig.
Skil Dísa mín með börnin og bíin og geitungana. En getur ekki líka verið að það sé með þau eins og hreinlætið að á misjöfnu þrífast börnin best, og að einmitt að fá bit ungur hjálpi til við að skapa móteitur hjá þeim upp á framtíðina. Veit það ekki. Þetta er bara svona hugsun.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 22.7.2010 kl. 08:03
Móteitur já... þá ætti ég að vera í góðum málum ;)
ThoR-E, 22.7.2010 kl. 10:43
Þeir eru ekki margir, geitungarnir, sem hafa lifað það af að koma of nálægt mér. Lít á það sem sjálfsvörn.
Grefill (IP-tala skráð) 22.7.2010 kl. 11:18
Mér er orðið sama um býfluguna og köngulær en geitungana tek ég ekki í sátt. Hef ekki orðið vör við þá í garðinum eftir að ég veiddi 18 stk hérna inni og suma á flugi í vorbyrjun. Hef sennilega náð öllum drottningunum.
Vinkona mín er með sjúklega fóbíu gagnvart geitungum og köngulóm. Það er virkilega erfitt fyrir hana td að koma á pallinn hjá mér því mér er sama um þær enda eru þær margar hérna við húsið. Hm kannski það sé þess vegna sem hún hefur ekki komið í heimsókn í sumar nema að kvöldi til
Tók eina um daginn á baðgólfinu og þar sem mér fannst hún ókunnugleg þá sturtaði ég henni niður í klósettinun, hún komst á einhvern hátt upp í gegn um vatnið og var komin á setuna næst þegar ég átti leið þar um. Það tókst loksins að skola henni niður.
Knús í kærleikskúluna
Kidda, 22.7.2010 kl. 11:23
Knús Kidda mín.
Já við erum ansi ólík í viðhorfi til dýranna. En hver verður að hafa sitt. Ég hugsa að það taki nokkur ár fyrir íslendinga að taka geitungana í sátt. Eða þar til börnin sem nú vaxa úr grasi hætta að hlusta á fóbíu fullorðna fólksins og fara að taka geitungunum eins og hverju öðru í garðinum. Allt tekur sinn tíma.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 22.7.2010 kl. 13:33
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.