Nokkrar myndir undir svefninn.

Hér koma nokkrar myndir frá heimsókn Arnar Milos, pabba hans og mömmu. 

IMG_2639

Tjörnin er auðvitað málið, eins og alltaf.

IMG_2648

Faðir og sonur áhugasamir um bjórframleiðslu, svona eðaldrykk.

IMG_2654

Og himnadísin lítur yfir hópin og sér að allt er í lagi hjá okkur.

IMG_2659

Næstmest spennandi er auðvitað mölin sem afi setti við uppganginn, af því að hann ÆTLAÐI að helluleggja og setja tröppur hrmm...

IMG_2662

Skottið á pabbabíl getur líka verið spennandi kostur ef stóri frændi er með í leiknum

IMG_2667

Já maður gerir eiginlega allt eins og stóri frændi.

IMG_2670

Sitja í grasinu.

IMG_2677

Gera við reiðhjólið.

IMG_2713

Alveg á bólakafi í læknum og svona.

IMG_2738

Ræða málin við Snúð.

IMG_2755

Að fara í sund á Suðureyri er líka algjört must.

IMG_2767

Afi þarf að reyna kraftana.

IMG_2764

Líka stóri stubbur

IMG_2770

Og auðvitað litli stubbur.

IMG_2780

Svo var ákveðið að gera holusteik, og þá þurfti að grafa nýja holu, sú gamla er löngu yfirvaxin af gróðri.

 

ég get örugglega gert þetta miklu betur.

IMG_2785

Ekki málið.

IMG_2739

Þessi mynd var tekin fyrir mánuði síðan og enn er sama blíðan.

IMG_2790

Afi átti afmæli 18. júní og auðvitað fékk hann gjöf og aðstoð við að pakka henni upp.

IMG_2794

Ætli holan sé orðin nógu stór?

IMG_2801

Brandur telur að best sé að vera "on the save site"

IMG_2807

Hér eru Júlíana og Alejandra við buðum þeim og fjölskyldunni frá El Salvador í mat.

IMG_2818

Þessi yndislega fjölskylda mín er afar trúrækinn og hér er beðin borðbæn.

IMG_2821

Og síðan sest að snæðingi. 

IMG_2826

Sigurjón Dagur og Arnar Milos voru góðir saman.

IMG_2833

Gamla brýnið ykkar einlæg, með Arnar Milos og Júlíönu.

IMG_2838

Elskulega tengdadóttirin okkar og litli kúlubúinn, sá næsti í heiminn.

IMG_2839

Þetta er ekki í myrkum skógum El Salvador heldur íslensk heimkynni og fósturjörðin þeirra í dag.

IMG_2848

Svo kemur að kveðjustund.  Júlíana var að fara suður.

IMG_2858

Og þær kveðjast frænkurnar og vinkonurnar.  Reyndar eru þær hér hjá mér í nótt báðar tvær.

IMG_2863

Fallegu börnin okkar og lítill kúlubúi.

IMG_2869

Öll fjölskyldan.

IMG_2884

Her er svo stubbur með tvo afa.

IMG_2890

Ísbíllinn kemur annan hvern laugardag, og hann kom einmitt í dag, en hér fær Arnar Milos að kaupa ísinn.

IMG_2892

Nammi namm.

IMG_2899

Snúður lætur sér vel líka að fá athygli.

IMG_2903

Við fórum svo auðvitað í Neðsta Kaupstað til að smakka hinn landsfræga fisk hjá Magga og Rönku.

IMG_2908

Meiriháttar matur hjá þeim sumarlangt.  Fólk kemur fá öllum heimshornum að smakka matinn, og við fengum ekki einu sinni að borga matinn.  Það var allt í boði Júlla míns, blessuð sé minning hans.  En þarna átti hann sínar bestu stundir.

IMG_2909

Innilega takk fyrir okkur.

IMG_2911

Ég held að þessi staður eigi sér fáa líka, af gæðum og yndislegu fólki sem er í senn afslappað og sérlega góðir kokkar.

IMG_2924

Og svo afi og stubbur.

IMG_2878

Hér er hún Lóa, ég hef tekið eftir því að nú eru hér stærri kóngulær.  Með stærri vefi allt vegna þess hve miklu betra veðurfar er hér meiri hiti og meiri sól en áður.

En ég læt þessari myndasýningu lokið í kvöld.  Eigið góðan dag framundan á morgun, og ég á eftir að setja inn myndir fra tveimur ættarmótum og fleiru.

En mér líður vel í dag, þó mér líði öðruvísi en áður.  Það hefur eitthvað breyst inn í mér, sem gerir mér bæði kleyft að taka á fleiri málum, og hugsa meira um sjálfa mig en ég gerði áður.  Skrýtið hvernig sorgin breytir manni.  Ég er svona að átta mig á því hvað það þýðir að læra að lifa með.......

Segi svo bara góða nótt. Heart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Já það er sko betra fyrir ketti að halda sig í "öruggri" fjarlægð frá smáfólkinu, þetta veit vinur minn hann Brandur,enda eldri en "tvævetur".  En hvernig gerir maður holusteik???? Man ekki eftir að hafa heyrt um það............

Jóhann Elíasson, 18.7.2010 kl. 10:18

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

  sé að menn eru þarna með alvöru bjór. Bjarni minn er stundum að vinna við framreiðsluna.

Ásdís Sigurðardóttir, 18.7.2010 kl. 11:24

3 identicon

Uum, holusteik, fæ svoleiðis bara fyrir vestan. En mikið rosalega ertu rík að eiga allt þetta fallega fólk go fleira á leiðinni. Gott að orkan þín er að aukast enda er veðrið alltaf svo yndislegt.

Dísa (IP-tala skráð) 18.7.2010 kl. 13:43

4 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

  Gott að það er sól í sinni.

Helga Kristjánsdóttir, 18.7.2010 kl. 15:08

5 Smámynd: Ragnheiður

einmitt mín kæra, að lifa með....

Það er kúnstin og ekki auðveld, en það lagast ögn smátt og smátt.

Hjartansknús

Ragnheiður , 18.7.2010 kl. 17:59

6 identicon

Bros til þín og takk fyrir.

Ásta.

Ást Einarsdóttir (IP-tala skráð) 18.7.2010 kl. 18:49

7 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Takk fyrir kaffisopann áðan. Eitthvað barst krummi í klettagjá í tal og það á útlensku...eina sem ég fann var eitthvað, sem ég held að sé sænskt. http://www.youtube.com/watch?v=L3NZ-fXeNTw

Jón Steinar Ragnarsson, 19.7.2010 kl. 00:03

8 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Yndislegt að fá þig inn úr dyrunum Jón Steinar minn, takk fyrir lagið. 

Bros og knús á móti Ásta mín.

Gott að vita Ragnheiður mín, svo sannarlega.  Ég skynja hann í mikilli gleði og á kafi í vinnu við að bjarga lífum. 

Takk Helga mín, já það er gott og veðrið er líka dásamlegt, hér var um 20°hiti í gær og stefnir í ennþá hlýrra.

Takk Dísa mín, já það er gott að finna að blóðið rennur þrátt fyrir allt ennþá í æðunum, og að það geti verið framhald á lífinu.  Góð tilfinning.

Já Ásdís þetta er alvöru hobbý. 

Nákvæmlega Jóhann minn, best að halda sig í örygginu þegar svona snáðar eru á róli.

Holusteik er þannig að þú tekur gott lambalæri, kryddar það vel ég krydda með season all, papriku frá Ungverjalandi, sterkari en venjuleg, karrý og ekki er verra að setja blóðberg ferskt með, ég vef þessu svo inn í álpappír, það þarf að grafa holu sem er nógu stór til að koma lærinu ofan í.  Maður getur notað holuna lengi.  Síðan er kveikt í kolum í botni holunnar og þegar þau eru mátulega heit, setur maður kjötið yfir.  Það þarf að snúa því a.m.k. tvisvar helst oftar, og reyna að passa að sem mest af vökvanum haldist inn í álinu upp á sósuna. Svo er settur steinn eða eitthvað yfir sem lokar af holunni, en ekki alveg, því það þarf að trekkjast svo drepist ekki í kolunum.  Ágætt að reita gras og setja yfir ef maður er svo heppinn að finna flatan nógu stóran stein.  

Þetta tekur svona tvo tíma ef menn vilja hafa lærið vel steikt.  Og það er algjört nammi namm. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 19.7.2010 kl. 07:37

9 Smámynd: Kidda

Fallegar og skemmtilegar myndir að venju. Alltaf gaman að sjá hvernig lífið í kúlunni er. Væri alveg til í að smakka holusteik einhvern tímann

Knús í kærleikskúluna

Kidda, 19.7.2010 kl. 09:57

10 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já ef þú stoppar einhverntíman nógu lengi færðu holusteik. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 19.7.2010 kl. 10:19

11 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þakka þér kærlega fyrir uppskriftina mín kæra, þetta verður sko prófað fljótlega.

Jóhann Elíasson, 19.7.2010 kl. 16:25

12 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Jóhann minn, mæli með því. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 20.7.2010 kl. 11:15

13 Smámynd: Sigrún Þorbjörnsdóttir

Það er alltaf jafn notalegt að "kíkja inn" til þín elsku Ásthildur. Gaman að skoða allar myndirnar þínar og skrifin þín eru svo sannarlega mannbætandi. Ég geri alltaf svona holusteik þegar við erum í sveitinni okkar, algjört lostæti.

Kærleiks Ljós til þín elsku Ásthildur.

Sigrún Þorbjörnsdóttir, 20.7.2010 kl. 16:16

14 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Gott að sjá þig Sigrún mín, long time no see  KNús og ljós til þín elskuleg mín og holusteikinn klikkar ekki. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 21.7.2010 kl. 07:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 35
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband