6.7.2010 | 16:52
Voða góð... eða þannig.
Ung stúlka frá El Salvador sem kom hingað með afa og ömmu. þurftu að flýja frá landinu vegna dauðahótunar frá Mafíunni, sem hefur nýlega drepið 14 manns í San Salvador, hefur dvalið hér á landi síðan hún var 5 ára gömul. Af því hún kom ekki með foreldrum hendur afa og ömmu, sem hún er búin að vera hjá frá fæðingu, fær hún ekki dvalarleyfi.
Afi og amma hennar reyndu að ættleiða hana, en það var fyrir jarðskjálftan sem eyðilagði mörg hús í San Salvador fyrir nokkrum árum, og líka pappírana um ættleiðingu, reyndar dó líka lögfræðingrinn sem vann að málinu.
Síðan hafa þarlendir lögfræðingar plokkað fleiri tugi þúsunda af mínu fólki, í skjóli íslenskra stjórnvalda, sem kefjast allskonar pappíra, sem þau hafa reyndar fengið en eru ekki viðurkennd hér á landi, þó þau hafi verið viðurkennt í U.S.A.
Litla fjölskyldan mín hefur þurft að svara hótunnarbrefum um að senda stúlkuna burt á liggur við 6 mánaða fresti í öll þessi ár. Nú eru afi og amma orðin íslenskir ríkisborgarar en ennþá má litla Alejandra una því að fá ekki dvalarleyfi af bókstafartrúarkjaftæði útlendingastofnunnar, sem ég held að sé mestu rasistar íslandssögunnar, en það er mín persónulega skoðun.
En svo er hægt að upphefja sig og flytja inn fullt af fólki frá öllum heimshornum til að klæða sig í sauðagæruna og þykjast vera umburðarlynd.
Flóttafólk allstaðar að úr heiminum á alla mína samúð, og ég vildi að við værum duglegri við að hjálpa fólki sem hingað leitar, og er oftar en ekki sent úr landi, eða tvístrað fjölskyldum, í nafni skrifræðis og rasisma.
Þetta er því í mínum huga fölsk skilaboð. Meðan litla stúlkan mín fær endalausar hótanir um að senda hana úr landi... og hvert??? Eina fjölskyldan sem hún á og þekkir út og inn, eru afi og amma(aka pabbi og mamma) afi og amma, ég og Elías, og svo móðursystir hennar sem býr í Reykjavík og móðurbróðir sem býr hér.
Nei pappirinn blífur, punktar og kommur og hræsni af fyrstu gráðu og hana nú.
![]() |
Tekið við fimm flóttamönnum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.6.): 4
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 39
- Frá upphafi: 2023325
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 33
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hvernig er me[d undirskriftarlista = margir vildi skrifa undir hann.
menn 'a lista yfir hrydjuverk komast inn her og Fangelsin full af glaepamonnum sem komast hingad.
kv.EA
Erla Magna Alexandersdóttir, 6.7.2010 kl. 17:15
Já Erla mín. Ég hef reynt að tala við ráðamenn, meira að segja var gerð um þetta mál frétt í kastljósi. Össur sagði að það þyrfti að taka á þessu máli. En það hefur nákvæmlega ekkert gerst. Ég man líka eftir ungri konu sem fékk ríkisborgararétt á sólarhring, en æ það var víst tengdamamma hennar sem var þá við völdin. Svona er Ísland í dag.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 6.7.2010 kl. 17:27
Sorglegt ,getur stúlkan ekki fengið þó ekki væri nema bráðabirgðaleyfi til að vera hér?Stundum eru þessi mál svo skrítin.
Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 6.7.2010 kl. 18:08
Ég verð svo reið að hugsa um þetta, hef einhverntíman sagt við þig hér í kommentum að ég væri sko til í að berjast fyrir þessa ungu stúlku, þvílíkt óréttlæti, tek undir með þér með sýndarmennskuna.
Ásdís Sigurðardóttir, 6.7.2010 kl. 19:52
Væri samt ekki ráð að prófa undirskriftalista, það fær meiri athygli og erfiðara að stinga undir stól.


Dísa (IP-tala skráð) 6.7.2010 kl. 20:41
Ég myndi skrifa undir.
Sigurður Hreiðar, 6.7.2010 kl. 22:24
Sæl Ásthildur.
Þetta er ekki falleg saga og okkar Íslenskum Stjórnvöldum ekki til framdráttar.
Skrifinnsku-liðið ætti að fara í endurhæfingu, ásamt þeim sem smíða svona ómanneskjuleg lög.
Það eru Alþingisfólkið okkar !
Kær Baráttukveðja.
Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 7.7.2010 kl. 03:41
ÞArftg mál til að vekja athygli á á Ásthildur
Jón Aðalsteinn Jónsson, 7.7.2010 kl. 08:04
Takk innilega öll sömul, nú þarf ég bara að skoða hvernig maður býr til undirskriftarlista.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 7.7.2010 kl. 13:48
Ég mundi sko einnig skrifa undir Ásthildur mín
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 7.7.2010 kl. 13:48
Hvert ætla þessir vitlausu íslensku skriffinnar eiginlega að senda þessa litlu stúlku? Á munaðarleysingjahæli í El Salvador? Þar sem við Íslendingar látum e.t.v. eitthvað af hendi rakna til uppeldis hennar, þrátt fyrir að ástvinir hennar búi hér á landi.
Það sér það hver heilvita maður að ef hún er munaðarlaus og alin upp hjá afa sínum og ömmu sem eru íslenskir ríkisborgarar þá er hún orðin íslendingur. Hvernig er hægt að herja á litla stúlku sem ekki getur svarað fyrir sig? Hafi þeir sem gera skömm fyrir.
Arrg, ég verð svo brjáluð þegar ég sé og heyri hvernig misvitrir embættismenn eyða orku sinni í að skelfa saklaust fólk. Þeim væri nær að snúa sjónum sínum að meðlimum ýmissa glæpaklíka sem hér vilja nema land.
Ásthildur, ég er með fjórar undirskriftir hér á mínu heimili og mun fleiri ef lengra er leitað.... Go girl....
Sigrún Aðalsteinsdóttir, 7.7.2010 kl. 21:48
Maður verður alveg kjaft stopp af að lesa um svona víðáttu ranglæti.Það er alveg pottþétt að ég og mitt fólk skrifar undir svona lista,það er ekki spurning.Lofaði Össur já því trúi ég og efndir engar,já það er eins og annað hjá þessu guðsvolaða pakki sem situr í Stjórnarráði íslands,og kalla sig Ríkistjórn.þar er mottóið að gera helst ekki neitt,nema þá helst til bölvunnar.
Þórarinn Baldursson, 8.7.2010 kl. 01:08
Nú ætla ég að vera voðalega ljót ... en hvað með þessa glæpamenn sem gista á hótel litla hrauni (já já ég veit vel að þeir eiga fjölskyldur og það !!!" ) Á ekki að vorkenna þeim .. nei ég geri það ekki ... ???
En við erum að tala um unga stúlku sem að á ekki neinn að nema ömmu og afa sem búa hér .... hvert ætlar ríkið að senda hana?? á munaðarleysingjarhæli í ... langt í burtistan ... ??? ef að þess þarf að þá má hún sko alveg skrá sig hjá mér og litlu lús (mig vantar au pair hvort eð er!! )
SaraN, 8.7.2010 kl. 02:07
Takk öll fyrir þessar frábæru viðtökur. Ég þarf að skoða hvernig ég get komið á vitrænni undirskriftasöfnun. Þarf að spyrjast fyrir.
Málið er að hún á bæði föður og móður í EL Salvador, en þau eru bara ekki foreldrar hennar og hafa aldrei verið. Ég held að móðir hennar hafi ekki verið í aðstöðu til að taka hana, og þau eru ekki saman. Ég ætla að setja hér inn meira um málið svo þið getið séð hvernig það er statt. Þetta er búið að ganga svona í níu ár. En ég ætla að fara af stað með undirskriftir. Þarf bara að gera allt rétt.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 8.7.2010 kl. 13:17
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.