Ættarmót á Núpi í Dýrafirði... eða er það í Arnarfirði, eða... falla ekki öll vötn til Dýrafjarðar?

Brá mér á ættarmót á helginni.  Það var virkilega skemmtilegt og yndislegt að hitta fólkið sitt, rifja upp gamlar minningar og kynnast nýjum einstaklingum.  Mesta hátíðin var þó að pabbi skyldi sjá sér fært að koma og vera með okkur heilan dag og borða með okkur góðan kvöldverð.

IMG_2981

ég nenni ekki með en ég skal gæta hússins.

IMG_2982

Nokkur himnagallerí, svona í byrjun.

IMG_2985

Maður þarf auðvitað að líta til himins áður ern farið er í ferðalög. Við vorum þó heppinn, því við fengum sýnishorn af allskonar veðri, það háði okkur ekkert.

IMG_3001

Hér er komið kvöld.

IMG_3002

En sólin er þarna uppi samt.

IMG_2986

Ættingjarnir farnir að koma sér fyrir undir helgina, það er tilhlökkun í loftinu, því við hlökkum til að hitta gamla félaga og svo þau sem eru að koma í fyrsta sinn.

IMG_2990

Ég og Svanni, hann er kvæntur henni Ingu Högna, og er sjálfur stórættarhöfðingi.

IMG_2993

Gamlir jálkar, Júlli Högna og Atli Smári hér er líka  Guðbjörg eiginkona Garðars frænda míns.

IMG_3004

Dóra systir og Sævar.

IMG_3013

Auður Lilja dóttir Sunnevu, hún er frekar feimin og vill helst bara vera hjá afa.

IMG_3016

Við Atli prakkari frændi minn, við á trúnó eins og svo oft áður.

IMG_3020

Eða sennilega brandara.

IMG_3008

ég þarf endilega að gera við þennan bíl.

IMG_3009

Já þetta passar örugglega hérna!!!

IMG_3010

Er það ekki annars?

IMG_3015

Best að bíða bara með þetta, ég  er orðin þreyttur.

IMG_3027

Sturla og Elli unnu einu sinni sem dyraverðir í Félagsheimilinu í Hnífsdal, þeir voru fyrstu löggiltu dyraverðirnir, í þá daga voru þeir báðir með yfirvaraskegg, og fólk sagði að þeir væru tvíburar, það þýddi ekkert fyrir þá að þræta.  Við grínumst oft með þetta ennþá.

IMG_3034

Júlíus, Guðbjörg mágkona og Dóra systir.  Reyndar er Guðbjörg frænka eiginkonu Júlíusar og líka konu Sturla en þær eru systur.

IMG_3035

Snorri Gulluson, með sína tvo drengi og systursyni sína líka sem eru á sama aldrei og Úlfur.

IMG_3037

Mótshaldararnir eru hér að skoða fjölskyldumyndir og skemmta sér vel.

IMG_3038

Hér eru gaurarnir.  Ingi minn manstu eftir þessum þremur í Danmörku þegar þeir voru 5 ára!

IMG_3039

Þeir hafa nefnilega lítið breyst nema hækkað heilan helling.

IMG_3042

Stubburinn minn naut sín í botn.

IMG_3045

Þeir sváfu auðvitað af sér morgunmatinn og allir strákar eru svangir og þurfa mikið að borða, svo það var ágætt að amma tók með smá nesti, vissi sem var.

IMG_3047

Snorri með sína drengi að grilla.

IMG_3052

Þessi kom ávænt inn á svæðið, hann var að fara til að hitta Jóns Sigurðsson og var sagt af æðstráðendum að hann byggi á Hrafnseyri við Dýrafjörð.  En við gátum leiðbeint honum áfram yfir í Arnarfjörð.  Hann ætlaði reyndar að koma við á Dýrafjarðardögum á Þingeyri, en þar var heilmikið um að vera þessa helgi.

IMG_3056

Svo var haldið inn að Alviðru og þar ofan í fjöru, því nú var keppni um flottasta kastalann.

IMG_3059

Ég get sagt ykkur það að hér voru allir jafn áhugasamir ekki síst afar og ömmur.

IMG_3061

IMG_3063

Dóra var ákveðin í að vinna og ég held bara að hún hafi fengið fyrstu verðlaun fyrir sinn kastala, en það gerði útslagið þessar frábæru skreytingar.

IMG_3065

Kristín og Lea mamma hennar eru rétt að byrja að byggja sinn.

IMG_3068

Allir að hjálpast að.

IMG_3073

Þessi feðgin voru sniðug og fundu lítinn læk sem gat runnið í hallardýkið.

IMG_3077

Og sum hún voru austurlensk, en flott.

IMG_3078

Þessi var líka glæsilegur.

IMG_3082

Og þessi.

IMG_3079

Þessir tveir grallarar fundu sér bara tóftir og lögðust þar og létu fara vel um sig.

IMG_3095

Svo kom kóngurinn sjálfur, og þá þurfti að koma honum inn í hús.

IMG_3104

Borin á höndum af föngulegu liði ættingja.

IMG_3105

Hann lét sig ekki vanta.

IMG_3110

Úlfur ræðir við afa sinn.

IMG_3119

Sigurjón Dagur kíkti líka á afa sinn.

IMG_3117

Júlli minn fór nefnilega svo oft með hann til afa gamla.

IMG_3129

Gaman að þau skyldu kíkja við.

IMG_3121

Það var svo farið í fótbolta með Júllaragogga framan á sér.  Svo var farið í að fljúta flugdrekum og margt annað sér til gaman gert, og veðrið var ágætt allan tímann þó stundum hvessti augnablik.  Þetta fór allt vel fram og svo var bara að bíða eftir kvöldmatnum.

IMG_3125

Boltinn á lofti, erfitt að sjá hann með gogginn.

IMG_3135

Pabbi lagðist aðeins fyrir, en hann var hrókur alls fagnaðar og allir komu til að heilsa honum og ræða við hann.  Hann eins og hann er vanur reitti af sér brandara, og mundi eftir öllum. 

IMG_3138

Hann naut sín alveg í botn.

IMG_3170

Sumir gátu ekki staðist að prófa stólinn.

IMG_3177

Og svo getur hann ennþá horft á stelpurnar og ekki verra að hafa svona glæsilega konu sér við hlið.

IMG_3182

Já hann heilsaði líka minnsta manninum í fjölskyldunni.

IMG_3185

Flottir ættingjar.

IMG_3187

Hæ litli maður!

IMG_3188

Sestur og nýtur matarins, fékk sér tvisvar á diskinn.

IMG_3190

Fólkið að setjast til borðs.

IMG_3192

Hann smakkaðist mjög vel og ég gat ekki heyrt annað en allir væru ánægðir.

IMG_3196

Þessi ágæta vinkona mér var hér óvænt með einni frænku minni.  Alltaf jafn sæt þessi elska.

IMG_3212

Sunna mín, en hún stóð sig rosalega vel með alla skipulagninguna sem var á hennar herðum, með dyggri aðstoð Júlíusar Högna.  Mótið var þeim báðum til mikils sóma.  Hápunktur kvöldsins var þegar haldinn var minningarstund um þá sem farnir eru.  Myndir og ljóð, það vöknaði hvert auga í salnum meðan við minnstumst látinna ástvina okkar. 

IMG_3216

Þess vegna er þakklætið líka meira fyrir þá sem við höfum ennþá hjá okkur.  Og ekki síst sem rísa frá dauðum svo til, og eru meira kraftaverk en hægt var að ímynda sér.

IMG_3217

Og hann hefur engu gleymt þessi elska.

IMG_3219

Svo var endað á happdrætti og verðlaunaafhendingu.

IMG_3225

Í öðru sæti í fótboltakeppni.

IMG_3222

Gullhafarnir þau fengu farandsbikar með heim.

IMG_3239

Allir sem fengu verðlaun og happdrætti, og þau voru mörg.

IMG_3240

Gaman gaman.

IMG_3241

Jón Gunnar að ærslast í stóra frænda Jóni.

IMG_3242

Gott að setjast niður og slaka á eftir allt atið.  Þið voruð rosalega dugleg og eigið heiður skilinn fyrir vel unnin störf.  Ný nefnd hefur verið skipuð til að sjá um næsta ættarmót.

það heyrðist eitthvað fljúga fyrir að sumir hefðu móðgast og hefðu ekki komið sjálf og jafnvel beðið aðra að vera heima.  Ef þetta er rétt, sem ég veit ekkert um, þá segi ég nú bara, þekkjandi ágætlega júllagenin, ef einhver móðgaður ættingi hefði sagt mér að sitja heima yfir svona ættarmóti, hefði ég farið, jafnvel þó ég hefði ekki ætlað í upphafi. 

Þið sem heima sátuð áttuð ekki heimangengt eða súr og ósátt misstuð af yndislegri helgi, gott andrúmslof vinnátta væntumþykja og góður matur og skemmtun.  Innilega takk fyrir mig. Heart

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Það hefur aldeilis verið gaman hjá ykkur, flottar myndir, kær kveðja í vestrið fagra.

Ásdís Sigurðardóttir, 4.7.2010 kl. 15:58

2 identicon

Mikið hefur verið gaman hjá ykkur, það er alltaf svo gaman að koma saman svona í góðu tómi. Yndislegt að pabbi þinn skyldi geta komið líka.

Dísa (IP-tala skráð) 4.7.2010 kl. 16:08

3 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Er að renna yfir þetta í skyndi,síðan gef ég mér allataf tíma í rólegheitum að skoða myndirnar betur. Greinilega vel skipulagt ættarmót.                                   Það var virkilega gaman að vera við nám á Núpi í den.   Takk fyrir Kær kveðja.

Helga Kristjánsdóttir, 4.7.2010 kl. 18:02

4 Smámynd: Ragnheiður

Seigur gamli maðurinn.

Flottar myndir - þetta hefur verið gaman :)

Ragnheiður , 4.7.2010 kl. 20:29

5 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ættarmótin eru alltaf skemmtileg, ef allir ætla að skemmta sér þá verður gaman. Sennilega hafa fáir átt jafn góðar stundir og pabbi þinn og mikið getur hann verið stoltur af afkomendum sínum.  Bestu kveðjur í kúluna og megi Guð og gæfan leika við þig og þína.

Jóhann Elíasson, 4.7.2010 kl. 20:47

6 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Æðislegar myndir elskan og virkilega gaman að sjá þá sem maður þekkir
Knús í kúlu

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 4.7.2010 kl. 21:22

7 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Á einni myndinni er ung kona sem heitir Lea er seinna nafnið hennar Valdís?  Ég held að hún sé nágranni minn undanfarin 20 ár og var hún í bekk með dóttur minni. 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 5.7.2010 kl. 00:26

8 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk fyrir innlitið öll.   Já þetta var virkilega skemmtileg helgi.  leitt fyrir þá sem ekki komust, og ennþá leiðinlegra fyrir þá sem ákváðu að koma ekki út af einhverjum sögum sem höfðu við enga stoð að styðjast.  En ég man ekki alveg töluna en hún er nálægt 440 manns sem er komin út af þeim hjónum Júlíusi Geirmundssyni og Guðrúnu Jónsdóttur.  Næsti formaður ættarmótsins ungur maður tilkynnti að þar sem hann væri feministi, ætlaði hann að leggja meiri áherslu á Ömmu næst, þ.e Guðrúnu Jónsdóttur, hingað til hefur þetta verið frekar karllægt og meira hugsað um afa blessaðan, enda var hann kjarnakarl og margra manna maki.  Þó er það svo að baki hvers dugandi karls stendur dugleg kona.  Og það var amma mín líka. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 5.7.2010 kl. 07:51

9 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Lea er barnsmóðir og unnusta Geira systursonar míns.  Yndæl stúlka.  Veit ekki nákvæmlega hvaðan hún kemur.  Ég spyr aldrei um neitt slíkt... eða þannig.

Dísa mín það er eiginlega kraftaverk að hann skyldi komast.  Eins og hann var komin langt í burtu.  Mér datt aldrei í hug að hann ætti eftir að koma fram úr rúminu aftur, svo bara kemur hann til svona líka, eins og fuglin Fönix, rís upp og man eftir öllum.  Það var besta gjöfin mín í langan tíma.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 5.7.2010 kl. 08:08

10 identicon

Lea Valdís heitir hún og er Bergsveinsdóttir:)

Þetta var bara alveg ljómandi fínt. Takk kærlega fyrir mig elsku frænka. Hlakka til næst eftir 5 ár:) Við erum flott við Júllararnir:) Best fannst mér að afi skildi komast á ættarmótið:)

Sunneva (IP-tala skráð) 5.7.2010 kl. 17:25

11 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Sunna mín það var auðvitað toppurinn ég heimsótti hann áðan á sjúkrahúsið og hann var svo glaður að hafa komist, þetta var svo DÁSAMLEGT sagði hann og andlitið var eitt bros.  Svo fengum við okkur maltöl saman, og hann bauð mér líka upp á kakó og meððí. Af því að hann er svoddan sjentilmaður.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 5.7.2010 kl. 18:33

12 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Þú varst nú samt stjarna helgarinnar ljúfust mín.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 5.7.2010 kl. 18:33

13 identicon

Takk elsku frænka.. minningastundin var svo sannarlega ljúf en erfið um leið. Mér fannst bara verða að minnast þessa yndislega fólks sem eru fallin en alls ekki farin. Ég fann mikið fyrir nærveru þeirra. Það var miklu fleira fólk á þessu ættarmóti en við :) blikk blikk :) satt að segja var ég með í maganum að vera með þessa minningastund en núna er ég fegin. Mér leið svo vel með þetta eftirá. Við eigum aldrei að hætta að minnast okkar ástvina. Fögnum lífi þeirra en syrgjum ekki dauða þeirra. Höldum upp á þann tíma sem við fengum með þeim hér. Við hittum þau síðan aftur þegar okkar tími kemur :) Knús og takk fyrir gott spjall og líka fyrir að vera til og að vera þú sjálf.

Sunneva (IP-tala skráð) 6.7.2010 kl. 02:06

14 Smámynd: Kidda

Frábært að pabbi þinn hafi komist. Það er nauðsynlegt að þekkja fólkið sitt, við erum heppnar að hafa verið með okkar fólki um helgina.

Knús í kærleikskúlu

Kidda, 6.7.2010 kl. 10:25

15 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk Kidda mín, já það var frábært að hann skyldi komast þessi elska.  Og gott að vera innan um sitt fólk.

Hehehe Sunna já þau voru örugglega með okkur mörg þeirra sem augað ekki sér, en undirmeðvitundin skilur.  Og það er alveg rétt hjá þér ljósið mitt, við eigum að þakka fyrir þær stundir sem við höfum átt með þeim sem farnir eru og hlakka til að hitta þau á ný.  Takk sömuleiðis.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 6.7.2010 kl. 15:44

16 identicon

Takk fyrir okkur strákana, þetta var stórskemmtilegt ættarmót í alla staði, við í nefndinni verðum að reyna að toppa þetta að fimm árum liðnum.. ;) Annars er ég búinn að liggja yfir ýmsum fróðleik á www.fljotavik.is og datt i hug hvort það væri ekki upplagt að safna saman sögum og myndum í bók fyrir næsta ættarmót.

Snorri Marteinsson (IP-tala skráð) 6.7.2010 kl. 17:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.6.): 4
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 39
  • Frá upphafi: 2023325

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 33
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband