Í dag.

Ég á eftir að setja inn nokkrar skemmtilegar myndir frá heimsókn litla Arnars Milosar og pabba hans og mömmu, og fleiri myndir, en ég byrja á nýjustu myndunum.

IMG_2941

Hér er hann litla skottið með afa.

IMG_2942

Hér var svo amerísk skúta í nokkra daga, það hefur fjölgað skútum hingað, ef til vill vegna nýrrar aðstöðu fyrir skútufólk hér.

IMG_2944

Því hér er ágætis bæði skútu og kajakmenning.

IMG_2944

Þeir eru nú farnir og líka bretar sem voru hér í tæpa viku.

IMG_2946

ég var að tala um um daginn að fyrirtæki aðkomin væru að trana sér hér fram, til að ná í meiri sölu.  En hér eru nokkrar túristabúðir, hér er ein ísfirskar handmyndakonur hafa komið sér upp verslun.  Málið er að fyrir nokkrum árum var hér ráðin kona til að auka atvinnurekstur kvenna.  Elsa heitir sú ágæta kona sem mest og best vann hér þá, fyrir utan að við sameinuðumst um að koma hér upp saltfiskvinnslu unglinga, þá átti hún sinn þátt í að sameina konur í handverki, bæði hér á Ísafirði, Dýrafirði, Önungarfirði og Súgandafirði, á öllum þessum stöðum er nú hægt að kaupa fallegt handverk kvenna á staðnum og ekki bara prjón og hekl heldur mikið úrval af allskonar fallegum munum.  Við erum hér komin í Karitas, á Ísafirði.

IMG_2947

Úrvalið er frábært og fallegt.

IMG_2948

eins og sjá má er hér mikið úrval af allskonar fallegum hlutum sem unnir eru hér í heimabyggð.

IMG_2949

Konurnar vinna hér alfarið sjálfar og sitja gjarnan með prjónana sína eða hekluverk og afgreiða fallega hluti, allt svo vinalegt.

IMG_2950

Og alltaf gaman að skoða fallegt handverk.

IMG_2951

Ég er rosalega stolt af þessum konum, og öllum í hinum stöðunum líka.

IMG_2952

Er eiginlega ákveðin í að kaupa mér eina ullarpeysu fyrir veturinn hjá þessum frábæru konum.

IMG_2953

Börn og kúlan, þessir krakkar eru ættaðir í móðurættfrá Mexico og frá Mazátlan, þar sem mágkona mín býr, já heimurinn er lítill, afi og amma þeirra eru vinir mákonu minnar.

IMG_2954

Og börn og kúlan eiga einstaklega vil við.

IMG_2955

Og það var gaman að hitta þetta yndæla fólk frá Mexico.

IMG_2956

Hér er auðvitað allt til alls fyrir börnin.

IMG_2960

Þau voru reyndar að bíða eftir að komast að í Tjöruhúsinu hjá Magga Hauks og Rönku, en það er rómað víða um veröld.

IMG_2964

Og tjörnin hefur alltaf sinn sjarma fyrir öll börn.

IMG_2965

Heyja Dona Kristína hér eru vinir þínir í góðum höndumHeart Og báru mér kveðju frá þér.

IMG_2971

Tekin í morgun ásamt þeim myndum sem á eftir fara, himnagalleríið opið.

IMG_2973

Um klukkan sjö í morgun og orð geta ekki lýst þessu, en reynið að hugsa um fulgasöng og þar fyrir utan algjöra kyrrð.

IMG_2974

IMG_2975

IMG_2976

IMG_2977

IMG_2978

IMG_2979

Morgun eftir morgun, dag eftir dag núna nær í tvo mánuði, Ísafjörður með þeirri reisn sem hann á til sem bestan.  Hér þarf ekki orð, bara andakt og fuglasöng og algjöra kyrrð þar fyrir utan.  Eigið gott kvöld elskuleg mín, ég er svo þakklát fyrir að loksins sjá ljós og tilgang, þó sorgin sé þarna fyrir innan og söknuður yfir sonarmissir.  Þá læknar flest sár svona yndislegur staður og náttúran sem ég veit að elskar mig eins og ég er, sættir sig við mig eins og ég er, og jafnvel veitir mér alla sína ást, bara eins og ég er.  Málið er bara að hafa þroska til að taka á móti öllu því sem að mér er rétt, og það geri ég. Heart

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Mínar ljúfustu kveðjur.

Ragna Birgisdóttir (IP-tala skráð) 30.6.2010 kl. 21:09

2 identicon

Yndislegt, lognið og blíðan og enginn veit hvað á að snúa upp eða niður sé myndin prentuð út. Vona að ég fái svona gott veður þegar ég kem eftir svona tvær vikur. Kær kveðja

Dísa (IP-tala skráð) 1.7.2010 kl. 07:53

3 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Sæl Ásthildur mín! Hér á þinni síðu þakka ég þér fyrir heimsóknina,um leið og ég hrífst af náttúrufegurðinni,sem ég þekki svo vel fyrir vestan. Árið 1991,var ég seinast þarna á ferð,við fórum m.a. í Bolungarvík. Þar var útimarkaður í stafalogni glampandi sól,rétt eins og í sólarlöndum,og þetta sem er allt að því 66°Norður. Sé eftir að hafa ekki dottið í hug að hafa upp á móðursystur minni,sem ég vissi seinna að dvaldi á sjúkrahúsinu(líkl.elliheimili),á Ísafirði.´Það er hægt að dvelja við þessar myndir lengi,aftur og aftur,það ætla ég að gera. Hjartans þakkir

Helga Kristjánsdóttir, 1.7.2010 kl. 13:20

4 identicon

Sæl og blessuð Ásthildur og kærar þakkir fyrir allar góðar stundir sem ég hef átt við að skoða bloggið þitt. Mig hefur lengi langað til að koma til skila þakklæti til þín og dríf í því núna.  Þú þekkir mig ekki, en mér finnst ég þekkja þig eftir að hafa fylgst með þér svo lengi.  En ég er ættuð að vestan - systurdóttir Hjartar Stapa. Kærar kveðjur vestur og gangi ykkur allt í haginn .

Margrét (IP-tala skráð) 1.7.2010 kl. 15:57

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Knús til baka Ragna mín.

Nákvæmlega Dísa mín, skondið þegar maður spáir í það

Takk Helga mín innilega.

Þakka þér hlý orð og góða kveðju Margrét mín.  Ég þekki vel til Hjartar og barnanna hans, Gísla heitins, Sigga og dótturinnar og Mörtu.  Við meira að segja sitjum á mublunum hans í vinnunni í áhaldahúsinu á Ísafirði og njótum þess vel að dvelja í Stapahorninu. 

Takk fyrir mig.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 1.7.2010 kl. 17:42

6 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Alltaf jafn ljúft að koma hér við elsku Ásthildur   Það stefnir allt í að ég og mín fjölskylda verðum fyrir vestan í kringum "Súgandasælu" og munum þá sennilega gista á Urðarveginum og ég hlakka óskaplega til  Sjáumst vonandi þá - en þangað til sendi ég knús í kærleikskúlu

Sigrún Jónsdóttir, 1.7.2010 kl. 18:58

7 identicon

Yndislegar myndir af logninu og fjöllunum og bænum fallega.  Þakka þér   Hafðu það sem allra best og allt þitt fólk.

Auður Matthíasdóttir (IP-tala skráð) 1.7.2010 kl. 19:16

8 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Sigrún mín þú verður að koma í kaffi.  Ég verð að vísu á ættar móti einhversstaðar, svo það gæti farið svo að ég væri ekki heima, en allavega verum í bandi.  Síminn minn er 6187751.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 1.7.2010 kl. 19:16

9 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk Auður mín kæra. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 1.7.2010 kl. 20:42

10 identicon

   Takk fyrir að vera svona dugleg að sýna okkur nýjar myndir af firðinum fagra,tilfinningin er svo sterk ,þegar maður skoðar þetta,Hafðu það alltaf sem allra best ,ég hugsa svo oft til þín og hvað þú ert gefandi!!!

erla svanb. (IP-tala skráð) 1.7.2010 kl. 22:51

11 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk fyrir innlitið elsku Erla mín, gaman að sjá þig. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 4.7.2010 kl. 14:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.6.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 2023284

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 34
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband