21.6.2010 | 10:40
El Salvador - ógnaröld og nokkur orð um Fjallkonuna.
Ég var bæði sorgmædd og glöð í morgun að heyra fréttirnar frá San Salvador. Þetta eru hræðilegir tímar, ég er glöð vegna fólksins míns sem er hér úr allri hættu, en sorgmædd yfir þessum hryllilegu slátrunum og svo leið vegna þess að hluti fjölskyldunnar er þarna ennþá og kemst ekki burtu. Ekki hingað m.a. vegna þess að landinu okkar er lokað öllum nema Evrópubúum, og ekki allra Evrópubúa því í Serbíu er líka fólk sem gjarnan vill komast hingað til að sameinast fjölskyldu sinni, en fær ekki að koma vegna duttlunga stjórnvalda.
En hér er linkur á þessar slæmu fréttir frá El Salvador. http://www.elsalvador.com/mwedh/
Ég vil svo biðja ykkur lesendur mína og vini afsökunar á hve lítið ég er hér við núna, en bæði hef ég allof mikið að gera og svo er ég haldinn einhverri fælni sem ég losna ekki við. En er að vinna í málunum. Útiveran hjálpar mér mikið.
Ég er annars með fullt af skemmtilegumf myndurm sem ég ætla að setja inn fljótlega.
En út af 17. júní. Mér finnst að fjallkonan eigi að vera þroskuð kona með fullri virðingu fyrir ungum fallegum stúlkum. Fjallkonan er móðir, kona, meyja. Enginn tvítug stúlka getur komið fram með þeirri reisn og reynslu sem fimmtug kona getur gert. Kona á miðjum aldri getur bæði borið glæsileik meyjunnar, kærleika móðurinnar og reynslu konunnar.
Við erum ekki komin lengra á þroskabrautinni en það að fá gjarnan ungar stúlkur oft tæplega tvítugar til að fara með þetta stórkostlega hlutverk. Sem er gróíð í hjarta okkar og sál. Hún er þarna fulltrúi lands og þjóðar. Á að hafa reynsluna, glæsileikann og jafnvel þann hrikaleik sem landið okkar er. Því vil ég sjá á næsta ári, ef við verðum þá ennþá til sem þjóð; fjallkonur landsins allar eldri en fertugar. Mega þess vegna vera ýturvaxnar og stöðugar, en fyrst og fremst sterkar.
Fjallkonan er ímynd landsins okkar fagra. Þess vegna finnst mér við hæfi að benda á þetta og biðja um að bætt verði úr. Þetta er nefnilega ekki fegurðarsamkeppni, né hæfileikakeppni eða leiklistarkunnátta. Hún er tákn alls þess sem í landi okkar er fólgið. Sverð okkar sómi og skjöldur.
Eigið góðan dag mín kæru og fyrirgefið mér að hafa ekki farið blogghringinn allof lengi. En það kemur að því fljótlega.
Set hér inn til gamans fjallkonuna árið 1994. Þegar lýðveldið var 50 ára. Þá var ég fengin til að fara með þetta einstaka hlutverk, þá ræddi ég um huldar vættir og landvættir og endaði á Í faðmi fjalla blárra eftir okkar ísfirska skáld Jónas Tómasson, þar var enginn Einar Ben, og sumir tóku víst andköf. En okkur hættir til að fara niður í öll þau hjólför sem hægt er að finna til þess eins að komast ekki upp úr þeim, nema einstaka skrýtnar nornir og sérkennilegir kvistar. Svoleiðis er það bara.
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 3
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 49
- Frá upphafi: 2023284
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 34
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sammála með fjallkonuna
Hvað er að frétta af málefnum fjölskyldunnar frá El Salvador? Er stelpan komin með ríkisborgararétt eða eittthvað annað gott.
Knús í blóma og kærleikskúluna
Kidda, 21.6.2010 kl. 21:27
Nei hún þarf endalaust að útfylla pappíra og hótanir um brottrekstur frá landinu. Þó ljóst sé að hún á ekki í önnur hús að venda en hjá afa og ömmu. Pappírarnir sjáðu til, þeir ráða öllu. Enginn manneskjulegheit hjá útlendingaeftirlitinu. Mestu rasistar Íslands eru samankomnir þar að mínu mati.
Knús á þig til baka Kidda mín.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 21.6.2010 kl. 21:43
Þú ert æðislega flott fjallkona. Ég er sammála þér það eiga að vera konur í þessu hlutverki, ekki unglingsstúlkur. En ótrúlegt með stúlkuna að ekkert hefur gengið eða rekið í hennar málum svona lengi. En þannig virðast vinnubrögð þeirra vera.
Dísa (IP-tala skráð) 22.6.2010 kl. 07:57
Eitthvað hef ég lesið hratt yfir sá ekki þessa virðulegu og glæsulegu fjallkonu.
Aftur knús í kúlu
Kidda, 22.6.2010 kl. 09:08
Flott mynd af þér í fjallkonubúningnum, knús og kveðja vestur.
Ásdís Sigurðardóttir, 22.6.2010 kl. 16:06
Takk elskurnar mínar. Þetta er að koma hjá mér. Það er búið að vera strembið og orkan ekki til, en allt í einu er að koma ljós. Og ég er svo glöð með það.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 22.6.2010 kl. 19:54
Það hefur aldeilis verið glæsileg fjallkona hjá ykkur á 50 ára afmælinu. Og vel við hæfi að fá konu sem er jafngömul lýðveldinu. Og það er satt, þær mættu gjarnan vera þroskaðri. Einn af þeim vettvöngum þar sem æskudýrkunin á ekki við.
Laufey B Waage, 22.6.2010 kl. 23:28
Elsku Ásthildur mín, í mínum huga ert þú sú albesta ímynd fjallkonunnar sem ég get hugsað mér. Þú hefur reynsluna, viskuna, kjarkinn og kærleikann til alls sem lifir. Æsku og fegurðardýrkunin virðist ráða ríkjum við val á fjallkonunni. En við sem erum aðeins eldri og þroskaðri vitum að fegurðinn og styrkurinn kemur að innan og reynslan fæst ekki keypt. Hver kannast ekki við að hafa kynnst fallegri manneskju sem síðan við kynningu hefur tapað ljómanum og eins öfugt að kynnast einhverjum ólánlegum í útliti en við kynningu geislað fegurð. Kæra vina ég þekki ,,fælni,, þína líka og mun verða í bandi fljótlega.
Hulda Haraldsdóttir, 30.6.2010 kl. 06:47
Takk stelpur mínar. Jamm Laufey þeim datt þetta í hug Bjössa Helga og fleirum, og ég var voða ánægð.
Takk Hulda mín. Fallega sagt og ég tek það allt til mín.
Hlakka til að heyra frá þér.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 30.6.2010 kl. 11:25
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.