Nokkrar kúlumyndir, og svo fyrirspurnir til sérfræðinga í plöntufræðum og meindýrum.

Ég hef ekki skrifað núna nokkurn tíma.  Ég er í einhverri verkfælni sem ég skil ekkert í sjálf, en finn að ég kem mér ekki eða illa að nokkru, nema ég verði að gera það. 

En hér koma nokkrar myndir til að gleðja ykkur elskuleg.

IMG_2458

Glaður stubbur með dótið hans stórabróður Tai Kwon Do hlífar.

IMG_2463

Og honum finnst spennandi að taka myndir, hér er ein af afa.

IMG_2464

Og ömmu, mér brá eiginlega þegar ég sé sorgina sem ennþá er í augum mínum.  Verð að reyna að gera eitthvað í þessu.

IMG_2465

Sigurjón er mikill afakarl, hér vill hann aðstoða afa við að kveikja upp í grillinu.

IMG_2466

Passa putana og vera varkár.

IMG_2468

Ó Ó þetta er hættulegt.

IMG_2469

Tjörnin skoðuð.

IMG_2470

Svo er bara að bíða eftirmatnum.

IMG_2498

Afaknús.

IMG_2499

Ferðamannastraumurinn byrjaður. Einhvernveginn skreppa húsin í bænum  heilmikið saman, þegar svona stórt skip kemur inn.  Í þessu skipi eru um 2500 farþegar, það þýðir að um borð eru jafnmargar manneskjur og í öllum Ísafjarðarbæ.

Næstu helgi er von á ennþá stærra skipi eða með um 3500 farþega, það liggur við að sé jafnmikið með þernum og starfsfólki um borð slagi upp í alla sem búa á Vestfjörðum.

IMG_2502

Það er ekki nóg að húsin skreppi saman, heldur verða fjöllinn undra smá í samanburði við þennan risadall.

IMG_2504

Og bærinn fyllist af fólki, og það labbar bara um göturnar eins og rollur í smábæ.  Það er eins og þeim finnist að bílarnir eigi að víkja fyrir þeim. Skrýtinn hugsunarháttur að mínu mati.

IMG_2505

Við áhaldahús bæjarins er aðstaða fyrir ferðalanga að taka vatn og losa sig við skolp.  Mér er sagt að þessi aðstaða okkar sé með þeim bestu á landinu. 

IMG_2514

Nokkrar blómamyndir.

IMG_2515

Pernilla mín.

IMG_2516

Og blómin í kúlunni.

IMG_2517

Þessi ilmar dásamlega.

IMG_2518

En það er ekki bara hægt að nýta sér kúluna innan, heldur líka utanhúss, margnota hús.

IMG_2519

Það er nefnilega líka gaman að renna sér niður.

IMG_2520

Og þá er mikið hlegið og skemmt sér.

IMG_2521

Já það er ýmislegt hægt að skemmta sér við þegar maður er ungur.

IMG_2526

Og hvað er betra fyrir sálina en að heyra glaðværan hlátur heilbrigðra unglinga sem leika sér í góðu veðri eins og þau börn sem þau eiga að fá að vera sem lengst.

IMG_2533

Erum við ef til vill stödd í norskum firði?  Nei í kúlunni.

IMG_2535

Ömmubörn.

IMG_2536

Að njóta sín.

IMG_2537

Beðið eftir grilli pulsum og hamborgurum.

IMG_2550

Daníel og Úlfur eru bestu vinir.......  oftast nær.

IMG_2555

Og fyrir ísfirðingana mína nær og fjær sést hvernig snjórinn hopar og úthaginn grænkar eftir eina góða rigningardembu. En við þurfum fleiri.

 

Að lokum þarf ég að spyrja einhverja sérfræðinga sem ef til vill kíkja hér við hvað er þetta eiginlegaL

IMG_2473

ég bað krakkana að týna fyrir mig fífla út túninu og þau komu með marga svona, þetta er mjög einkennilegt, eins og þeir væru hvor innan í öðrum.  Hvað getur orsakað svona?

IMG_2474

Getur þetta verið einskonar mengun?

IMG_2485

ég hef aldrei séð þetta áður, stönglarnir voru líka allir aflagaðir.

IMG_2489

er ástæða til að rannsaka þetta betur?

IMG_2493

ég hef satt að segja dálitlar áhyggjur út af þessu.

IMG_2495

Stönglarnir eru líka svona aflagaðir.

Svo er annað sem ég hef líka áhyggjur af en það er skordýr sem ég hef ekki séð áður.

IMG_2508

Líkist helst kóngulóm mjög smáum, sitja í hnapp og vefa sér vef utan um plöntuna.  Er þetta stökkbreyttur spunamaur eða hvað?

IMG_2511

eins og er hef ég bara fundið þetta á tveimur plöntum, en ef þetta breiðist út, verð ég að gera eitthvað róttækt.  Hvað er þetta og hvernig er best að eyða þessu.

IMG_25110

ef einhver veit svarið, vinsamlega segið mér hvað þetta er og hvernig best sé að fyrirbyggja að það breiðist út.

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnheiður

Vá hvað fíflarnir eru undarlegir ? Ég hef aldrei séð svona og ekki heldur þessar pöddur. Ég fékk aftur svo lirfur á birkitrén og er að vesenast í því. Ekki af neinu afli svosem, þetta gerði þeim ekkert til í fyrra. Þau jöfnuðu sig þegar lirfan flaug.

Gaman að sjá myndir úr kúlunni og af þínu fólki. Það er satt, sorgin sést. En veistu - það er fyrst núna í vor sem sorgin hætti að sjást á mér. Meira að segja sá hún Ásdís okkar það :) ....tíminn er enn ekki kominn hjá þér elskuleg. Vertu róleg og mundu ; hvíld er góð.

Kærleiksknús (þetta er vonandi ekki morandi í villum, er ekki með gleraugun mín)

Ragnheiður , 12.6.2010 kl. 14:53

2 Smámynd: Ingibjörg Kristrún Einarsdóttir

Alltaf gott að lesa bloggið þitt. Ég hef fylgst með blogginu þínu í langan tíma. Ég hins vegar stofnaði bloggsíðu í dag undir nafninu thulo, hann var köttur sem dó í maí á síðasta ári og mér þótti afskaplega vænt um. Hann varð 15 ára gamall og ég fékk hann sem kettling. Mér finnst ég þekkja þig og þína fjölskyldu mjög vel, ég myndi sennilega heilsa þér ef ég mætti þér götu. Þetta framtaksleysi sem þú talar um þekki ég vel. Ég er atvinnulaus og kem mér ekki að neinu á heimilinu. Stundum vill maður bara að skríða undir sæng, og þú sem hefur allan þennan tíma segir minn ágæti maður. Kær kveðja frá Ingu.

Ingibjörg Kristrún Einarsdóttir, 12.6.2010 kl. 15:31

3 identicon

Furðulegir fíflar, hef aldrei séð annað eins. En talandi um blóm, Ella spurði mig hvort ég myndi hvað garðabómin heita sem líta út svipað og hrafnaklukkur, þau ilma mikið á kvöldin. Ég man það ekki en sé fyrir mér blómin sem hún talar um. Gaman að sjá myndirnar þínar af glöðum krökkum í leik, eins og þú segir er það tákn heilbrigðinnar. Flaug yfir þetta skip í fyrradag, risastórt. Vona að þú farir að verða þú sjálf fljótlega þín vegna og þinna, en framtaksleysið og orkuleysið er eðlilegur fylgifiskur. Knús til ykkar

Dísa (IP-tala skráð) 12.6.2010 kl. 16:12

4 Smámynd: Elínborg

Sæl og blessuð Ásthildur. Er ein þeirra sem lengi hef fylgst með þínu bloggi og alltaf hefurðu einhverju að miðla til fólks. Segi eins og Inga hér að ofan, finnst ég þekkja þig og fjölskylduna þína. Yndislegar myndirnar þínar og þetta er einmitt lífið; börnin og náttúran..... Ég vona að lífið fari að verða þér léttbærara.

Mér finnast fíflarnir mjög furðulegir og eins þessi skordýr. Erling Ólafsson hjá Náttúrufræðistofnun hefur reynst mér mjög vel í gegnum árin, hef leitað til hans nokkrum sinnum. Held þú ættir að hafa samband við hann. Og kannski finnur þú eitthvað á síðunni þeirra sem hjálpar,þar eru myndir og ýmiss fróðleikur um skordýr o.fl.

Þakka þér fyrir skemmtilegar myndir og gangi þér vel.

kveðja,

Elinborg.

Elínborg, 12.6.2010 kl. 17:21

5 identicon

Sæl. Rakst inn á bloggið þitt af mbl.is

Ég er líffræðingur og mér finnst þessir fíflar mjög furðulegir. Ég myndi hiklaust hafa samband við Náttúrufræðistofnun Íslands (www.ni.is), senda þeim myndir og fá þá til þess að skoða þetta.

mbk. Steinunn Hödd

Steinunn Hödd (IP-tala skráð) 12.6.2010 kl. 17:49

6 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

fallegar myndir af þér og hinum. Sorgin gefur þér dýpt sem gefur fegurð !!!

Kærleikur til þín

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 12.6.2010 kl. 18:10

7 Smámynd: Kidda

Yndislegar myndir að venju frá kúlunni hvort sem það er mannfólkið eða blómin.

Hef aldrei séð svona fifla né svona pöddur, held þú ættir að hafa samband við Erling og náttúryfræðistofnun.

Knús í blómakúluna  

Kidda, 12.6.2010 kl. 18:28

8 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Sæl Ásthildur mín! Þú ert mesta blóma kona. Það er mjög áhugavert að sjá allt sem þú ræktar,nokkuð sem ég hef lítið gaman af,en dáist að hjá öðrum. Svo furðulegt með náttúruna,eins og hún er næstum fyrirsjáanleg,með að viðhalda sér(sinni tegund),getur hún farið út af sporinu,vona bara að stjörnur himinsins geri það ekki,alla vega ekki sólin,,sem elskar allt,,.

Helga Kristjánsdóttir, 12.6.2010 kl. 22:12

9 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Ekki líst mér á fíflana, það er eins og þeir séu stökkbreyttir.  Kannski hefur orðið mengunarslys, sem enginn veit um?  Ekki kannast ég við skordýrin, ég hef ekki heldur séð þau hérna á Íslandi.  En ég hef samt orðið vör við nokkrar nýjar flugutegundir undanfarin 2-3 ár.  

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 13.6.2010 kl. 00:54

10 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Ég tek undir að það sé nauðsynlegt fyrir þig að hafa samband við Náttúrufræðistofnun, kannski þeir hafi svar við þessu.
Takk fyrir myndirnar, að vanda eru þær yndislegar
Kærleik í kúlu
Milla

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 13.6.2010 kl. 08:51

11 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Kærleikskveðja til þín elskan

Ásdís Sigurðardóttir, 13.6.2010 kl. 13:12

12 Smámynd: Laufey B Waage

Elsku Íja mín. Sorgin í augunum þínum ber vott um einlægni þína og heiðarleika, kærleika og söknuð. En sem betur fer er líka stutt í gleðina, sem einatt skín úr augum þínum. Njóttu sumarsins mín kæra.

Laufey B Waage, 13.6.2010 kl. 14:59

13 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk allar fyrir innlitið.

Laufey mín, þetta er fallega sagt mín kæra.

Kærleikskveðja til þín líka Ásdís mín.

Milla mín, já ég ætla að hafa samband eftir helgina, leyfi ykkur að fylgjast með. Knús til þín.

Jóna mín, já það lítur út fyrir eitthvað svoleiðis, enda ætla ég að senda sýni til Rala held ég helst.

Takk og knús Helga mín.

Gerið það Kidda mín, kærleiksknús til baka.

Takk elsku Steina mín kærleikskveðjur til þín líka.

Takk fyrir innlitið Steinunn Hödd, já ég ætla að gera það, hafa samband og jafnvel senda sýni.  Ég frysti nokkra fífla svona til öryggis.

Takk fyrir þessi hlýlegu orð Elínborg, já ég ætla að hafa samband við Erling og náttúrufræðistofnun til að fá niðurstöður um bæði þessi skrýtnu mál, ég ætla að segja hér frá þeim niðurstöðum sem ég fæ.  Takk líka fyrir innlitið. 

Dísa mín þetta mun vera næturfjólan, hún angar svo yndislega á kvöldin um allan garðinn.  Takk mín kæra fyrir allt og jamm lofa að gera mitt til að ná þessari sorg í burtu.   Í þessu tilfelli er gamla máltækið enn í fullu gildi, skipað gæti ég væri mér hlýtt!!!

Kæra Ingibjörg takk fyrir hlý orð og vonandi gengur þér allt í haginn, hlakka til að fylgjast með nýja blogginu þínu. 

Elsku Ragnheiður mín stafsetningarvillur eru það mesta smámál sem til er, það er hugurinn sem gildir.  Og þú ert ein af þessum gullmolum sem eru alltaf að hugsa um aðra.  Knús á þig og takk fyrir mig.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 13.6.2010 kl. 15:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.6.): 3
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 42
  • Frá upphafi: 2023267

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 36
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband