6.6.2010 | 16:57
Túlípanabærinn Ísafjörður og ýmislegt fleira.
Enn einn sólardagurinn. Mig er farið að vanta rigningu. Getur einhver sent mér regn?
Ég er ákaflega stolt að bænum mínum. Starfsmenn Garðheima (Guðbjörg) hafa sagt mér að nú sé bærinn kallaður Túlípanabærinn. Við höfum plantað undanfarin 12 ár eða svo túlípönum meðfram Pollgötunni, bænum til mikillar prýði.
Málið er að þessar túlípanabreiður gera það að verkum að það er hægt að slaka á blómaniðursetningu, vegna þess að túlípanarnir eru fallegir og standa vel, alveg fram að eða yfir 17 júní.
Þá er hægt að vinna að öðrum og meira aðkallandi verkefnum.
Já þessar elskur brosa við Ísfirðingum allt vorið og vekja gleði.
svona er það bara.
Mín er ánægjan, líka að fá hrós frá bæjarbúum, sem kunna að meta þetta.
Það er bara þannig að við þurfum öll á því að halda að aðrir segi okkur frá ánægju sinni.
Fyrir ykkur gömlu ísfirðingana set ég inn þessa mynd af gamla apótekinu það hefur heldur betur fengið andlitslyftingu. Er orðið svo flott og skemmtilegt. Nú eru þarna fjórara íbúðir og komnar flottar svalir.
Bróðir minn og mágkona buðu okkur í mat í gær. Þau komu með þetta líka fína læri og krydduðu það með gróðri beint frá garðinum mínum. Rosalega gott.
Mágkona mín tíndi allskonar plöntur úr garðinum, njóla, fílfla og margt fleira, hafa skal það sem hendi er næst en hugsa ekki um það sem ekki fæst. Og ljómandi gott bæði krydd og salad.
Maturinn var yndæll og bragðið eftir því.
Og öllu var gerð góð skil.
Mágkona mín er líka með þessa skemmtilegu hugmynd, hún er með nornabúð, þar sem fæst allskonar skemmtilegir hlutir. Og þetta er nýjasta framlagið, rúnir á sjávarsteinum, frábær hugmynd.
Í morgun var þessi þoka svo komin.
Ótrúlegt að sjá svona hér.
Kúlan samt ekki í þoku.
En hér er þokan í öllu sínu veldi.
Já þetta er eitthvað sem við erum ekki vön að sjá.
En það var komin tími til að hreinsa tjörnina. Þá þarf að veiða alla fiskana uppúr og koma þeim í bala.
Þeir vilja helst ekki láta fanga sig, en það þarf svo sannarlega til að geta þrifið tjörnina.
Eins gott að allir hjálpist að.
Strákarnir voru svo duglegir að hjálpa.
Fallegir bræður, synir Júlla míns.
Flottastir.
Vatnsberinn líka nauðsynlegur.
Daníel hjálpaði líka mikið til
Nei amma ekki taka mynd.
Fiskarnir njóta þess að vera í hreinu vatni.
Og þokan farinn.
Og blómin nutu góðs af gamla vatninu úr tjörninni.
Það hefur örugglega verið gott áburðarvatn.
Enda allt í blóma núna.
Perur og kirsuber byrjuð að myndast.
Smárósir blíðar blómstra á ný.
Að lokum til hamingju með daginn sjómenn nær og fjær. Hetjur hafsins!
Eigið góðan dag elskurnar.
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.6.): 2
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 41
- Frá upphafi: 2023266
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 35
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Dísa (IP-tala skráð) 6.6.2010 kl. 17:51
Það er hrein unun að sjá bæinn þinn, túlípanabæinn. En enn meiri unun er að horfa á myndir frá kúlu.
Knús í blómakúluna
Kidda, 6.6.2010 kl. 18:20
Takk elskurnar.
Dísa mín já betra er að sjá en skynja.
Takk Kidda mín. Knús á móti.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 6.6.2010 kl. 18:26
Takk elskuleg, man eftir að maður beið eftir túlípönunum þeir eru svo fallegir
Myndirnar þínar yndislegar að vanda og gefa yl í hjarta og sál.
Kærleik í kúluna þína fögru
Milla
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 6.6.2010 kl. 20:11
Yndislegt að skoða þessar myndir. Og túlipanarnir eru fallegir og prýða bæinn sem og annað blómaskrúð. Til hamingju með gott starf í þágu bæjarins, Ásthildur mín. Þetta er ánægjulegt að sjá. Fagrar rósirnar þínar! Og börnin sem ætíð eru í kringum þig, gullmolar.
Auður Matthíasdóttir, 6.6.2010 kl. 21:20
Túlípanarnir eru fallegir, það er alltaf skemmtilegt að skoða myndirnar þínar.
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 6.6.2010 kl. 22:47
Fallegir bræðurnir - synir Júlla þíns, enda á Sigurjón Dagur allan minn hug og
Ég segi eins og Dísa betra að hafa þokuna raka heldur en þessa öskudrullu sem smýgur hér um allt og gerir það að verkum að ég hætti að virka - eins og hver önnu flugvél
Hrönn Sigurðardóttir, 6.6.2010 kl. 22:48
Falleg blóm og fólk
Jóhanna Magnúsdóttir, 6.6.2010 kl. 23:34
Dásamlegar myndir, hér vantar líka rigningu
Ásdís Sigurðardóttir, 8.6.2010 kl. 12:54
Yndislegir Júllasynirnir - hann hefur áreiðanlega auga með þeim frá sínum dvalarstað. Knús elskuleg
Ragnheiður , 9.6.2010 kl. 20:17
Yndislegt allt saman

Jónína Dúadóttir, 10.6.2010 kl. 10:12
Túlípanarnir eru enn flottari þegar maður gengur framhjá þeim í sólskininu

Dísa (IP-tala skráð) 10.6.2010 kl. 20:26
Yndislegar myndir í kúluhúsi,yndislegt líf í kúluhúsi og líf þar blómstrar í sumarsólinni,ástarkveðjur og knús frá mér og mínum
Linda Linnet Hilmarsdóttir, 11.6.2010 kl. 12:32
Takk innilega fyrir mig allar. Ég er í einhverskonar verkfælni þessa dagana, gleymi öllu og öllum, og verð að herða mig upp i að gera handtak. En svona er þetta nú. Sem betur fer hefur veðrið verið draumur í langan tíma, það eina sem vantar er rigning til að bleyta upp í gróðrinum.
Knús á móti til ykkar allra.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 12.6.2010 kl. 10:56
Takk fyrir að sýna þessar fallegu myndir og blómin þín svo falleg. Hafðu það gott ljúfan.
Ólöf Jóhanna Pálsdóttir, 12.6.2010 kl. 20:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.