Garðplöntustöðin mín.

Jamm góðir ísfirðingar, þar sem mikið er spurt, þá get ég sagt ykkur að garðplöntustöðin mín er opin á virkum dögum frá 9 - 12 og 13 - 18 virka daga og frá 14 - 16 á laugardögum.  Ég er víst í samkeppni við Blómaval, því þeir hafa ákveðið að taka yfir sumarblóm og ýmislegt annað hér í bæ.  Og hver má sín gegn stórveldum?  Segi svona.

En ég vil bara gefa mínu fólki kost á að kaupa plöntur sem eru ræktaðar hér fyrir vestan með umhyggju og natni.  Góðar plöntur sem þola veðráttuna hér.  Og svo er ég mjög stolt af sumarblómunum mínum í ár.

IMG_2341

gullhnappurinn er flottur

IMG_2343

Svo eru ýmsar tegundir af thuju og syparis sem geta þolað veðráttuna hér.

IMG_2344

Hjartarsteinbrjóturinn er blómstrandi í dag.

IMG_2345

Snúður hjálpar til við að reyta arfa og vinna í garðinum, þar sem ég hef engan tíma.  Það veit Brandur og nennir ekki heldur.

IMG_2346

Heimaræktað birki, reynir og fleiri tré og runnar eru tiltæk.

IMG_2348

Tópakshornin eru flott.

IMG_2349

Milljónbells líka.

IMG_2351

Ýmsar gerðir.

IMG_2350

Hin sívinsæla hengilóbelía líka. Og margar tegundir.  Allt ræktað heima í kúlunni af okkur hjónum.  Eigum við ekki að hlú að því sem er í heimabyggð.  Eða halda menn að allt sé betra sem kemur langt að?  Stundum halda menn það, og þegar fólk hefur sameinast um það, þá verður enginn verslun meir í heimabyggð, heldur hafa risarnir unnið markaðinn, enda er það sennilega takmarkið.  Að ná undir sig því sem hægt er til að græða sem mest.  Það er alveg rosalega 2007 eitthvað ekki satt.

IMG_2339

Hér er svo stubburinn minn í peysunni sem Tinna tengdadóttir prjónaði á hann.  Hún er virkilega dugleg og peysan er flott og hann er svooooo ánægður.

IMG_2337

Undanfarna daga hefur bærinn uppljómast af ungu fólki, skólafólkinu okkar og kennurum í allskonar leikjum og útivist.  Það er yndælt að sjá gleðina sem skín úr hverju andliti, líka kennaranna.  Í gær kom svo fyrsta skemmtiferðaskipið hingað og bærinn fylltist af þjóðverjum.  Ég hef verið frekar löt við að munda vélina, synd því margt er að gerast og veðrið hefur verið með eindæmum gott og sólríkt nú um langt skeið. En ég vil helst frá rigningu, allt í lagi þó það sé bara að næturlagi.  En hér þarf svo sannarlega að rigna til að úthaginn taki við sér og önnur svæði sem ekki er gott að vökva.

En eigið góðar stundir mín kæru. Ég er alveg á kafi í vinnu og dauðþreytt á kvöldin og fer að sofa upp úr níu á kvöldin. Kissing

Það er gott að skríða upp í rúmið sitt dauðþreyttur og vita að dagurinn hefur verið vel notaður og góður. Góða nótt.Heart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Vildi ég væri nær, þá mundi ég alveg örugglega kaupa blómin hjá þér

Jónína Dúadóttir, 3.6.2010 kl. 21:06

2 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Ég hef ekki keypt blóm í Blómaval síðan þú bentir mér á þetta Versla bara við heimavarnarliðið.

Flottur strákur Úlfur í svakalega flottri peysu

Hrönn Sigurðardóttir, 3.6.2010 kl. 22:09

3 identicon

Mér líst vel á plönturnar þínar.  Kaupi aldrei útiplöntur í Blómaval.  Mér líkar betur plöntur sem hafa fengið gott uppeldi eins og þínar!  Þess vegna t.d. Ingibjörg í Hveragerði hér syðra.  Lopapeysan drengsins er alveg gullfalleg:)  Hafðu það sem best og kær kveðja.

Auður Matthíasdóttir (IP-tala skráð) 3.6.2010 kl. 23:05

4 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Elsku Ásthildur mín vona bara að bæjarbúar versli við þig.
Hér höfum við Blómaval en ég versla við Hveravelli sem eru blóm, kryddjurtir, tómatar, agúrkur og paprikur af öllum gerðum, allt miklu betra þar, það er einnig best að versla beint frá býli.
Knús í Kúlu

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 3.6.2010 kl. 23:10

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk mínar kæru, gott að heyra.  Við erum oft ekki nógu vakandi fyrir því sem heumamenn eru að basla, ef til vill í sveita síns andlitis.   Og lítum frekar til þess stóra og glæsilega og missum þar af leiðandi af því að styrkja bygðina sína. Sem betur fer á ég fasta kúnna eins og þið eruð greinilega, sem versla bara hjá mér og láta mig vita af því. Gleðja mig með skemmtilegum athugasemdum og hve lánsöm þau eru að hafa mig hér.  Það gleður óneitanlega mikið.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 4.6.2010 kl. 07:38

6 identicon

Knús elsku Ásthildur. Kveðja í blómstrandi kærleik.

Ragna Birgisdóttir (IP-tala skráð) 4.6.2010 kl. 08:30

7 Smámynd: Kidda

Blómin í Blómavali eru kannski ódýr en þau eru ekki ræktuð við íslenska veðráttu og ættu því ekki að geta keppt við íslensk blóm. Kaupi aldrei blóm þar og mun ekki gera það.

Hins vegar hef ég þó ég búi í bænum keypt blóm á Ísafirði og þau reyndust vel. Ingibjörg og Borg í Hveragerði ásamt Böðmóðsstöðum rétt hjá LAugarvatni eru mínar gróðurstöðvar alla jafna hérna fyrir sunnan.

Skora á alla að kaupa bara íslensk blóm og ekkert annað.

Knús í blómakúluna

Kidda, 4.6.2010 kl. 08:36

8 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk stelpur mínar.  Já við eigum að hlú að því sem íslenskt er.  Knús á ykkur báðar.  Skólabróðir minn frá garðyrkjuskólanum Auðunn býr eða bjó á Böðmóðstöðum með sinni yndislegu norsku konu.  Kynntist þeim því ágætlega þar.

 Langar að spyrja þighvort þú eigir ennþá hvítu hengifjóluna.  Ég er nefnilega búin að týna minni, og væri gott að fá græðling frá þér Kidda mín. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 4.6.2010 kl. 11:13

9 identicon

Æðisleg peysa á æðislegan strák  Sömuleiðis blómaflóran þín Ásthildur!

Anna Lilja (IP-tala skráð) 4.6.2010 kl. 12:11

10 identicon

Falleg blómin þín og flottur Úlfur og hann má sannarlega vera ánægður með hana því hún er mjög falleg og vel unnin:)

Dísa (IP-tala skráð) 4.6.2010 kl. 13:12

11 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk Dísa mín.

Anna Lilja mín er ekki komin tími á heimsóknn?

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 4.6.2010 kl. 13:23

12 Smámynd: Kidda

Er enn að bíða eftir að hún komi upp, hef bóndann grunaðann um að hafa hreinsað aðeins of vel í beðunum fyrir mig. Ég man þó hvar þær eru/voru. Sendi plöntu um hæl ef og þegar þær koma í ljós

Kidda, 4.6.2010 kl. 17:44

13 identicon

Jú, kominn tími til, ég hef mikið verið að pæla í því, dagsetningin er í mótun, það er eina :)

Anna Lilja (IP-tala skráð) 6.6.2010 kl. 13:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (14.6.): 12
  • Sl. sólarhring: 18
  • Sl. viku: 40
  • Frá upphafi: 2023260

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 34
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband