31.5.2010 | 22:19
Illugi Jökuls þolir ekki gagnrýni..... Eða þannig.
ÓÓ einu sinni var Illugi Jökulson idolið mitt, eða þannig. ég vaknaði á morgnana til að hlusta á pistlana hans meðan hann var í útvarpinu, og mér fannst hann æði.
Svo einhverntímann á leiðinni þegar ég hafði bundið trúss mitt við Frjálslyndaflokkinn, þá skrifaði hann rætna grein um Guðjón Arnar fermingarbróður minn og skólabróður sem ég þekki vel frá barnæsku, og veit hverslags öðlingur hann er. Ósanngjarna grein og lygaþvælu um að Addi væri rasisti og ég veit ekki hvað. Hann sem er kvæntur pólskri konu og hefur ekki bara tekið að sér sem sín eigin börn hennar og alla hennar ættingja og vini. Addi er ekki fyrir fimm aura að gera upp á milli þjóða. Hann gerir aftur á móti upp á milli góðs og slæms.
Nú, sem sagt ég las pistil Illuga um úttekt á kosningunum.
Af þessum skrifum veit ég vel að Illugi myndi aldrei kjósa Frjálslynda flokkinn, þar sem greinilegt er að sá flokkur fer rosalega í taugarnar á honum. Um okkar forystukonu í Reykjavík þá vönduðu og góðu konu Helgu Þórðardóttur hafði hann þetta að segja í skrifum sínum um hugleiðinar hvað hann ætti nú að kjósa.
http://www.dv.is/blogg/tresmidja/?sida=2
Jamm þetta hafði hann að segja um flokkinn og hana.
Hvað Helgu Þórðardóttur frá Frjálslynda flokknum, þá efast
ég ekki um að þetta er vel meinandi kona. En ekki gat ég hugsað mér að velja
hana eftir Kastljós kvöldsins.
Ég sagði eitthvað á þá leið að einhvern tímann myndi lygin springa framan í hann. Og viti menn, allt í einu er lokað fyrir komment. Eða þannig, nú stendur þarna.......
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.
Í fyrirsögn bloggs hans stendur:
Trésmiðja
Illuga Jökulssonar
Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.
Svo virðist sem ég hafi tekið karlinn af lífi, því hann virðist ekki þola að fólk andmæli honum. Þannig að elsku karlinn eina ráðið sem hann kann er að loka fyrir óæskilegar athugasemdir.
það er oft svo að þeir sem eru beittastir í gagnrýni sinni, þola alls ekki gagnrýni sjálfir. Leitt að vita. Því að mörgu leiti er Illugi góður penni og flottur í skrifum. Þ.e. þegar hann ekki dettur niður í fordóma og lætur leiða sig út í hatursáróður um flokka og fólk, án þess að kynna sér málefnin og hvað viðkomandi standa fyrir.
Illugi það er vond pólitík að hoppa svona ódýrt á niðurstöður. Ég legg til að þú lesir þér til um málefnasamning Frjálslynda flokksins og skiljir hvað við erum að fara. En ekki bara dæma út frá einhverju sem þú grípur upp af götunni. Ég ætlaði þér meira en það svei mér þá.
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (10.6.): 3
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 42
- Frá upphafi: 2023235
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 34
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Takk Ásthildur fyrir að taka upp hanskann fyrir mig. Þetta var virkilega töff lífsreynsla fyrir mig að taka þátt í þessari kosninabaráttu. Ég hafði svo sannarlega ekki ætlað mér að fara út í þetta. Eftirá að hyggja er ég mjög þakklát fyrir þessa lífsreynslu. Ég get sagt við sjálfa mig að ég gerði mitt besta og ég reyndi sem mest að vera ég sjálf en maður fann að það voru allt aðrar kröfur gerðar til manns en Jóns Gnarr. Hann var stjarnan og fékk að stama án þess að gripið væri fram í fyrir honum. Fjölmiðlar spiluðu svo ótrúlega með honum enda er hann jú frægur en ég bara venjuleg kona. Ég held þó að ég hafi hlotið virðingu meðframbjóðenda og þeirra fáu sem mættu á kosningafundina fyrir málflutning minn á öllum fundunum þar sem ég var staðföst í málflutningi. Ég vona að það muni jafnframt bæta ímynd FF sem alvöru stjórnmálaflokks sem vill láta taka sig alvarlega. Þetta voru hreinlega absúrd kosningar þar sem allt gekk út á innkomu Jóns Gnarr.
Helga Þórðardóttir, 31.5.2010 kl. 23:34
Sæl Áshildur mín!
Illugi er Illugi?
Ég furðaði mig á skrifum hans um Besta flokkinn í DV, kosninga-laugardaginn?
Lítilvirðing hans á Jóni Gnarr leyndi sér ekki? Hvers vegna veit ég ekki?
En Jón Gnarr er einmitt sá sem getur komið réttum sannleika á framfæri og vill að réttlætið ráði? M.b.kv.
Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 1.6.2010 kl. 00:27
Rasista grein Illuga hef ég ekki séð, en Helgu þekki ég og hún er frábær manneskja og á fullt erindi í pólitík. Það er ekki Helgu að kenna að tími FF er liðinn. Gaui tíndi fylgið niður af flokknum í lokin með tuddaskap, t.d. að færa aðalfundinn í Stykkishólm til að losna við mótframboð, þegar hans tími var liðinn. Aldrei var ég sáttur við hvernig hann fór með loforðið til Sigurjóns bróður Helgu. Sigurjón drengur góður steig til hliðar að beiðni Gaua til að hleypa Kristni Gunnarssyni í sitt þingsæti og átti Sigurjón að vera framkvæmdastjóri flokksins, en var svikinn.
Helga ef þú hefur áhuga á stjórnmálum þá endilega haltu áfram, því fáir hafa getað snúið áliti mínu á mönnum og málefnum á jafn skömmum tíma og þú með jákvæðum rökum.
Fv FF stuðningsmaður. (IP-tala skráð) 1.6.2010 kl. 05:31
Ég held nú að ritstjórn DV áskilji sér alltaf þennan rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum. Allavega hef ég séð þetta áður.
En hvað Illuga varðar þá er hann löngu hættur að vera beittur og er orðinn fremur bitur finnst mér. Ég hef ekki lengur gaman af að lesa það sem frá honum kemur og er reyndar langt síðan ég hætti því.
Hrönn Sigurðardóttir, 1.6.2010 kl. 06:53
Helga mín þú stóðst þig mjög vel, jákvæð, réttsýn og staðföst. Það er nákvæmlega málið að vera frægur og innanbúðar hjá fjölmiðlafólkinu. Í þessu tilfelli held ég að það hafi skipt sköpum. Hvar var kynningin á nýjum framboðum, og öðrum flokkun en fjórflokk og Gnarr? Hvar var málefnalega úttektin á stefnumálum þeirra og markmiður?
Fjölmiðlarnir eiga að vera fjórða valdið, en þeir standa svo sannarlega ekki undir því. Því miður. Þar er sama kunningja samfélagið og í pólitíkinni. Það er fjórflokknum í hag að þegja alla aðra flokka í hel, því það má ekki rugga bátnum. En við skulum ekki gefast upp, smám saman hlýtur þetta að molna upp og fólk fara að þora að taka ákvarðanir og sjá hverslags forræðishyggja og eiginhagsmunapot er í gangi. Þess vegna var framboð Jóns Gnarr þýðingarmikið, þar brast ákveðin brjóstvörn. Sem á sennilega eftir að skila sér síðar.
Anna Sigríður ég hefði nú fagnað slíkum umræðum, því þær gerðu ekkert annað en að styrkja fólk í að kjósa framboð Besta. Illugi, Hallgrímur og fleiri slíkir gerðu ekkert annað en að þjappa fólki saman til að kjósa Jón Gnarr og félaga.
Sammála þér með Helgu fyrrverandi frjálslyndur, en aldrei hefur það talist drengilegt að skjóta úr launsátri. Hvað Guðjón Arnar varðar þá er það alrangt að hann hafi reynt að sitja á formannsembættinu. Það var heldur ekki hann sem tók ákvörðun um að hafa þingið í Stykkishólmi, það var miðstjórnin. Það kom helst til af því að í flokknum voru litlir peningar og það munaði meira en helming að hafa þingið úti á landi en ekki á höfuðborgarsvæðinu, það réði mestu. Enf það var öllum sem vildu útvegað far á þingið. Félagsmenn tóku alla með í sína bíla sem báðu um far, og það var líka auglýst að menn gætu fengið far. Auðvitað getur verið að menn hafi haft í huga þá smölun sem var í gangi af fólki sem vildi komast til áhrifa í flokknum og breyta honum í eitthvað annað. Ekki skal ég um það segja. Hitt get ég sagt þér að Guðjón Arnar hefur verið heill í starfi sínu fyrir flokkinn og ég veit að hann hefur bæði ábyrgst skuldir og lánað flokknum, þó aldrei hafi það farið hátt. Einnig gat hann samið niður þær skuldir sem urðu við síðustu kosningar.
Við höfum þurft að berjast við féleysi og það kom sér sérstaklega illa að Ólafur F. Þessi heiðarlegi skyldi taka peninga flokksins ófrjálsri hendi og hefur greinilega notað þá í heilsíðu auglýsingar sínar fyrir Heiðarlega framboðið sitt.
Hrönn ég sé ekki betur en hann hafi eytt kommentunum, bæði mínum og annara sem voru við umræddan pistil.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 1.6.2010 kl. 09:00
Sæl Áshildur mín! Mér fannst Illugi og Hallgrímur tala máli þröngsýni og klíku-pólitíkur og það féll bara ekki í góðan jarðveg hjá mér?
Illugi hefur oft notað stór orð um þröngsýni annarra en lendir svo í því að vera sá fordómafyllsti og þröngsýnasti sjálfur?
Ég þekki svosem þetta ferli sjálf því ég hef fordæmt gífurlega mikið á mínum yngri árum. Ég hef líka alltaf fengið fordómana mína í andlitið aftur? (líttu þér nær Anna mín?)
Vona að ég sé búin að læra svolítið? Það er svo gott að hafa leyfi til að vera ó-fullkomin og breysk? Hafðu það sem best Áshildur mín.
M.b.kv.
Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 1.6.2010 kl. 15:21
Smá innlit, er lítið á ferðinni hér á síðum bloggsins. Kærleikskveðja til þín og þinna
Ásdís Sigurðardóttir, 1.6.2010 kl. 15:30
Jamm Anna Sigríður mín, mér þykir súrt að þessi fyrrum gúrú minn í orðsins hljóðan skuli vera svona lítill karl þegar til kastanna kemur.
Knús á þig Ásdís mín og kær kveðja á móti.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 1.6.2010 kl. 16:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.