Árlega fær ég börn í heimsókn frá skólanum, oftast koma þau á vorin, en stundum á haustin. Alltaf er einhver í hópnum sem þekkir til og er búin að skapa væntingu meðal hinna fyrir blómunum, hænsnunum, köttunum eða fiskunum. Og svo fyllist allt af glaðværum yndislegum krökkum, sem reyna að vera stillt, það er bara stundum svo erfitt.
Áhuginn leynir sér ekki.
ég bað þau að stilla sér upp fyrir hópmynd, og hér má sjá þessa eldhressu krakka.
Það er búið að vera sól og gott veður undanfarna daga. Her er Faktorshúsið, hér hefur verið opnuð kaffistofa, reyndar er líka búið að opna veitingastað í Langa Manga, undir sama nafni, sem er frábært, set inn myndir af því seinna.
Ísfirðingar eru duglegir við að nýta sér það sem er í boði. Enda er veðrið þessa dagana heiskýrt og gott.
Þetta er hæstakaupstaðarhúsið, þeir sem hafa verið lengi í burtu muna eftir rörabúðinni hann Þórólfs hér, og líkkistusmíði Kristinn L. Í hinum endanum, síðan var þarna vídeóleiga og nú hefur staðurinn fengið nýtt hlutverk og við hæfi, því hér er skrifstofa Rúnars Óla frænda míns og félaga hans, með sjósport, aðallega skútuna Regnbogan, sem þeir nota til að ferðast með túrista um landið og miðin. Virkilega flott og gaman.
Ég kíkti aðeins inn á strákinn og eins og þið sjáið er hann flottur, líkur pabba sínum, en það er hann Kalli Geir í BG. Þessi kann líka að spila á gítar og syngja. Ef til vill tekur hann gítarinn með sér á sjóinn og tekur lagið fyrir túrhestana.
Allt gert smekklega og upprunalegu bitarnir hafa fengið að njóta sín.
Gullsóparnir mínir eru virkilega flottir.
Eins og sjá má.
Eru þau ekki flottust? Sólveig Hulda með hattinn hans frænda síns þar sem hann geymir áritanir frá hetjum í Aldrei fór ég suður.
Þau eru svo flott.
Hvernig snýr köttur eiginlega? ekkert að fela, því baunirnar eru farnar. Það var nauðsynlegt því hann var farin að strjúka að heima, náttúran var farin að kalla óþægilega mikið.
Já tjörnin kallar á athygli.
Síðasti dagurinn hennar í ömmukúlu um einhvern tíma, því nú er þessi elska farin suður og þaðan til Noregsi.
Hún er nú þegar lögð af stað skríðandi.
en það er dálítið vont að skríða yfir steinana.
Úbbs hvað maður er lítill í hinum stóra heimi!!!
Nei amma leyfði mér ekki að fara alla leið út á götu, svo nú er best að hringja í mömmu eða pabba.
Halló! Halló!
Sýgur bein eins og amma sín.
Ekki bara amma þetta er í ættinni, Atli frændi er gerfilimasmiður.
Alveg satt, tíu fingur upp til guðs.
Og svo er stóri bróðir komin.
Og hann er sko obboðslega fyndinn
Og mamma líka, best að tékka á bollunum, hvort þar er eitthvað að fá.
Hér kem ég pabbi minn. eina ánægjan sem ég fær út úr brotthvarfi barnanna og tengdadótturinnar er að þá sameinast fjölskyldan á ný, því pabbi getur ekki beðið eftir að fá fjölskyldylduna sína til Noregs. Við mömmurnar erum þannig að ef börnin okkar eru ánægð, þá er málið það besta, þó við þurfum að sætta okkur við tregann og tárin.
Eigið góðan dag elskurnar. Og fyrirgefið mér hvað ég hef verið léleg að koma í heimsókn. Bæði hef ég lítinn tíma, og svo er ég einhvernveginn ekki alveg í góðu jafnvægi.
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.6.): 1
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 41
- Frá upphafi: 2023226
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 32
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Já þetta með að vera stillt, það er alltaf afstætt. Ég man enn hvað var gaman að hlaupa æpandi og skrækjandi um hlíð og fjöru og fá smá útrás. Ég held að til þess að börn geti verið róleg og stillt þar sem þess þarf þurfi þau að fá að rasa smá út á milli. Ég man að við tvær gátum verið algjörir englar, en líka erfiðir púkar ef í það fór. Ég fæ reyndar stundum á tilfinninguna að margir hafi ekki oft séð púkann minn en það er bara af því við fengum að rasa út á milli.
Blómin þín eru yndislega falleg og ekki síður börnin og sárt að sjá á eftir þeim í burtu en bót að þá eru fjölskyldurnar saman og hafa vinnu og það sem þarf.

.
Dísa (IP-tala skráð) 22.5.2010 kl. 16:16
Hehehe Dísa mín, já vissulega gátum við verið algjörir púkar, en voða þægar inn á milli. Takk elskuleg mín fyrir allt.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 22.5.2010 kl. 21:27
Er stundin runnin upp með brottförina til Noregs, eini plúsinn við hana er eins og þú segir að þá verði fjölskyldan sameinuð en ég get rétt ímyndað mér hve erfitt það er fyrir ykkur sem eftir verið.
Þú ert yndisleg að hleypa fullt af krökkum inn í kúluna þína að skoða það sem fyrir augu ber, hænur, ketti, fiska og blóm. Þetta myndu fáir gera.
Myndirnar þínar ylja manni eins og alltaf hvort sem það eru myndir af smáfólki, mannlífinu, landinu eða gróðrinum.
Knús í kærleikskúluna
Kidda, 23.5.2010 kl. 08:07
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.