21.5.2010 | 09:53
Kosningar.
Kosningar nálgast, mér sýnist sáralítill áhugi sé á þeim hér í kring um mig. Reiðin kraumar í fólki og það er ráðvillt, hætt að treysta neinum, og þegar traustið er horfið þá er lítið eftir.
Til að endurvinna það traust sem þarf að vera á forystumönnum í pólitík, þurfa þeir að koma fram af heiðarleika og hafa sannleikan að leiðarljósi. Sá sem fer bak við ljósið og lýgur sig inn á fólkið í landinu á fölskum forsendum ætti að hugsa sinn gang afskaplega vel. Því það er enginn þolinmæði lengur fyrir slíku. Pólitíkusar þurfa að hafa það í huga þegar þeir lofa öllu fögru, eða rotta sig og plotta að það er ekki lengur 2007, heldur 2010. Almenningur stórlega brenndur á falsi, lygum og allskonar svívirðingum, fyrir utan að þurfa að draga upp pyngjuna og borga allt heila klabberíið.
Þess vegna er mikilvægt að hver og einn kynni sér það sem framboðin hafa fram að færa, og hvernig þau hafa staðið sig sem hafa haft til þess meirihluta. Fólk verður líka að kynna sér litlu framboðin og nýliðana sem berjast við að ná athyglinni en vandlega er séð til að kæfa þær raddir niður, enda kærir fjórflokkurinn sig lítið um að ný andlit og ný sjónarmið komi fram, sem þeir hafa ekki kontról á.
Ég heyri mikið í umræðunni að Fólki finnst ekkert annað í boði en fjórflokkurinn og Jón Gnarr, en það eru vissulega fleiri þarna úti. Ég vil benda á Frjálslynda flokkinn þar sem hann býður fram. Ef fólk vill rauðverulegt lýðræði, þá fer það milli kosningaskrifstofa kynnir sér stefnumálin og ræða við fólkið sem þar er, spyr það út úr og skoðar hvort ekki leynist þar góður málstaður sem hægt er að veita brautargengi. Við verðum að fara að hugsa öðruvísi en hingað til, þ.e. ef við viljum ekki endalaust sullast í sömu hjólförum og hingað til, með spillinguna lafandi út um allar trissur, samtryggingu þeirra sem ráðið hafa hingað til.
Á Ísafirði býður sig fram Í listinn. Hann samanstendur af Samfylkingu, Vinstri grænum, Frjálslyndaflokknum og óháðum. En í raun og veru er þetta ekki framboð þessara flokka, því það fólk sem þarna er, setur málefni bæjarins fremst og þau vinna saman sem einn maður. Það sýnir að bæjarmálin eru ekki það saman og landsmálin, hér eru menn nálægari grasrótinni.
Ég er líka afskaplega ánægð með að heyra að Sigurður Pétursson er bæjarstjóraefni Í listans. Sigurður er ekki bara einstaklega ljúfur maður og vel gefinn, heldur getur hann líka sýnt hörku ef þarf. Hann sýndi það í vetur þegar ég þurfti að leita til hans og Magnúsar Reynis, vegna prívat mála minna. Það var leyst úr því vel og snöfurmannlega. Ég treysti því Sigurði Péturssyni afar vel til að standa sterkur og fastur fyrir í þeim málum sem bæjarfélagið þarf að takast á við.
Ég var líka afskaplega ánægð að sjá að þau hafa haft samráð við alla bæjarkjarnana um þeirra viðhorf til mála. Ég veit nefnilega að fólkinu í jaðarbyggðunum hefur fundist að þau væru sett til hliðar í ýmsum málum.
Ég vil óska öllum framboðum velgengni, og megi heiðarlegasta fólkið bera sigur úr býtum. Því ekkert skiptir meira máli einmitt í dag en hreinskipti heiðarleiki og allt uppi á borðum.
Eigið góðan fallegan dag.
Við skulum muna að við stöndum í hreingerningum til að endurheimta traust.
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.6.): 1
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 41
- Frá upphafi: 2023226
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 32
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sama ástand hér á Selfossi, enginn áhugi og kosningum en fólk reitt og pirrað út í allt sem flokkast undir yfirvald. Eigðu góða helgi Ásthildur mína vona að þér líði þolanlega.
Ásdís Sigurðardóttir, 21.5.2010 kl. 11:44
Það er greinilegt að þú vilt fá Jón Gnarr í forystuna. Sjálfstæðisflokkurinn þinn er out.
Gísli Ingvarsson, 21.5.2010 kl. 21:36
Hvora okkar ertu að meina mig eða Ásdísi Gísli? Ég held satt að segja að Jón Gnarr sé betri en hver sem er af fjórflokknum. Hins vegar vona ég að Frjálslyndiflokkurinn fái meira og mann inn í borginni. Svo hann hafi eitthvað að segja, því stefnumálin eru góð, og einnig það fólk sem býður sig fram undir F.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 22.5.2010 kl. 15:10
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.