19.5.2010 | 12:14
Erum við ekki á leið afturábak til 2007?
Lílfið á Hrunlandinu Íslandi kemur sífellt á óvart. Alltaf þegar maður heldur að botninum hafi verið náð, dúkka upp ný mál svo maður sýpur kveljur. Hér er eitt dæmi. Fjármálaráðherrann fer mikinn í kastljósi og segir það mjög alvarlegt að erlendur aðili hefur fengið leyfi til að kaupa hitaveitu suðurnesja, en þau gátu auðvitað ekkert gert í því ríkisstjórnin, hún hafði bara eitt ár til að setja lög sem kæmu í veg fyrir að útlendingar eignuðust náttúruauðlindir okkar eða afnotaréttinn, vatnið undir Snæfellsjökli var ekki nægileg viðvörun.
En á sama tíma og blessaði saklausi fjármálaráðherrann er að blaðra þetta veifandi öllum öngum í hneykslan, eru þessi útlendingur sem við færum auðlindina á silfurfati AÐ FÁ LÁN FYRIR KAUPUNUM HJÁ ORKUVEITUNNI? http://eyjan.is/blog/2010/05/19/magma-faer-147-milljarda-ad-lani-fra-opinberum-adilum-or-lanadi-70-kaupverds/
Magma Energy fær samtals 14,7 milljarða króna að láni frá opinberum aðilum vegna kaupa á 98,53% hlutafjár í HS Orku. Þetta kemur fram í samantekt
Góðir Íslendingar hvenær erum við búin að fá nóg af þessum skrípaleik. Menn eru núna mest uppteknir af svokölluðu grínframboði Jóns Gnarr, þeir fá alla athygli reyndar fjölmiðlanna, enda örugglega bestu vinir og vandamenn sem tengjast fjölmiðlum. En ég er farin að halda að Besti flokkurinn, sé eini flokkurinn sem ekki er með grín. Þá undanskil ég auðvitað hin litlu framboðin sem rembast við að vekja á sér athygli eins og minn flokkur Frjálslyndi flokkurinn, með öll sín góðu stefnumál.
Þarna er að verki sama gamla klíkan, fjórflokkurinn, sem samþykkir þessa gjörð. Þeir eru allir á kafi í þessu, Sjálfstæðismenn, Samfylking og Vinstri grænir, og örugglega koppar í búri Framsóknar. Ég verð að segja að það er enginn veggur svo hár að ASNI KLYFJAÐUR GULLI KOMIST EKKI YFIR HANN.
Og nú hefst dansinn fyrir alvöru. Þetta er rétt að byrja, þetta skúffufyrirtæki er bara rétt að byrja að gauka að réttu aðilunum, til að fá það sem hann vill.
Íslendingar eru andskotann ekkert betri en þriðjaríkislöndin þar sem múturnar og spillingin er daglegt brauð.
Ég er virkilega farin að skammast mín fyrir hvernig fólk hagar sér hér. Er ekki komið nóg. Og þessum spillingaröflum öllum saman ætlum við að gefa lungan af atkvæðum okkar, þegar okkur gefst færi á að kjósa.
Málið er að okkur er ekki treystandi til að ganga til kosninga. Þess vegna ráðlegg ég að farin verði sú leið sem Guðmundur Ólafsson benti á í viðtali í morgun. Að forsetinn rjúfi þessa ríkisstjórn og sett verði á utanþingsstjórn með fagfólki og fólki sem kann til verka.
Ég styð þ að einlæglega og vil að við skorum á forsetan að rjúfa þennan vítahring, sendi algjörlega ónýta ríkisstjórn frá og ráði fólk til að stjórna sem kann til verka og eru íslendingar en ekki einhverjar rassasleikjur og mútuþegar.
Eigið svo góðan dag, ég er reið og sár og svekkt. Ég vissi að Sjálfstæðismenn og Framsókn væru gjörspillt jöfl, en að Vinstri græn væru ekkert skárri stingur mig beint í hjartað.
Burtu með spillinguna og landsöluna, inn með utanþingsstjórn eða neyðarstjórn sem getur tekið á málum og fært okkur til framtíðar en ekki aftur til 2007.
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.6.): 0
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 40
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 31
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ég er þér hjartanlega sammála. Og við erum að fara aftur á steinöld með svona ruslaralið á alþingi burt með það sem allra allra fyrst
Jón Sveinsson, 19.5.2010 kl. 12:34
Sem oftar erum við alveg sammála. Talandi um þetta Kastljósviðtal, drottningarviðtalið var svo aumkunarvert Steingrímur þurfti ekki að svara neinum óþægilegum spurningum. ER LITIÐ SVO Á AÐ HEILÖG JÓHANNA OG STEINGRÍMUR JÚDAS STARFI Á VERNDUÐUM VINNUSTAÐ (STJÓRNARRÁÐIÐ)???
Jóhann Elíasson, 19.5.2010 kl. 12:34
Takk Jón, já burtu með þetta lið allt saman.
Jóhann, já þetta viðtal var til skammar. Eins og viðtalið við forstjóra Magma um daginn, þar sem hann fékk óáreittur að rabba um hve hann væri góður og hvað hann ætlaði að gera vel við þjóðina og hve allt væri heiðarlegt og gott hjá þessu skúffufyrirtæki. Daginn eftir vill hann svo hækka raforkuna. Ég segi bara verði mönnum að góðu að vera endalaust að kyssa á úlenda rassa, þegar okkar útrásarmannarassar brenna í fangelsum.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 19.5.2010 kl. 13:01
Ég er svo hjartanlega sammála þér í þessari færslu þinni. Spurningin er bara hvenær erum við búin að fá nóg? Það virðist vera að fólk bloggi og skammist sín á milli yfir ömurlegu ástandi í þjóðfélaginu en aðgerðarleysið er algjört, stjórnvöld í afneitun um hag almennings og fyrirtækja. Hvað eigum við landsmenn að láta vaða yfir okkur á drullugum skónum lengi í viðbót? Bankarnir eru í því að hirða til sín það sem hægt er sbr. átakanlegt viðtal við Víglund Þorsteinsson hér í vikunni. Fjárglæframenn fá að halda sínum stöðum áfram í þeim stofnunum sem komu öllu á hausinn hér. Fyrst í morgun var frétt um að búið væri að víkja tveim starfsmönnum úr Arion banka sem hafa réttarstöðu sakborninga. Finnur bankastjóri var annars búinn að segja að þeir ættu að halda sínu starfi áfram þar til annað kæmi fram. Og svo kemur nýjasta dæmið um Magma Energy núna...Er ekki komið nóg af bullinu, þarf fólk ekki að taka sig saman og hætta að blogga um ástandið og gera eitthvað? Held að margir séu komnir með æluna upp í háls af þessu öllu saman. Ég er það allavega!
Edda Karlsdóttir (IP-tala skráð) 19.5.2010 kl. 16:05
Eins og svo oft áður erum við sammála um málefnin. Hélt satt að segja og trúði því að VG myndu ekki koma svona fram en þeir sanna það svo um munar að þeir eru til í að gera allt fyrir stólanna. HS orka er bara byrjunin, byrjun sem markar spor sem aðrir munu vilja feta sig áfram með og munu fá á meðan fólk er við stjórnvölinn sem er sama um landið, fólkið og miðin.
Knús í kærleikskúlu
Kidda, 19.5.2010 kl. 17:11
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 19.5.2010 kl. 23:33
Sæl öll sömul, við verðum að halda vöku okkar ekki að gefast upp, nýverið var fundur á Ísafirði þar sem fyrirspurnir voru bannaðar, þetta er sama fólkið sem setti landið á hausinn og vinir þeirra.
Með mánaðarlegu milli bili sjást mælanlegar hvernig hrunið hefur farið ílla með fólk hér í höfuðborginni, en eina lausnin hjá þessum skríl er að loka meðferðarstofnunum, ráðat á eldri borgara sem byggðu upp þetta land,
Bernharð Hjaltalín, 20.5.2010 kl. 07:03
Ásdís Sigurðardóttir, 20.5.2010 kl. 11:58
Ég verð auðvitað að minna á Samfylkinguna sem er svo spillt að flokkurinn er kallaður Samspilling bæði í gríni og alvöru. Mér sýnist á öllu að um það standi þessi sameiginlega fylking. Þetta liggur e.t.v. svo í augum uppi að þér hefur ekki þótt ástæða til að nefna þau;-)
Ef ég leyfði mér að kanna tilfinningar mínar kæmist ég örugglega að því að ég er REIÐ, SÁR og SVEKKT rétt eins og þú en til að komast af er ég með lokað á tilfinningarnar í bili... Svo reyni ég að halda jafnvægi með að lesa skrif þeirra sem skrifa svona geðlosandi pistla eins og þennan. Kærar þakkir fyrir mig<3
Rakel Sigurgeirsdóttir, 20.5.2010 kl. 19:53
Takk Rakel mín, já ég viðurkenni að Samfylkingin er þarna inni líka. Þar er aðalfólið Jóhanna Sigurðardóttir, sem hefur reynst vera einræðisherra og ekkert minna en það.
Knús Ásdís mín.
Já fundurinn sá, Benni var algjör skrípaleikur. Þar stóð reyndar Ólína sig vel með því að þau héldu síðan framhaldsfund þegar L.Í.Ú var genginn út með sínum áhangendum.
Einmitt Kidda mín.
Já nákvæmlega Edda. Við þurfum að standa saman um að bera af okkur þetta spillingarlið. Þá þarf samstöðu og viljan til að ná réttætinu. Takk fyrir innlitið.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 20.5.2010 kl. 23:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.