Til hamingju með daginn Hanna Sól.

Hún Hanna Sól mín er sex ára í dag.  Hún fer nú í Austurrískan skóla.  Nú kemur henni til góða að tala næstum lýtalausa þýsku.

barn

Þetta gæti verið Ásthildur, en ég ætla að láta sem þetta sé Hanna Sól.  Það tekur svo mikin tíma að leita að myndunum af henni. Blush

Dóttir mín var að hafa samband, þetta er Hanna Sól, bara hálftíma gömul og strax byrjuð að skoða heiminn. Heart

 

SV400057

Hér er hún nokkurra mánaða í heimsókn hjá ömmu.

Img_1430

Hún var skírð af séra Kristni Friðfinnsssyni þeim mæta manni.

SV400009

Hér er hún hjá ömmu sinni.

Vín12.01.07 130

Ég þurfti svo að skiljast við hana og hún fluttist til Vínar. Hér er hún með Fridu vinkonu sinni, þær voru saman á leikskóla í Vín.

SV400050

Þessi er tekinn á Hellu í Nesi, þar sem þau bjuggu fyrstu árin saman eftir heimkomu frá Danmörku.

Góður dagur í Vín 07 069

Svona eru þær þessar elskur, geta snúið pöbbum alveg hring um sinn litla fingur, og auðvitað öfum líka ef út í það er farið.

Vín12.01.07 064

Með ömmu pabba og mömmu í Íkea í Vín. 

Byggingar við Dóná 206

Í hringekju á jólamarkaði í down town Vínarborg með Úlfi ömmu pabba og mömmu.

Góður dagur í Vín 07 157

Með ömmu og mömmu á Hoyringen veit ekki hvernig það er skrifað, en það er svona sveitafest sem er á sveitabæjum, þar sem fólk kemur og borðar saman.  Hér vorum við á stað þar sem Beethoven orti sína frægustu symphoníu, og við fengum að sjá píanóið sem hann lék á.  Það var magnað. 

Hanna Sól og amman 19.01.07 015

Og við lékum okkur saman amman og Hann Sólin.

Vín12.01.07 089

Vínarstúlka með bolta.

IMG_0713

Sætar systur Heart

IMG_2758

Hér í eldhúsinu hjá ömmu sín. Ég sakna þeirra alveg ferlega mikið.

SV4011

Hér er svo Ásthildur litla nýfædd í Vínarborg. Jedúdamína mín, þetta er líka Hanna Sól.InLoveHeart

Innilega til hamingju með daginn elsku Hanna Sól  mín og Takk fyrir alla gleðina og hláturinn sem þú hefur gefið okkur afa gegnum tíðina.  Megi allir góðir vættir vaka yfir ykkur og vernda.

Knús á ykkur öll. Heart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hæ, Ásthildur.

Til hamingju með Hönnu Sól.

Hún hefur verið svo ríkur þáttur í mínu lífi hér á blogginu. gaman að fylgjast með henni og systir hennar og öllum.

Já til hamingju með daginn hennar.

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 23.2.2010 kl. 18:17

2 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Til hamingju með Hönnu Sól þessa yndislegu stelpu, tek undir með Þórarinn hér að ofan að hún og öll hin hafa verið inni hjá okkur í langan tíma, við getum ekki stillt okkur um að skoða hjá þér elskuleg þessar fallegu myndir.

Kærleik í kúlu

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 23.2.2010 kl. 19:13

3 identicon

Til hamingju með gullið þitt ljúfan.

Ragna Birgisdóttir (IP-tala skráð) 23.2.2010 kl. 19:30

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk öll.

Þessar litlu stelpur eru sennilega orðnar heimilisfastar hjá mörgum gegnum tíðina, eða þann tíma sem þær hafa verið hjá mér.

Það hefur líka verið gott að eiga ykkur að, nú þegar hljóðnar í kúlunni.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 23.2.2010 kl. 20:38

5 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Til hamingju með litlu dúlluna. 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 23.2.2010 kl. 20:41

6 Smámynd: Karl Tómasson

Já kæra Ásthildur.

Þær eru heimilisvinir hjá fleirum en þig grunar fallegu stúlkurnar þínar og þið hjónin.

Til hamingju með Hönnu Sól og takk fyrir allar skemmtilegu og manneskjulegu færslurnar þínar alltaf.

Bestu kveðjur frá Kalla Tomm úr Mosó.

Karl Tómasson, 23.2.2010 kl. 21:19

7 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Halló!! Til hamingju með afmælis barnið,já og öll ömmu-börnin Ásthildur mín. Af því ég er svo svakalega meðvirk í söknuði þínum,sting ég upp á að þú byrjir að hlakka til að sjá þær ,,núna,tíminn silast fyrst(er eins og ráðgjafi við konu sem þekkir lífið),síðan fer hann á hraða roksins fyrir vestan,endurfundir á næsta leiti,bros og faðm. 

Helga Kristjánsdóttir, 23.2.2010 kl. 21:27

8 Smámynd: Kidda

Til hamingju öll með afmælisbarnið

Knús í ömmukúlu

Kidda, 23.2.2010 kl. 21:54

9 identicon

Til hamingju með fallegu ömmu stelpuna þína

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 23.2.2010 kl. 22:24

10 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk öll innilega fyrir innlit og góðar óskir.  Hanna Sól biður að heilsa ykkur öllum, og Ásthildur Cesil líka.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 23.2.2010 kl. 22:57

11 Smámynd: Elín Helgadóttir

Til hamingju með stelpuna....

Elín Helgadóttir, 23.2.2010 kl. 23:07

12 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Til hamingju með daginn

Hrönn Sigurðardóttir, 23.2.2010 kl. 23:19

13 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk Hrönn mín og Elín.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 23.2.2010 kl. 23:27

14 identicon

Elsku Íja mín, hjartanlegar hamingjuóskir með Hönnu Sólina þína. Ótrúlegt hvað þessi litlu stýri vaxa og þroskast hratt. Gæti nú trúað að hún sakni þess stundum að geta ekki leikið við ömmu. Ég fæ stundum að heyra það í einlægni, já en amma, mig langar bara að leika við þig núna. Minn leikur er mest að vera, en það snýr öðru vísi við frá hinni hliðinni. Það er búið að vera svo gaman að fá að fylgjast með þeim á blogginu þínu að hjartað gleðst þegar þeim bregður fyrir á skjánum.

Dísa (IP-tala skráð) 24.2.2010 kl. 08:50

15 identicon

Til hamingju með fallegu ömmustelpuna, ég skil svo vel að þú saknir þeirra, ég geri það sko líka :)  Knús í Kúluna.

Hjördís á Hellu (IP-tala skráð) 24.2.2010 kl. 09:02

16 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk Hjördís mín.  Já þú varst með þeim svo lengi í Vín.

Dísa mín já ég er mjög ánægð með að þeim líður vel, heyrði samt á mömmu þeirra í gær að þær sakna ömmu líka.  Þarf að fara að koma mér upp skypinu, .þau gáfu mér svoleiðis myndavél og græju. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 24.2.2010 kl. 09:19

17 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Elsku Ásthildur mín.....Innilega til hamingju með litlu ljúfuna þína.hún er einstök og falleg og eins litla systir sem er bara frábær einstaklingur...knús og kveðjur elskan....

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 28.2.2010 kl. 04:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.6.): 5
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 61
  • Frá upphafi: 2023225

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 36
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband