22.2.2010 | 20:47
Myndir, prakkarasögur og smápólitík.
Veðrið er fallegt þessa dagana. Stundum dett ég samt niður í sút og verð orkulaus. En svo kemur eitthvað sem drífur mig áfram. Fyrir það er ég þakklát. Ég var að snúast við pabba í dag. Hann hringdi og vildi fá mig í bíltúr, hann er á spítalanum, fordekraður af stelpunum þar, en leiðist samt sem áður. Frændi okkar og konan hans voru hjá honum þegar ég kom, við skutluðum þeim svo í heimsókn í annað hús. Við fórum síðan í íbúðina hans, þar sem hann setti þvott í þvottavélina, svo fengum við smá fyrirlestur um nýja öryggisbúnaðin sem verið er að setja upp á Hlíf. Þvínæst fórum við og heimsóttum Gunna bróðir í vinnuna. Og þvínæst vildi hann koma við á Ömmu Habbý og fá sér einn bjór. Þetta var ágætis dagur, og minn karl bara sæll og glaður. Hann er prakkari hann pabbi.
Eins og er þá er þetta rassgat eina smábarnið á heimilinu. Það er ekki hægt með góðu móti að vera í tölvunni, því hann er svo forvitinn og vill bara leika sér við skjáinn.
Skemmtilegast er samt að skoða myndir af sjálfum sér. Og elta músina, þ.e. tölvumúsina hann kann ekkert á hinar, enda á Brandur eftir að kenna honum allt svoleiðis. Hann er líka prakkari.
Sigurjón Dagur tilbúin til að spæla ömmuegg. Þ.e. úr kúluhænunum.
Svo borðar hann þau með tómatsósu nammi namm, segir Sigurjón.
Hann er rosamömmukarl. Vonandi man hann samt smá eftir pabba. Hann er samt líka prakkari eins og pabbi hans var alltaf.
Pabbi í góðu yfirlæti á öldrunardeildinni, með gesti. Þarna eru líka margar yndælar konur sem ég þekki vel, Heiða og Jana, sem er ótrúlega flott kona, og man svo margt. Hún er með yndælli konum sem ég hef kynnst. Svo er þarna yndisleg lítil kona með löbbu, (þau eru auðvitað öll með svoleiðis tryllitæki) en hún er með fullt af böngsum og dúkkum í sinni, líka fallegar myndir og stórt flott skilti með nafninu sínu, Maggý, hún er einhvernveginn eins og lítið barn, svo saklaus og yndisleg að mig langaði að taka mynd, en ég mátti það ekki. Og virði það. En það er stundum eitthvað sem snertir við hjartað í manni og mann langar að deila því. Þarna eru líka tvær kjarnakonur sem eru komnar yfir 100 árin, Dísa handboltakona Alberts og Torfhildur Torfa, þær eru alveg sprækar og flottar. Mikið er gaman að koma í svona samfélag, allt gert svo heimilislegt og ró yfir öllu, gleði og áhyggjuleysi ríkir og þau spauga, ræða daginn og veginn á góðlegan þroskaðan hátt.
Þó mér hafi ekki fundist snjóa mikið í ár, þá hafa okkar menn verið duglegir við að moka og víða standa snjóhraukar, sem verða svo keyrðir út í sjó þegar vorar. Mig grunar að þennan snjó sé verið að geyma þarna til páska, til að aka honum niður í miðbæ til skíðaferðar um miðbæinn um leið og þeir opna skíðavikuna.
Skin og skuggar koma svo fallega út í fjallinu á svona degi.
Og kúlan í aðeins meiri fjarlægð.
Ég heyrði á forystumönnum allra flokka í dag að þeir voru sammála um að neita þessum deal sem hollendingar og bretar buðu. Verð nú að segja að það er góðs viti. Loksins virðast forystumenn ríkisstjórnar vera að sjá ljósið.
Ég verð samt að segja að þegar maður sér svona tilboð sem "þið getið ekki hafnað", haft eftir hollendingum, þá segi ég, þegar maður ætlar sér að fara út í samningaviðræður, þá byrjar maður alltaf í toppi. Við byrjuðum með að lyppast niður og bara viðurkenna allt. Síðan fær maður mótframboð, og þá er ekki besta ráðið að senda besta vin sinn með pennan á lofti til að skrifa undir. Eftir það, þegar ljóst er að þjóðin sættir sig ekki við slíka afarkosti, þá er mjög erfitt að ætla að fara gera kröfur svona eftir á. En það er sem betur fer reynt. Þó Steingrímur og Jóhanna hafi fullyrt að ekki væri hægt að breyta neinu, þetta væri glæsilegasti samningur sem hægt væri að fá.
Og tilboðið sem nú kom fram er auðvitað í anda þessarar málsmeðferðar. Þeir hlæja að okkur bretarnir og hollendingarnir, eða hlóu, þeir hlæja ef til vill ekki meira, því loksins náði seiður goðanna þeim, þegar verst setti.
Nefnilega nú þarf að byrja upp á nýtt. Nú á bara að bíða eftir þjóðaratkvæðagreiðslunni, láta þjóðina hafna þessu alfarið, eins og við munum gera. Og síðan mega menn bara koma skríðandi á hnjánum til okkra til að biðja um eitthvað bara til að halda andlitinu.
Þjóðin og Ólafur versus bretar og hollendingar. Hitt liðið getur bara setið hjá og leyft réttlætinu að hafa sinn gang. Þau geta til dæmis eytt tímanum sínum í að byggja skjaldborg um heimilin og fólkið í landinu. Það er ekki vanþörf á því. Kyrrsett auðmenninga og fryst eigur þeirra. Tekið á spillingunni innan bankageirans, nú eða bara haldið sig til hlés meðan við gerum þetta allt sjálf. Réttlætinu skal fullnægt.
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.6.): 0
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 40
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 31
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
kærar kveðjur frá kulda og snjó í lejre
Steinunn Helga Sigurðardóttir, 22.2.2010 kl. 21:19
Jedúddamía hvað þetta barn er fallegt
Hrönn Sigurðardóttir, 22.2.2010 kl. 22:04
Fallegar myndir af fallegu veðri, allt svo hreint og tært. Allar árstíðir eiga sína fegurð ef við bara gefum okkur tíma til að horfa og njóta.


Dísa (IP-tala skráð) 22.2.2010 kl. 22:42
Langt síðan ég hef komið hér við.. Knús í kærleikskúlu
.
Sigrún Jónsdóttir, 22.2.2010 kl. 23:10
Auðvitað þarf að kyrrsetja eignir "útrásarbarónanna" Hvar í heiminum sem þær finnast. Og ég held að það þurfi að kyrrsetja sjálfa "útrásarbarónana" hérna á Íslandi þar til öll kurl eru komin til grafar. Myndirnar þínar eru frábærar eins og venjulega.
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 23.2.2010 kl. 02:41
Takk allar fyrir mig.
Knús Steina mín.
Já þetta barn er algjör dúlla Hrönn mín.
Einmitt Dísa mín, þetta með að gefa sér tíma til að njóta er mikilvægt.
Kærleiksknús á þig líka Sigrún mín, hef saknað þín.
Já það er engin spurning í mínum huga að það þarf að taka þessi mál föstum tökum.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 23.2.2010 kl. 09:17
Ljúft hér að vanda, kisan er algjör moli
Ásdís Sigurðardóttir, 23.2.2010 kl. 12:46
Sæl Ásthildur.
Já það er ljós í myrkrinu.
Kveðja
Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 23.2.2010 kl. 14:06
Sæl.
Mig langar að benda þér á að með því að nafngreina þessar konur þá ert þú að segja frá hlutum sem ekki er ætlast til að gestir sjúkrahúsa séu að segja frá.
Oft stendur fyrir utan sjúkradeildir: "gestir eru vinsamlega beðnir um að tjá sig ekki um það sem þeir heyra og sjá hér."
Það er ekki að ástæðulausu sem ekki er ætlast til þess að teknar séu myndir af sjúklingum.
Ég er ekki að benda á þetta í neinu illu en þetta er mis-viðkvæmt og ekki öllum vel við að um þá, eða þeirra sjúkrahúsvist, sé rætt opinberlega.
Bestu kveðjur vestur.
Ástríðu (IP-tala skráð) 23.2.2010 kl. 17:07
Takk fyrir það Ástríður mín. Ég skil það vel að þetta sé þannig. Hins vegar er nákvæmlega enginn skömm að því að dvelja á svona fallegu og hlýlegu heimili, og deila því með öðrum. Mér finnst að fleiri mættu kíkja þarna við og heimsækja þetta yndæla fólk og fá frið og ró í sálina. Það vantar einhvern veit ég til að lesa blöðin fyrir þá sem eru orðnir sjóndaprir. Ég fyllist einhverri gleði og friði við að koma þarna í heimsókn, og ekki er verra að starfsfólkið er svo yndælt líka.
Já Þói minn það er ljós í myrkrinu það er það alltaf, bara að koma auga á það og nýta sér það.
Takk Ástís mín.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 23.2.2010 kl. 17:19
Ó, hvað hann er fallegur og bjartur grallari með fallega koparrauða hárið sitt! Hann er rosalega líkur pabba sínum, er það ekki?
Hafðu það alltaf sem allra, allra best kæra Ásthildur. Kær kveðja til þín og Kúlubúanna allra. Lilja Guðrún
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir (IP-tala skráð) 23.2.2010 kl. 17:29
Mikið er gaman að sjá þig aftur Lilja mín.
Ég hef virkilega saknað þín héðan. Jú þessi piltur er lifandi eftirmynd pabba síns og ekki bara í útliti, heldur hefur hann sko erft svo margt frá honum í skaplyndi og einurð.
Takk sömuleiðis.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 23.2.2010 kl. 17:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.