Einmitt Björvin.

Björgvin minn, já það er bara alveg ljóst að það þarf að trappa niður fíkla í mikilli neyslu þegar þeir eru handteknir.  En það þarf að gera læknum það ljóst sumum hverjum, því það er afar hættulegt,  ég lenti nefnilega í því með minn son, sem var handtekinn í mikilli neyslu og var vistaður á Hverfisgötunni, var síðan kallaðu heim og var þar í varðhaldi, en fékk ekki þau lyf sem þurfti.  Hann hafði samband við mig og var með miklar áhyggjur, hafði reynt að hafa samband við lækni sem hann treysti, en sá lét ekki ná í sig.  Ég reyndi sjálf að hafa samband, en það var engin skilningur á alvöruleika málsins.  Ég og systir mín höfðum samband við varðstjórana á Hverfisgötunni og þeir urðu mjög hissa á þessu, og sögðu að það væri afar hættulegt að drengurinn fengi ekki lyfin sem hann var á þar.  Loks tókst okkur að fá því framgegnt að hann fengi lyf, en þá var einungis um að ræða helmings þess sem hann hafði verið á þar.

Við kærðum málið til þar til gerðra yfirvalda, það sem þau aftur á móti gerðu var að senda kæruna beint til yfirlæknis heilbrigðisstofnunar hér til að vera dómarar í eigin sök.

Það er nákvæmlega enginn skilningur á málefnum fíkla, hvorki meðal lögreglu, dómara eða lækna, því er von að málin séu í þvílíku skelfilegu ástandi sem það er í dag. 

Fíklar eru bara ekki fólk að áliti þessara aðila.  Það er vandamálið.  Og þess vegna geta óprúttnir glæpamenn gert það sem þeir vilja við börnin okkar út og suður með að því er virðist fullu leyfi ykkar allra. 

Pældu í því Björgvin


mbl.is Fíklar trappaðir niður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 15. júlí 2013

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.9.): 3
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 72
  • Frá upphafi: 2024177

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 40
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband