Stundum er bara komið nóg.

Ég hef ekki verið mikið hér undanfarið. Það er einfaldlega vegna þess að ég hef verið í ákveðnu sorgarferli út af því sem er að gerast hjá mér vegna þessa fjandans skjólveggs, svokallaðs hér fyrir ofan mig.  Það er búið að eyðileggja fullt af trjám og í dag vorum við Elli minn að merkja trá sem þurfti að færa og svo þau sem ekki yrði bjargað, til að hægt sé að grafa skurð til að leggja vatn yfir svæðið, c..a. 10 metra breiðan sem fer yfir það svæði sem ég fékk sem útplöntunarsvæði fyrur tæpum 3o árum.   Ég er með myndir sem ég mun setja inn síðar, en þetta tekur á og sálarlífið mitt er í botni algjörlega.  Það virðist vera að maður sé algjörlega réttlaus þegar kemur að ægivaldi kerfisins, en þó verð ég að segja að þeir sem að þessu standa séu að gera það sem hægt er til að gera mér lífið léttara.  Það er bara einfaldlega erfitt, því ég tek þetta ótrúlega nærri mér. 

Ég og Elli minn þurftum að ganga í gegnum svæðið í dag til að setja merki á plöntur hvað mætti færa og hvað ætti að drepa og það var einfaldlega eitt það versta sem fyrir mig gat komið.  Það er búið að vera ákveðin aðdragandi að þessu sem hefur lamað mig og gert það að verkjum að allt það skemmtilega og góða sem ég ætlaði að miðla ykkur svo sem eins og konsert lúðrasveitar tónlistarskólans, fermingar barnabarnanna minna og heimsókn á Hellu að hitta elsuleg barnabörnin mín, hefur einfaldlega bara ekki komið fram.  Í því er ég lömuð, og svo öll vinnan í að koma sölunni á koppinn fyrir kúnnana mína, sem vilja bara versla hjá mér sín sumarblóm og koma hér og hlaða mig orku og gleði. 

En ég segi það alveg satt mín elskuleg, ég á eiginlega ekki mikla orku eftir, því það versta við þetta er  að þar er við að eiga apparat sem lýtur engum lögmálum nema einhverri óskiljanlegri þörf fyrir að "vernda" þar sem engrar verndar er þörf, og einungis peningasjónarmið ráða för, og allt það sem við Elli minn höfum verið að vinna s.l. tæp 30 ár er lítils metið, af því að fyrrverandi stjórnvöld ákváðu að koma hér til uppbyggingar á svæðinu og það sem kom út úr því var snjóflóðavarnargarður al a Siglufjörður og Bolungarvík með eitt markmið, að mínu mati og það er; tímabundinn verkefni verkaka, nema sorrý það eru engir verktakar eftir á Ísafirði, þannig að sú tímabundna vinna fer til annarra.  En ég mun fjalla um það síðar með myndum.  

En þetta hefur vomað yfir mér núna lengi og dregið mig niður, og stundum bara er ekkert eftir. 

Mér finnst einhvern veginn þegar maður er að verða sjötugur að það sem maður hefur gert gegnum tíðina ætti að vera manni til friðar.  Og að það ætti frekar að virða það sem hefur verið gert, en ekki bara draga það niður og eyðileggja.

En ég mun skrifa betur um þetta á morgun eða hinn, þegar ég finn smá orku til að segja frá, ég hef hana ekki núna, er með sorg í hjarta því sem garðyrkjumaðuð veit ég að stærstu og flottustu trén munu ekki lifa af flutning, þó það verði reynt, eins og tildæmis stórar og fallegar furur.

Einungis tíminn mun leiða í ljós hvaða tré lifa flutningin af.  Og svo er eftir að meta þau tré sem deyja, og svo auðvitað allan sársaukan sem þetta er búið að valda mér, með tilheyrandi róandi lyfjum og innilegum innri sársauka.

Og þar með vona ég að öll sagan sé sögð, þó mig gruni að svo sé ekki.   En nóg um það síðar.

Er einhver þarna úti sem vill stofna hollvinafélag kúlunnar og hjálpa mér að berjast við þetta kerfi, því ég er um það bil að fá nóg.


Bloggfærslur 9. júní 2013

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.9.): 4
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 73
  • Frá upphafi: 2024178

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 41
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband