23.9.2012 | 20:44
Að ruslast um í Vín... er gaman.
Vínarborg er með þeim skemmtilegri borgum að mínu mati. Aðrar borgir sem ég held upp á eru Kaupmannahöfn, Amsterdam New york - Manhattan. Allar þessar borgir eiga það sameiginlegt að það er auðvelt að rata góð samgöngutæki og lifandi borgir með fullt af matsölustöðum og vínveitingarstöðum þær eru lifandi alveg meðan maður er að ruslast um fram eftir.
Vín er sérlega skemmtileg að því leyti að í fyrsta lagi getur maður farið um hana á helstu svæði með neðanjarðarlestinni, og það er afskaplega auðvelt að rata. Hún hefur upp á svo margt að bjóða bæði sögulega séð og svo í fegurð bæði hvað varðar skemmtileg svæði eins og bakka Dónár, arkitektúr, að blanda saman gömlum og nýjum byggingum svo vel fer, og bara vinaleg að öllu leyti.
Við Elli skruppum til Vínar og gistum hjá vinkonu minni Christínu yfir nótt, áttum virkilega skemmtilegan tíma.
Christíne er eftir skilgreiningu íslendinga Íslandsvinur, því hún kemur hingað eins oft og hún getur, reynir að koma á hverju ári. Og elskar Ísland íslenska náttúru og fólkið sem hér býr.
Hér erum við að fara niður á Stefansplatz, sem er hjarta Vínar, þar er dómkirkjan og miðbærinn.
Já hér erum við sem sagt að fá okkur morgunverð.
Þetta er mín uppáhalds búð í Vín, steinabúðin sem er rétt við Mary HilferstraBe. Kaupi alltaf einhverja steina þar.
Christine býr í gömlum hluta Vínar, í bokk sem er reyndar frekar gömul, byggð um 1920, í þá daga var ekki rennandi vatn í hverri íbúð, heldur voru svona vaskar frammi á gangi á hverri hæð, þangað sem fólk þurfti að sækja sér vatn.
Hér sýnir Christine mér plöntu sem hún er að rækta sem heitir Djöflaplanda eða eitthvað álíka.
En sem sagt dóttir mín þurfti að bregða sér til Vínar, því hún var að taka Buddatrú, við ætluðum að fara út að borða með Christíne og ákváðum að fara á góðan veitingastað sem er uppi á hæð yfir Vín. Ég hef að vísu komið þar áður, en þangað lá leiðin, hér erum við á rauða dreglinum.
Man ekki hvað veitingastaðurinn heitir, en hann er meiriháttar og margt þar til skemmtunar, og þarna er setið úti meðan nógu hlýtt er, og ef mönnum er kalt þá er hægt að fá teppi yfir sig.
Við röltum þarna um og skemmtum okkur vel. Þetta er eins og inn í stofu.
Allt gert til að fólk geti skemmt sér og notið þess að vara til.
Mæli með þessum stað ef fólk vill gera eitthvað spes í Vín, bara hafa samband og ég skal grafa upp nafnið
Þó veðrið væri gott hér uppi, þá var dálítil þokumóða yfir Vín. En hér er gott útsýni yvir borgina, og þetta stóra hús er spítali.
Svo var farið að fíflast, hér er rammi sem hægt er að taka myndir í hehehe.
Já eins og um mynd í ramma væri að ræða.
Og þá var bara að skemmta sér ærlega.
Hehehehe Christina you did´t thint I would show this.
En hingað komum við fyrst og fremst til að smakka hina einu og sönnu Viener Snitzhel sem er algjört ÆÐI.
Borð fyrir tvo...
Bára mín og Christine góðar vinkonum sem ég reyndar kynnti hvora fyrir annari.
Á tröllaslóðum... eða þannig.
Sem sagt steinrunnið tröll...
Jamm það er svipur með þeim
Þannig að það er ekki bara matur heldur heimikil skemmtun að fara á þennan veitingastað.
Og feðginin skoða Vína ofan frá sem er bara gott útsýni yfir borgina.
En eins og ég sagði fór dóttir mín til Vínar til að taka Búdda trú það var falleg athöfn og ég er afskaplega ánægð með hana að hafa valið sér þetta fallegu iðkun. Hér eru vinir hennar Samúel frá Israel og móðir hans sem er nýflutt hingað frá Tel Aviv þau eru bæði búddatrúar yndislegt fólk.
Samúel sagði mér að iðkendur þessa sama trúfélags eru um 3oo hér á landi og þar af tvær systur hér á Ísafirði sem ég reyndar þekki vel, flottar stelpur. En höllin sem þau keyptu undir trúariðkun sína er höll einnar prinsessu af Habsborgaraættinni, hún var kölluð rauða prinsessan vegna þess að að hún giftist af ást, manni sem ekki var konungborin. Þess vegna þurfti hún að vera utangarð hjá þessu liði, og hefur sennilega bara verið hamingjusamari en aðrir sem þurftu að giftast innbyrðis eða einhverjum sem þeim var ætlaður. Ég hef reyndar aðeins mantrað með þeim og það algjörlega virkar.
Hér er þessi elska mín eftir athöfnina sem var eins og ég sagði afar falleg, ásamt öðrum sem voru líka að taka trúna.
En að öðru, meðan ég var í Austurríki ríkti hitabylgja sem fór allt upp undir 40°, það var því afar heitt.
Hér innan við fimm mínútna akstur frá heimili Báru er þetta vatn, sem margir koma til að baða sig í og synda, meira að segja alla leið frá Vín.
Hér er svo sannarlega hægt að eyða deginum, hafa með sér nesti eða bara fá sér mat eða vín á veitingastað sem er hér.
Og börnin nutu sín svo sannarlega
Og amma vildi líka passa guttan litla
Frábær staður og mikið sóttur.
Og svo var komin tími til að fara heim, það endar alltaf þannig. En mikið getur lífð verið yndælt.
Þó ég hefi ekki sýnt mikið frá Vínarferðinni þá nutum við Elli okkar, við vorum að ruslast bara tvö, Christína þurfti að vinna að verkefni, svo við fórum í miðbæinn og röltum milli veitingastaða og skemmtum okkur vel, þegar við svo komum heim til hennar, beið okkar uppbúið rúm, með sælgæti á koddanum eins og á flottum veitingastöðum og rauðvínsflaska og tvö glös, arineldur logaði og allt var óskaplega rómó. Tank you my dear Christine my friend, we both love you very much.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
Bloggfærslur 23. september 2012
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (29.9.): 8
- Sl. sólarhring: 8
- Sl. viku: 77
- Frá upphafi: 2024187
Annað
- Innlit í dag: 6
- Innlit sl. viku: 44
- Gestir í dag: 6
- IP-tölur í dag: 6
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar