Blóm, ávextir og Brazil.

Ég hef verið að koma afgangnum af sumarblómunum niður í jörðina.  Þetta lítur vel út, ef satt skal segja og ég er ánægð með árangurinn.  Það gengur líka vel að ganga frá blómunum sem eiga að vera til græðlingatöku næsta vor.

5-IMG_4125

Það er svona að komast lag á þetta hjá mér.

6-IMG_4127

Þetta er eiginlega orðin frumskógur, án rándýra þó... vonandi.   Vil ekki fá mink eða ref hingað niður.

2-IMG_4122

Það er búið að vera svo sólríkt að það eru ekki bara krækiber og aðalbláber sem eru mánuði á undan, heldur fleiri ávextir í garðskálanum.

3-IMG_4123

Kirsuber og perur eru ekki amaleg.

4-IMG_4124

Eða plómur.

7-IMG_4128

Í fyrra fékk ég 10 kg. uppskeru af vínberjum, veit ekki hvað það verður í ár.

1-IMG_4121

Og í gær droppuðu við tvær kátar og elskulegar stúlkur, voru forvitnar og ægilega hrifnar. Þegar ég spurði hvaðan þær væru, þá eru þær frá Brasilíu, eru hér að spila með B.I. bolta.    Hér skrifa þær í gestabókina, veit ekki hvað eru komnar margar kveðjur frá hve mörgum löndum. Þarf að fara að taka það saman.

Bit1

Sá svo þessa mynd í BB í morgun. Hún er þá líka stjarna ofan á allt hún Talita. Talita og Gaby heita þessar hressu og skemmtilegu stelpur.

En nú þarf ég að fara út í sólina og hitan. Eigið góðan dag Heart


Bloggfærslur 16. júlí 2012

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.9.): 1
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 71
  • Frá upphafi: 2024188

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 39
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband