Maskadagur - mánudagur.

Í gær var maskadagur.  Þá fara allskonar verur á kreik hér fyrir vestan.  Þegar ég skutlaði unglingunum mínum niður í Félagsmiðstöð í gærkvöldi voru allskonar slíkar verur á sveimi, það sem þær áttu allar sameiginlegt var að þær voru með plastpoka.  Það er nefnilega bankað upp á og þá er eins gott að hafa nammi tilbúið.  Ég mundu eftir því á síðustu stundu að kaupa slíkt góðgæti og rakst þá á einn afa sem gerinilega var líka á síðasta snúning eins og égLoL

MYND001

Var að leita að þessari mynd í gær, þetta er Úlfur 2ja ára að fara að maska LoL

Hér voru í gamla daga alltaf haldinn maskaböll í Alþýðushúsinu á mánudagskvöldum. Þar voru margir skemmtilegir búningar og veit verðlaun fyrir flottustu búningana.

Danmark 317

Þetta er að vísu ekki grímubúningar heldur hátíðabúningur þessa indíjánastofns sem við heimsóttum.

En það er gaman að þessu ég man þegar ég var lítil þá voru ekki svona flottir búningar til, það var gripið það sem hendi var næst, sængurver ef ekki vildi betur til, svo fór maður í heimsóknir og fengum rjómabollur, og svo hló heimilisfólkið þegar maður var að troða bollunni inn um smá gat sem klippt hafði verið á verið LoL

Nú er verið að sjóða baunirnar og saltkjötið, mmmm þetta eru dýrðardagar.   

Eigið góðan dag. Heart


Bloggfærslur 21. febrúar 2012

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.9.): 4
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 74
  • Frá upphafi: 2024191

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 42
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband