Pípí í flugnámi.

Já unginn minn er að bagsla við að reyna að læra að fljúga.  Hann verður að gera þetta upp á einsdæmi, því ekki getur þessi mömmukjáni kennt honum neitt slíkt.  Ekki nema trixið að fara með hann upp á kúluna og kasta honum niður og segja Fly og Die LoL

En hann fékk skemmtilega heimsókn í gær alveg óvænt, það var eftirtektarvert hve vel hann tók drengnum sem var honum alveg ókunnur.

IMG_2842

Venjulega borðar hann ekki úr hendi.  En þessu stubbur náði honum alveg.

IMG_2843

Hann er að gefa Pípí grasstrá sem hann borðar af græðgi.

IMG_2844

ég var eiginlega hissa á þessu, því venjulega tekur hann ekki svona ókunnugum, en allt getur gerst.

IMG_2845

Allavega var þetta rosalega gott gras LoL

IMG_2846

Jamm nammigott.

En að fluginu.  Hann er farin að mynda sig við að æfa flugið.  ég tek líka eftir að hann hlustar á gæsirnar í fjarska.  Svo allt er óráðið um hvað hann gerir.

IMG_2850

Þetta er orðið ekkert smá vænghaf sem stubburinn minn hefur.

IMG_2851

Held að það verði ekkert langt í að hann nái fluginu.

IMG_2852

Svo eru æfðar allskonar stellingar.

IMG_2853

Þetta er allt að verða voða flott hjá honum.

IMG_2854

Vona að ég nái fyrsta fluginu á mynd.  Við sitjum gjarnan fyrir utan kúluna og þar æfir hann sig þessi elska.

IMG_2855

Flottur.

IMG_2857

Komst líka að því í morgun að það er hægt að kenna honum, hann var að narta í teikningu frá Hönnu Sól og ég bannaði honum það, hann hélt áfram, en ég klappaði saman höndunum og sagði hættu, hann reyndi nokkrum sinnum en hætti alltaf við þegar ég lét í  mér heyra, svo að lokum skildi hann að þetta mátti ekki. 

IMG_2859

Jamm þetta fer að takast.

IMG_2862

Sennilega segir eðlið alltaf til sín að lokum og það er gott.

IMG_2863

En við Pípí sendum ykkur kveðjur héðan

IMG_2864

Úr sólinni á Ísafirði.  Eigið góðan dag.

 


Bloggfærslur 6. ágúst 2011

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.6.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 36
  • Frá upphafi: 2023337

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband