31.8.2011 | 22:31
Nokkrar myndir undir svefninn.
Pípí finnst gott að sitja hjá mér þegar ég er í tölvunni. Annars er hann mikið úti núna, og heimsækir nágrannana og líka vinnufélagana fyrrverandi. Þau taka honum öll ljúfmannlega. Svo þarf ég bara oftast að sækja hann niður á götu þegar fer að skyggja, en oft kemur hann líka heim sjálfur, voða duglegur.
Stundum þarf hann bara að fá sér smá sundsprett.
Skömmin er búin að skemma allar nykurrósirnar mínar.
Svo nú hefur hann alla tjörnina út af fyrir sig.
Fiskarnir láta hann samt ekkert trufla sig, enda hefur hann engan áhuga á þeim. Kjáninn er búin að missa af hinum gæsunum, svo hann verður hjá mömmu sinni í vetur. Merkilegt hvað þessi börn endast hjá manni
Svo finnst honum notalegt að koma aðeins inn.
Sérlega notalegt að fá að vera með mömmu sinni við tölvuna.
Það er bara svo notalegt.
Það er búið að vera drunglegt veður undanfarið, en nú er greinilega farið að hlýna aftur.
Nú er tími rósanna. Hér er Harrison Yellow svo falleg og ilmar svo vel.
Dverg hvítþinurinn minn allur í knúppunn enn eitt árið. Þennan fékk ég sem hliðargræðling frá Guðmundi í Núpum og hann frábær, kelur aldrei og ber rekla á hverju ári.
Rauða lúpínan mín, og nokkrar sem ég hef sáð fyrir og er spennt að vita hvort lifa einhver ár, þetta er þriðja árið þeirra, en svona sánar lúpínur lifa sjaldnast lengi, en þær eru skemmtilega litfagrar.
Þokkarós og brúðurós í fullum blóma.
Sjálfsáin reynihrísla við álfastein, þetta er sennilega sorbus decora, því slíkt tré er þarna rétt hjá.
Drottningin mín svo falleg.
Gerði þau mistök fyrir nokkrum árum að koma heim frá Fljótavík með umfeðming, hann var svo lítill og sætur í sandinum fyrir norðan, en hér er hann eins og villidýr og er að taka yfir beðið mitt. Ég verð að taka þetta allt upp í haust og bjarga blómunum mínum úr klóm vargsins. En hann er fallegur, svo ég mun pota honum einhversstaðar þar sem hann má vaða að villd.
Í góðum sumrum gefur hann baunir sem eru afar svipaðar grænum baunum bara aðeins smærri.
En þetta var nú bara svona undir svefninn. Og við Pípí bjóðum góða nótt. Hann er komin með höfuð undir væng, svo ég tími ekki að setja hann útfyrir.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Bloggfærslur 31. ágúst 2011
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (27.6.): 3
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 36
- Frá upphafi: 2023337
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 30
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar