Gott veður á Ísafirði, í mest allt sumar. Fyrir utan Júní.

Dagarnir hér eru eins og í útlöndum, sól dag eftir dag og blíða.  Það rignir víst í Noregi, Elli segir mér eftir norðmönnum að sumarið þar sé óvenjublautt í ár.  En það er bara þannig að austurland og norðurland ásamt norðurEvrópu fylgjast að, og þegar sumarið er gott hér hjá okkur, þá er það síðra fyrir austan og í Evrópu.  Einhverskonar veðurkerfi sem stýrir því líklega.

IMG_2866

Svona á milli þess að hamast í plöntunum sit ég gjarnan fyrir framan húsið mitt og horfi á það sem gerist í kring um mig.  Kajakróður er mikið stundaður hér á pollinum, svo sjókettir og allskonar sjósport.

IMG_2867

Hér má sjá að mikið hefur farið af snjónum, þó er hann óvenjumikill á þessum árstíma eða viku af ágúst. Ótrúlegt.

IMG_2869

Hér er Úlfur að planka...

IMG_2871

Og Daníel horfir hlæjandi á. 

IMG_2879

Þetta er sólin. Smile Ef til vill er hún svona stjörnulaga en ekki kringlótt.

IMG_2884

Sést að það er tekið að kvölda, og svo ósköp notalegt að sitja fyrir utan og njóta þess að vera til.

IMG_2886

Við Pípí erum dálítið móðguð, ég skrapp gangandi yfir til systur minnar sem vinnur hér skammt frá, hann elti eins og hundur, en var orðin voða sárfættur, því það þurfti að fara yfir grjót og leir.  En hann pjakkaðist þetta alla leið.  Þegar við komum svo á staðinn, komu allir karlarnir út að skoða hann, og fyrsta sem þeim datt í hug var jólasteikWoundering

Við erum því bæði sármóðguð yfir þessari græðgi.  Við viljum hvorugt okkar enda sem jólasteik.

IMG_2888

Atli frændi var með okkur og bauð honum að halda á honum heim, en hann þáði það ekki, og varð að plammpa á sínum breiðu viðkvæmu fótum heim aftur. 

IMG_2890

Vissuð þið að nicotiniur gætu orðið svona háar?  meira en mannhæð, svona er það í bestu skilyrðum, þá vex allt betur.

IMG_2891

Það er blómlegt yfir að líta.  Mér var tilkynnt í morgun að það kæmi maður að sunnan að meta húsið mitt upp á uppkaup, ég er skíthrædd.  En ég er ákveðin í að gera allt sem ég get til að forða þessum hryllingi.

IMG_2895

Stubbarnir mínir tveir eru komnir heim til Noregsi, þeir komu til að kveðja ömmu sína. Heart

IMG_2896

Fiskarnir fá kál í matinn og Pípí langar heil ósköp til að ná sér í, en hann fer ekki aftur ofan í tjörnina, þar sem hann veit að hann kemst ekki uppúr aftur nema með aðstoð. Þarna er hann samt búin að smakka á nellikunni minni skömmin sú arna. 

IMG_2898

En svona eru dagarnir hér og það er gott.  Eigið góðan dag elskurnar. Heart


Bloggfærslur 10. ágúst 2011

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.6.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 36
  • Frá upphafi: 2023337

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband