Lífið er geimvera .....eða ekki.

Það er að renna upp fyrir okkur almenningi í heiminum að við höfum orðið fyrir árásum geimvera.  Nema þessar geimverur koma ekki utan út heimi að því best ég veit.  Þær hafa fjölgað sér og stækkað meðal okkar, og með klíkuskap og peningum komið sér svo vel fyrir að þær ráða öllu sem þær vilja ráða. Þessar skepnur eru í líki manns, en hafa hvorki heila né hjarta.  Þær eru blindar af græðgi bæði í peninga og yfirráð.  Til þess að halda okkur mannskepnunum niðri, hafa þeir uppi allskonar tilburði, búa til stríð, olíukreppur, jafnvel hvalaelskendur.  Þeir ráða öllu peningakerfi heimsins, og rúlla upp einu ríki, og hygla öðru.  Allt er þetta gert í "mannúðarskyni" að því okkur er sagt.  Þeir ráða líka öllum fjölmiðlum heimsins, nema rétt netinu að einhverju leyti, annars væri ég ekki að skrifa þetta.  Ef þeir finna að þetta litla sem eftir er af netfrelsi er að gera þeim skaða, þá munu þeir loka þeirri upplýsingaleið líka.  Það er ekki bara samtrygging meðal íslenskra ráðamanna, heldur nær þessi samtrygging sem net út um allan heim, þar sitja geimverurnar og plotta um hvað eigi að taka fyrir næst, og hvað þeir ágirnast þann daginn.  Hvort sem það eru olíulindir, gullnámur eða jafnvel saltnámur ef út í það er farið.  Næstu baráttumálin verða líklega að sölsa undir sig síminnkandi vatnsbýskap jarðarinnar, og jafnvel ef þeim tekst að gjaldfæra loftið sem við öndum að okkur. 

Þess vegna eru menn sem vilja koma sannleikanum áleiðis hundeltir allstaðar.  Læknar sem reyna að vara við lyfjum sem eru hættuleg eða öðru slíku eru þaggaði niður af mafíunni sem lítur stjórn lyfjarisanna, sem eru auðvitað hluti af geimverunum. 

Ég veit ekki hvað er hægt að gera til að koma þessu oki af, því alltaf verður þetta augljósara og ljótara.  Lygin stærri og leyndarmálin fleiri.  Eina sem getur hugsanlega bjargað mannlegri reisn er samtakamáttur hins vinnandi manns.  Og þá er ég að tala um allt venjulegt fólk í heiminum.  Það er svo sem að gerast víða að fólk er að gera uppreisn gegn valdinu, og fá að finna fyrir því með allskonar stríðstólum og öðrum andstyggilegum meðulum ráðandi afla, sem ekkert vilja heldur en að við lúffum og gerum eins og okkur er sagt. Það er þegiðu og haltu áfram að skaffa okkur meiri peninga.  Smile

Ég er ekki að finna þetta upp, eða gantast, ef þið skoðið málið þá sjáið þið að þetta er bara svona.  Og enginn vill eða getur breytt þessu nema við sjálf.  Eða eins og maðurinn sagði; einhversstaðar þarf að byrja.

En nóg um þetta.

IMG_2323

Ást er.....

IMG_2325

Knús.

IMG_2324

Og Pípí er að stækka, nú er hann farin að sýna takta við að passa húsið ef fólk kemur sem hann þekkir ekki.  Cool Ætli ég þurfi að binda hann úti á túni eins og varðhund?

IMG_2326

Afi er farin til Noregsi að vinna.  Ekki af því að hann skorti vinnu hér, heldur var hann beðinn sérstaklega um að koma.  Stubbur kom að kveðja hann í gær.

IMG_2327

Við munum öll sakna hans og vonum að hann komi sem fyrst heim aftur.

IMG_2330

Það er munur að eiga tvo flotta afa. 

IMG_2332

Og Pípí vill vera með. Hann er orðin klunnalegur og er að fá fjaðrir og dúnninn að fara, gaman að sjá hvernig fjaðrirnar vaxa. 

IMG_2334

Ég held að þeir hljóti að vera að dansa!!!

IMG_2336

Kvöldsólin kæru ísfirðingar brottfluttir, kvöldsólin og lognið.

IMG_2337

Það er dálítið merkilegt með RUV að það er eins og hvergi megi vera gott veður nema á Akureyri og Egilstöðum.  Þeir eiga góða veðrið, er gjarnan sagt, og þegar veðrið er vont hjá þeim, þá er ekkert talað um veður.  En komi sólarglæta þá er strax byrjað; besta veðrið á Akureyri og Egilsstöðum.  Jæja ég get frætt ykkur um að Júlímánuður er búin að vera yndæll hér fyrir vestan, og nú er hitin að nálgast 20° með sól.  Það segja margir að veðrið á vestfjörðum sé best geymda leyndarmál landsins.  Því það virðist vera markvisst þagað um það þegar veður er gott, en talað hátt ef það er slæmt.  'Eg veit satt að segja ekki af hverju þetta er.  En svona er þetta bara.

Ein lítil saga af því.  Hér fyrir nokkrum árum þegar ég var að vinna og byrjaði fyrir kl. 7 á morgnana, ég kom út og það var ekki ský á himni, og algjört logn, þá heyrði ég í útvarpinu að það var sagt að ekki yrði flogið til Ísafjarðar og Vestmannaeyja vegna þoku.  Ég hringdi í fréttastofuna og spurði af hverju þeir segðu að það væri þoka hér.  Við fengum þær upplýsingar á flugvellinum sagði maðurinn sem hafði svarað í símann.  Skrýtið segi ég, því ég stend hér fyrir utan húsið mitt og það er ekki skýdróg á himni og algjört logn.  Jæja getur þú sagt til um að það sé fært að fljúga, sagði maðurinn.  Nei auðvitað ekki, svaraði ég, hverngi á ég að geta gefið leyfi til flugs hingað.  En ég get sagt þér að það væri stórfrétt ef það væri EKKI hægt að fljúga í svona veðri.  En þið eruð nú vön að tala veðrið niður hér fyrir vestan bætti ég við.  Nú þú heldur kannski að við sitjum hér á kaffistofunni og ákveðum að það sé vont veður fyrir vestan, sagði hann snefsinn.  Já sagði ég, ég gæti best trúað því.  Honum varð svaravant. Whistling

Svo hringdi ég inn á flugvöll og viti menn, símsvarinn var ennþá í gangi síðan kvöldið áður með upplýsingum um að flugvöllurinn væri lokaður vegna þoku.

Ég hringdi svo eftir átta inn á flugvöll og sagði þeim frá samtali mínu og þeir urðu gapandi.  En það KOM ALDREI LEIÐRÉTTING Á ÞESSARI FRÉTT hjá þeim á RUV.

IMG_2338

Í morgun var þessi mynd tekinn. 

IMG_2339

Allt gengur sinn vana gang hér, tvö skemmtiferðaskip við kajann og börnin farin uppáklædd í vinnuna við að skemmta fólkinu. 

IMG_2340

Allur snjór farin út Eyrarfjallinu.

En nú verð ég að fara að koma mér út og njóta veðurblíðunnar.  Eigið góðan dag elskurnar, og gætið ykkar á geimverunum.  Látið þær ekki plata ykkur með fagurgala eða mútum.  Þær eru ekki að hugsa um okkur heldur sjálfar sig, enda hvernig má annars vera, það gleymdist að setja í þær hjarta og heilaCool 


Bloggfærslur 14. júlí 2011

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.6.): 3
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 36
  • Frá upphafi: 2023337

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband