Meira ungviði og túrhestar.

Í gær fékk ég skemmtilega heimsókn, krakkarnir á leikskólanum Eyrarskjó vildu fá að koma í heimsókn, þ.e. þau sem eru að byrja í skólanum í haust. Þar á meðal Sigurjón Dagur, og hann var auðvitað búin að tala svo mikið um kúluna og aðallega ungann Pípí, svo þau vildu endilega koma og skoða, sem var reyndar auðsótt mál.  Þau komu um hádegið og grilluðu og höfðu gaman, en mesta lukku vakti samt Pípí, að lokum varð hann leiður á þessari athygli og skreið undir stólinn hennar "mömmu" sinnar.LoL

IMG_2244-1

Þarna er verið að dáðst að kirsuberjunum.

IMG_2245-1

Þau komu auðvitað hjólandi þessar elskur.

IMG_2246-1

Fóstrurnar grilla og börnin gera sér gott af.

IMG_2247-1

Svo er það bara skólinn í haust og alvara lífsins.

IMG_2249-1

Ætlu þau komi ekki aftur í heimsókn í haust á vegum skólans, en fyrstu árs bekkingar fá alltaf að koma í heimsókn og skoða gróðurinn og hænurnar. 

IMG_2251-2

Nú er hægt að segja að sumarið sé komið  þegar riddarar Rósu eru komnir á kreik. 

IMG_2252-2

Dágóður hópur að hlaupa í ár, það er gaman að fylgjast með þeim hlaupa hér framhjá, ég hleyp með þeim í huganum og er viss um að vöðvarnir mínir meðtaka skilaboðin. LoL

IMG_2255-1

Jamm þetta er hin besta skemmtun bæði fyrir mig og þau.

IMG_2257-2

Pípí gerir líka hálsæfingar, ein sagði í gær hvað er þetta er nú litli ljóti andarunginn LoL Sem breytist í svan, og ég sagði að ég myndi nú bara þakka fyrir það, því eins og hann lítur út í dag líkist hann mest strút.LoL

IMG_2258-2

Flottur, en hann gerir samt oft æfingar, hann leggur fæturna aftur og teygir þær reglulega.  Vitið þið að endur eru með þófa undir fæti, einn stór undir fætinum og þrír minni fram eftir miðtánni, og einn á hvorri hinna, samt er hann stundum sárfættur að ganga í mölinni. 

En hann er alveg viss um að ég sé mamma hans, það átti að setja hann í girðingu sem Elli hafði smíðað fyrir hann úti í grasinu, en hann grét og kallaði þangað til ég gafst upp og hleypti honum út, og hann varð svo hamingjusamur. Heart

Ég fékk bók inn úr dyrunum í gær, eftir þýska stúlku sem skrifar um íslendinga og trú þeirra á álfa og huldufólk hún heitir Alva Gehrmann, en inn í þetta fléttar hún til dæmis óbeislaðri fegurð, þar er einn kafli um mig, sem kallast Miss Auraund ihre innere Schönheit, ég skil náttúrulega ekki bofs, en sé samt að talar um klæðaburðin á mér í byrjun; Ásthildur Cesl Þórðardóttir kleidet sich eher unscheinbar.  Eins türkisblauer Strickpulli, eins dunkle, locer sitzende Hose und dazu Birkenstocs mit Wollsochen ihre Haare sind einfach da.

Það er örugglega hægt að skoða og panta bókina á facebook síðu hennar http://www.facebook.com/#!/allesganzisi eða www.dtv.de

Ég er að bíða eftir enskri eða íslenskri útgáfu. 

Í morgun kom svo inn úr dyrunum par, að vísu sennilega bara vinir eða frændur, því hann býr í Canada en hún í Vín.  Hún sagðist hafa komið hingað um 1999, og komið í heimsókn þá og langaði að skoða sig um aftur.  Ég sýndi henni bókina, og hún las kaflann um mig  með mikilli ánægju og hló mikið, þannig að þetta er greinilega skemmtileg bók.  Takk Alva mín. 

IMG_2262-1

Hér les hún upp úr bókinni. 

Og þá er ég þotinn út að gera eitthvað gagn.  Það þarf að smúla stéttina eftir Pípí, því hann er ekki "kassavanur" og kúkar þar sem honum dettur í hug, svo verður hann móðgaður þegar maður kemur með pappír og þurrkar upp eftir hann, sem betur fer er þetta nánast lyktarlaust þar sem hann étur bara grænmeti og gras og drekkur vatn.

En ég segi bara eigið góðan dag elskurnar. Og þið sem skiljið þýsku kíkir á síðuna hennar Ölvu.

Alles Ganz Isi, Isländiche Lebenkunst für Anfänger und Forgeschrittene. Heart


Bloggfærslur 1. júlí 2011

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.6.): 3
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 36
  • Frá upphafi: 2023337

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband