Lítil færsla um ungviði.

Það er rigning og frekar hráslagalegt í dag, en á morgun spáir vel, ég held að loksins sé sumarið að koma.  Það hefur tekið vel af snjó úr fjöllum, og með þessari rigningu mun úthaginn fara að grænka.  HEstakona sagði mér í gær að hún hefði fyrst núna sleppt hestunum á beit í haga og það er nánast komin júlí. Ég man ekki eftir öðru eins veðurfari. 

Við fengum ánægjulega heimsókn um daginn af Margréti Frímanns og Jóni Gunnari Óttarssyni, við gengum saman um lóðina, en Margrét hefur alltaf haft mikinn áhuga á garðyrkju.  Hún kenndi mér samfélgsfræði í Garðyrkjuskólanum.  Það var gaman að hitta hana svona á heimaslóðum.

En ég lofaði smá færslu um ungviði.

IMG_2212-1

Mamma er góð, en hvað er hún með?

IMG_2213-1

Já mamma er best og skjótt skipast veður í lofti.

IMG_2214-1

Ég er pínkusmeyk við þetta.

IMG_2215-1

Og það eru auðvitað Pípí sem um er að ræða.

IMG_2216-1

Vá hann situr hjá mér alveg rólegur.

IMG_2217-1

Amma sjáðu!!! ég er ekkert hrædd.

IMG_2219-1

Og ég þori alveg sjálf....

IMG_2221-1

Sona sona litli minn ég skal gæta þín.

IMG_2222-1

Þú mátt nú líka fara eitthvað annað ...

IMG_2225-1

Vá!!!! þú ert búin að kúka á gólfið...

IMG_2228-1

Og þá er komið að því að kveðja, litla skottan mín á leið til  Noregsi.

IMG_2229-1

Bless amma í kúlu. 

IMG_2230-1

Það er alltaf erfitt að kveðja.

IMG_2232-1

En kærleikurinn lifir þó leiðir skilji að.

IMG_2234-1

Bless Alejandra.

IMG_2235-1

Bless afi Heart

IMG_2237-1

Afi og pípí fá sér kaffisopa í grasinu.

IMG_2239-1

Pípí finnst gaman að vera úti í grasinu.  Þar eru bara stundum stórir ljótir kettir sem geta reynst honum hættulegir meðan hann er svona lítill. Ég held að krummi myndi láta hann vera, af því krummi er svo klár fugl og veit að ég gef honum oft og hann myndi ekki gera mér það að borða ungann okkar. Heart Kettir aftur á móti hafa ekkert svona lojalty. 

IMG_2240-1

Heimsókn, smá kaffi og spjall, hvað er skemmtilegra en það?

IMG_2242-1

eins og sjá má á myndum sem voru teknar núna áðan, þá hefur snjóinn tekið heimmikið upp.

IMG_2243-1

Ég held samt að gömlum ísfirðingum finnist ótrúlega mikið eftir af snjó í fjöllunum miðað við árstíma.

En eigið góðan dag elskurnar. Og núna í þessum rituðu orðum brýst sólin fram.  Heart


Bloggfærslur 29. júní 2011

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.6.): 3
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 36
  • Frá upphafi: 2023337

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband