26.6.2011 | 23:32
Til hamingju með afmælið Unginn minn stóri.
Ég er alltaf að vona að hlýni, þó hér sé sól dag eftir dag og notalegt að vera útivið, kólnar um leið og dregur ský fyrir sól. Ætlar sumarið aldrei að skila sér?
Í dag átti frumburður minn afmæli. Ég gleymi aldrei þeirri stund er ég fékk hann til mín, mér fannst ég vera merkilegasta manneskja í heimi, ég byrjaði á að skoða og telja fingur og tær, og mér fanns hann vera fullkomið kraftaverk. Núna þegar ég horfi á ungu konurnar hér heima spóka sig um götur með barnavagna, gleðst ég við tilhugsunina, því ég veit að við hugsum allar svona, þegar við höfum skilað litlu kraftaverki inn í heiminn og horfum á þetta kraftaverk sem hefur verið 9 mánuði að alast upp og stækka inn í okkur, og svo loks þegar þau koma út í heimin, þá ríkir ástúðin, stoltið og gleðin yfir vel loknu verki móður náttúru.
Til hamingju með daginn elsku drengurinn minn.
En það er margt sem ég er að hugsa um núna, þrátt fyrir einstaklega frábært líf og loksins að skilja að ég er FRJÁLS.... sjálfs mín herra og get bara gert það sem ég vil, þetta er að renna upp fyrir mér smátt og smátt eftir að ég hætti að vinna. Og reyndar horfi ég á beðin í bænum, sem vissulega standa þarna mörg hver blómalaus og komið að mánaðamótum júní og júlí. Að þá stilli ég mig um að gera neitt í því. Það fólk sem tók við af mér þarf sennilega sinn tíma til að koma öllu í lag. ég geri mér grein fyrir að þetta var allt komið í rútínu hjá mér, og líka það að öll þessi beð byggði ég upp sjálf og þekkti inn að hjartarótum. Undrast samt að þetta skuli ganga svona því í minni tíð voru öll sumarblóm komin niður fyrir 17 júní. En nýjir siðir koma með nýjum herrum... eða þannig.
Merkilegt nokk þá skammast ég mín ekki fyrir bæinn minn, því túlípanarnir sem ég skildi eftir í fyrra hafa bjargað því sem bjargað varð, sem og plönturnar sem ég hef gróðursett, þannig að þetta virkar allt saman vel, enn sem komið er. Vona samt að bæjarbúar láti í sér heyra og finna að ef þeir eru ósáttir við ný vinnubrögð. Það er nefnilega eina aðhaldið sem yfirvöld hafa til að gera betur að finna að bæjarbúar fylgist með og vilji fallegra umhverfi.
En það eru önnur atriði sem ég dauðskammast mín fyrir. Eitt af því er aðbúnaður flóttamanna sem hingað koma í leit að aðstoð. http://www.dv.is/frettir/2011/6/24/forstodumadur-gistiheimilisins-fit-segir-flottafolk-dekrad/
HVernig stendur á að maður með slíka fordóma fær samning frá ríkinu um að hafa umsjón með flóttamönnum. Ég get ekki orða bundist yfir þvílíkri smán að þessi maður með sinn "skilning" á málefnum flóttafólks skuli fá að hafa þá í sinni umsjá. Það er allt eftir einu. Von að mál gangi hægt og erfiðlega fyrir sig, og að blessað fólki leiðist út í sjálfsmorð og angistarúrræði, þegar þau finna að fólkið sem á að hjálpa er gjörsamlega hjartalaust.
Hér þarf að rippa upp og skoða málin betur, fá nýtt fólk inn, sem hefur skilning og nægan kærleika til að breyta þessu helvíti.... Ég skammast mín ofan í tær, og jafnvel lengra.
Og svo þetta!
http://www.dv.is/frettir/2011/6/24/utlendingar-borga-meira-tvofalt-i-blaa-lonid/
'Eg fór fyrir mörgum árum til Kúpu, þar uppgötvaði ég að til voru tvennskonar verð. Verð fyrir innfædda og svo verð fyrir útlendinga. Mér fannst þetta rosalega hallærislegt, eða í besta falli broslegt, en skildi þó að Kúpa er fátækt land og þeir þurftu að lifa af. Þar voru hótel og strandir lokuð af bara fyrir ferðamenn, og fólk sem vann á hótelunum og ströndunum var með sérstakan passa til að komast í vinnuna.
Svo les maður svona, og ekki bara les, frænka mín bróðurdóttir sem býr í Þýskalandi kom í heimsók um daginn með 5 þýska vini sína og vinnufélaga. Þau fóru í Bláa Lónið og viti menn, meðan hún þurfti að borga eitthvað um 195o kall þurftu hin að borga um 4.800. Og þau krakka greyin héldu að þetta væri bara svona, komu hingað vestur og fóru með flugvél til Fljótavíkur í nokkurra daga dvöl, og héldu að þau þyrftu að borga hærra verð fyrir sætin í flugvélinni in íslenska vinkona þeirra. Og Guð veit að ég svoleiðis hundskammast mín fyrir að vera íslendingur þegar ég heyri svona og sé og les. Hvað er að þessum gaur þarna í Bláa Lóninu. Og nú þegar hefur komið í ljós að Landsbankinn á hlut í þessu batteríi, skora ég á hann að gangast fyrir því að þessu verði hætt, og allir borgi sama verð. Þetta er nefnilega óþolandi mismunun og svo skammarlegt að flestir íslendingar ganga með hauspoka af skömm yfir þessu.
Mér finnst líka rosalega hallærislegt að þurfa að standa í harðri samkeppni við ríkisfyrirtæki sem heitir Húsasmiðjan og Blómaval. Daginn sem ég opnaði mína sölu, settu þau blómin á útsölu. Þetta er í dag ríkisfyrirtæki og þar sem það ætti að vera keppikefli ríkisins að hlú að fyrirtækjum úti á landi, þá finnst mér hallærislegt að þurfa að standa í því að ríkisrekið fyrirtæki með allt sitt á hreinu geti staðið í því að reyna að drepa mig niður. Ég á mína föstu kúnna sem koma bara til mín, og þau segja mér að plönturnar sem eru seldar þarna séu druslur. Samt sem áður þá veit ég að fullt af fólki fer þangað til að kaupa af ríkinu, en hvað svo, ef þeim tekst að koma því þannig fyrir að ég nenni þessu ekki lengur, ætli þeir setji þá plönturnar á "tilboð"? Þá þarf ekki að keppa við neinn, þá sitja þeir einir að markaðinum og allur gróðin fer suður.
Þetta er einfaldlega rangt og röng skila boð. En auðvitað í samræmi við þessa "velferðarríkisstjórn", sem allt vill gera til að koma öllu apparati til Reykjavíkur.
Svona er lífið í dag elskurnar. Fólk hefur verið að ráðleggja mér að fara niður á torg og selja þaðan, en ég er bara gömul og lúin, og hef gaman af að hlú að gróðri og svo sannarlega eru blómin mín flott og fjölbreytileg. Þau eru alin upp í kærleika og ást og eru þess vegna harðgerðari fyrir vikið.
En svona er þetta bara, við þurfum víst að aðlaga okkur að þessum tímum, en við þurfum samt ekki að gefast upp eða láta reka á reiðanum. Það koma dagar og koma ráð, og ég hef þá trú að þeir sem spila falskt fái makleg málagjöld. Hvergi í veröldinni hefur það borgað sig til lengri tíma litið að falsa og flagða. Heiðarleikinn skilar sér alltaf til baka að lokum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Bloggfærslur 26. júní 2011
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.10.): 0
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 45
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 36
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar