Sautjándi Júní má bjóða ykkur til Hrafnseyrar?

Sautjándi júní.  Hrafnseyri við Dýra... nei ég meina Arnarfjörð Wink  Það var gott veður en ansi kalt.  En þar var margmenni og vegleg veisluhöld til minningar um okka þjóðhetju Jón Sigurðsson. IMG_1950

Reyndar vona ég að ráðamenn Íslands hafi þurft að aka yfir Hrafnseyrarheiðina, því hún er ógnvænleg og ef einhversstaðar þyrfti nauðsynlega að gera göng, þá væri það undir þessa hrikalegu heiði, og það er ekki svo löng leið einu sinni undir hana.

IMG_1952

Lögreglan var á staðnum í sínu besta pússi og voru þar mest til að heiðra staðinn og fólkið.

IMG_1954

Hér var búið að reisa tjöld og svið.  Hérna í tjaldinu næst okkur voru sölubásar með allskona gripi sem heimamenn hafa gert, og einnig fyrstadagsfrímerki til heiðurs Jóni Sigurðssyni.  Sum voru stimpluð í Reykjavík en flestir vildu fá sín umslög stimpluð hér frá Hrafnseyri. 

IMG_1957

Allt klárt fyrir gestina þ.e. okkur öll.

IMG_1958

Sölutjaldið var vinsælt, sér í lagi fyrstadagsumslögin, sem örugglega verða verðmæt með tímanum.

IMG_1959

Sölukonur voru að sjálfsögðu í íslenskum búningum og glæsilegar, hér er listakonan Billa, sem er fjölhæf og frábær.

IMG_1960

Og ég keypti mér auðvitað umslög og fékk réttan stimpil. 

IMG_1962

Hrafnseyrarbærinn þar sem Jón Sigurðsson fæddist.

IMG_1964

Inn í stofu á bænum var verið að gera fjallkonuna klára í slaginn.

IMG_1966

Við erum svo heppin hér fyrir vestan að hér er gríðarlega sterkt þjóðbúningafélag, sem saumar þjóðbúninga bæði á sig og aðra. Ég fyllist stolti að sjá hve frábærar þessar konur eru.

IMG_1967

Hér sitja þær við sauma, systir mín er ein af þessum frábæru duglegu konum og hefur saumað nokkra búninga á vini og vandamenn.  Ég öfunda þær af þessu, ef til vill fæ ég einhverntíman svona búning.  Tounge

IMG_1968

ef til vill ætti ég að byrja að safna mér silfri og svoleiðis, svo kæmi hitt á eftir.

IMG_1969

Fallegt ekki satt?

IMG_1970

Krakkarnir fengu svo að fara í smáreiðtúra á íslenska hestinum.

IMG_1976

Jamm þetta er frábært, svo eiga sumar þeirra líka svona víkingabúninga, sér í lagi Þingeyringar.

IMG_1977

Hér gat fólk keypt sér vöflur og rjóma með kakói eða kaffi.

IMG_1979

Og fólk er farið að tínast á staðinn.

IMG_1980

Kunningjar frá síðasta ári.  Þau eru þýsk minnir mig, en hafa starfað hér á landi og búa núna í Noregsi. 

Annars var það svo þarna með stólana að gamalt og lasburða, fótalaust fólk hafði sest þarna niður til að hvíla sig.  Þegar svo fyrirfólkið allt fullfrískt kom, þá var þetta gamla lasburða fólk vinsamlegast beðið um að standa upp og fara. Smile Eg er ekki ALVEG viss um að það hafi verið í anda Jóns Sigurðssonar.

IMG_1981

Þarna voru margir og allir prúðir og áttu góða stund saman.

IMG_1984

Lúðrasveit tónlistaskóla Ísafjarðar byrjaði með nokkrum ættjarðarlögum.

IMG_1987

Hátíðarstemning. Nema að það var ekki rigning og lúðrasveitinn var ekki fölsk heldur þvert á móti.

IMG_1988

Forsetinn kom og heilsaði fólkinu hlýlega.

IMG_1991

Kynnirinn var ung og fönguleg mær.

IMG_1992

Forsætisráðherra setur hátíðina.

IMG_1993

Forsætisráðherran fluttu opnunarræðu og var vel fagnað þegar hún tilkynnti um menntasetur og sérstaka prófersorsstöðu sem ætti að sinna skráningu og rannsóknum á starfi og ævi Jóns Sigurðssonar, og svo auðvitað týpiskt að háskólageirinn er strax byrjaður að mótmæla því að staðan verði hér fyrir vestan, þeir vilja auðvitað hafa hana í Reykavík.... nema hvað.

Forseta vorum mæltist líka vel og lagði hann mikla áherslu á sjálfstæðisbaráttu Jóns og hve mikið hann gerði í því að við yrðum sjálfstæð þjóð, svona óbeint skot nei reyndar alveg hárbeitt skot á núverandi stjórn með alla sína ESB drauma.

IMG_1989

Mér finnst forsetafrúin okkar afskaplega falleg og yndæl, ég vona bara að hún hafi ekki hætt að ganga í sínum vel tilhlýðilega skautbúningi út af einhverjum kerlingum sem voru að pípa yfir því að hún hefði klætt sig ósiðsamlega með bónda sínum við setningu Alþingis, með því að klæðast þessum fegursta þjóðbúningi okkar.  Dorrit mín, þú er svo vel að þessum fallega búningi komin. Heart

IMG_1995

Svo var flutt kveðja frá Vesturíslendingum og sagt frá þjóðhátíðarsiðum þeirra og að stytta, afsteypa af styttu Jóns Sigurðssonar á Austurvelli væri staðsett í Manitoba og að hún snéri í austur þ.e. hann horfði til síns elskaða lands.

IMG_1996

ég rakst líka á einn afskaplega áhugasaman ljósmyndaraCool

IMG_1998

Hér fer svo fjallkonan.

IMG_2003

Bíður eftir að komast að. 

IMG_2004

Elvar Logi einn af okkar bestu leikurum hér vestra.  Fór með einleik um Jón Sigurðsson, átján ára að fara að heiman.

IMG_2008

Við eigum afar marga góða listamenn hér fyrir Vestan, enda er Ísafjörður einn mesti listamannabær landsins.

IMG_2010

Frú Sólveig Pétursdóttir, formaður þjóðhátíðarnefndar, reyndar er hún systir Grétars hennar Þóru frænku minnar sem var hér hjá mér í fyrradag.

IMG_2011

Meðan Dorrit brá sér frá settist lítið kríli í stólinn hennar, sjáiði blíðuna sem skín úr svip hennar, þegar hún biður barnið um að leyfa sér að sitja.  Það endaði svo með því að Ólafur tók barnið á hné sér svo hún gæti sest, og sú litla undi sér vel á kné forsetans og bara tottaði sína snuddu alveg laus við snobb. LoL

IMG_2012

Jón Sigurðsson stígur fram glæsilegur.

IMG_2015

Pétur minn kæri vinur, ég tók samt eftir því þegar þú tókst í hendur fyrirmennanna, að þú slepptir litlu telpunum sem voru búnar að koma sér þarna fyrir.  Ætli Jón hefði nú ekki tekið í hendur þeirra líka.

IMG_2016

Karlakórinn Ernir söng Brimlending sterkt og vel.

IMG_2018

Diddú og Björgvin Halldórsson komu líka fram, hér eru þau baksviðs með Þóri Baldurssyni og fleiri góðum.

IMG_2019

Flottu karlarnir okkar.

IMG_2021

Ásamt Björgvini Halldórssyni

IMG_2029

Og Diddú.

IMG_2023

Ef til vill hefði fólkið notið alveg eins vel að hlusta á BG og Ingibjörgu syngja Mín innsta þrá.

IMG_2037

En þetta var samt rosaflott.

IMG_2041

Eiríkur Finnur Greipsson lauk svo hátíðinni, hann er formaður Hrafnseyrarnefndar.

IMG_2046

Eins og sjá má var margt um manninn á Hrafnseyri í dag.

IMG_2048

Sem betur fer var líka veðrið skaplegt. 

IMG_2042

Svo getur maður rekist á kynlega kvisti hér og þar.

IMG_2043

Mér skilst að "hún" heiti Málfríður LoL

IMG_2045

Svo er það náttúrulega fræga fólkið.

IMG_2050

Og svo þeir sem láta mynda sig með fræga fólkinu LoL

IMG_2052

Einhvernveginn held ég að það sé ekkert voðalega skemmtilegt að vera í klíkunni, þá verður maður að "haga" sér.

IMG_2053

Svo er Ólína alltaf glæsileg kona.  Og Sigurður maðurinn hennar er sagnfræðingur og var að gefa út áhugaverða bók um sögu verkalýðs á Vestfjörðum, gríðarlega yfirgripsmikill og það er örugglega hægt að panta eintak hjá honum, vel þess virði fyrir gamla brottflutta að lesa hana.

IMG_2054

Vestfirskar valkyrjur.

IMG_2055

Blómsveigur að steini og lágmynd af Jóni Sigurðssyni.

IMG_2060

Fjallkonan fríð með fæðingarstað Jóns í bakgrunni.

IMG_2070

Hvað er þjóðlegra en glæsikonur í íslenskri sveit?

Nú er þessi frábæri dagur á enda, en ég segi samt TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN!

 

 

 


Bloggfærslur 18. júní 2011

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.6.): 3
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 36
  • Frá upphafi: 2023337

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband