Jóróvisjón, vinir Sjonna og fjölskylda.

Það var frábært að við skyldum komast upp úr forkeppninni.  Það var út af einlægninni og reyndar sögunni um listamanninn sem lést í miðjum draumi.  Sumir hafa sagt að það sé vegna samúðar sem þetta lag fór út.  Það getur svo sem vel verið, ég hafði kosið annað lag, þetta með Jóhönnu Guðrúnu, einkar fallegt og vel sungið.  En ég sætti mig alveg við að einmitt þetta lag var valið.  Samúð er falleg hugsun, og hún á alveg jafnmikinn rétt á sér og annað fegurðarskin.  Það er því ekkert niðurlægjandi við að lagið hafi komist áfram út af samúð. 

Það er einmitt það sem vantar svo oft í mannleg samskipti það er samúð og kærleikur.  Hér var hún í sinni tærustu mynd, bæði að heiðra látinn eiginmann og vin, með því að bera áfram hans hjartans ósk um að fá að fara og keppa í júróvisjón. 

Fyrir suma kann þetta að virðast hjómið eitt.   En svo eru aðrir sem skilja að það er gott að sjá drauma sína rætast.   Og ekki síður að ef maður getur ekki sjálfur látið drauminn rætast að bestu vinir og ástvinir beri drauminn áfram og slái í gegn.  Það er frábært. 

eurovision_png_455x350_sharpen_q95

Það er einmitt þessi einlægni og væntumþykja sem mér finnst svo falleg.  Og þau eru ekki að vænta neins frekar en bara að hafa fengið tækifæri til að komast í aðalkeppnina.

Ég ætla að hlusta á morgun, og ég ætla svo sannarlega að fylgjast með á laugardaginn og krossa fingur og tær fyrir okkar fólk.  Og ef þau vinna á einlægninni og kærleikanum þá er það viss sigur fyrir okkur sem viljum betri heim.

Ég hélt satt að segja þegar bara eitt land var eftir að Noregur myndi vinna, þó hugsaði ég með mér að þau lönd sem höfðu þegar komist í undanúrslit eins og finnska lagið og ballaðan frá man ekki hvaða landi, að þá væri líka von fyrir okkar fólk, og svo fór. 

Ég var stödd í Osló þegar keppnin fór fram þar.  Við höfðum öll á tilfinningunni að lagið hefði þegar verið valið.  En þarna voru að minnsta kosti tvö lög sem mér fannst miklu betri.  Ungir krakkar frá norður Noregi Samar, og flott söngkona með yndislega ballöðu.  Svona eftir á að hyggja tel ég að bæði þau lög hefðu átt meiri frama von en lagið hennar Stellu.

Því eru sennilega vonbrigði norðmanna því meiri ef þeir hafa glapist á að koma þessari skutlu að á kostnað annara. 

Ég er farin að hafa smá von um að almenningur sé farin að skynja það hreina, einlæga og góða.  Og taka það fram yfir sjófið og gellustæla og strákastæla.  Þetta einlæga og fallega er sem betur fer farið að skila sér betur, og það er tákn um betri tíma og þroska fólks, segi og skrifa. 

Vinir Sjonna og fjölskylda ég ætla að vona að þið komist sem lengst á laugardaginn.  Þarna er falleg hugsun á ferð sem á algjörlega rétt á sér.  Gangi ykkur vel og ég mun hvetja ykkur í huganum fyrir framan sjónvarpið.  Heart


Bloggfærslur 12. maí 2011

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 35
  • Frá upphafi: 2023336

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband